Morgunblaðið - 11.03.2013, Side 23

Morgunblaðið - 11.03.2013, Side 23
töldum rétt að liðka raddböndin með goggolíu og söngvatni. Erla söng í kór Víðistaða- kirkju og dreif Ármann og Lóu eiginkonu mína með sér í kór- inn. Ég var sendur í tónlistar- skóla til að læra eitthvað um tónlist og söng því engin var tónlistargáfan. Ármann fékk mig síðan í Þresti og í Frímúr- arakórinn. En líf Ármanns var ekki alltaf auðvelt og fékk hann drjúgan skammt af mótlæti í lífinu. Lét það samt aldrei smækka sig og var ávallt glaðvær þótt eflaust hafi oft sviðið undir niðri. Erla greindist með krabbamein og lést árið 1992, fjörutíu og þriggja ára gömul. Það var þungt högg. En aftur birti í lífi Ármanns. Hann eignaðist góða konu, Sigrúnu Gísladóttur, og voru þau fyrst pússuð saman af járnsmið í járnsmiðju á þeim fræga stað Gretna Green í Skot- landi. Þetta var í söngferð Víði- staðakirkjukórsins sem söng auðvitað við athöfnina. Slík gift- ing átti sér aldagamla sögu því elskendur, sem voru undir gift- ingaraldri í Englandi, gátu gift sig með þessum hætti. Brúð- kaupsmynd var tekin í smiðj- unni af þessu tilefni, Sigrún með brúðarslör og brúðarvönd en Ármann með pípuhatt. Ármann alltaf til í sprell og spé til að létta mönnum lífið. Ármann og Sigrún höfðu bæði mikla ástríðu fyrir söng og sungu árum saman í Fríkirkju- kórnum í Hafnarfirði. Stundum þegar við Lóa komum í heim- sókn þá sungum við saman nokkur lög og ef ekki var annað söngkver við höndina en sálma- skrá, nú þá sungum við bara upp úr henni, jafnvel raddað. Ég eignaðist hlut í lífi Ár- manns og fyrir það er ég þakk- látur. Litir lífs míns verða fölari við brotthvarf Ármanns en eftir standa góðar minningar sem nú verða ljúfsárar, en ylja. Við Lóa biðjum Drottin að gefa ástvinum Ármanns styrk og stuðning í sorginni og send- um okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Guðmundur Óskarsson. Það var ljúfur sunnanblær, hlýtt í veðri miðan við árstíma. Landsmenn farnir að kalla eftir vorinu. Væntingar um meiri hlý- indi með hækkandi sól. Ferðalög og samverustundir með góðum vinum samlöguðust sumarvænt- ingum. Í þessum draumórum varð mér bilt við, þegar fregnin um andlát fyrrverandi vinnufélaga og góðs vinar barst. Skyndilega tók veturinn aftur völdin, en hlýjar minningar streyma um hugann. Minningar um félaga sem ekki aðeins var vinnufélagi heldur vinur í raun. Ármanni Eiríkssyni kynntist ég fyrst þegar hann hóf störf sem sölumaður í fyrirtæki okk- ar, Glerborg. Ég heillaðist af metnaði hans í starfi og ekki síður þeirri um- hyggju sem hann bar fyrir JC- félagsskapnum, sem hann átti eftir að kynna fyrir mér. Þar urðum við samherjar utan vinnutíma og oft í vinnutímanum líka. JC-fundir, námskeið, þing og skemmtanir. Þarna var Ár- mann á heimavelli, góður leið- beinandi, sögumaður, ræðumað- ur og skemmtilegur félagi í alla staði. Kímni og skondin tilsvör í takt við alvarleg umræðuefni voru honum eðlileg. Hann var aldrei hræddur við að prófa nýj- ar leiðir og gera hluti sem fé- lagarnir töldu ómögulega. Fyrir hann var það ögrun og það lík- aði honum. Hann var fylginn sér í þeim verkum sem hann tók að sér og skipulagði framvindu þeirra til enda. Ármann missti eiginkonu sína unga úr veikindum. Hann átti síðan eftir að berjast við sömu veikindin síðustu árin. Leiðir okkar lágu einnig