Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 66
66 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Viðskiptavinir Kjaran
eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga
það sameiginlegt að
gera kröfur um gæði
og góða þjónustu.
bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki
bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum.
Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem
prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit.
Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft
ekki annað tæki en bizhub C35.
Verð: 379.900 kr.
Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert að velta fyrir þér flutningum
eða breytingum á einhvern hátt. Gildismat
þitt er ólíkt gildismati annarrar manneskju og
einhver þarf að gefa eftir.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú lífgar upp á tilfinningar þeirra sem
eru í kringum þig með glaðværð þinni. Samn-
ingaviðræður sem þú átt í taka að líkindum
nokkuð á. Ef þú tekur rétt á málum, þá snú-
ast þau þér í hag, því þú hefur verksvitið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það mun koma þér á óvart hversu
margir vilja hlýða á mál þitt. Viljirðu ná mál-
um fram af einhverju viti þarftu að sýna þol-
inmæði næstu vikurnar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er alltaf gaman að geta komið
öðrum á óvart, látið það eftir ykkur. Til að
nýta daginn sem best skaltu vakna fyrr en þú
gerir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú bregst við beiðnum eftir því hvaða
tónn er í þeim. Reyndu að koma í veg fyrir
rugling varðandi sameiginlegar eignir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Farðu með gát í öllu sem þú tekur þér
fyrir hendur í dag. Einstaklingur hefur eitt-
hvað mikilvægt að kenna þér og þú ert tilbú-
in/n til að læra eitthvað nýtt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér hefur tekist að koma fjármálunum í
rétt horf og hefur því efni á að verðlauna þig.
Eina mínútuna ertu að skipuleggja frí, þá
næstu vinnuferð. Reyndu að finna meiri frí-
tíma.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Dagurinn í dag er afleitur til að
samþykkja eitthvað mikilvægt eða að skrifa
undir samning. Mundu að þú þarft að hafa
fyrir góðum einkunnum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú munt hugsanlega kvarta und-
an foreldrum þínum í dag. Er nokkuð skrýtið
þó að einhver í fjölskyldunni sé að reyna að
slá þig um lán? Það ert þú sem hefur fjár-
málavitið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Til þín eru gerðar miklar kröfur og
auðvitað gerir þú þitt besta til að standa und-
ir þeim. Vertu glaður/glöð yfir því sem þú átt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhver orð, sem vinur lætur falla,
særa þig djúpt. Hví ekki að láta sérfræð-
ingana um verkið? Blind stefnumót eiga eftir
að ganga vel.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það eru ósköp litlar upplýsingar til um
áhugasvið þitt. Vertu viðbúin/n að grípa gæs-
ina þegar hún gefst.
Það lá vel á karlinum á Laugaveg-inum þegar ég sá hann. Hann
hafði verið á Jómfrúnni og fengið
sér staup af Aalborg Jule Akvavit og
raulaði gamla vísu eftir Lúðvík
Blöndal rímnaskáld, sem hann kvað
við kerlu sína:
Best er að drekka brennivín,
bindinu fleygja:
„Heyrirðu ekki heillin mín
hvað ég er að segja?“
Svo fór hann að tala um vinkonur
sínar, sem hann á margar, og sumar
pólitískar:
„Hér er ástandið eins og var spáð,
herra,“
sagði Eyrún og laut hennar náð, herra,
„ei á jarðríki hér
eins og auðskilið er
finnst annar eins forsætisráðherra!“
Síðan eins og alltaf þegar konur
ber á góma fer hann að horfa upp til
himins og síðan upp Skólavörðustíg-
inn og það er blíða í augum hans:
Vor mannkind svo hrakin og hrjáð, herra,
oft hefur í náttmyrkri áð, herra,
í holtinu þar
sem í kotinu hvar
er mín kerling, minn forsætisráðherra!
Og ósjálfrátt kemur upp í hugann
vísa úr Rubáiyat í þýðingu Skugga,
sem móðurbróðir minn Pétur Bene-
diktsson bankastjóri og alþing-
ismaður fór oft með:
Sögu eina segja vil ég þér
sem er ekki búin til af mér:
þar sem eitt sinn voldugt ríki var
villiasninn er nú kóngur þar.
Fyrir viku eða svo spurðist ég fyr-
ir um höfund að þrem vísum og hef-
ur einn komið í leitirnar:
Lífs míns sól fer lækkandi,
loks hún hverfur sýnum.
