Morgunblaðið - 11.03.2013, Side 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013
www.nordichealth.is
Í Form á 40 dögum.
Verð 4900 kr.
Sendum í póstkröfu.
Heilsumeðferðir Jónínu Ben eru þekktar fyrir að
skila árangri og bæta líðan og heilsu.
Í samstarfi við lækni hótelsins er unnið einstaklingsmiðað að því
að lækna og fyrirbyggja lífstílssjúkdóma svo sem háþrýsting,
sykursýki 2, húðsjúkdóma, offitusjúkdóma, streytu, þunglyndi og kvíða.
Læknir hótelsins aðstoðar fólk við að losa sig við lyf með breyttu
mataræði.
Mikil fræðsla og hreyfing er í boði eftir því sem fólk treystir sér til.
Meðferðin er 2 vikur en hafi fólk komið áður er í lagi að taka eina
viku. Flogið er til Gdansk þar sem leigubíll býður.
Upplýsingar og pantanir í síma 822 4844
og á joninaben@nordichealth.is.
PÓLLAND UM PÁSKANA
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Antonio Guterres, yfirmaður flótta-
mannastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, varaði við því í gær að fjöldi
sýrlenskra flóttamanna gæti þre-
faldast á árinu ef ekki tækist að stilla
til friðar í átökunum í Sýrlandi.
Sagði Guterres að flóttamannastofn-
unin gæti aðeins mildað afleiðingar
borgarastyrjaldarinnar fyrir flótta-
mennina en ekki veitt þeim neina
varanlega lausn.
Flestir leitað til Tyrklands
Stofnunin tilkynnti í liðinni viku að
rúmlega ein milljón manna væri á
flótta undan átökunum en fyrir ári
voru einungis um 33.000 manns í
sömu sporum. Guterres sagði að í
desember hefðu um 3.000 manns flú-
ið yfir til nágrannaríkja Sýrlands á
degi hverjum en að í febrúar hefði
þeim fjölgað upp í um 8.000 manns á
dag. Sagði hann að sú fjölgun sýndi
best hversu mjög átökin hefðu
harðnað að undanförnu.
Flestir flóttamannanna hafa leitað
á náðir Tyrklands en þar eru nú
skráðir um 180.000 flóttamenn. Rík-
isstjórn Tyrklands metur töluna þó
enn hærri þar sem upp undir 70.000
Sýrlendingar búi í húsnæði sem þeir
hafi leigt sjálfir víðsvegar um landið.
Þegar taldir eru með þeir sem bíði
skráningar sé líklegt að fjöldi sýr-
lenskra flóttamanna í Tyrklandi sé
allt að 400.000 manns að mati Guter-
res, sem óttast að ef ekki verði stillt
fljótlega til friðar geti það reynst
vera um seinan.
Hörð átök um borgina Homs
Næstkomandi fimmtudag verða
tvö ár liðin frá því að fyrstu óeirð-
irnar hófust í Sýrlandi. Talið er að
um 70.000 manns hafi látið lífið í
borgarastyrjöldinni. Uppreisnar-
menn boðuðu til óvæntrar skyndi-
sóknar í gærmorgun í borginni
Homs, sem er þriðja stærsta borg
Sýrlands. Homs liggur nálægt
landamærunum að Líbanon og hefur
verið lýst sem „höfuðborg uppreisn-
arinnar“. Uppreisnarherinn náði í
átökunum hverfinu Baba Amr á sitt
vald í fyrsta sinn í rúmt ár. Stjórn-
arher Bashars al-Assads Sýrlands-
forseta brást við með því að beita
loftárásum á bækistöðvar uppreisn-
armanna í borginni en einnig var
hart barist á jörðu niðri með stór-
skota- og fótgönguliði. Þrátt fyrir að
allt væri lagt í sölurnar náðu upp-
reisnarmenn að halda feng sínum í
átökunum.