saman í þess- um veikindum þar sem eigin- kona mín og Ármann deildu reynslu sinni í baráttu við veik- indin. Hún fékk færri ár en Ár- mann en stuðningur þeirra hvors við annað var góður á meðan hann varði. Sameiginlega getum við Ár- mann þakkað fyrir að hafa eign- ast góðar vinkonur eftir kon- umissi okkar. Sambýliskona mín, Steinunn Guðnadóttir, var góð vinkona Ármanns og var hann kosningastjóri hennar í prófkjör- um til bæjarmála og dyggur stuðningsmaður þegar hún bauð sig fram í prófkjöri til alþingis. Steinunn og Ármann voru einnig samstarfsmenn í Glerborg. Sigrúnu og Ármann var ávallt ánægjulegt að sækja heim og ekki síst að fræðast um blómin og plönturnar. Við Steinunn urð- um fastaviðskiptamenn hjá þeim á hverju vori. Í lokin verður að minnast á kvöldstund í byrjun árs, þegar við Steinunn buðum til okkar Ármanni og Sigrúnu ásamt fyrr- verandi vinnufélaga okkar Helgu og Halldóri eiginmanni hennar. Þarna voru gamlar stundir rifj- aðar upp og minnst samstarfs í Glerborg, JC og sumarhúsanna við Meðalfellsvatn. Á þessari kvöldstund tjáði Ármann okkur hver sín staða væri og eftir á getum við verið þakklát fyrir að hafa átt þessa ánægjulegu stund saman. Við Steinunn vottum Sigrúnu, börnum hennar og börnum Ár- manns, þeim Steinunni, Jóni Gesti og Hermanni, fjölskyldum þeirra og vinum samúð. Við kveðjum góðan dreng með söknuði. Hafsteinn Þórðarson. Í dag, þegar kveðjum við Ár- mann Eiríksson, hrannast upp minningar um þennan glettna og góða félaga. Hann fluttist 22 ára gamall í Hafnarfjörð og tók þátt í að byggja upp hið nýstofnaða félag JC Hafnarfjörð á sjöunda áratugnum. Hann var ætíð boð- inn og búinn að sinna þeim verk- efnum sem upp komu, hvort sem voru leiðbeiningastörf, vinna við fjáröflun eða að standsetja fé- lagsheimilið. Öllum verkefnum var sinnt með bros á vör og allt- af stutt í grínið. Það var unun að fá að starfa með honum. Erla heitin, fyrri eiginkona hans, var sömuleiðis boðin og búin þegar á þurfti að halda, en á þessum tíma þurftum við í karlafélaginu, sem þá var, iðulega á aðstoð lag- hentra eiginkvenna að halda. Ármann varð fljótt forseti fé- lagsins og er það til marks um hve menn kunnu að meta mann- kosti hans og stjórnunarhæfi- leika, að hann var síðar kjörinn svæðisstjóri Reykjaness og landsforseti JC Íslands. Hann var útnefndur heiðursfélagi JC Íslands og ennfremur senator númer 32536 af JC International og þar með ævifélagi samtak- anna, en slíkt er æðsta viður- kenning hreyfingarinnar. Fer- tugir hverfa menn úr JC, en við sem gegndum forsetaembættinu í JC Hafnarfirði á fyrstu tveim- ur áratugunum höfðum tengst slíkum vinaböndum, að annað var ekki hægt en að stofna Öld- ungaráð sem síðan hefur hist með mislöngu millibili. Á öldung- aráðsfundunum mætti Ármann ætíð með gott grín í farteskinu og var ein helsta tryggingin fyr- ir því að glensið yrði allsráðandi og dægurþras látið lönd og leið. Í veikindum Ármanns var hugur okkar hjá honum og nú þegar hann kveður okkur að sinni viljum við þakka honum samfylgdina og þá hlýju nær- veru sem við fengum notið á meðan hann var meðal okkar. Góða ferð, senator Ármann. Við og fjölskyldur okkar vottum að- standendum hans okkar dýpstu samúð. Öldungarnir, Þórarinn Jón Magnússon og Albert Már Steingrímsson. