Morgunblaðið - 11.03.2013, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 1. M A R S 2 0 1 3
Stofnað 1913 58. tölublað 101. árgangur
BINGÓ
FYRIR
KONUKOT
LJÓSMYND-
ARAR OG
BLAÐAMENN
TANGÓ OG
TÖFRA-
KOMMÓÐA
VERÐLAUN 12 NORRÆN HÖNNUN 34KVENFÉLAGIÐ SIF 10
Ljósmynd/Valur Björn Línberg
Löndun Félagarnir á Birtingi, Hjörvar Mor-
itz og Örn Rósmann Kristjánsson.
Lítil veiði er hjá loðnuskipunum.
Er komið lokahljóð í mannskapinn
þótt enn sé vonast til að göngur
komi að vestan.
„Það er lítið að sjá. Allir eru að
leita að einhverjum blettum til að
berja á. Þetta eru engar torfur.
Þess vegna telja menn þetta orðið
lokalegt,“ sagði Róbert Axelsson,
fyrsti stýrimaður á Ingunni
AK-150. Skipið var þá út af Stafnesi
á leið til löndunar á Akranesi.
Róbert var ekki ánægður með ár-
angurinn, 700-800 tonn. Ingunn
kastaði fjórum sinnum í gær og
sagði Róbert að árangurinn væri
svipaður og hjá öðrum, heldur lítill.
Loðnan er byrjuð að hrygna.
Þannig var aðeins karl í tveimur
köstum hjá Ingunni og loðnan því
farin að skilja sig að. Það er enn ein
staðfesting þess að vertíðinni sé að
ljúka.
Komið lokahljóð í
loðnusjómenn
Fáir dagar til stefnu
» Vantrauststillaga Þórs Saari
á ríkisstjórnina er á dagskrá
þingsins í dag kl. 10.30.
» Þrír starfsdagar eru eftir á
Alþingi. Eldhúsdagsumræður
fara fram á miðvikudaginn.
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Fjöldi óafgreiddra stjórnarfrum-
varpa á Alþingi er rúmlega 70 og
eru mörg þeirra afar umfangsmikil
og umdeild. Engin sátt hefur náðst
um dagskrá þingsins í þessari viku,
en viðræður standa yfir, að sögn
Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur
þingforseta. Skv. starfsáætlun verð-
ur þingi frestað á föstudag. Ásta
Ragnheiður segir vissulega hafa
komið til tals að fjölga starfsdögum
en eins og áður leggi hún ríka
áherslu á að standa við starfsáætlun
þingsins. Fulltrúar stjórnarflokk-
anna hafa látið formönnum þing-
flokka stjórnarandstöðunnar í hend-
ur vísi að lista af málum sem stefnt
er að því að klára. Þeir Gunnar
Bragi Sveinsson, formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins, og Ill-
ugi Gunnarsson, formaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins, segja
listann ekki raunhæfan, mörg mál-
anna þarfnist nánari skoðunar en
tími sé fyrir.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
VG, vill ekkert gefa upp um hvernig
meirihlutinn ætli að forgangsraða
afgreiðslu mála. Hún er þeirrar
skoðunar að vel megi bæta nokkr-
um starfsdögum við þingið.
Fjöldi mála bíður en engin sátt
Yfir 70 stjórnarfrumvörp óafgreidd Segja lista meirihlutans óraunhæfan
Vantraust á dagskrá þingsins í dag Þingforseti leggur áherslu á starfsáætlun
MFjöldi umfangsmikilla mála »6
Morgunblaðið/Ernir
Alþingi Tvær rannsóknarskýrslur
eru væntanlegar, ef fjármagn fæst.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tvær rannsóknarnefndir sem starfa á
vegum Alþingis hafa að óbreyttu ekki
fé til að ljúka skýrslum sínum. Málið
hefur verið rætt í forsætisnefnd Al-
þingis og forseti þingsins rætt það við
fjármálaráðherra.
