Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 72
Fyrir þessi jól kemur út íburðar-
mikill, forláta (og ekki síst þungur)
kassi með öllum Bítlaplötunum – á ví-
nyl. Við erum farin að venjast þessu,
tónlist sem hugnast „barna-
sprengju“-kynslóðinni svokölluðu,
’68-kynslóðinni (fólk fætt ca ’40-’50),
sem er um leið fólkið með áhrif og
völd í dag og það vill fá sitt Bítlagarg
og engar refjar!
Eins og lög gera ráð fyrir er búið
að pússa upp hljóð og „vínylperrar“
munu geta dvalið í sjöunda himni inn-
an um þessa dásemdartónlist um jól-
in. Að auka hljómgæði er lenska í
þessum fræðum en sumir listamenn
ganga lengra. Hart var deilt á Frank
Zappa er hann endurútgáf nokkrar
plötur sínar með nýuppteknum
bassaleik. Fjörutíu ára afmæl-
isútgáfur af plötum The Doors inni-
halda í einhverjum tilfellum öðruvísi
hljóðblandanir á lögum sem við
þekkjum gjörla (mest áberandi á
„Break on Through“). Mike Scott,
leiðtogi Waterboys tók svona æfing-
ar enn lengra er plata sveitarinnar,
A Pagan Place, var endurútgefin ár-
ið 2002. Þar var búið að skipta út út-
gáfum af heilu lögunum og meira að
segja lögum bætt inn í upprunalegu
lagaröðina. Það segir sig því sjálft að
upprunalega listaverkið er breytt,
líkt og Leonardo Da Vinci kæmi með
tímavél inn í Louvre til að flikka að-
eins upp á Mónu Lísu.
Tilfinningaleg tengsl
Þessi „iðnaður“ og að þetta skuli
vera stundað yfir höfuð kallar fram
margar spurningar, góðar bæði og
gegnar. Sú augljósasta lýtur að rétti
listamannsins til að hrófa við eigin
verkum. Zappa sagði á sínum tíma:
„Þetta eru mín lög. Mér fannst
bassinn ekki góður í upprunalegu
lögunum. Ég ákvað að breyta honum
þess vegna.“ Gagnrýni aðdáenda var
hins vegar á þann veg að þeir hefðu
þróað tilfinningaleg tengsl við upp-
runalegu útgáfurnar sem verið væri
að hræra í með þessum gjörningi.
Því við getum spurt okkur: hvað
er það sem gefur verkunum á end-
anum gildi? Hafa Zappa eða Scott
óvefengjanlegan rétt á því að breyta
svona eftir á? Er ekki verið að svína
á ákveðnu sambandi listamanns og
neytanda? Listamaðurinn kemur
verkum sínum á framfæri og vill að
aðrir bregðist við (þó að Dylan og
fleiri viðhaldi þeirri skoðun sinni að
þeim sé alveg sama um hvað öðrum
finnst). Ég er ekki sammála þessu, í
grunninn sækist fólk alltaf eftir at-
hygli/viðurkenningu í einhverjum
mæli, list er ekki búin til í tómarúmi
og þetta á kannski sérstaklega við
um dægurlistir.
Hvar liggja völdin?
Mike Scott segir í greinarkorni
með endurútgáfu A Pagan Place að
hann hafi ávallt litið á þær útgáfur
sem honum var gert að setja ekki
inn á plötuna á sínum tíma sem hin-
ar einu og sönnu. Í viðtali við Paul
Rothchild, upptökustjóra Doors,
sagðist hann hafa sett inn í lögin
parta sem ekki var talið tilhlýðilegt
að hafa þar á sínum tíma, vegna
íhaldssemi forráðamanna útgáf-
unnar o.s.frv. Þetta er allt saman
gott og blessað en spurningarnar
vakna eins og enginn væri morg-
undagurinn.
Hefði ekki verið eðlilegra að setja
þessar breyttu útgáfur inn sem
aukalög og leyfa upprunalegu grip-
unum að standa? Eða hvað? Er eðli-
legt að fara svona aftur og breyta
verkinu, er eðli tónlistar kannski
slíkt að verkin eru eftir allt saman
ekki endanleg, þó að tónlistin hafi þó
verið þrykkt á plast á sínum tíma og
gefin þannig út. Mun þessi endur-
útgáfubransi, við getum jafnvel kall-
að hann endurhugsunarbransa,
flæða yfir á önnur listform, t.a.m.
bækur eða myndverk? Og hversu
mikil völd eiga listamennirnir að
hafa í þessum efnum, eru þeir ein-
faldlega ekki of tengdir verkunum
eftir allt saman? Með öðrum orðum,
hver ákveður hvaða útgáfa er „rétt“
og hver „röng“?