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013 ✝ Gísli Hafliða-son fæddist á Bragagötu 27 í Reykjavík 17. ágúst 1925. Hann lést á Dvalarheim- ili aldraðra sjó- manna, Hrafnistu, í Reykjavík 26. febrúar 2013. Foreldrar: Hall- dóra Kristín Helgadóttir, f. 27. júní 1890 á Öskubrekku í Fífu- staðardal í Ketildalahreppi, Arnarfirði, d. 24. desember 1977 í Reykjavík, og Hafliði Jónsson vélstjóri, f. 4. nóv- ember 1884 á Skógum í Þorskafirði, fórst með es. Goðafossi 10. nóvember 1944. Bræður Gísla: 1) Kristinn Daní- el, f. 4. maí 1922. Börn hans eru Halldóra Kristín, f. 7. sept- ember 1954, og Hafliði Brands, f. 11. júlí 1962. 2) Pétur, f. 10. ágúst 1927, fórst með föður Hann var undirvélstjóri á mörgum skipum Eimskipa- félags Íslands til ársins 1965 og yfirvélstjóri til starfsloka. Hann var meðal annars samtals tíu ár á Gullfossi og var þar vélstjóri á öllum stigum. Gísli var umsjónarmaður nýsmíðar vélarrúms Dettifoss í Kaup- mannahöfn og Álaborg árið 1970. Hann var yfirvélstjóri á Dettifossi í 15 ár og kunni ávallt vel við skipið. Hann tók einnig þátt í viðgerð gámaskips sem fékk nafnið Brúarfoss haustið 1988. Gísli var yfirvél- stjóri á Brúarfossi til ársloka 1992 þegar hann fór á eft- irlaun. Á sjómannadaginn árið 1993 hlaut Gísli viðurkenningu fyrir störf sín. Þau Þórunn hófu búskap á Hringbraut 48 í húsi fjölskyldunnar en Hall- dóra móðir hans bjó þar fyrir. Árið 1972 fluttu þau í Grænu- hlíð 6 og loks árið 1996 í Sóltún 28. Gísli dvaldi rúm tvö síðustu ár ævinnar á Hrafnistu. Gísli Hafliðason verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju í dag, 11. mars 2013, kl. 15. sínum með es. Goðafossi 10. nóv- ember 1944. Hinn 7. júní 1951 kvæntist Gísli Þórunni Sigríði Guðmundsdóttur frá Sjávargötu, Garði, f. 13. janúar 1927. Bjuggu þau allan búskap sinn í Reykjavík. Synir þeirra eru: 1) Haf- liði Pétur, prófessor í eðlis- fræði, f. 1952. 2) Guðmundur, forstöðumaður fangelsa á höf- uðborgarsvæðinu, f. 1954, kvæntur Hafdísi Guðmunds- dóttur, sonur þeirra Gísli Þór, kvæntur Þorbjörgu Þórhalls- dóttur. 3) Ingólfur, rafeinda- virki, f. 1958. Gísli lauk prófi frá Gagn- fræðaskóla Reykvíkinga árið 1942, sveinsprófi í vélvirkjun frá vélsmiðjunni Keili árið 1946 og vélstjóraprófi árið 1949. Faðir okkar ætlaði alltaf að verða vélstjóri. Hafliði afi var í hópi fyrstu íslenskra vélstjóra, ættaður úr Breiðafirðinum þar sem margir vélstjórar fyrstu kyn- slóðar áttu uppruna sinn. Pabbi sagði okkur nýlega að hann hefði ekki verið nema 11 ára þegar hann heyrði vélstjórana og skólabræð- urna afa og Markús Ívarsson í Héðni ræða saman um mögulegar sjávarfallavirkjanir í Breiðafirðin- um um borð í Goðafossi þar sem hann lá við bryggju í Reykjavík. Hann var alla tíð ótrúlega minn- ugur á löngu liðna atburði. Pabbi var kolamokari í fyrstu sjóferð sinni, hún var til New York, tutt- ugu daga sigling hvora leið. Þá var hann sautján ára og fimmtíu árum síðar fór hann á eftirlaun frá Eim- skip. Hafði þá séð byltingu í vöru- flutningum, frá trossum og viku- dvöl í hverri höfn til nútíma gámaflutninga, þar sem er varla farið í land. Þótt faðir okkar væri ekki raupsamur rifjaði hann stöku sinnum upp atvik af sjónum. Eitt var að öxulrafall í Brúarfossi gaf sig í Norðursjónum, skipið hlaðið tómum frystigámum á heimleið frá Hamborg. Með því að sam- tengja dísilvélar gámanna og ljósavél