Morgunblaðið - 11.03.2013, Page 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013
✝ Ármann Ant-onsson, vél-
stjóri og bóndi
Sauðárkróki, fædd-
ist 23. nóvember
1927. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Sauðárkróks 2.
mars 2013.
Foreldrar hans
voru Anton Baldvin
Björnsson, bóndi á
Ytri-Á, f. 17.2. 1893
á Ytri-Á, d. 9.4. 1975, kona hans
Guðrún Anna Sigurjónsdóttir, f.
1.4. 1905 á Móafelli í Stíflu, d.
28.3 1988. Ármann var elstur af
tíu systkinum. Systkini hans
eru: Konráð Gunnar Antonsson,
f. 4.7. 1929, kvæntur Brynhildi
Einarsdóttur, Kristín Árdal
Antonsdóttir, f. 19.10. 1933, d.
29.12. 2001, gift Jóhanni Alex-
anderssyni, Sigurjón Árdal Ant-
onsson, f. 18.10. 1935, d. 13.11.
1938, Gísli Árdal Antonsson, f.
5.9. 1937, kvæntur Guðrúnu
Hannesdóttur, Sigurjón Árdal
Antonsson, f. 23.10. 1939, d. 4.6.
Jóna Kristín Vagnsdóttir, f.
21.9. 1995, b) Anna Baldvina
Vagnsdóttir, f. 27.1. 1998, c)
Stefán Ármann Vagnsson, f.
11.3. 2000, d) Helgi Vagnsson, f.
4.4. 2002. Ármann lauk minna
mótorvélstjóraprófi á Akureyri
1952 og lauk 2. stigi vélstjóra í
Vélskóla Íslands 1968. Hann fór
ungur að stunda sjó með föður
sínum, bræðrum og frændum
enda barnahópurinn stór á bæn-
um. Hann ólst upp við almenn
sveitastörf og fóru þau systkinin
að aðstoða við þau strax og geta
leyfði, s.s. við heyskap, gæta
fjár, reka kýrnar, beita línu, róa
til fiskjar o.fl. sem til féll á stóru
heimili.
Hann var vélstjóri á nokkrum
bátum fram til ársins 1972, má
þar nefna Kristján ÓF 26, Jón
Garðar GK 510 og Guðbjörgu
GK 20. Frá 1973 var Ármann
bóndi á Hóli á Skaga, þar
bjuggu þau Anna til ársins 1980
er þau fluttu til Sauðárkróks
eftir erfið veikindi Ármanns. Öll
sumur til 2008 eyddi hann í
sveitinni við ýmis störf sem
hann gat unnið og þar undi hann
sér best.
Útför Ármanns verður gerð
frá Sauðárkrókskirkju í dag,
mánudaginn 11. mars 2013 kl.
14.
2012, kvæntur
Sesselju Friðriks-
dóttur, Matthildur
Árdal Antonsdóttir,
f. 17.2. 1941, gift
Jóni Sigurðssyni,
Ingibjörg Guðrún
Árdal Antonsdóttir,
f. 19.6. 1942, gift
Ingimari Núma-
syni, Jakob Hilmar
Árdal Antonsson, f.
7.5. 1949, kvæntur
Helgu Guðnadóttur.
Ármann kvæntist 20. mars
1965 eftirlifandi eiginkonu
sinni, Önnu Jónínu Jónsdóttur,
f. 19.3. 1938 á Hóli á Skaga. For-
eldrar hennar voru Kristín
Baldvinsdóttir, f. 12.12. 1909, d.
15.1. 1979 og Jón Jakobsson, f.
13.9. 1907, d. 9.12. 1994. Börn
Ármanns og Önnu eru: 1) Krist-
ín Brynja, f. 17.8. 1965, í sambúð
með Haraldi Jóhanni Ingólfs-
syni, f. 29.7. 1967. 2) Guðrún
Elva, f. 18.7. 1968, í sambúð með
Vagni Þormari Stefánssyni, f.
31.7. 1965, börn þeirra eru: a)
Við sjáum að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla.
Það er eins og festingin færist nær,
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóst þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og
hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt,
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stefánsson.)
Hafðu þökk fyrir samfylgdina,
elsku vinur.
Þín
Anna.
Þegar ég sat hjá föður mínum
hans síðustu daga runnu myndir
og minningar í gegnum hugann.