Trúarráð íslamista stofnað
Uppreisnarmenn úr röðum íslam-
ista stofnuðu í gær trúarráð í austur-
hluta landsins til þess að sjá um lög-
gæslu, réttarfar og neyðarþjónustu
þar. Stofnun ráðsins þykir vera til
marks um djúpstæðan ágreining á
meðal uppreisnarmanna þar sem
sumir þeirra stefni leynt og ljóst að
því að stofna íslamskt ríki fari Assad
frá. Búið var að ákveða að halda við-
ræður á milli hinna ólíku hópa upp-
reisnarmanna um að mynda bráða-
birgðaríkisstjórn en þeim hefur
ítrekað verið frestað. Nú er stefnt að
því að þær viðræður fari fram þriðju
vikuna í mars.
Fjöldi flóttamanna gæti þrefaldast
Ein milljón Sýrlendinga á vergangi
Næstum tvö ár frá upphafi átaka
AFP
Flóttamenn Sýrlenskir flóttamenn bíða hér í röð fyrir utan skrifstofur
Sameinuðu þjóðanna í Trípolí, höfuðborg Líbanons.
Mótmælafundir voru haldnir víðs vegar um Asíu
í gær til þess að minnast þess að 54 ár voru liðin
frá því að Tíbetar hófu uppreisn sína gegn yfir-
ráðum Kína. Ellefu manns voru handteknir í
Nepal fyrir að mótmæla og komið var í veg fyrir
að einn mótmælandi á Indlandi kveikti í sjálfum
sér. Þessi unga tíbetska stúlka býr sem útlagi á
Indlandi og fylgdist með mótmælafundi sem
haldinn var í Nýju-Delhí, höfuðborg Indlands.
AFP
Tíbetsku uppreisnarinnar 1959 minnst með mótmælum
Nelson Mandela,
fyrrverandi for-
seti Suður-
Afríku og friðar-
verðlaunahafi
Nóbels, dvaldist
á sjúkrahúsi að-
faranótt sunnu-
dags. Talsmaður
Mandela, sem er
94 ára gamall,
sagði að sjúkrahúsdvölin hefði ver-
ið hluti af venjubundnu eftirliti með
heilsu forsetans og að læknar hefðu
ekki fundið neitt athugavert að
þessu sinni. Mandela þurfti um síð-
ustu áramót að fá læknismeðferð
vegna sýkingar í lungum auk þess
sem gallsteinar hrjáðu hann. Man-
dela sat 27 ár í fangelsi á sínum
tíma og hefur heilsu hans hrakað
mjög á síðustu árum.
SUÐUR-AFRÍKA
Mandela á sjúkra-
húsi yfir helgina
Nelson Mandela
Elísabet II. Eng-
landsdrottning
mun í dag undir-
rita nýja stofn-
skrá þar sem öll
54 ríki breska
samveldisins lýsa
því yfir að þau
séu mótfallin
mismunun. Skrá-
in á að standa
vörð um mannréttindi, lýðræði og
tjáningarfrelsi. Ekki er talað ber-
um orðum í skránni um mismunun
vegna kynhneigðar. Þrátt fyrir það
hafa forsvarsmenn ýmissa samtaka
samkynhneigðra lofað skrána og
segja að drottningin sé með undir-
skrift sinni óbeint að styðja við
mannréttindi samkynhneigðra.
STÓRA-BRETLAND
Óbeinn stuðningur
við samkynhneigða
Elísabet II.
Ríkisstjórnir Bretlands, Ítalíu og
Grikklands staðfestu í gær að sjö
gíslar sem nígerísk samtök íslamista
tóku höndum í febrúar væru látnir.
Á meðal gíslanna voru ríkisborgarar
þessara ríkja auk fjögurra Líbana.
Samtökin sendu frá sér tilkynn-
ingu á laugardaginn um að þau
hefðu tekið gíslana af lífi í kjölfar
þess að breskar herþotur hefðu ver-
ið sendar í björgunarleiðangur.
William Hague, utanríkisráðherra
Breta, hafnaði því að reynt hefði
verið að frelsa gíslana og sagði af-
tökurnar vera „ófyrirgefanleg morð
með köldu blóði“.
NÍGERÍA
Gíslar teknir af lífi