Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 46
46 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Jólagjafir
sem gleðja
www.sveinbjorg.is
Sölustaðir
Höfuðborgarsvæðið
Epal
Kraum
Hrím
Dúka
Garðheimar
18 rauðar rósir
Þjóðminjasafnið
Hönnunarsafn Íslands
Norræna húsið
Valfoss
Norðurland
Svartfugl og hvítspói
Pottar og prik
Eymundsson
Kista í Hofi
Listfléttan
Sirka
Blómabúð Akureyrar
Vogafjós Mývatni
Vesturland
Eymundsson Ísafirði
@ Home Akranesi
Austurland
Krummakaup
Neskaupsstað
Húsgagnaval
Höfn í Hornafirði
Suðurland
Motívo Selfossi
Hrund Ólafsvík
Enika Grindavík
Póley Vestmannaeyjum
Epal Flugstöð
Leifs Eríkssonar
NÝ VARA
Krummateppi
Þrotabú bank-
anna hafa sérstök
forréttindi, þau
þurfa ekki að skila
inn þeim gjaldeyri
sem þau afla eins og
allir aðrir lögaðilar á
Íslandi. Þessi for-
réttindi þarf að af-
nema strax. Alþingi
varð ekki við ósk
Seðlabanka Íslands
um afnám forréttinda þrotabúanna
og tók út ákvæði um afnám þessara
forréttinda í lögum sem voru sam-
þykkt hinn 12. mars síðastliðin.
Hvort sem þrotabú föllnu bank-
anna verða gerð upp með slitum eða
nauðasamningum þarf að afnema
þessi forréttindi. Með því fæst það
fram að þrotabúin verði gerð upp í
íslenskum krónum eins og öll önnur
þrotabú. Þrotabúin skili inn öllum
gjaldeyri sem þau fái sem er áætlað
að nemi um 1.800 milljörðum eða
hærri upphæð ef heimtur verða
góðar. Kröfuhafar fái greitt í krón-
um inn á „innlenda gjaldeyrisreikn-
inga“ og geti keypt gjaldeyri eins og
aðrir eigendur „innlends gjaldeyris“
á 250 kr. evru, þessi verðmiðun hef-
ur komið fram í gjaldeyrisútboðum
SÍ.
Ekki er hægt að draga það að
koma á skilaskyldu og ákveða að
skattleggja kröfueigendur því að
slitastjórn Kaupþings hefur lagt
fram beiðni til SÍ um samþykki fyr-
ir nauðasamning. Fái þrotabúin að
ráðstafa þessari upphæð sem er
svipuð og verðmæti allra
fasteigna í Reykjavík,
myndi það færa yfirráð
yfir mestöllum íslenskum
atvinnurekstri til útlend-
inga. Í grein eftir
Tryggva Þór Herberts-
son í Morgunblaðinu
laugardaginn 17. nóv-
ember eru þessari vá
gerð góð skil.
Á fundi hjá Við-
skiptaráði föstudaginn
16. nóvember flutti Már
Guðmundsson seðla-
bankastjóri erindi þar sem hann
birti samantekt sem staðfesti að
snjóhengjan er hærri en áður hefur
komið fram hjá SÍ. Már bjó til nýtt
hugtak sem er „kvik snjóhengja“,
það er að segja sá hluti snjóhengj-
unnar sem er laus, um helmingur og
myndi sennilega fara strax úr landi.
Á fundi síðasta föstudag hjá Fé-
lagi viðskiptafræðinga og hagfræð-
inga ræddi Illugi Gunnarsson um
snjóhengjuna, þar kom fram mat
hans að erlendu kröfuhafarnir
myndu sætta sig við allt að 40% af-
föll.
Um 2/3 af skuldum ríkissjóðs
koma til vegna hrunsins og gjald-
þrota bankanna. Eðlilegt er að
skattleggja kröfuhafana til að taka
sanngjarnan þátt í þessum kostnaði
samfélagsins út af hruninu.
Rétt er að taka það fram, fyrir þá
sem hafa mikla samúð með erlendu
vogunarsjóðunum sem eiga mest af
kröfunum á þrotabú bankanna að
vogunarsjóðirnir eru bandarískir og
samkvæmt bandarískum lögum
geta þeir dregið frá skatta sem þeir
fengju á sig frá bandarískum skött-
um á tekjum sínum á þessum ís-
lenska snúningi sínum. Skattar
lagðir á þessi viðskipti þeirra hér
munu ekki kosta þá neitt, eða lítið
miðað við hagnað þeirra. Í góðri
grein í Fréttablaðinu laugardaginn
17. nóvember er fjallað um þessa
aðila.