skipsins komst það heilu og höldnu til hafnar á Englandi í viðgerð. Eftir svipað atvik undan Stafnesi vildi vélstjórinn ávallt hafa næga varahluti um borð. Í landi hefur móðir okkar stýrt heimilinu í sextíu ár og einu betur. Þau eru ólík að skapferli, faðir okkar var hæglátur, en ekki skap- laus, þótt hann skipti sjaldan skapi, fámáll. Við vinnu var til þess tekið hversu fumlaust hann gekk til allra verka. Mamma er hins vegar léttari í lund. Samrýnd voru þau alla tíð, samhent um að ferðast um landið í sumarfríum með synina unga og ömmu aftur í, samhent um að koma sonum sín- um til mennta og flest annað. Við áttum gott og hlýlegt heimili alla tíð og ekki spillti fyrir að hátíð var í bæ þegar pabbi var heima, þótt hans væri saknað þess á milli. Sá atburður sem sennilega mótaði föður okkar öðru fremur ungan að aldri var árásin á Goða- foss 1944. Það kvisaðist um bæinn, þrátt fyrir fréttabann stríðsins, að Goðafoss hefði verið skotinn niður undan Garðskaga. Bræður um tví- tugt fara niður á bryggju til að reyna að fregna meira, fara út á Seltjarnarnes til að skima eftir skipinu en sjá ekkert. Um borð voru Pétur, sautján ára bróðir þeirra í fyrstu siglingu sinni, og faðir þeirra, sextugur nokkrum dögum áður, í sinni síðustu. Klukkutíma sigling eftir af tveggja mánaða hættuferð í miðju stríði. Þetta mátti aldrei nefna í návist Halldóru ömmu okkar svo lengi sem hún lifði. Pabbi ræddi þetta ekki heldur oft en lýsti því þó í einstaka viðtali. Hann hafði eðlilega brennandi áhuga á öllu sem viðkom seinni heimsstyrjöld- inni og minnisstætt var að ferðast með honum um átakastaði og fangabúðir í Evrópu. Hann féllst nokkuð óvænt á að halda upp á áttræðisafmæli sitt í Berlín, þar sem sagan er á hverju götuhorni. Að ferðalokum kemur margt upp í hugann, en einkum þakklæti og stolt yfir því að vita og geta sagt að þar fór góður og heiðarleg- ur maður. Blessuð sé minning föð- ur okkar. Hafliði Pétur og Ingólfur. Mig langar með nokkrum orð- um að kveðja föður minn, Gísla Hafliðason. Pabbi var sjómaður alla sína starfsævi, í hartnær 50 ár. Hann sigldi á skipum Eim- skipafélagsins eins og faðir hans hafði gert. Hugur hans og bróður hans, Kristins, stóð til far- mennsku. En hafið gaf og hafið tók. Pétur, yngsti bróðirinn sem hugðist ganga í menntaskólann, fórst með föður sínum þegar Goðafoss var skotinn niður við Garðskaga 1944. Það er engan veginn hægt að setja sig í spor fjölskyldunnar í landi þennan hörmungardag þegar slík ógnar- tíðindi bárust. En það aftraði ekki Gísla og Kristni frá því að gera sjómennsku að ævistarfi. Fyrstu minningar um pabba tengjast heimkomum úr sigling- um, því að hlusta á skipafréttir og fara með mömmu og Hafliða bróð- ur og síðar Ingólfi niður á höfn, bíða í bílnum og hlakka til. Svo kom vindlalykt í íbúðina á Hring- braut 48, ánægja í hverju andliti, lakkrískonfekt og nýtt dót til að leika sér með. Síðan tók næsti túr við, kannski á Ameríku, Norður- lönd eða jafnvel suður í Miðjarð- arhaf. Það er hlutskipti sjómanns- ins að vera fjarri fjölskyldunni þannig að uppeldið lenti að mestu á mömmu, sem stóð sig vel. Það var ótrúlega gaman þegar skipin komu á ytri höfnina og sigldu síð- an rólega inn, lögðust að kajanum og karlarnir bundu landfestar. Svo var hlaupið upp landganginn og inn í káetu til pabba sem tók fagnandi