Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2013, Síða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2013
Heimslið alþjóða knatt-spyrnusambandsins,FIFA, fyrir 2012 var til-
kynnt á mánudaginn og er að þessu
sinni eingöngu skipað leikmönnum
úr spænsku deildinni.
Leika þeir bestu í hverri stöðu
allir á Spáni? Um 50.000 atvinnu-
menn í íþróttinni, hvaðanæva úr
veröldinni, kjósa og í ljósi þess er
niðurstaðan áhugaverð.
Argentínska stjarnan Lionel
Messi í Barcelona var kjörinn besti
leikmaður heims fjórða árið í röð og
kom ekki á óvart. Stórbrotin afrek
hans eru vart fréttnæm lengur.
Gullboltinn
Franska tímaritið France Football
stóð fyrir kjöri besta leikmanns
Evrópu áratugum saman, fyrst
1956. Afhenti þeim sem íþrótta-
blaðamönnum í álfunni þótti skara
fram úr Gullboltann, Ballon d’Or,
en allt þar til 1995 komu aðeins evr-
ópskir leikmenn til greina; ekki út-
lendingar sem léku í álfunni. Diego
Maradona, innanvallarséníið argent-
ínska, átti þess vegna aldrei mögu-
leika á að hljóta nafnbótina þótt
hann væri án nokkurs vafa besti
leikmaður í Evrópu á tímabili er
hann var hjá Napoli.
Árið 2010 tóku France Football
og FIFA höndum saman og standa
síðan að kjöri besta leikmanns
heims, sem FIFA hafði gert áður.
Fyrirliðar allra landsliða, þjálfarar
þeirra og einn blaðamaður frá
hverju landi kjósa.
Heimslið FIFA 2012 er ekki
árennilegt en vissulega skondið að
allir leikmennirnir skuli búsettir í
aðeins tveimur sveitarfélögum!
Iker Casilles frá Real Madrid er í
markinu; vörnina skipa Dani Alves
og Gérard Piquet, báðir hjá Barce-
lona, og Real Madrid kempurnar
Sergio Ramos og Marcelo. Miðju-
menn eru tríóið sem skipar þær
stöður í Evrópumeistaraliði Spánar;
Xavi Hernandes, Andrés Iniesta
(báðir Barcelona) og Xavi Alonso
(Real Madrid). Framlínan er
„þokkaleg“: Christiano Ronaldo
(Real Madrid), Rademar Falcao
(Atletico Madrid) og Lionel Messi.
Að sjálfsögðu er mjög margir
aðrir kallaðir; Neuer hjá Bayern
München, Petr Cech úr Chelsea,
Gianluigi Buffon hjá Juventus og
Joe Hart í Man. City eru allt fram-
úrskarandi markmenn en fáir efast
þó um að Casillas sé enn bestur.
Velta má vörninni fyrir sér. Er
Brassinn Marcelo, Spánarmeistari
með Real, betri en Ashley Cole,
Evrópumeistari með Chelsea? Var
réttlætanlegt að horfa fram hjá
John Terry, liðsfélaga Cole hjá
Chelsea? Piquet og Ramos voru í
landsliði Spánar sem varð Evr-
ópumeistari í sumar. Valið er því
snúið. Fyrstan hefði líklega átt að
nefna Vincent Kompany, belgíska
fyrirliðann hjá Englandsmeisturum
Manchester City, sem var margra
manna maki síðasta vetur.
Langur listi
Talandi um City: Miðjumaðurinn
Touré Yaya var stórbrotinn í fyrra-
vetur, einnig David Silva. Hægt
væri að setja saman langan lista af
framherjum: Drogba, bjargvættur
Chelsea í Evrópukeppninni; Cavani,
Úrúgvæinn hjá Napolí, var gríð-
arlega góður, landi hans Luis Suá-
rez hjá Liverpool sömuleiðis að ekki
sé talað um Hollendinginn Robin
van Persie. Hann og Kompany eru
e.t.v. þeir einu sem ég sakna virki-
lega úr liðinu, en treysti mér þó
varla til að taka neinn út í staðinn!