Til dæmis þegar við bjuggum í
Keflavík og fara þurfti í slipp með
bátinn sem hann var vélstjóri á.
Ég hef verið 5 ára eða svo og í
svona langa sjóferð þurfti auðvit-
að nesti, kók og Prinspóló. Kók ef
ég yrði sjóveik og Prinspóló ef
hungurs yrði vart. Þegar komið
var í Slippinn þá var hvort
tveggja ósnert því það hafði verið
svo mikið að gera og skoða á
þessari „löngu“ siglingu, frá
bryggju í Keflavík inn í Slippinn í
Njarðvík.
Þegar við bjuggum í Sandgerði
og svo í Keflavík, var pabbi á sjó
og bað ég hann oft um að koma
með steinbít næst þegar hann
kæmi í land og uppfyllti hann þá
ósk ef hægt var. Einnig kom hann
stundum með humar og þá var
sko veisla. Oft skottaðist ég með
honum um borð ef hann þurfti að
líta eftir einhverju þegar hann
var í landi og bar þá fyrir augu
ýmsar gersemar sem höfðu kom-
ið úr hafinu í síðustu sjóferð, kuð-
unga, ígulker, krossfiska o.fl. for-
vitnilegt.
Eftir að við fluttum norður
reyndi ég að vera til gagns í sveit-
inni og studdi pabbi mig eins og
hans var von og vísa og veitti mér
tilsögn við það sem betur mátti
fara. Hann var natinn við skepn-
urnar og mátti ekkert aumt sjá
enda voru dýrin mjög hænd að
honum og oft spakari við hann en
aðra.
Pabbi var hraustur, ósérhlífinn
og glaðsinna og hjálpaði það hon-
um mikið við að ná sér eftir það
erfiða áfall sem orsakaði lömun
hans og um leið skerti starfsgetu.
Það var líka án efa það sem hjálp-
aði honum að ná þeim bata sem
hann náði eftir þessi veikindi sín,
því í hans orðabók var ekki skil-
greint hvað það þýddi að gefast
upp og ef hann var inntur eftir
líðan sinni þá var ætíð sama svar-
ið: „Ég hef það fínt.“ Það var
örugglega einhver annar sem átti
við meiri erfiðleika að stríða en
hann. Hann saknaði þess þó mest
að geta ekki hlaupið, dansað eða
farið á hestbak meir vegna fötl-
unar sinnar.
Eftir að við fluttum á Krókinn
dvaldi pabbi úti á Hóli frá vori og
fram á haust, meðan heilsan
leyfði. Þar undi hann sér við eitt
og annað. Hugur hans var ætíð í
sveitinni, annað hvort á Hóli eða
hjá Guðrúnu systur eftir að hún
flutti að Minni-Ökrum. Fylgdist
hann grannt með hvernig bú-
skapurinn þar gekk, sauðburður,
heyskapur, smalanir og fjár-
heimtur.
Barnabörnin áttu stóran sess
hjá honum og ræddi hann oft við
þau um kindurnar og kisurnar.
Hann fylgdist með á vorin þegar
ærnar þeirra báru, hvort það var
hrútur eða gimbur, hversu mörg
og hvernig lömbin voru á litinn,
þetta var allt geymt og rætt fram
og aftur. Einnig leitaði hugurinn
oft til Ólafsfjarðar á æskustöðv-
arnar á Kleifunum. Þaðan átti
hann margar minningar tengdar
sjónum, fjársmölunum m.a. í
Héðinsfirði og fjárrekstrum yfir
Rauðskörð. Þá var ekki alltaf
logn og blíða eða sumarsól, eða sú
tækni sem er nú til staðar til að
segja til um veður fram í tímann.
Nú ertu laus við verki og van-
líðan, elsku pabbi minn, og við
vonum að þér líði vel og hjá þér sé
Maríuveður, hafðu þökk fyrir allt.
Þín dóttir,
Kristín.
Nú er komið að kveðjustund
pabbi minn. Ég mun ætíð minn-
ast þín fyrir jákvæðni, umburð-
arlyndi og glaðværð. Það var
sama hvað á dundi, alltaf brostir
þú og ypptir öxl og sagðir „ja“
eins og það væri ekkert tiltöku-
mál þótt kannan hefði brotnað
eða maður hefði gert eitthvað af
sér. Þegar þér var gerður grikk-
ur hlóstu svo innilega þótt stund-
um hefði maður átt skilið að fá
ávítur fyrir. Einu sinni gastu
samt ekki orða bundist þegar við
systurnar kölluðum á þig í sím-
ann sunnan úr fjárhúsum og bið-
um svo glaðbeittar á tröppunum
á Hóli, þegar þú komst hlaupandi
og við sögðum „fyrsti apríl“.