á móti okkur, rólegur og yfirvegaður. Aldrei neitt vesen, hann stóð alltaf sína plikt og gott betur. Hann var farsæll vélstjóri og síðan yfirvélstjóri á skipum Eimskips og skipsfélagar og stjórnendur í landi litu upp til hans vegna mannkosta. Allt lék í höndum hans, hvort sem það var viðgerð skipsvéla, bíla, húsavið- gerðir eða annað. Toppurinn var þegar pabbi tók okkur með í túra til útlanda. Við Hafliði fórum ungir með Gullfossi til Skotlands og Danmerkur. Við fórum líka með Bakkafossi á ströndina, síðan til Englands og Norðurlanda. Ingólfur bróðir fór síðar með pabba og mömmu enda nokkuð yngri. Þetta voru mikil ævintýri. Ég og seinna Ingólfur urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að vera munstraðir sem dagmenn í vél á Dettifossi þegar pabbi var yf- irvélstjóri. Því gleymi ég aldrei. Að finna þungan sláttinn í skips- vélinni, smurolíulyktina og titring- inn þegar skipið stakkst í ölduna. Þarna var vélstjórinn í essinu sínu. Virðing fyrir starfi og um- hverfi, snyrtimennskan niðri í vél þar sem hver hlutur var á sínum stað og allt glansandi pússað. Öll hans verk voru unnin af alúð og fagmennsku. Síðustu árin, eftir að parkin- sonsveikin lagðist á hann og sjónin hvarf voru honum erfið af því hann gat ekkert gert, hugurinn ennþá skýr en líkaminn lasburða. En hann hafði mikla ánægju af að hlusta á hljóðbækur. Hafi Blindrafélagið þökk fyrir. Eins þökkum við starfsfólki á DAS fyr- ir góða umönnun. En nú er komið að kveðjustund, enda gamli mað- urinn búinn að ýta úr vör og farinn að huga að vélum eilífðarinnar. Blessuð sé minning Gísla Haf- liðasonar. Guðmundur Gíslason. Gísli, tengdafaðir minn, var ein- stakur maður, rólegur, ljúfur, skapgóður og skarpgreindur. Þegar sonur hans, Guðmundur, fór að venja komur sínar á heimili mitt hafði móðir mín á orði að henni litist vel á piltinn og hún hefði líka heyrt að faðir hans væri mikill öðlingur og það reyndust orð að sönnu. Gísli var vélstjóri hjá Eimskip, naut velgengni í starfi og var vel liðinn. Hann þótti snjall í sínu fagi og laghentur var hann við allt sem hann kom nærri. Mér eru minnisstæðar margar góðar stundir sem við fjölskyldan áttum með þeim Gísla og Þórunni í Grænuhlíðinni en þangað fluttu þau 1971 eftir að hafa búið á Hringbraut 48. Þegar Gísli var í landi var hátíðarblær yfir öllu, boðið var í mat og Þórunn galdraði fram framandi rétti enda einstak- ur meistarakokkur þar á ferð. Þá eru jólaboðin í Grænuhlíðinni ógleymanleg þar sem stórfjöl- skyldan kom saman og naut þess að hittast og gæða sér á krásunum hennar Tótu. Tengdapabbi naut þess að ferðast innanlands með fjölskyldu sinni. Mér er sérstaklega minnis- stæð vikudvöl í stjórnarráðsbú- staðnum í Flatey þegar sonur okkar, Gísli Þór, var 9 mánaða. Gísli eldri hafði einstaklega gam- an af þeirri dvöl enda hafði hann, sem strákur, verið mörg sumur í sveit hjá frændfólki sínu í Skál- eyjum. Hann var ættaður úr Breiðafirðinum, en faðir hans ólst upp í Hvallátrum og átti margt frændfólk í eyjunum. Í þessari ferð sigldi frændi hans Jón Daní- elsson í Látrum einmitt með Gísla og fjölskyldu um Vestureyjarnar. Þá minnist ég líka ánægjulegr- ar fjölskylduferðar til Mallorca og sumarbústaðaferða í Borgarfjörð- inn þar sem Gísli eldri þreyttist ekki á að byggja og bardúsa með sonarsyni sínum allan liðlangan