Morgunblaðið - 11.03.2013, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Mikið fjör var við Mývatn í fyrradag þar sem
fram fór Íslandsmeistaramót Sleðahundaklúbbs
Íslands. Keppt var í sleðahundadrætti og „skijor-
ing“ (kúskur á skíðum með einn hund fyrir fram-
an sig) og var þátttaka góð. Í sleðahundadrætti
fara 2-4 hundar fyrir sleða og var farinn 5 km
langur keppnishringur í þeirri keppni. Í skijor-
ing var keppt í karla- og kvennaflokkum og fóru
fullorðnir tveggja km langa keppnisleið en ung-
lingar helmingi styttri. Undir lokin var keppt í
spyrnu og tóku 20 þátt í henni. Mótið endaði með
grillveislu og voru menn og hundar kátir.
Íslandsmeistaramót Sleðahundaklúbbs Íslands fór fram við Mývatn í fyrradag
Hundar og menn fjölmenntu og nutu dagsins
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fjárveitingar til starfs rannsóknar-
nefnda Alþingis eru að ganga til
þurrðar en nefndirnar telja sig þurfa
nokkra mánuði til viðbótar til að
ljúka störfum.
Tvær rannsóknarnefndir starfa á
vegum Alþingis. Önnur nefndin
rannsakar Íbúðalánasjóð og hin að-
draganda og orsakir erfiðleika og
falls sparisjóðanna. Báðar voru skip-
aðar af forseta Alþingis á árinu 2011,
eftir að Alþingi hafði samþykkt
þingsályktunartillögur þar um.
Starf nefndanna hefur dregist og
báðar áttu að hafa lokið störfum fyrir
nokkru, samkvæmt upphaflegri
áætlun. Þannig var miðað við að
nefndin um fall sparisjóðanna skilaði
skýrslu eigi síðar en 1. desember sl.
„Þetta eru mjög knappar fjárveiting-
ar og ekki nægar til að ljúka rann-
sókninni,“ segir Helgi Bernódusson,
skrifstofustjóri Alþingis.
Skorið niður frá áætlun
Í fjárlögum ársins er 103 milljón-
um varið til að ljúka starfi nefnd-
anna. Það er mun lægri fjárhæð en
skrifstofa Alþingis taldi nauðsynlegt.
Fjárheimildin er nú á þrotum og
ljóst að áætlun Alþingis hefði ekki
heldur dugað. Helgi segir að þetta
séu umfangsmiklar rannsóknir og
dýr vinna og erfitt að áætla kostnað.
Hann segir að nefndirnar hafi gert
forsætisnefnd Alþingis grein fyrir
stöðu mála. Nefndin um Íbúðalána-
sjóð þyrfti innan við tvo mánuði til að
ljúka skýrslu um rannsókn sína og
innan við fjóra mánuði tæki að ljúka
rannsókn á sparisjóðunum.
Starf nefndanna kostaði um 380
milljónir kr. á síðasta ári.
Verður að stöðva verkið
„Það eru ekki fjárveitingar til að
halda áfram. Því verður að stöðva
verkið þar til Alþingi samþykkir að
auka við fjárveitingar eða ákveður
annað,“ segir Kristján Þór Júlíusson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins og
fulltrúi í fjárlaganefnd. Hann bætir
við: „Það er óforsvaranlegt ef Al-
þingi ætlar ekki að virða eigin fjár-
lög, ekki síst á þessum tímum.“
Helgi segir að málið hafi verið
rætt í forsætisnefnd og forseti Al-
þingis hafi rætt við fjármálaráð-
herra. Hann segir afleitt ef hætta
verði rannsóknum eða gera á þeim
hlé þar til úr greiðist með fjármálin.
Búið sé að kosta miklu til og dýrara
að taka málið upp að nýju.
Segir Helgi mikilvægt að læra af
þessu máli. Þeir sem taka að sér
störf í rannsóknarnefndum verði í
framtíðinni að átta sig betur á um-
fangi rannsóknanna til að hægt sé að
áætla kostnað.
Rannsóknarfé á þrotum
Fjárveitingar tveggja rannsóknarnefnda Alþingis uppurnar Gera þarf hlé á rannsóknum ef ekki
tekst að fá aukið fjármagn Íbúðalánasjóðsnefndin á eftir tvo mánuði og sparisjóðanefndin fjóra
Helgi
Bernódusson
Kristján Þór
Júlíusson
„Þetta er að hluta til sá hópur sem Jóhanna Sig-
urðardóttir kallaði villiketti. Við erum ekkert
hrædd við þá nafngift. Það þarf kannski villiketti
til að hugsa þessi mál upp á nýtt,“ segir Bjarni
Harðarson, bóksali á Selfossi, sem verður vænt-
anlega efsti maður á lista nýs framboðs Regnbog-
ans í Suðurkjördæmi, þegar hann er spurður um
tengsl væntanlegra frambjóðenda við VG.