Ég þakka fyrir allar þær
stundir sem við vorum að stússa í
búskapnum á Hóli, strax á vorin
fórstu út á Skaga til að hugsa um
kindurnar og lömbin. Oft varstu
mættur í fjárhúsin af því að það
var einhver sem vakti þig eins og
þú sagðir og undantekningalaust
var þá einhver kindin sem þurfti
að fá hjálp til að koma afkvæmi
sínu í heiminn. Það var þér svo
kært að fá að hugsa um kindurn-
ar og lömbin.
Eftir að ég flutti í Minni-Akra
og þú komst fram eftir í vorstúss-
ið að sjá um lömbin sem tekin
voru inn í þvottahús svo að þau
næðu í sig hita þurfti maður ekk-
ert að hafa áhyggjur af þeim
meira. Þú varst besta fóstra sem
völ var á, ekki mátti heyrast í
þeim þá var tími til kominn að
gefa að drekka.
Barnabörnin fóru ekki var-
hluta af gæsku þinni heldur, oft
þurftir þú að gauka einhverju
smáræði að þeim. Ekki veit ég
hversu oft þau unnu afa í spilum
eins og olsen-olsen og veiðimanni,
það var eins og þau vissu alltaf
hvaða spil afi dró úr bunkanum.
Kannski vegna þess að oft tuldr-
aðir þú þegar þú dróst spil „lauf-
atía eða -gosi“ og brostir í kamp-
inn eftir að hafa misst þetta út úr
þér. Svo var nauðsynlegt að
kenna barnabörnunum að drekka
kaffi, súpa á og dæsa á eftir. Þótt
ekki tækist að kenna þeim öllum
að meta þennan drykk var þetta
eins og viss helgiathöfn.
Ég þakka þér fyrir allt pabbi
minn, minning þín lifir.
Þín dóttir,
Guðrún Elva.
Kæri vinur.
Mér er ljúft og skylt að minn-
ast þín með fáeinum orðum. Þú
talaðir oft um að nú væri „Mar-
íuveður“ og þannig var það dag-
inn sem þú kvaddir, sól og blíða.
Ég og mín fjölskylda vorum svo
lánsöm að fá að kynnast þér og
þekkja lengi. Við stöndum ríkari
eftir. Minningarnar flæða, þær
eru óteljandi, en ein verður að
vera hér, hún er ógleymanleg.
Það var búið að setja ný ljós í
kjallarann á Hóli, þú kveiktir á
þeim öllum og tókst svo stóra
sveiflu um eldhúsið til að sýna
okkur alla dýrðina. Þú varst svo
innilega glaður. Þú verður mér
ógleymanleg hetja, elsku Ár-
mann, kvartaðir aldrei og lagðir
alúð þína í allt sem þú gerðir.
Dætur mínar sem voru svo
heppnar að fá að dvelja tíma og
tíma hjá ykkur hjónum á Hóli,
búa að því alla ævi. Eins áttu allir
mínir aðgang að heimilinu ykkar
á Hólavegi jafnt að nóttu sem
degi.
Það var gott að fá að sitja við
rúmið þitt síðustu dagana og
hugsa um allar góðu stundirnar
sem við áttum. En það var sárt að
kveðja. Elsku Anna, Stína, Guð-
rún, tengdasynir og barnabörn,
mínar bestu samúðarkveðjur.
Góði vinur, takk og aftur takk
fyrir mig og hópinn minn.
Sigrún, Litla-Felli.
Björn Ármann
Antonsson
alveg einstaklega ánægjulegt og
gott vináttusamband við þig og
Ingimar síðastliðin 20 ár.
Það hefur ávallt verið yndis-
legt að hitta ykkur hjónin, ætíð
svo kát og með hlýlegt viðmót.
Það var svo gaman að fá ykkur í
þær veislur sem fjölskylda mín
hélt, hvort sem það var skírn eða
afmælisveislur.
