Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2013, Blaðsíða 28
S
krifstofa Eyjafjarðarsveitar var á Syðra-Laugalandi
efra. Þegar ákveðið var að starfsemin flyttist að
Hrafnagili fyrir nokkrum misserum keyptu Kristín
Kolbeinsdóttir og Grettir bóndi hennar húsið, búa á
efri hæðinni en innréttuðu veitingastað á jarðhæð.
Kristín hefur aðhyllst grænmetisfæði að mestu leyti síð-
an 1996. Hún fór í Heilsumeistaraskólann fyrir nokkrum
árum og langaði að snúa sér að matargerð. Sá draumur
rættist; fjölskyldan keypti húsið vorið 2011 og grænmetis-
og hráfæðisveitingastaðurinn Silva var opnaður síðasta vor.
„Ég renndi alveg blint í sjóinn að opna svona stað úti í
sveit en undirtektir voru vonum framar og ég horfi björt-
um augum fram á veginn,“ sagði Kristín við Morgunblaðið.
Kristín segist bjóða upp á sambærilegan mat að mörgu
leyti og staðir af sama meiði fyrir
sunnan en leggur jafnvel meiri
áherslu á vegan-fæði. „Mjög margir nota egg eða mjólkurvörur en ég
reyni að forðast allar dýraafurðir eins og ég mögulega get.“
Kristín gefur hér uppskrift að dýrindis baunarétti og fleira góð-
gæti. Þeytinginn (sjeik, eða shake upp á ensku) segir hún afar
hollan – sjá myndina hér til hægri. „Líkaminn á mjög auðvelt
með að melta fæðuna í þessu formi og í einu litlu glasi fær fólk
mikla næringu. Með aldrinum minnkar geta líkamans til að
framleiða ensím og þess vegna er svo gott að borða hráan mat
því þá fullnýtir fólk ensímin úr honum.“ Þegar útbúið er hrá-
fæði er maturinn ekki eldaður við meira en 47-48 gráða hita.
Kristín bendir á ýmislegt sem fólki kann að þykja framandi.
„Það er t.d. mjög hollt og gott að borða fræ úr granateplum eða
graskersfræ sem snakk, og ódýrara en venjulegt snakk úr búð.“
Kristín er með síðu á Facebook: Silva hráfæði. Þar setur hún inn upp-
skriftir reglulega. Hún vekur athygli á að staðurinn er lokaður í janúar, frá 4.
febrúar tekur hún á móti hópum ef pantað er og Silva verður svo opinn alla daga
í sumar eins og í fyrra.
Baunarétturinn
bragðgóði sem
Kristín gefur
uppskrift að.
GRÆNMETIS- OG HRÁFÆÐISVEITINGASTAÐUR Í EYJAFJARÐARSVEIT
Ljúft á Laugalandi
KRISTÍN KOLBEINSDÓTTIR RENNDI BLINT Í SJÓINN ÞEGAR HÚN OPNAÐI
GRÆNMETIS- OG HRÁFÆÐISSTAÐ Í SVEITINNI SKAMMT FRÁ AKUREYRI.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Kristín Kolbeinsdóttir á veitingastaðnum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
*Matur og drykkir Hráfæði er herramannsmatur. Því fengu matargestir Sólveigar Eiríksdóttur að kynnast »30BAUNARÉTTUR3-4 skammtar1 saxaður laukur1 msk. rifið engifer2 pressuð hvítlauksrif1 msk. karríduft½ msk. cuminduft1 tsk. sinnepsduft
1/8 tsk. cayenne
3 bollar soðnar kjúklingabaunir
3 saxaðir tómatar og 2 dl af tómatpassatasósu
3 sellerístönglar í þunnum sneiðum
3 paprikur í strimlum – fallegt að velja 1 af hverjum lit
1 saxað epli epli
Salt eftir smekk hvers og eins
1 dós hrein jógúrt eða 1 dós kókosmjólk
Aðferð:
Laukur, engifer og hvítlaukur svissað í smávatni í potti í 8-10
mínútur.
Cumin-, sinnepsdufti, karríi og cayennepipar bætt út í og
hrært vel saman við. Baunir, paprika, sellerí, epli og tómatar sett
út í. Saltað eftir smekk. Látið malla í 10 mínútur, bætið þá jógúrt-
inni/kókosmjólkinni út í og látið malla áfram í 5 mínútur. Smakkið
aftur til með salti og jafnvel pipar ef vill.
Berið fram með góðu brauði og/eða fersku salati.
Gott ráð:
Setið laukinn, engiferið og hvítlaukinn í blandara ásamt smávatni og
maukið saman. Þá sleppið þið við að saxa, rífa og pressa.
SALAT
(magn eftir fjölda og smekk)
Lambhagasalat
Fræ innan úr granatepli
Saxað mangó
Ristuð sólblómafræ
Næringarger
RISTUÐ SÓLBLÓMA- EÐA GRASKERSFRÆ
1 bolli fræ
2 msk. tamarisósa
¼ tsk. cayenne pipar
¼ tsk. himalajasalt
Blandið öllu saman og látið það standa í 10 mínútur.
Dreifið vel úr fræjunum á ofnplötu og ristið í ofni í ca. 5 mínútur við 180°C.
KORNBRAUÐ
6 kökur
1 ½ bolli heilhveiti eða spelt
1 msk. sesamfræ
1 msk. kúmen
1 tsk. birkifræ
½ - 1 tsk. himalajasalt
4 msk. ólífuolía
Heitt vatn eftir þörfum – (u.þ.b. 1 ½ dl)
Blandið þurrefnunum saman og nuddið olíunni saman við. Bætið vatninu út í þar til
deigið er passlega mjúkt til að móta úr því hringlaga kökur. Bakið í ofni við 180°C, í 5-
10 mínútur á hvorri hlið. Gott að setja grillið á síðustu mínúturnar.
BRENNINETLUSEYÐI
1 msk. þurrkuð brenninetla
700 ml sjóðandi vatn
Aðferð:
Setjið brenninetluna í stóra krukku með þéttu loki. Hellið sjóðandi vatni yfir og lok-
ið krukkunni strax. Látið standa a.m.k. 4 klst. eða yfir nótt/dag. Sigtið brenninetluna
frá og setjið seyðið í hreina glerflösku/krukku. Geymist í ísskáp. Drekkið ½ glas á fast-
andi maga strax á morgnana.
Það er mjög gott að taka þriggja mánaða kúr af þessu seyði yfir vetrarmán-
uðina. Fyrir þá sem eru með gróðurofnæmi er gott að byrja inntöku á seyð-
inu í janúar og drekka það fram á vorið.
ÞEYTINGUR
2 skammtar
½ rauð paprika
1 epli
1 sneið hunangsmelóna
1 cm engifer
3 kvistir steinselja
1 dl mangó eða ber
½ lárpera (avocado) eða 1 banani
2 dl vatn
Allt sett í blandara og blandað vel. Það er gott að taka allt hráefnið til að kvöldi
og geyma í ísskápnum yfir nóttina. Svo er því skellt í blandarann um morguninn.
Þeytingar eins og þessi geymast vel í ísskáp og því auðvelt að taka þá með sér í nesti.