Lagt er til eftirfarandi:
Gera þrotabú gömlu bankanna
eingöngu upp í íslenskum krónum, í
formi „innlends gjaldeyris“, eins og
lög um gjaldþrot kveða á um. Setja
skilaskyldu á allan gjaldeyri sem
þrotabú gömlu bankanna eignast.
Skattleggja 20% (íslenska ríkið
skattleggi sem útgönguskatt) allar
þessar íslensku krónur sem eru í
formi innlends gjaldeyris (bæði það
sem kemur úr þrotabúunum og það
sem var fyrir frá vaxtamuna-
viðskiptunum). Greiða öllum eig-
endum „innlends gjaldeyris“ í er-
lendum gjaldeyri á
viðmiðunargenginu fyrir evru 250
ísk.
Gjaldþrota bankarnir eru ýmist
búnir að greiða eða komnir vel á
veg með að greiða forgangskröfur,
allt í gjaldeyri. Nú er stutt í að þeir
fari að greiða út fé til annarra
kröfuhafa sinna. Miðað við þær til-
lögur sem koma fram hér á undan
fengju eigendur almennu krafnanna
á þrotabú gömlu bankanna gert upp
við sig með þeim gjaldeyri sem er til
skiptanna frá þrotabúunum eða um
1.800 milljarða. Mismuninn um
1.000 milljarða, innlenda gjaldeyr-
inn, fengi íslenska ríkið í formi
skatta og gengishagnaðar. Það má
alveg rökstyðja að íslenska ríkið
fengi líka hluta af gjaldeyrinum.
Gjaldþrot bankakerfisins kostaði
ríkissjóð um 1.000 milljarða, ís-
lenskt atvinnulíf og almenningur
töpuðu verulegum upphæðum og
fengu á sig um 40% verðbólguskot.
Hluthafar gömlu bankanna töpuðu
öllu hlutafénu og þeir sem lánuðu
gömlu bönkunum fé tapa hluta af
lánum sínum.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ítrek-
aði hinn 28. september í minn-
isblaði, hve stórt vandamál snjó-
hengjan væri. AGS benti á að það
væri vont hve hægt hefði gengið að
leysa þetta vandamál. AGS áréttaði
þær tillögur sínar að gera upp allar
kröfur í ISK, setja hátt gengi á þær
evrur sem væru notaðar til að borga
með þennan innlenda gjaldeyri auk
þess að það væri kominn tími til að
setja líka á útgönguskatt á þessar
eignir í innlendum gjaldeyri.
Reyndar leggur AGS til að eig-
endum „innlends gjaldeyris“ sé
borgað með löngum ríkisskulda-
bréfum í evrum. Allar þessar að-
gerðir væru skilyrði fyrir að það
væri hægt að koma fjármálum rík-
isins í ásættanlegt horf. Er ekki
kominn tími til og rétt að fara að til-
lögum AGS og vinna þetta út frá ís-
lenskum hagsmunum? Annars sitj-
um við uppi með alvarlegt vandamál
sem er að gjaldeyristekjur okkar í
framtíðinni munu aldrei duga til að
borga þessar skuldir einkaaðila.
Þrotabú bankanna
og kvika snjóhengjan
Eftir Holberg
Másson
Holberg Másson
» Þrotabú bankanna
eru með sérstök for-
réttindi, þau þurfa ekki
að skila inn þeim gjald-
eyri sem þau afla. Þessi
forréttindi þarf að af-
nema strax.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Þrotabúin
Eignir skilanefndanna, kröfur þeirra á innlenda og erlenda aðila og útgreiðslur þrota-
búanna. Metið í október 2012 í kjölfar árshlutauppgjöra, byggt á kröfuhafaskrám.
a) Innstæður í erlendum gjaldmiðlum. b) Hlutfall af þessum kröfum er á aðila sem
hafa að hluta tekjur í FX en ekki allt, einhver þrýstingur á gengi. c) Nýjar aflandskrón-
ur, þrýstingur á gengi. d) Óvíst hvort kröfuhafar skipti í ISK. e)Mögulegur þrýstingur
á gengi, fer eftir því í hvaða gjaldmiðli er greitt fyrir eignarhlutina.