Við fjölskyldan mín erum mik-
ið matfólk og þykir ekkert eins
gott og að borða góðan mat með
skemmtilegu fólki og þannig vor-
uð þið hjónin líka. Alltaf svo gest-
risin og myndarleg.
Ég er alveg viss um það, Matta
mín, að nú þegar ertu komin á
fullt í því að opna fallegt gisti-
heimili í „Sumarlandinu“ þar sem
ilmur af nýbökuðu brauði tekur á
móti gestum, ásamt ómi af glað-
legri tónlist. Þegar minn tími
kemur, mun ég bóka herbergi
þar, svo mikið er víst.
Elsku Ingimar, við vottum þér
og fjölskyldu þinni allri okkar
innilegustu samúð og biðjum góð-
an Guð um að hughreysta þig,
varðveita þig og blessa.
Megi minning Möttu lengi lifa.
Rúna Gerður Stef-
ánsdóttir og fjölskylda.
„Ætlarðu ekki að koma og fá
þér eina?“ heyrðist oft ofan af
þriðju hæð á Bugðulæk 13, þegar
ég var á ferð í stigaganginum
sem við Matta og Ingimar deild-
um um sex ára skeið. Það var þá
hún Matta vinkona mín að bjóða í
kaffi og með því og auðvitað þáði
ég það. Eldhúsið hennar Möttu
var nefnilega notalegasta eldhús í
Reykjavík og þótt víðar væri leit-
að. Þar var alltaf heitt á könn-
unni, skonsudeigið tilbúið í skál
og egg og skinka kraumandi á
pönnunni. Á milli þess sem hún
bar veitingar í gesti sat Matta við
eldhúsborðið. Opin og umburðar-
lynd, alltaf hress og jákvæð og til
í spjall um hvað sem dagurinn
bauð. Kímnigáfan frábær og
brandarar oftar en ekki á hennar
eigin kostnað, enda væri hægt að
fylla heila bók af skemmtisögum
af Möttu úr ferðalagi hennar í
gegnum lífið. Hún kunni þá list að
búa til veislu úr augnablikinu og
njóta hversdagsins í hvívetna og
það þrátt fyrir að hafa tekist á við
sorgina stærstu, eða kannski líka
þess vegna? Enda var oftast þétt-
setið í eldhúsinu hjá Möttu. Þar
voru allir velkomnir. Gestir sem
voru í heimagistingunni hjá
henni, ættingjar, vinir, nágrann-
ar, gamlar vinkonur frá árunum á
Hótel Loftleiðum, vinir barnanna
hennar og jafnvel mínir ættingjar
og vinir sem hún tók sem sínum
eigin. Svo ekki sé talað um syni
mína, sem alltaf voru aufúsugest-
ir uppi hjá Möttu sinni.
Ég mun minnast þessarar ein-
stöku konu með þakklæti fyrir
vináttu og tryggð sem ekki er að
finna á hverju strái og allar
ógleymanlegu stundirnar munu
verða vel geymdar. Elsku Ingi-
mar, Gunna, Jóhanna og fjöl-
skyldur. Ykkur votta ég mína
dýpstu samúð.
Bjarnheiður Hallsdóttir.
Þegar mér verður hugsað til
hennar Möttu minnar koma þessi
orð upp í hugann; glaðvær,
skemmtileg og mikill mannvinur.
Hún fékk að lifa hér á jörð í 84 ár,
var gift elskulegum móðurbróður
mínum, honum Ingimar, og sam-
an höfðu þau fetað lífsveginn í svo
ótal mörg ár. Afkomendur þeirra
syrgja nú þessa sérstæðu konu
og þótt hún hafi átt bæði góða og
langa ævi snertir andlát ástvinar
ætíð sálartetrið og hugurinn leit-
ar aftur í tímann í bjartan minn-
ingasjóð.
Matta og Ingimar voru yfir-
leitt nefnd í einni hendingu, svo
nátengd voru þau hvort öðru sem
og foreldrum mínum heitnum og
stórfjölskyldunni allri.