Jamm … smá heilafóður rétt fyrir
jólin …
Af „réttri“ tón-
list og „rangri“
» Það segir sig þvísjálft að upprunalega
listaverkið er breytt,
líkt og Leonardo Da
Vinci kæmi með tímavél
inn í Louvre til að flikka
aðeins upp á Mónu Lísu
Rétt/rangt A Pagan Place, 1984 (grænt umslag) og endurútgáfan frá 2002 (rautt umslag).
Við búum við sístækkandi markað
endurútgáfna og endurlita Í ein-
hverjum tilfellum er um að ræða nýjar
útgáfur af gamalkunnum lögum
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Listmálarinn Þrándur Þórarinsson
opnaði málverkasýningu á efstu
hæð Gamla bíós sl. helgi, í sk. Pét-
urssvítu. Helming verkanna málaði
Þrándur upp úr Snorra-Eddu og
koma goð norrænnar goðafræði því
mikið við sögu, m.a. í syrpu verka
um hvarf Iðunnar og æskuepla
hennar, eins og segir í tilkynningu.
„Í sem stystu máli má segja að hér
sé um að ræða goðsöguleg málverk
eins og meistarar ítölsku endur-
reisnarinnar gerðu, nema Venus og
Adonis er skipt út fyrir Gunnlöði og
Óðin,“ segir um sýninguna. Að öðru
leyti sæki Þrándur sér myndefni í
sögu og menningu Íslendinga og
m.a. bregði fyrir Eggerti Ólafssyni
og Bjarna Pálssyni. Þá eru tvær
myndir byggðar á verkum Gunn-
laugs Schevings, þ.e. „Þorskurinn
tekinn inn“ og „Hákarlinn dreginn
inn“. Einnig má sjá stórt verk af
Gúlíver í Putalandi en Putalandi
svipar í því til Reykjavíkur.
Endurreisnarstíll Frá sýningu
Þrándar Þórarinssonar í Gamla bíói.
Þrándur sækir í
Snorra-Eddu
J. A. Ó. - MBL
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
ÍSLENSKT TAL
NÁNAR Á MIÐI.IS
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 8 - 10.40 12
HERE COMES THE BOOM KL. 3.10 - 5.40 - 8 - 10.20
NIKO 2 KL. 1 (TILBOÐ) - 3 - 6 L
PITCH PERFECT KL. 5.30 - 8 12
HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 1 - 3.10 7
SKYFALL KL. 1 (TILBOÐ) - 5 - 8 - 10.30 12
SKYFALL LÚXUS KL. 1 - 5 - 8 12
TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 1 (TILBOÐ) L
–ROLLING STONE
-T.V. SÉÐ OG HEYRT
VIKAN
91% FRESH
ROTTENTOMATOES
8.2 IMDB
ANDRÉ RIEU: HOME FOR CHRISTMAS KL. 5* L
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 6.30 - 8 - 10.40 12
NIKO 2 KL. 3.20 (TILBOÐ) L
SNABBA CASH 2 KL. 8 - 10.15 16 / SKYFALL KL. 9.30 12
CLOUD ATLAS KL. 3 (TILBOÐ)** - 5.30 - 9 16
HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL.TEXTI KL. 3.20 (TILBOÐ) 7
DJÚPIÐ KL. 3.40 - 5.50** 10
THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10 *AÐEINS LAU **AÐEINS SUN
HERE COMES THE BOOM KL. 8 7
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.50 - 8 12
SNABBA CASH 2 KL. 10.15 16 / HOTEL TRANSYLVANIA KL. 4
PITCH PERFECT KL. 5.50 12 / SKYFALL KL. 10 12
NIKO 2 KL. 2 (TILB.) - 4 L / TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 2 (TILB.)
THE TWILIGHT SAGA - PART 2 Sýndkl.8-10:25
SILVER LININGS PLAYBOOK Sýndkl.8-10:25
NIKO 2: BRÆÐURNIR FLJÚGANDI Sýndkl.2-4-6
PITCH PERFECT Sýndkl.5:50-8
SKYFALL Sýndkl.10
WRECK-IT RALPH 3D Sýndkl.4-5:40
WRECK-IT RALPH 2D Sýndkl.2
TEDDI: TÝNDI LANDKÖNNUÐURINN Sýndkl.2-4
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
8,2
- IMDB
91% FRESH
- Rottentomatoes 80/100
,,Skilar því sem
óþreyjufullir aðdáendur voru
að bíða eftir.”
The Hollywood reporter
Boxoffice Magazine
80/100
Variety
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
12
12
12
12
ÍSL TAL
L
L
L
L
,,Sú besta í allri seríunni”
T.V - Kvikmyndir.is
,,Fyrsta flokks 007”
J.A.Ó - MBL
,,Þrælspennandi og skemmtileg
frá upphafi til enda”
H.V.A - FBL
Þ.Þ - FBL