Heimild: Seðlabanki Íslands
Kröfur á
innlenda
aðila
Kröfur á
erlenda
aðila
Innlendir kröfuhafar Erlendir kröfuhafar
Eignir föllnu
bankanna
222
222
500
56 erl. innst.a)
444 aðrar
kröfurb)
1.584
1.584
Í ISK
Í FX
ISK
FX
ISK
FX
ISK
222
ISK
238
FX
2.084
5%
95%
7%
93%
17
221e)
106d) 1.978
221c)1195%
5%
Ei
gi
ð
fé
In
ns
tæ
ðu
ro
g
kr
öf
ur
FX
Fréttir hafa birst
bæði í vísi.is og á mbl.is
um að lífræn matvæli
séu ekki hollari en
hefðbundin matvæli.
Þó er bent á þær nið-
urstöður sem vitnað er
í, að miklu minna af
skordýraeitri finnst í
lífrænum matvælum
en þeim hefðbundnu,
sem skiptir í raun og
veru mjög miklu máli. Um var að
ræða aðeins tveggja ára rannsókn
um næringargildi tiltekinna mat-
væla og tekur þar af leiðandi ekki til
greina hugsanlega langtíma afleið-
ingu á t.d. neyslu á skordýraeitri
(rannsókn á vegum Stanford-
háskólans). Það má kannski líkja því
við rannsókn á reykingum, ef rann-
sókn næði aðeins til tveggja ára, þá
er kannski ekki svo óhollt að reykja,
en til langs tíma, það þarf ekki að
spyrja að því í dag. Þannig að það er
stór galli á rannsókn sem er að bera
saman matvæli sem spannar aðeins
tvö ár.
Lífrænir framleiðendur hafa ekki
haldið því fram að næringartaflan sé
eitthvað öðruvísi í lífrænum mat-
vælum en hefðbundnum nema að
litlu leyti. Þar sem undirritaður
starfar í lífrænni mjólkurvinnslu, þá
get ég tekið eitt lítið dæmi, en skipt-
ir þó miklu máli hvað varðar hollustu
vörunnar. Lífræn mjólk inniheldur
að jafnaði mun meira af E-vítamíni,
andoxunarefnum og Omega-3 fitu-
sýrum en önnur mjólk, en skortur á
Omega-3 er einmitt stór vandi í vest-
rænum heimi, þar sem neysla af
Omega 6 fitusýrum er allt of mikil í
hlutfalli við Omega-3.
En um hvað snýst lífræn fram-
leiðsla? Hún snýst ekki um að nær-
ingartaflan sé eitthvað öðruvísi,
heldur að lífrænar af-
urðir eru framleiddar í
sátt við dýrin og um-
hverfið. Í lífrænum
vörum fer saman ör-
yggi, hreinleiki, mikil
bragðgæði og fjölþætt
næringarsamsetning.
Lífræn matvæli eru
framleidd án eiturefna
og tilbúins áburðar
(sparar gjaldeyri fyrir
þjóðarbúið í leiðinni).
Með því að kaupa líf-
rænar vörur hvetur þú
til skynsamlegrar landnýtingar og
gróðurverndar. Lífrænar aðferðir
draga úr hættu á ýmiss konar meng-
un í matvælum. Í lífrænni ræktun
eru ekki notaðar aðferðir og efni
sem eru náttúrunni og líkama okkar
framandi. Lífrænar búfjárafurðir
eru framleiddar með góðri meðferð
dýra og náttúrulegum fóðurefnum
og án hormóna. Erfðabreytt efni eru
bönnuð í lífrænni framleiðslu. Við
vinnslu og meðferð er lífrænum
vörum haldið aðgreindum frá öðrum
vörum og notkun íblöndunarefna er
haldið innan strangra marka. Að
einblína eingöngu á næring-
arefnainnihald er mikil einföldun á
flóknu máli sem allir ættu að láta sig
varða.
En það mikilvægasta fyrir mitt
fyrirtæki er að bjóða bragðgóða og
holla vöru sem neytendur velja frek-
ar en eitthvað annað.
Umræða um lífræn
matvæli á villigötum
Eftir Sverri Örn
Gunnarsson
» Í lífrænum vörum
fer saman öryggi,
hreinleiki, mikil bragð-
gæði og fjölþætt nær-
ingarsamsetning.
Sverrir Örn Gunnarsson
Höfundur er markaðsstjóri
hjá Biobú ehf. sem framleiðir
lífrænar mjólkurvörur.