Matta mín hafði yndi af því að
rifja upp gamla tíma. Hún var
mikil vinkona mömmu heitinnar
og varð henni tíðrætt um hana
eftir að mamma lést. Þær voru
ólíkar mágkonurnar, það var
svona viss stríðnispúki í þeim
báðum, þær létu hvor aðra heyra
það, en strengurinn var ætíð
sterkur á milli þeirra og báðar
höfðu þær gaman af því að gleðj-
ast saman á góðri stund. Enda
sagði Matta oft við mig er ég leit
til hennar: „Marsí mín, ég sakna
hennar mömmu þinnar svo mikið
því hún var svo skemmtileg.“
Þegar við leiðum hugann að orð-
inu skemmtileg eða skemmtun þá
var það aðalgamanið hjá Möttu
okkar að taka á móti gestum,
enda gerðu fáir það betur en þau
Ingimar. Allir voru svo velkomn-
ir til þeirra og ótrúlegasta fólk
hélt tryggð við þau um árabil.
Þegar Matta var hætt að vinna
úti ráku þau gistiheimili á Bugð-
ulæk 13 en það var einnig heimili
þeirra til margra ára. Þar var
stundum afar líflegt og frekar
virkjaði Matta hálfa götuna með
sér í þessum bissness en að út-
hýsa einhverjum. Ingimar henn-
ar keyrði leigubíl og sameinuðu
þau lipurlega þessa iðju öllum til
gleði og hagsbóta.
Dóttir þeirra, Guðrún Katrín,
fluttist til Ástralíu og það voru
ófáar ferðirnar sem þau fóru
gamla settið til að vera í námunda
við hana, eiginmann hennar
Geira, elskuleg börn þeirra og
allra síðast kær barnabarnabörn.
Það var viss tregi og þá sérstak-
lega í Ingimar, föður Gunnu, að
þau skyldu flytjast búferlum og
vera svona langt í burtu en þess-
ar ferðir til þeirra gáfu þeim mik-
ið og einnig var gott að finna til-
hlökkunina því að dagarnir voru
svo sannarlega taldir þegar von
var á Gunnu þeirra og Geira til
Ísalandsins góða.
Jóhanna dóttir þeirra hefur
staðið vaktina með þeim hér með
miklum sóma, en mikill harmur
var að þeim kveðinn er Palli son-
ur þeirra lést á besta aldri. Þau
eru af þeirri kynslóð sem var
kennt að réttast væri að bera
harm sinn í hljóði en upp á síð-
kastið kom Palli, þessi elska,
meira fram í samtölum við þau.
Það var sérstakt þegar við Stef-
án, eiginmaður minn, ræddum
við þau að þau leyfðu hvort öðru
að segja sína sögu og þegar
Matta var að segja frá leit Ingi-
mar hana ástaraugum þótt hann
hefði eflaust heyrt það sama
hundrað sinnum. Bætti hann síð-
an glettinn einhverju við í lokin.
Hver vill ekki koma til hjóna þar
sem samstaðan er í fyrirrúmi,
hagur hins hafður að leiðarljósi
bæði í lífsins þrautum og á gleði-
stundum?
Marsibil Ólafsdóttir.
Matta, þessi yndislega glað-
væra kona, kvaddi lífið snögglega
laugardaginn 2. mars. Já, snögg-
lega þótt hún væri á 85. aldursári,
hún lagði sig eftir matinn og sofn-
aði svefninum langa. Hún talaði
oft um hvað þau hjónin væru
heppin, fyndu hvergi til, liði bara
vel og væru hraust. Aðeins sjónin
hennar væri komin langleiðina að
hverfa, svo að Ingimar las fyrir
hana úr blöðunum, en það aftraði
henni þó ekki í að hrósa fólki fyrir
hvað það liti vel út og væri fallegt
þegar það kom í heimsókn.
Já, Matta þekkti sko ekkert
nema fallegt og gott fólk.
Möttu fannst mikilvægt að
vera vel greidd og vel til fara, hún
fór meira að segja í hárgreiðslu
daginn fyrir andlátið og hefur því
verið fín og falleg þegar hún hitti
systkini sín og soninn sem hún
elskaði svo mikið en féll frá svo
alltof fljótt, rétt rúmlega fertug-
ur. Já, þann dag sem Matta
mætti hefur orðið fjör í himna-
ríki, það sagði Ingimar hennar
heittelskaði og við hin tókum
undir, það er engin lognmolla þar
sem Matta er, núna eru engir
sjúkdómar, engin hjálpartæki og
engin ellikerling að þvælast fyrir
þeim og nú sér hún fegurðina
með eigin augum.
Hún sagði ósjaldan að hún ætti
svo ástríkan mann, Ingimar væri
svo duglegur og hugulsamur og
hann stjanaði við hana alla daga.
