Morgunblaðið - 11.03.2013, Síða 31
manna hópur, göngum tvisvar í viku.
Á miðvikudögum förum við í stutta
göngu í Elliðaárdalnum en á laugar-
dögum förum við aðeins út fyrir
þéttbýlið og göngum þá gjarnan í
Heiðmörkinni eða á Esjuna. Ég
gekk t.d. sjö sinnum á Esjuna á
stuttum tíma áður en ég fór á
Hvannadalshnúk árið 2006.
En Skálmararnir fara líka í eina
stóra ferð á hverju sumri, svona
fjögurra daga til vikuferð. Við fórum
í Hólmsárgöngu í fyrra, gengum á
Hornströndum 2011, á Síðu 2010,
fórum Hellismannaleið 2009 og
gengum í Hálöndum Skotlands árið
2008. Í sumar stefna Skálmarar svo
á Síðuna, Lómagnúp, Hverfisfljót,
Kaldbak og Fjaðrárgljúfur.
Síðan geng ég mikið með Ferða-
málafélagi Skaftárhrepps. Þau eru
með tvær til þrjár ferðir á mánuði
yfir sumartímann, með fararstjóra,
og ég læt mig ekki vanta í þær ferðir
ef ég er fyrir austan á annað borð.
Svo má ekki gleyma Lakkstígvél-
unum. Það er gönguhópu sem saman
stendur af samstarfsfólki en með
þeim fer ég árlega í góðar göngur.“
Jóna Lísa er virkur náttúruvernd-
arsinni og hefur talað gegn virkj-
unum í Skaftárhreppi.
Fjölskylda
Eiginmaður Jónu Lísu er Páll
Gunnarsson, f. 22.7. 1956, vélstjóri
hjá Þorbirni. Hann er sonur Gunn-
ars Pálssonar, f. 18.9. 1925, fyrrv.
verkamanns, og Jóhönnu Margrétar
Jóhannsdóttur, f. 20.12. 1916, d. 16.1.
1988, húsfreyju.
Börn Jónu Lísu og Páls eru Sævar
Örn, f. 30.10. 1982, rafmagnstækni-
fræðingur hjá Rafmiðlun, en kona
hans er Ína Björg Árnadóttir, f. 18.1.
1984, nemi við HÍ og er dóttir þeirra
Freyja Rós, f. 25.4. 2011; Ágústa Sól,
f. 30.3. 1990, nemi við HÍ, en unnusti
hennar er Þórgrímur Ármannsson,
f. 2.6. 1989, nemi í gullsmíði.
Systkini Jónu Lísu eru Ásta Sig-
rún, f. 17.4. 1955, sjúkraliði, búsett í
Reykjavík; Vigfús Gunnar f. 6.6.
1957, framkvæmdastjóri hjá Flug-
ger, búsettur í Þorlákshöfn; Sig-
urður Ómar, f. 18.7. 1960, bóndi í
Hemru; Sigurgeir Bjarni, f. 8.4.
1965, bóndi á Flögu; Sverrir, f. 6.4.
1969, bóndi á Kirkjubæjarklaustri.
Foreldrar Jónu Lísu: Gísli Vigfús-
son, f. 29.8. 1923, d. 1.3. 2007, bóndi á
Flögu, og Sigríður Sigurðardóttir, f.
18.1. 1934, ferðaþjónustubóndi á
Flögu.
Úr frændgarði Jónu Lísu Gísladóttur
Jóna Lísa
Gísladóttir
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. í Holti I
Bárður Pálsson
b. í Holti I í Álftaveri
Ástríður Bárðardóttir
húsfr. í Kerlingardal
Sigurður Sverrisson
b. í Kerlingardal
Sigríður Sigurðardóttir
húsfr. á Flögu
Oddný Jónsdóttir
húsfr. í Hraunbæ og í Jórvík
Sverrir Bjarnason
b. í Hraunbæ og í Jórvík í Álftaveri
Þuríður Ólafsdóttir
frá Syðri-Steinsmýri
Gunnar Vigfússon
óðalsb. á Flögu
Vigfús Gunnarsson
b. á Flögu
Sigríður Sveinsdóttir
húsfr. á Flögu
Gísli Vigfússon
b. og póstur á
Flögu
Guðríður Pálsdóttir
prófasts og alþm á
Síðu Pálssonar
Sveinn
pr. og alþm. í Ásum.Móðir hans var Sigríður Sveinsdóttir,
náttúrufr. í Vík Pálssonar, og Þórunnar Bjarnadóttur, landlæknis
Pálssonar, og Rannveigar Skúladóttur, landfógeta Magnússonar
Sigríður Bárðardóttir
húsfr. á Jarðlangsstöðum í Borgarfirði
Sverrir Sigurðarson
var b. á Ljótarstöðum
Guðríður
Vigfúsdóttir
húsfr.