Bjarni er fyrrverandi alþingismaður fyrir
Framsóknarflokkinn, bæjarfulltrúi VG í Árborg
og aðstoðarmaður Jóns Bjarnasonar, fyrrverandi
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra VG. Bjarni
staðfestir að Atli Gíslason og Jón Bjarnason, fyrr-
verandi þingmenn VG, séu með í undirbúningi
hins nýja framboðs og hann reiknar með að Jón
muni leiða listann í Norðvesturkjördæmi og að
Atli verði einnig á lista. Baldvin H. Sigurðsson,
fyrrverandi bæjarfulltrúi VG á Akureyri, er tengi-
liður fyrir Norðausturkjördæmi. Þá nefnir hann
til sögunnar Önnu Ólafsdóttur Björnsson, fyrrver-
andi þingkonu Kvennalistans, og Harald Ólafsson
veðurfræðing. Jón Bjarnason og Haraldur Ólafs-
son vildu engu svara um það hvort þeir væru á leið
í framboð, þegar leitað var eftir áformum þeirra.
Jón sagði einungis að málið væri á könnunarstigi.
„Við munum kynna þetta í vikunni, málið er að
taka á sig mynd,“ segir Bjarni. Hann segir stefnt
að framboði í öllum kjördæmum. Bjarni hefur ver-
ið að safna undirskriftum undir umsókn um lista-
bókstaf. Segir að það hafi gengið vel. Innanríkis-
ráðuneytið úthlutar listabókstöfum. Vegna fjölda
framboða er eitthvað farið að fækka lausum stöf-
um en Bjarni telur að listabókstafurinn J sé laus
og telur það álitlegan kost.
ESB eitt af stóru málunum
„Þetta er félagshyggjufólk,“ segir Bjarni um að-
standendur framboðsins. Hann segir að framboðið
verði valkostur fyrir ESB-andstæðinga, vinstra
megin við Framsóknarflokkinn sem hann segir
raunar ekki ýkja langt til vinstri og heldur að þok-
ast í hina áttina. „ESB verður eitt af stóru mál-
unum en okkur er líka mikið í mun að rétta hlut
þeirra sem minnst hafa. Kreppan hefur bitnað á
þeim og á landsbyggðinni. Við leggjum áherslu á
jöfnuð fólks, kynja og byggða,“ segir hann.
helgi@mbl.is
„Villikettir“ fylkja liði fyrir framboð
Valkostur til vinstri
fyrir ESB-andstæðinga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Meðmælendur Bjarni Harðarson er að safna
undirskriftum undir umsókn um listabókstaf.
Þyrla Landhelg-
isgæslunnar var
kölluð út um
fjögurleytið í
gær eftir að til-
kynning barst
um vélsleðaslys í
Unadal í Skaga-
firði. Maður
hafði þar keyrt
fram af snjó-
hengju og fengið
sleðann yfir sig en hann var að taka
þátt í æfingaferð sleðaflokka
tveggja björgunarsveita í Skaga-
firði. Læknir var þegar sendur á
staðinn ásamt björgunarsveitum af
Norðurlandi og bjó hann um
meiðsli hins slasaða á meðan beðið
var eftir þyrlunni sem kom að slys-
stað um hálfsexleytið. Var mað-
urinn fluttur á bráðamóttöku Land-
spítalans í Fossvogi. Samkvæmt
upplýsingum frá Landspítalanum
var maðurinn handleggsbrotinn og
ekki með aðra áverka. Ekki var víst
að hann þyrfti að dveljast þar yfir
nóttina. sgs@mbl.is
Handleggsbrotnaði
í vélsleðaslysi í
Unadal í Skagafirði
Þyrla Landhelgis-
gæslunnar.
Rannsóknarnefnd skal almennt
skipuð þremur nefndar-
mönnum. Skal formaður hennar
vera lögfræðingur og uppfylla
starfsgengisskilyrði héraðs-
dómara að undanskildu skilyrði
um hámarksaldur. Forseti Al-
þingis skal tryggja rannsóknar-
nefnd þann mannafla, sér-
fræðiaðstoð og aðbúnað sem
nauðsynlegur er við rannsókn-
ina.
Alþingi skal
tryggja aðbúnað
ÞRÍR Í RANNSÓKNARNEFND
Landhelgisgæslan segir frá því á
vef sínum að draugaskipið Lyubov
Orlova geti enn verið á reki djúpt
suður af Íslandi. Í byrjun síðustu
viku hafi neyðarsendir skipsins far-
ið að senda frá sér merki, skv. írsku
strandgæslunni og virðist hann
hafa farið í gang um 700 sjómílur
austnorðaustur af Nýfundnalandi,
500 sjómílur suðaustur af Hvarfi á
Grænlandi og um 900 sjómílur vest-
ur af Írlandi. Merki hafi borist frá
sendinum í tvo sólarhringa og tölu-
vert rek verið á honum og ekki sé
vitað hvort hann hafi verið um borð
í skipinu eða í sjónum. Því sé ekki
vitað hvort skipið sé ofansjávar og
engin leit hafi verið gerð að því.
Kanadíska strandgæslan á Ný-
fundnalandi hafi ekki afskrifað
skipið sem sokkið.
Sokkið? Draugaskipið Lyubov Orlova.
Merki frá neyðar-
sendi draugaskips