Hún hefði séð hvern mann hann
hafði að geyma þegar hún fyrst
sá hann í kringum sjöunda árið
og fjölskylda hennar flutti í
Hrútafjörðinn. Strax á þeim ár-
um, aðeins barn að aldri, ákvað
hún að þessum dreng ætlaði hún
að giftast. Hjónabandið varaði í
nær 65 ár. Er þetta ekki ást við
fyrstu sýn?
Matta mín var ekki síðri en
Ingimar þegar ástríki og góð-
mennska var annars vegar. Það
er mannbætandi að þekkja þau
og alltaf fer ég með hjartað fullt
af brosi og gleði eftir spjall við
eldhúsborðið eða á svölunum.
Takk fyrir alveg einstakar
móttökur og yndisleg viðkynni
elsku hjartans Matta mín, ég
kveð þig með sorg og gleði í
hjarta.
Elsku Ingimar, Gunna og fjöl-
skylda, Jóhanna og fjölskylda,
Erlingur og fjölskylda og Villi og
fjölskylda, megi Guð og aðrar
góðar vættir styrkja ykkur í
sorginni.
Þó allir hljóti að fara þessa ferð
að finna andans björtu heimakynni,
þá streymir um hugann minninganna
mergð
er mætur vinur hverfur hinsta sinni.
(Vilhjálmur S.V. Sigurjónsson)
Sigrún Guðgeirsdóttir
og fjölskylda.
Ég stóð á tröppum Bugð-
ulækjar 13 og vellti því fyrir mér
hvort Gistiheimili tæki á móti
nokkrum skítugum járniðnaðar-
mönnum og leigði þeim herbergi,
jafnvel í nokkrar vikur. Ég
hringdi og hvell rödd kom í dyra-
símann, komdu upp. Ég skokkaði
af stað upp stigann. Og þarna
hitti eg Möttu, eins og hún var
alltaf kölluð, í fyrsta sinn. Það var
hinsvegar eins og hún hefði alltaf
þekkt mig. Og fyrr en varði var
ég kominn með hóp manna inná
gafl í orðsins fyllstu merkingu.
Þarna vorum við komnir inn í
íbúð hjá bláókunnugum hjónum.
En það átti eftir að breytast
fljótt, því eftir nokkra daga vor-
um við orðnir eins og börnin
þeirra. Þarna vorum við staddir á
Gistiheimili Mattheu K. Guð-
mundsdóttur. Síðan eru liðin
mörg ár. Margt væri hægt að
skrifa um veru okkar hjá Möttu
því hún varð mun lengri en í
fyrstu var áætlað. Og allan tím-
ann vorum við umvafin kærleika
og hlýju.
Það var oft kátt á hjalla við
kvöldverðarborðið þegar við
komum frá vinnu við skolpdælu-
stöðna í Laugarnesi, þá var
Matta hrókur alls fagnaðar og
margt spaugilegt fjasað um mat-
inn sem alltaf var nóg af, og alltaf
góður. Og þá var eiginmaðurinn
hann Ingimar Einarsson ekki eft-
irbátur hennar með grínið og
skemmtilegheitin, þau voru
reyndar eins og einn maður í öllu
sem þau gerðu. Seinna þegar ég
var orðinn einn í gistingu hjá
Möttu þá kom konan mín Sigrún
öðru hverju í heimsókn, stundum
gisti hún, og þá var engu tauti við
þau komið, við urðum að sofa í
svefnherberginu þeirra, þau
mundu sofa í stofunni. Þetta var
nefnilega Gistiheimili Mattheu.
Við Sigrún höfum notið frábærr-
ar vináttu þeirra æ síðan. Laug-
ardaginn 2. mars dró hinsvegar
ský fyrir sólu hjá okkur Sigrúnu,
því þá lést hún vinkona okkar í
svefni á áttugasta og fimmta ald-
ursári.
Maður kynnist ekki oft á lífs-
leiðini slíku gulli sem Matta var.
En minningin mun lifa. Um leið
og við Sigrún vottum fjölskyld-
unni samúð biðjum við góðan Guð
að blessa minningu Mattheu K.
Guðmundsdóttur.
Einar Jóhann Guðleifsson
og Sigrún Rafnsdóttir.
Fleiri minningargreinar
um Mattheu K. Guðmunds-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.