Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
LISTASAFN ÍSLANDS
Listasafn Reykjanesbæjar
ÁSÝND FJARSKANS
THE SHAPE OF YONDER
Þorbjörg Höskuldsdóttir
26. október – 16. desember
Bátasafn Gríms Karlssonar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Lauslega farið með staðreyndir
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
Hinumegin
Þuríður Rós Sigurþórsdóttir
Sunnudagur 25. nóvember
Listamannsspjall Þórunn Elísabet
Píanóleikur Gerrit Schuil
Hádegisleiðsagnir
Alla föstudaga kl. 12
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Gísli B.
Fimm áratugir í grafískri hönnun
Fjölskylduleiðsögn sunnud. kl. 14
Opið alla daga nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í andddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
24.-25. Nóvember
Sunnudagur 25. nóvember: Ókeypis leiðsögn kl. 14 um sýninguna
Fólkið á Þórsgötu - Skyndimyndir frá árunum 2004-2012
Síðasta sýningarhelgi á sýningunum:
Heimkoma – Hljóðfrásagnir af eyðibýlum á 3. Hæð
Jón í lit á Torgi
Aðrar fjölbreyttar sýningar:
Fólkið á Þórsgötu - Skyndimyndir frá árunum 2004-2012
Þvert yfir Grænlandsjökul 1912-1913
Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár
Teikning - þvert á tíma og tækni
Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky – 40 ár
Ratleikir fyrir fjölskyldur, safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17
REK; Anna Hallin & Olga Bergmann 10.11. - 31.12. 2012
VETRARBÚNINGUR 10.11.2012 – 31.1. 2013
Í ÖÐRU LJÓSI - þátttökugjörningur og listasmiðja fyrir börn og fullorðna
Laugardaginn 24. nóv. kl. 11-14
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN KL. 14 - Sigríður Melrós Ólafsdóttir deildarstjóri
HÆTTUMÖRK; Rúrí 19.5. – 31.12. 2012
SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort og gjafavara.
KAFFISTOFA - Heitar vöfflur, kaffi og kakó.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600. OPIÐ dagl. kl. 11-17, lokað mán.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UMHVERFIS LANDIÐ Á FÁEINUM ÁRATUGUM
FORNMENN - SUNNUDAGSLEIÐSÖGN KL. 15 - Eyrún Óskarsdóttir listfræðingur
Bergstaðastræti 74, sími 561 2914. Opið þri. til fim. kl. 11-14, sun. kl. 13-16
www.listasafn.is
SÝNINGARSALIR Í KJALLARA:
Sýningin „Lífið í Vatnsmýrinni“
5. sept. - 4. nóv. opið 12-17 alla daga, lokað mánudaga.
Á sýningunni er hægt að kynnast marglaga sögu Vatnsmýrarinnar. Hún er
hugsuð til að efla vitund um náttúruna inni í borginni og borgina í náttúrunni.
NÁTTÚRUSKÓLI NORRÆNA HÚSSINS
- fjölskyldudagskrá alla virka daga í sept. og okt. kl. 12-17, lokað mánudaga.
Ratleikur með spurningum og verkefnum
sem fjölskyldan leysir saman
Norræna húsið, Sturlugötu 5, s. 551 7030
www.norraenahusid.is , nh@nordice.is
Opið alla virka daga 9-17, helgar 12-17. Aðgangur ókeypis.
NORRÆNA HÚSIÐ
Söfn • Setur • Sýningar
TÓMIÐ
HORFIN VERK KRISTINS PÉTURSSONAR
Athugasemdir:
Hildigunnur Birgisdóttir
Huginn Þór Arason
Sólveig Aðalsteinsdóttir
Unnar Örn
Opið fimmtud.-sunnud. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
Þýski geislalæknirinn MartinMontag kynntist Lísu,ungri stúlku, er hann var ílæknanámi. Hann hefur
aldrei gleymt henni en sjálfur
burðast hann með svipaða lífs-
reynslu og ákveður að leita Lísu
uppi. Þeim var báðum misþyrmt á
barnsaldri af
sama níðingnum,
föður Lísu, sem
mörgum árum
síðar leitar lækn-
inga hjá Montag.
Fyrir Lísu er
sjálfstætt fram-
hald Jójó sem
kom út í fyrra.
Þar var líka
fjallað um Martin Montag, mann
sem af mörgum væri líklega sagður
njóta velgengni ýmissa hluta vegna.
En vegna atburða í æsku lifir hann
lífinu ekki nema til hálfs og hefur
fundið upp ýmsar aðferðir til að fást
við tilveruna.
Eftir samtal við besta vininn, hinn
franska og ofursjarmerandi Martin
Martinetti (sem heillaði margan les-
andann í Jójó), ákveður Martin Mon-
tag að taka málin í eigin hendur.
Hann hefur uppi á Lísu og við það
fer atburðarás í gang sem hefur
ófyrirsjáanlegar afleiðingar, farsa-
kennd á köflum og stundum grát-
brosleg. Til dæmis eru kynni hans af
geðlækninum Syropoulos óborg-
anleg.
Í nýlegu viðtali segir Steinunn að
barnaníð sé það versta sem hún hafi
getað hugsað sér að skrifa um. Fáir
hafa líklega orðað það betur hversu
skelfilegur glæpur það er en hinn
franski Martin gerir í Fyrir Lísu:
„Það að leggjast á börn er siðferð-
isbrestur á hæsta stigi. Þjóðfélags-
böl sem hefur verið leyft að grass-
era, í afneitun, af tómum aumingja-
skap og heigulshætti. Það á að
uppræta þetta. Með ölllum ráðum.“
(46)
Þetta er geysivel skrifuð bók, eins
og við var að búast. Texti Steinunnar
er meitlaður, hreinn og kristaltær
eins og endranær. Hvorki of né van.
