Morgunblaðið - 11.03.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
Gram heimilistækin eru vönduð í gegn
Nilfisk þekkja allir
Fyrsta flokks frá Fönix
Miðvikudagskvöldið 13. mars
heldur Lúðrasveitin Svanur
árlega vortónleika sína í
Kaldalónssal Hörpu og hefjast
tónleikarnir klukkan 20. Í ár
verður breskum tónskáldum
gert hátt undir höfði, en leik-
in verða verk eftir nokkur af
stórmennum breskrar tónlist-
arsögu á borð við Purcell, Elg-
ar og Andrew Lloyd Webber. Á
efnisskránni kennir ýmissa
grasa, en þar má meðal ann-
ars finna konunglegan mars,
draumkennda fegurð Nimrod-
kaflans úr Enigma-tilbrigðum
Elgars, dillandi þjóðlagasvítu
og grúvaða tóna söngleiksins
Jesus Christ Superstar.
Stjórnandi sveitarinnar er
Brjánn Ingason. Þeir sem vilja
tryggja sér miða í tíma geta
gert það á midi.is en annars
fer líka miðasala fram í and-
dyrinu.
Endilega …
Tónleikar Lúðrasveitin Svanur.
… hlýðið á hljómþýða tónleika
lúðrasveitarinnar Svans
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Kvenfélagið Silfur heldurbingó miðvikudaginn 13.mars nk. á Hallveigar-stöðum, en með ágóð-
anum ætlar félagið að styrkja
Konukot, sem er næturathvarf
fyrir útigangskonur en þar er mik-
il þörf á nýjum rúmum þar sem
þau sem eru nú þegar til staðar
eru komin til ára sinna. „Við völd-
um Konukot vegna þess að okkur
fannst það ekki vera neitt í um-
ræðunni,“ segir Þórdís V. Þór-
hallsdóttir, annar formaður Kven-
félagsins. „Við höfðum samband
við verkefnisstjóra Rauða krossins
sem sér um Konukot og hún sagði
að það vantaði ný rúm. Þær væru
búnar að vera í sömu rúmunum
frá því 2004 sem voru þá gefin
notuð. Við ætlum því að kaupa
eins mörg rúm og við getum fyrir
þann pening sem safnast.“ Að-
spurð hvort henni þyki þörfin vera
mikil segist hún vera viss um að
svo sé. „Það er greinilegt eftir um-
fjöllun sem Sölvi var með á Skján-
um og annað sem fylgdi í kjölfarið
að það er mikið af útigangsfólki og
útigangskonum. Manni skilst að
þarna sé komið úrræði þar sem
konur geta verið í friði.
Þær þurfa ekki að greiða fyrir
gistingu með kynlífi eða eitthvað
svoleiðis,“ segir hún. „Þarna eru
verkefnisstjórar og sjálfboðaliðar
sem taka á móti þeim og aðstoða
ef konurnar vilja sækja lækni, fara
upp á geðdeild, í afvötnun eða aft-
ur út á götuna. Mér er sagt að
þörfin sé mikil og ég trúi því.
Maður verður ekki mikið var við
útigangsfólk en má samt sem áður
ekki loka augum fyrir því.“
Vinningar sem eru í boði í
bingóinu eru veglegir og bjóst hún
ekki við að fá svona góð viðbrögð.
„Það segja allir já, það eru allir
tilbúnir að leggja málefninu lið.
Mörg fyrirtæki hafa meira að
segja haft samband að fyrra
bragði eftir að hafa frétt af bin-
góinu og vilja gefa vinninga,“ seg-
ir Þórdís sem hefur þurft að af-
þakka vinninga. Félagið ætlar hins
vegar að halda annan viðburð í
haust og því fer ekkert til spillis.
„Við verðum með annan góðgerð-
arviðburð í haust og við ætlum
bara að fá að eiga það inni þá. Ég
finn fyrir að fólki er annt um úti-
gangsfólk. Því er annt um fólk
sem eru fíklar og áfengissjúkling-
ar sem ráða ekki við sinn sjúk-
dóm. Það er mikil samkennd og
fólk er mjög ánægt með að þetta
sé málefni sem er ekki alltaf í
sviðsljósinu.“
Vonast eftir viðbrögðum
Þórdís segist vilja vekja frek-
ari athygli á málefninu sem Konu-
kot er. „Við erum að vonast til
þess að þetta vindi upp á sig og
það séu einhverjir sem fara að að-
stoða Konukot. Við erum t.d. mjög
spenntar fyrir því ef einhverjir
sjómenn væru tilbúnir til þess að
Færir Konukoti
betri svefnaðstöðu
Kvenfélagið Silfur hefur staðið að fjáröflunum er tengjast konum og börnum. Nú
heldur félagið bingó og mun ágóðinn renna til Konukots, sem er næturathvarf fyr-
ir útigangskonur. Þórdís V. Þórhallsdóttir, annar formaður félagsins, spjallaði við
blaðamann og sagðist finna fyrir mikilli samkennd meðal fólks með útigangsfólki
og fíklum. Ánægjulegt væri að styrkja málefni sem fengi ekki mikla umfjöllun.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Hlýlegt Aðkoman að Konukoti er hlýleg, hér að vetrartíma.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stuð Búist er við miklum fjölda á bingóið enda veglegir vinningar í boði.
Kvæðamannafélagið Árgali er félag
sunnlenskra kvæðamanna en nokkrir
meðlimir koma úr fjarlægum sveit-
um. Félagið heldur úti fésbókarsíðu
en hún var stofnuð í þeim tilgangi að
viðhalda þeirri góðu hefð að kveða
fornar og nýjar stemmur.
Það er skemmtilegt að líta á síð-
una þeirra og sjá þar bregða fyrir
nokkrum rímum. Rímnakveðskapur
hefur fylgt þjóðinni í áratugi og
kvæðamenn haldið þessari sér-
kennilegu tónlist lifandi eins og fram
kemur á síðunni. Þá hittast Árgalar
annan hvern mánudag hvers mán-
aðar frá október fram í maí og æfa þá
saman kvæðalög eða hlusta á þau.
Félagið var stofnað hinn 8. mars
árið 2010, upphaflega með 73 fé-
lögum en þeir eru nú orðnir um 90
talsins. Árgali er systurfélag Kvæða-
mannafélagsins Iðunnar.
Í kvöld klukkan 20 ætla kvæða-
menn að hittast í Sunnlenska bóka-
kaffinu á Selfossi og eru áhugasamir
kvattir til að mæta og æfa nokkrar
stemmur með skemmtilegu fólki.
Vefsíðan www.facebook.com/Kvæðamannafélagið Árgali
Kvæðamannafélag Árgali kveður saman fornar og nýjar stemmur.
Heldur í rímnakveðskapinn
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Sif Cosmetics hefur sett á markað
nýtt EGF-dagkrem sem er sérþróað
fyrir mjög þurra húð, en um er að
ræða fjórðu húðvöru í línu þeirra.
Dagkremið er ofnæmispróað og unn-
ið úr náttúrulegum efnum án litar-
efna, parabenefna og annarra auka-
efna. Dagkremið er nú fáanlegt í
helstu snyrtivöruverslunum og apó-
tekum um land allt.
Nýtt frá EGF
Fjórða húðvara
Sif Cosmetics
Sérþróað EGF-vörurnar eru vinsælar.