Ingibjörg Linnet
yfirpóstafgreiðsluk., móðir
Jóhönnu Linnet söngkonu
Sigríður Björnsdóttir
myndlistakona,móðir
Björns Roth Karlssonar
myndlistarmanns
Oddur Björnsson
leikritaskáld, faðir Hilmars
kvikmyndagerðarmanns
Sveinn Sveinsson
b. á Norður-Fossi í Mýrdal
Gísli Sveinsson
alþingisforseti
Runólfur Sveinsson
sandgræðslustj.
Róshildur Sveinsdóttir
handavinnu- og yogakennari, móðir
Brynju Benediktsdóttur leikstjóra,
móður Benedikts Erlingssonar, leikara,
leikstj. og leikritaskálds
Páll Sveinsson
sandgræðslustj., faðir
Sveins landgræðslustj.,
Afmælisbarnið Jóna er hér á Kjós-
areggjum og Þumall í baksýn.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013
Gísli Kort Kristófersson hefur varið
doktorsritgerð sína í hjúkrunarfræði við
Minnesota-háskóla. Leiðbeinandi var
prófessor Mary Jo Kreitzer. Ritgerðin
nefnist „The effects of mindfulness ba-
sed intervention on impulsivity, symp-
toms of depression, anxiety, experien-
ces and quality of life of persons
suffering from substance use disorder
and traumatic brain injury“.
Ritgerðin fjallar um áhrif aðlagaðrar
árveknimeðferðar (e. mindfulness) á
ólíkar félagssálfræðilegar víddir fólks
sem þjáist af áfengis- og/eða vímuefna-
vanda og heilaskaða. Kvíði, þunglyndi,
lífsgæði, hvatvísi og reynsla voru könn-
uð til að fá yfirgripsmikla mynd af áhrif-
um átta vikna áreknismeðferðar á þátt-
takendur. Megindlegur hluti
rannsóknarinnar skoðaði áhrif árvekni-
byggðrar hugleiðslu á reynslu þátttak-
enda með aðlagaðri grundaðri kenningu
(e. grounded theory). Almennar og sér-
tækar tölfræðiaðferðir voru notaðar til
að skoða niðurstöður eigindlegra gagna.
Niðurstöður megindlegra gagna sýndu
ekki marktækt fram á kosti inngripsins á
meðan eigindleg viðtöl sýndu fram á
ýmsa kosti meðferðarinnar að sögn
þátttakenda. Þar á meðal voru jákvæð
áhrif á líðan, hvatvísi, kvíða og sam-
bönd við annað fólk.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu
fram á að þessi aðlagaða árvekni-
byggða streitustjórnunarmeðferð er
ódýr og örugg aðferð sem virtist henta
þátttakendum rannsóknarinnar vel.
Skortur á tölfræðilega marktækum nið-
urstöðum í megindlegum hluta rann-
sóknarinnar gefur þó til kynna að fleiri
rannsókna með stærra úrtaki sé þörf á
þessu rannsóknarsviði.
Gísli Kort Kristófersson fæddist 6. nóvember 1978, sonur Margrétar Gunn-
arsdóttur hjúkrunarfræðings og Kristófer Más Kristinssonar, kennara og leið-
sögumanns. Gísli lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1998, BS-prófi í
hjúkrunarfræði 2004 frá Háskóla Íslands og meistaraprófi í geðhjúkrunarfræði
2008 frá Minnesota-háskóla. Hann hefur starfað sem klínískur sérfræðingur í geð-
hjúkrun síðan 2008 og starfar nú sem aðstoðarprófessor í hjúkrunarfræði við
Minnesota-háskóla ásamt störfum á einkastofu. Gísli Kort er giftur Auðbjörgu
Björnsdóttur, fyrirlesara við tölfræðideild Minnesota-háskóla. Börn Auðbjargar og
Gísla eru Björn Kort, Ágústa Kort og Helgi Kort.