Fer nú óðum fækkandi
framhjátökum mínum.
Í vísnaþætti Jóns Gunnars Jóns-
sonar í Lesbókinni í maí 1980 er
þessa stöku að finna og er Ragnar
Ásgeirsson höfundurinn. Hann
þurfti starfa sinna vegna mjög að
ferðast út um land, meðal annars til
að halda námskeið fyrir bændur. Oft
lauk þeim með samsætum þar sem
hann var hrókur alls fagnaðar og
dansaði þá við konur og dætur
þeirra sem námskeiðin sóttu.
Skömmu eftir eina slíka ferð héldu
vinir hans honum samsæti fimm-
tugum. Þar voru vísur ortar og ræð-
ur fluttar og oft vikið að kvenhylli
afmælisbarnsins. Við það tækifæri
kastaði Ragnar fram þeirri vísu, sem
að ofan greinir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Mín kerling, minn
forsætisráðherra
Í klípu
Í ANNAÐ SKIPTIÐ ER SLAKAÐ
AÐEINS Á KRÖFUNUM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„JÁ, ÞEIR LÍTA VEL ÚT.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að bíða meðan hann
les íþróttasíðurnar.
OG EF ÞETTA GENGUR EKKI, LOFIÐ
ÞIÐ ÞÁ AÐ BAKTALA EKKI HVORT
ANNAÐ TIL ÆVILOKA?
AÐGANGUR
BANNAÐUR
EINKA-
LÓÐ
SNÁFIÐ
BURT!
ÞAÐ ER EITTHVAÐ
STÓRKOSTLEGT Á
NÆSTA LEITI!
ÉG ÆTLA EKKI AÐ RÁÐAST INN Í
ENGLAND FYRR EN ÉG FÆ MERKI.
GÓÐAR
FRÉTTIR!
MAMMA KEMUR Í HEIM-
SÓKN Á ÞRIÐJUDAGINN! ÞETTA ERMERKIÐ!
Síðustu daga í vinnunni hefur veriðstundaður svokallaður Leyni-
vinaleikur. Hann snýst um að gleðja
tiltekinn vinnufélaga á einhvern hátt
og færa honum eitthvað óvænt. Að
sjálfsögðu veit hann ekki hver leyni-
vinurinn er. Vissulega getur það ver-
ið krefjandi að finna út hvernig
gleðja eigi manneskju sem viðkom-
andi þekkir jafnvel ekki baun í bala.
x x x
Til þess er nú leikurinn gerður. Aðfá fólk til að kynnast og bregða á
leik. Koma á samskiptum sem undir
venjulegum kringumstæðum hefðu
varla orðið. Telur Víkverji að and-
rúmsloftið hafi verið léttara í skamm-
deginu í vinnunni. Tímapunkturinn
er góður því glaðningarnir hafa oftar
en ekki falist í einhvers konar jóla-
dóti og glingri.
x x x
Það var einstaklega gaman að sjábása karlkyns samstarfsmanna,
fagurlega skreytta með glimmer og
jóladóti. Leynivinirnir beitir ýmsum
brögðum til að villa á sér heimildir.
Láta jafnvel maka eða mæður sínar
skrifa skilaboð til leynivinar eða
plata starfsfélaga til að koma gjöf-
unum fyrir og annað í þeim dúr.
x x x
Víkverji lenti í því þegar hann varað koma glaðningnum fyrir að
þurfa nánast að henda honum á borð-
ið, skella á sig svartri hettunni og
hlaupa af stað svo ekki kæmist upp
um hann. Aðrir hafa séð leynivini sín-
um bregða fyrir í verslun og hraðað
sér út í snarhasti og haldið að leyni-
vinurinn hafi borið kennsl á þá.
x x x
Sá þáttur sem Víkverja hefur þóttmest spennandi er að reyna að
lesa í leynivininn, í sumum tilfellum
lesa um hann. Forvitnin nær þó há-
marki með því að leiða getum að því
hver standi á bak við pakkann á borði
Víkverja undanfarna morgna og
draga skynsamlega ályktun um hver
hann gæti verið. Kannski gleymir
Víkverji því að leynivinur hans hugs-
ar kannski ekki alveg eins og hann.
Þar af leiðandi skilur hann ekki endi-
lega ummerki eftir sig í hverjum
pakka – og þó! víkverji@mbl.is
Víkverji
Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn,
sannleikurinn og lífið. Enginn kemur
til föðurins nema fyrir mig.
(Jóhannesarguðspjall 14:6)