Morgunblaðið - 11.03.2013, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013
LIONS KLÚBBURINN
EIR REYKJAVÍK
GT VERKTAKAR • DÚKARINN ÓLI MÁR • ÓLAFUR ÞORSTEINSSON EHF • PRENTLAUSNIR EHF
KAFFI NORÐURFJÖRÐUR • MAGGA OG SVENNI • STEYPUSTÖÐIN BORG • ALLIANZ • RAFSTJÓRN EHF
SÉRSTÖK STYRKTARSÝNING
SÉRSTÖK STYRKTARSÝNING
Í kvöld, mánudaginn 11. mars, kl. 20.00 í Háskólabíói
ALLUR ÁGÓÐI SÝNINGARINNAR RENNUR TIL LÍKNARMÁLA
ÞÖKKUM STUÐNINGINN
FRUMSÝND 15. MARS
Jón Jónsson, tónlistarmaður og rit-
stjóri Monitors, hlaut á dögunum
gullplötu fyrir fyrstu breiðskífu
sína, Wait For Fate sem kom út í
júlí 2011. Gullplata er afhent þeim
tónlistarmönnum eða hljómsveitum
sem ná að selja skífur sínar í yfir
5.000 eintökum. Af smellum Jóns af
fyrrnefndri skífu hans má nefna
„Wanna Get In“ og „When You’re
Around“.
Gulldrengur Jón Jónsson á tónleikum.
Breiðskífa Jóns
Jónssonar í gull
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í umfjöllun um tónleikaferð tónlist-
arkonunnar Mckinley Black um Ís-
land sem birt var í blaðinu í fyrradag
stóð að hún myndi halda tónleika á
Café Rósenberg 11. mars. Hið rétta
er að þeir tónleikar verða haldnir 13.
mars. Beðist er velvirðingar á þessu.
Black Fer víða á næstu dögum.
Tónleikar haldnir
13. mars, ekki 11.
LEIÐRÉTT
Bíó Paradís og Hönnunarmiðstöð
kynna tvær kvikmyndir sem verða
sýndar í byrjun HönnunarMars.
Myndin Seven Heaven Love Ways,
eftir Paola Suhonen, verður sýnd á
sunnudag 17. mars kl. 18. Myndin
gerist á vegamóteli í eyðimörk Tex-
as-ríkis, rétt við mexíkósku landa-
mærin. Paola Suhonen er stofnandi
og aðalhönnuður finnska fatahönn-
unarfyrirtækisins Ivana Helsinki.
Auk þess verður sýnd Teaching to
See, eftir Andrei Severny þriðju-
daginn 12. mars kl. 20. Hún er
heimildarmynd um Inge Druckrey
sem hefur starfað sem grafískur
hönnuður um áratugaskeið og í
myndinni miðlar hún sýn sinni á
sköpunarferlið. Hún verður við-
stödd sýninguna og tekur þátt í
spjalli við Guðmund Odd Magn-
ússon, prófessor við LHÍ, og gesti
að henni lokinni.
Heimildarmynd Inge Druckrey hönnuður.
Bíómyndir sýndar
á HönnunarMars
Í kvöld, mánudag 11. mars kl. 18,
verða haldnir tónleikar í Hofi til
styrktar minningarsjóði um Þor-
gerði S. Eiríksdóttur. Þorgerður
lauk burtfararprófi frá Tónlistar-
skólanum á Akureyri og var ný-
komin til London í framhaldsnám
er hún lést af slysförum í febrúar
1972. Ári síðar stofnuðu aðstand-
endur Þorgerðar ásamt Tónlistar-
skólanum og Tónlistarfélagi Ak-
ureyrar minningarsjóð, til að
styrkja efnilega nemendur frá Tón-
listarskólanum á Akureyri til fram-
haldsnáms. Eru tónleikar helsti
vettvangur til að styrkja sjóðinn,
auk þess sem sjóðurinn hefur
tekjur af sölu minningarkorta.
Á tónleikunum koma fram nem-
endur á efri stigum og flytja fjöl-
breytta og skemmtilega efnisskrá.
Allir velkomnir og aðgangur er
ókeypis, en tekið er á móti frjálsum
framlögum í Þorgerðarsjóð.
Æskan Ungir og efnilegir nemendur á efri stigum munu spila á tónleikunum.
Þorgerðartónleikar í Hofi í kvöld til
styrktar efnilegum nemendum
Árleg verðlaunaafhend-
ing FíT, Félags ís-
lenskra teiknara, fór
fram sl. föstudag. Þar
var tilkynnt val dóm-
nefnda á þeim verkum
grafískra hönnuða sem
sköruðu fram úr á síð-
asta ári. Í flokki bóka-
hönnunar fengu hönn-
uðirnir Anton Kaldal
Ágústsson, Gunnar Vil-
hjálmsson og Steinar
Ingi Farestveit verð-
laun fyrir hönnun bókarinnar ð ævi-
saga sem þeir eru einnig höfundar
að ásamt Stefáni Pálssyni sagnfræð-
ingi. Bókaútgáfan Crymogea sendi
bókina frá sér haustið 2012 og fékk
hún einróma lof gagnrýnenda sem
lýstu henni í senn sem vel heppnaðri
fræðibók fyrir almenning og ein-
staklega fallegum grip.
Í flokki bókarkápa fékk Ármann
Agnarsson verðlaun fyrir hönnun
kápu bókar um verk myndlistar-
mannsins Hreins Friðfinnssonar
Hús eða House Project: First
House, Second House, Third House,
sem sýnd voru í Hafnarborg í Hafn-
arfirði vorið 2012. Crymogea gaf
bókina út í samstarfi við Hafnar-
borg. Auk þess fékk Ármann Agn-
arsson aðalverðlaun FíT fyrir þá
hönnun ársins 2012 sem þótti skara
fram úr fyrir sama verk. Hús fékk
einnig viðurkenningu í flokki bóka-
hönnunar. Hönnun bókarinnar Hús
endurspeglar á einstaklega hug-
myndaríkan hátt inntak svokallaðra
húsaverka sem Hreinn Friðfinnsson
vann á yfir 30 ára tímabili og eru óef-
að í hópi þekktustu verka íslenskrar
listasögu.
ð Stefán Pálsson og fleiri sem komu að ð ævisögu.
Bækur Crymogeu
best hannaðar
Ljósmynd/Edda Bjöss