Doktor
Doktor í hjúkrunarfræði
100 ára
Sigrún Snorradóttir
90 ára
Aðalheiður Geirsdóttir
Emma Kolbeinsdóttir
Gunnlaugur Árnason
Halldór G. Stefánsson
75 ára
Barbara Thinat
Daníel Axelsson
Helga Björg Sigurðardóttir
Kristján Albertsson
Kristján R. Kristjánsson
Magnea Ólöf Oddsdóttir
Margrét Gunnlaugsdóttir
Stefán Björgvinsson
70 ára
Davíð Guðmundsson
Guðrún Vigdís Sverrisdóttir
Gunnar Kárason
Hansína Sesselja
Gísladóttir
Hjörtur Grímsson
Jón Þorvaldsson
Sigurbjörg Jóhannesdóttir
60 ára
Benedikta S.
Steingrímsdóttir
Birgir F. Strandberg
Bryndís Valgeirsdóttir
Dögg Theódórsdóttir
Hólmfríður G. Þorleifsdóttir
Páll Arnór Sigurðsson
Ragnheiður K. Lárusdóttir
Sigurður Már Sigurðsson
Svanur Jóhannsson
50 ára
Björn Jóhannesson
Eiríkur Þórkelsson
Jóhanna Sigurðardóttir
Liudmyla Tyshko
40 ára
Birgir Örn Arnarson
Elísabet Böðvarsdóttir
Ernir Freyr Sigurðsson
Eva Margrét Ævarsdóttir
Guðlaug María Leifsdóttir
Hildur Sigurjónsdóttir
Jón Andri Finnsson
Kolbrún Ösp
Guðrúnardóttir
Natasa Desnica
Tomasz Wojciech Krawczuk
Þórður Bjarnason
30 ára
Alisha Dawn
Þorsteinsdóttir
Andrés Arnar Hlynsson
Arnar Guðnason
Arnheiður Rán Almarsdóttir
Björn Eyjólfsson
Friðrik Bjarnason
Guðmundur Björnsson
Hugrún Harpa Reynisdóttir
Ívar Hauksson
Katarzyna Hanna Wasyl
Kári Sigurjónsson
Monika Pinkovská
Sigurbjörg Sigurðardóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Maja ólst upp í
Bolungarvík, vann við
frystihús í Bolungarvík á
unglingsárunum og hefur
séð um börn og bú.
Maki: Stefán Ólafur Stef-
ánsson, f. 1989, verktaki
og þúsundþjalasmiður.
Synir: Ísak Ingi, f. 2001
Baldur Þór, f. 2004 og
Mikael Meyvant, f. 2010.
Foreldrar: Sólveig B.
Skúladóttir, f. 1958, og
Jón Ísak Harðarson, f.
1958.
Ólöf María
Jónsdóttir
30 ára Telma ólst upp í
Steinnesi í Húnavatns-
sýslu, lauk BS-prófi í
ferðamálafræði frá HÍ,
vinnur við Landsbankann
og hannar skartgripi.
Maki: Trausti Ágúst Her-
mannsson, f. 1983, lög-
maður.
Sonur: Magnús Trausta-
son, f. 2011.
Foreldrar: Magnús Jós-
efsson, f. 1953, bóndi í
Steinnesi, og Líney Árna-
dóttir, f. 1957, forstöðum.
Telma
Magnúsdóttir
30 ára Auðunn lauk stúd-
entsprófi frá MA, prófi í
ljósmyndun í Ástralíu
2008, stundar nú nám í
stjórnun og markaðsfræði
við HA og vinnur sjálf-
stætt sem ljósmyndari.
Maki: Aðalheiður Alfreðs-
dóttir, f. 1990, nemi í sjáv-
arútvegsfræði við HA.
Foreldrar: Níels Karlsson,
f. 1952, mennta-
skólakennari, og Jóhanna
S.H. Pétursdóttir, f. 1948,
starfsmaður hjá Brimi.
Auðunn
Níelsson
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
Gleymdu gamla símkerfinu,
hér kemur Swyx