Sem svo oft áður tekst Steinunni að
segja hjartnæma, áleitna og
skemmtilega sögu sem hreyfir við
lesandanum.
Fyrir Lísu er nefnilega alveg jafn-
áleitin bók og Jójó, en á allt annan
hátt. Þar vissi lesandinn ekki strax
hvað það var sem hrjáði Martin, en
nú hefur allt komið upp á yfirborðið
og Martin Montag þarf að takast á
við fortíðina til að geta lifað í nútíð-
inni.
En nú er best að kjafta ekki frá og
segja ekki of mikið og skemma þann-
ig fyrir tilvonandi lesendum, en bók-
in endar eins og maður myndi helst
vilja að öllum barnaníðsmálum lyki.
Morgunblaðið/Kristinn
Meitlað Texti Steinunnar er
meitlaður, hreinn og kristaltær,
segir í gagnrýni.
Geysigóð framhalds-
bók Steinunnar
Skáldsaga
Fyrir Lísu Eftir Steinunni Sigurðardóttur.
Bjartur 2012. 208 blaðsíður
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Við erum að heiðra Þorkel Sig-
urbjörnsson, þann mikla meistara,
með því að tileinka verkum eftir hann
loksins heila tónleika,“ segir Pétur
Jónasson gítarleikari og meðlimur
Caput-hópsins. Tónleikarnir verða í
Kaldalóni í Hörpu á sunnudag klukk-
an 17.
Á efnisskrá eru átta verk eftir Þor-
kel, samin á árabilinu 1969 til 1994.
Þetta eru einleiksverk, dúó, tríó og
einn kvartett. Alls koma tólf flytj-
endur við sögu.
Caput er að ljúka 25. starfsárinu og
hefur það 26. í janúar. Af því tilefni
verða þrennir tónleikar á næstu vik-
um. Fyrst þessir á sunnudag með
tónlist Þorkels, á föstudaginn kemur
verða tónleikar helgaðir verkum eftir
Atla Ingólfsson tónskáld og 5. janúar
verða flutt verk eftir sjö ung tón-
skáld.
Pétur segir ákveðið samhengi í efn-
isskrá þessara þrennra tónleika. „Í
grófum dráttum er það þannig að Atli
var nemandi Þorkels og síðan hafa
ungu tónskáldin öll verið nemendur
Atla, sem varð fimmtugur á dögunum
og hefur verið eitt af hirðskáldum Ca-
put frá upphafi,“ segir Pétur.
Þrjú verkanna frumflutt hér
„Það er næstum hægt að segja að
allir í Caput-hópnum hafi lært hjá
Þorkeli,“ segir Pétur. „Ekki er víst að
almenningur geri sér grein fyrir því
hvað Þorkell hefur verið mikilvirkur
kennari gegnum tíðina. Fyrrverandi
nemendur hans bera allir hlýjar
taugar til hans. Þorkell hefur haft
gríðarleg áhrif á íslenska samtíma-
tónlist og á íslenska tónlist almennt.
Auk kennslunnar hefur hann vita-
skuld verið mjög mikilvirkt tónskáld,
sem sannaðist best á því þegar farið
var að setja saman efnisskrána í sam-
ráði við hann. Þá var litið á mörg verk
sem eftir á að flytja á Íslandi og hafa
bara verið flutt erlendis.“
Þrjú verkanna verða frumflutt hér
á landi á tónleikunum og önnur hafa
ekki heyrst hér í allt að fjörutíu ár.
Aðeins eitt verkanna hefur heyrst
nokkuð oft. Verkin eru alls átta en
þau sem verða frumflutt hér eru: Níu
(samhverfar) rissur (1994) fyrir alt-
flautu, Hoquetur minor (1987) fyrir
sembal og slagverk og Music from
the Court of Thora (1990).
Mikilvirkur
Þorkell Sigurbjörnsson (f. 1938)
nam við Tónlistarskólann í Reykjavík
með píanóleik sem aðalgrein. Að
loknu prófi hér heima stundaði hann
framhaldsnám við Hamline-
háskólann í Minnesota og meist-
aranám við Illinois-háskóla. Auk þess
sótti hann námskeið í Þýskalandi,
Frakklandi og í Tanglewood í Banda-
ríkjunum. Þorkell var um skeið for-
maður Tónskáldafélags Íslands og
Bandalags íslenskra listamanna.
Hann starfaði um árabil við Musica
Nova og kenndi tónfræði og tón-
smíðar við Tónlistarskólann í Reykja-
vík og Listaháskóla Íslands.
Þorkell er eitt kunnasta og afkasta-
mesta tónskáld þjóðarinnar. Þekkt-
astur er hann fyrir sálmalög en hefur
samið allrahanda verk; meðal annars
hljómsveitarverk, óratoríu, barna-
óperur, konserta, strengjakvartetta
og kammeróperu.
„Þorkell hefur haft
gríðarleg áhrif“
Morgunblaðið/Frikki
Tónskáldið „Þorkell hefur haft gríðarleg áhrif á íslenska samtímatónlist og
á íslenska tónlist almennt,“ segir Pétur Jónasson um Þorkel Sigurbjörnsson.
Caput flytur átta verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson í Hörpu