Van Persie varð markakóngur
ensku úrvalsdeildarinnar síðasta
vetur með 30 mörk og hefur verið
óstöðandi síðan hann flutti sig um
set til Manchester United í sumar.
Svo mætta benda á ungstirnið
Neymar í Brasilíu, til þess að beina
sjónum aðeins út fyrir Evrópu.
Þetta er það skemmtilega við
svona kjör; vangavelturnar sem
skapast í kjölfarið!
Sumir þeirra sem nefndir eru og
komust ekki í „liðið“ verða í eldlín-
unni í Englandi í dag, sunnudag.
Van Persie mætir Suárez í granna-
slag Man. Utd og Liverpool. Touré,
Kompany, Silva og félagar þeirra
heimsækja Arsenal. Njótið!
2009, 2010, 2011, 2012. Messi; besti knattspyrnumaður í heimi fjögur ár í röð.
AFP
Hverjir eru
bestir?
EÐLILEGA VAKNA SPURNINGAR UM ÞAÐ HVERJIR
VERÐSKULDA SÆTI Í HEIMSLIÐI ÁRSINS HJÁ FIFA.
* „Að þjálfa Svíþjóð er mjög frábrugðið því að stjórna liði Banda-ríkjanna. Fyrir það fyrsta erum við ekki með Abby Wambach.“Pia Sundhagen sem stýrði Bandaríkjamönnum til sigurs á Ólympíu-
leikunum í London í sumar en þjálfar nú kvennalandslið Svíþjóðar.
Boltinn
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
Tveir risaleikir eru á dagskrá ensku
úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í
dag, sunnudag. Fyrst eigast Man-
chester United og Liverpool við á
Old Trafford í Manchester og í kjöl-
farið mætast Arsenal og Englands-
meistarar Manchester City í Lond-
on. Fyrri leikurinn hefst kl. 13.30 og
sá seinni kl. 16.00. Báðir verða í
beinni útsendingu á Stöð 2 Sport2.
Konur í knattspyrnu vekja sífellt
meiri athygli, góðu heilli, og ekki
kæmi á óvart þótt vinsældirnar
yrðu enn meiri á næstu árum.
FIFA stóð fyrst fyrir kjöri á
bestu knattspyrnukonu heims ár-
ið 2001 þegar Mia Hamm frá
Bandaríkjunum varð fyrir val-
inu. Kjörið fór nú fram í 12.
skipti og bandaríski fram-
herjinn Abby Wambach
varð hlutskörpust í kjöri
landsliðsfyrirliða, landsliðs-
þjálfara og blaðamanna.
Bandaríska liðið varð Ólymp-
íumeistari í London í sumar og
þar var Wambach í lykilhlutverki.
Hún kvaðst viss um að samherji
sinn í framlínu bandaríska liðsins,
Alex Morgan, hreppti hnossið og
flaug í hug þegar nafn hennar
sjálfrar var nefnt í Zürich á mánu-
dagskvöldið að kynnirinn hefði
mismælt sig. Svo var ekki, enda
kynnirinn enginn önnur en Hope
Solo, markvörður bandaríska liðs-
ins. Hún gat ekki ruglast! Sú þriðja
sem kom til greina var Marta frá
Brasilíu, sem fimm sinnum hefur
verið valin best, oftast allra.
Þjálfari ársins í karlaflokki var
Vincent del Bosque, Spáni, en í
kvennaflokki hin sænska Pia Sund-
hage, sem var við stjórnvölinn hjá
Bandaríkjamönnum þar til eftir
ÓL í sumar en er nú tekin við liði
Svíþjóðar. Sundhagen vakti mikla
athygli þegar hún kom á svið og
tók á móti viðurkenningu sinni í
Zürich, hélt þakkarræðu og söng
bút úr lagi Bobs Dylan, If Not For
You! Það kom Wambach ekki á
óvart. „Þetta var ekta Pia. Hún er
ekki bara frábær þjálfari heldur
stórskemmtileg og yndisleg
manneskja í alla staði.“
Robin van Persie fagnar
einu 20 marka sinna fyrir
Manchester United í vetur.
AFP
Konurnar
sækja á
Abby Wambach er sú besta í heimi.
AFP
SÓFA-SUNNUDAGUR
FÓTBOLTAFÍKLA!