Alþingi veitti 103 milljónir kr. á
fjárlögum ársins til að ljúka starfi
rannsóknarnefnda vegna Íbúðalána-
sjóðs og falls sparisjóðanna. Það er
mun lægri fjárhæð en skrifstofa Al-
þingis taldi nauðsynlegt. „Þetta eru
mjög knappar fjárveitingar og ekki
nægar til að ljúka rannsókninni,“ seg-
ir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri
Alþingis. Starf beggja nefndanna hef-
ur staðið lengur en í upphafi var áætl-
að. Nefndin um Íbúðalánasjóð telur
sig geta skilað skýrslu á innan við
tveimur mánuðum og sparisjóða-
nefndin á innan við fjórum mánuðum.
„Það eru ekki fjárveitingar til að
halda áfram. Því verður að stöðva
verkið þar til Alþingi samþykkir að
auka við fjárveitingar eða ákveður
annað,“ segir Kristján Þór Júlíusson,
fulltrúi í fjárlaganefnd. »2
Vantar fé til rannsókna
Fjárveitingar til tveggja rannsóknarnefnda á þrotum
ÍR-ingar, sem eru nýliðar í úrvalsdeildinni í
handknattleik, urðu í gær bikarmeistarar karla
með því að sigra Stjörnuna í úrslitaleik í Laugar-
dalshöllinni. Mikill uppgangur er í handbolt-
anum í Breiðholtinu og þetta er aðeins í annað
sinn sem ÍR vinnur bikarinn en félagið fagnar
106 ára afmæli sínu í dag. Ríkissjónvarpið gerði
ljósmyndurum erfitt fyrir að ná myndum af
fögnuði ÍR í leikslok og meinaði þeim að komast
á góða staði til að athafna sig en þó náðist að
mynda Breiðhyltingana með bikarinn á verð-
launapallinum. » Íþróttir
ÍR-ingar komu með bikarinn í Breiðholtið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bikarstemning í Laugardalshöllinni í gær
Davíð Örn
Bjarnason, Ís-
lendingur búsett-
ur í Svíþjóð, var
handtekinn á
flugvelli í Tyrk-
landi föstudag-
inn sl., gefið að
sök að hafa reynt
að smygla forn-
mun úr landi.
Marmarasteinn
sem hann keypti á markaði fannst í
farangri hans við gegnumlýsingu.
Ræðismaður Íslands í Tyrklandi
veitir honum aðstoð við að komast í
samband við ákæruvaldið ytra. »6
Íslendingur sakaður
um fornmunasmygl
Davíð Örn
Bjarnason
Tvö ný framboð vegna komandi al-
þingiskosninga voru kynnt um
helgina. Þau bætast við 20 framboð
sem þegar hafa fengið úthlutaðan
listabókstaf eða lýst yfir framboði.
Bjarni Harðarson og fleiri fyrr-
verandi framámenn úr Vinstri-
hreyfingunni - grænu framboði
undirbúa ásamt fleirum framboð í
öllum kjördæmum. Bjarni er að
safna undirskriftum undir umsókn
um listabókstaf. Halldór Gunnars-
son í Holti sem sagði sig úr Sjálf-
stæðisflokknum eftir landsfund á
dögunum kynnti einnig framboð
nýs flokks í gær. Þegar hafa 18
flokkar og framboð fengið úthlut-
aðan listabókstaf vegna kosning-
anna og að auki hafa Kristin stjórn-
málasamtök og Landsbyggðar-
flokkur boðað framboð, auk
framboðanna tveggja sem kynnt
voru um helgina. Ekki er þar með
sagt að 22 flokkar bjóði fram því
framboð þarf ekki að bjóða sig fram
þótt það hafi fengið listabókstaf.
Það á til dæmis við um Samstöðu.
Til samanburðar má geta þess að
sjö framboð voru á kjörseðlinum við
síðustu alþingiskosningar. »2
Yfir tuttugu framboð
búa sig undir kosningar