daginn. Enn fremur var afmælis- ferðin sem fjölskyldan fór til Berl- ínar, í tilefni af áttræðisafmæli Gísla, alveg einstaklega skemmti- leg ferð. Þar naut Gísli sín enda margar sögulegar minjar að skoða og ánægjulegar kvöldstundir. Gísli var hraustur þar til fyrir nokkrum árum en þá veiktist hann af Parkinson-sjúkdómnum sem lagðist þungt á hann og dvaldi hann á Hrafnistu síðustu tvö árin. Hann var búinn að missa sjónina en minnið brást honum ekki. Eig- inkona hans, Þórunn, annaðist hann lengi heima í Sóltúni, en hún hafði einnig annast móður hans, Halldóru, heima í Grænuhlíðinni rúmum 30 árum áður. Eftir að hann fór á Hrafnistu heimsótti hún hann á hverjum einasta degi og stytti honum stundir. Hún tók hann heim í Sóltúnið á hverjum sunnudegi til að hitta fjölskyldu og vini. Þau hlustuðu m.a. saman á sögur af hljómdiskum frá Blindra- félaginu sem hann hafði mikla ánægju af. Þórunni eru færðar al- úðarþakkir sem og starfsfólki Hrafnistu. Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast manni eins og Gísla Hafliðasyni. Blessuð sé minning hans. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Hafdís Guðmundsdóttir. Elsku afi. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa kynnst þér. Betri og heil- steyptari maður var vandfundinn. Mikið var sárt að heyra að þú vær- ir fallinn frá en ég veit að þér líður vel núna. Þú áttir fallega loka- stund, umvafinn fjölskyldunni. Ég á margar góðar minningar um þig. Þú sigldir um höfin og sagðir mér sögur af framandi slóð- um. Hvergi var betra að vera í pössun en hjá þér og ömmu í Grænuhlíð 6. Ég man þegar þú kenndir mér mannganginn af mik- illi þolinmæði og við tefldum og spiluðum á spil löngum stundum. Þið áttuð líka fullt af dönskum Andrésblöðum uppi á háalofti sem ég las spjaldanna á milli. Mér leið vel hjá ykkur og þú varst alltaf með bros á vör, hlýr og góður. Ég minnist þess líka þegar ég fór í siglingu með þér og ömmu í tæpan mánuð sumarið 1989. Ég hugsa oft um þá ferð. Ég man eftir dýragarðinum í Antwerpen, matnum um borð í Brúarfossi og samverunni. Það var yndislegur tími. Þú varst eins og kóngur í ríki þínu um borð í skipinu. Ég veit að þú varst stórkostlegur vélstjóri. Það leið öllum vel í návist þinni og hundurinn sem ég átti, hún Nína, dýrkaði þig. Þú varst líka flinkur í höndunum, ég man þegar þú smíðaðir með mér kofa í heilan dag í sumarbústaðaferð með fjöl- skyldunni á Grímsstöðum. Eftir því sem aldurinn færðist yfir og veikindin létu á sér kræla áttir þú stundum erfitt með tal en samt stóð aldrei á svari hjá þér þegar til þín var leitað. Minnið þitt brást aldrei og tilsvörin oft á tíð- um fyndin og skemmtileg. Þú varst svo vitur og veraldarvanur eftir ferðalög um allan heiminn, allt frá Kúbu til Angóla. „Ég hef verið þar“ var setning sem heyrð- ist oft þegar við töluðum um fjar- læg lönd. Þér lá ekki hátt rómur, en þegar þú talaðir lögðu allir við hlustir. Mér er sérstaklega minnis- stætt að sjá þig í kirkjunni þegar ég gifti mig í apríl 2008. Það var svo gott að hafa þig með okkur þennan fallega dag. Ég sakna þín, kæri afi minn, og hugsa um þig með hlýju í hjarta. Takk fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Þú munt lifa í huga mínum alla tíð. Gísli Þór Guðmundsson. Gísli Hafliðason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.