Morgunblaðið - 11.03.2013, Síða 40

Morgunblaðið - 11.03.2013, Síða 40
MÁNUDAGUR 11. MARS 70. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Íslendingur í fangelsi í Tyrklandi 2. Helena er draumakonan mín 3. Bráðkvaddur eftir baráttu ... 4. Umsókn stóðst ekki lagareglur »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Í kvöld leiða saman hesta sína á stuðtónleikum í Kaldalónssal Hörpu, Lúðrasveit Reykjavíkur og Páll Óskar Hjálmtýsson. Hljómsveitin mun flytja popp- og rokktónlist auk þess sem frumfluttar verða útsetningar á nokkrum lögum sem þekkt eru í flutningi Páls Óskars. Morgunblaðið/Árni Sæberg Páll Óskar kemur fram með lúðrasveit  Hinn 19. apríl verður haldin rappkeppni fyrir þátttakendur sem eru 16 ára og eldri, af öllu land- inu. Keppnin fer fram í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, í nánu samstarfi við Sesar A. en hann er einn helsti frumkvöðull íslensks rapps. Skráning fer fram á heimasíðu Molans, www.molinn.is/rappthulan. 16 ára og eldri keppa á Rappþulunni 2013  Opnunartónleikar vortónleikaraðar Jazzklúbbsins Múlans verða haldnir miðvikudag 13. mars. Þeir verða í Munnhörpunni í Hörpu. Fram kemur hljómsveitin Jónsson & Gröndal Quintet. Sér- stakur gestur verð- ur trompetleikarinn Ari Bragi Kárason. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30, aðgangur er ókeypis. Ókeypis á opnunar- tónleika Múlans Á þriðjudag Hæg norðlæg átt og lítilsháttar snjókoma N-til á land- inu. Hæg vestlæg átt V-lands og dálítil rigning. Hiti 0 til 5 stig. Á miðvikudag Suðaustan og austan 3-8 m/s. Slydda eða snjó- koma S- og V-lands, hiti um frostmark, annars úrkomulítið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG NV 3-8 m/s NA-til á landinu og lítilsháttar snjómugga. Hiti 0 til 5 stig S- og V-lands, annars frost 0 til 7 stig. VEÐUR „Það vilja að sjálfsögðu öll liðin á landinu vinna okkur en við einblínum á að vinna alla titla. Þrátt fyrir að missa marga lykilmenn úr liðinu í vetur höldum við áfram klassaspila- mennsku,“ sagði Dagný Skúladóttir sem skoraði sex marka Vals í bikar- úrslitaleiknum gegn Fram í gær þar sem Vals- konur tryggðu sér enn einn titilinn. »4-5 Einblínum á að vinna alla titla Katrín Jónsdóttir, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, segir að skellurinn gegn Svíum á föstu- dagskvöldið hafi verið mikið kjaftshögg fyrir íslenska landsliðið og virkilegt spark í rassinn. „Við erum búin að ræða þetta mikið innan hópsins núna, hvað við þurf- um að laga, og það er ekkert eitt heldur margir hlutir,“ segir Katrín. »1 Mikið kjaftshögg og virkilegt spark í rassinn Thelma Rut Hermannsdóttir og Ólafur Garðar Gunnarsson, bæði úr Gerplu, urðu um helgina Íslandsmeistarar í fjölþraut í fimleikum. Thelma Rut er alvön því þetta var fimmti sigur hennar á Íslandsmótinu á jafnmörgum árum, en Ólafur Garðar krækti þarna í sinn fyrsta Íslandsmeist- aratitil í fjölþraut karla. Athyglisverður árangur hjá honum þar sem rétt ár er síð- an hann sleit hásin – í fimleikum. »8 Íslandsmeistarinn sleit hásin í fyrra ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Lói – þú flýgur aldrei einn (e. Ploe – You Never Fly Alone) er titill tölvu- gerðrar teiknimyndar sem framleidd verður hér á landi og í Þýskalandi og stefnt er að því að frumsýna í árslok 2015. GunHil, fyrirtæki myndlistar- mannsins Gunnars Karlssonar, Hauks Sigurjónssonar og Hilmars Sigurðssonar sem er framkvæmda- stjóri þess, stendur að baki mynd- inni. Handritshöfundur er Friðrik Erlingsson, Gunnar Karlsson hannar útlit og persónur myndarinnar og leikstjórn verður í höndum Árna Ólafs Ásgeirssonar og Gunnars. GunHil kynnti myndina föstudag- inn sl. á Cartoon Movies, stærstu teiknimyndaráðstefnu Evrópu og landaði þar tveimur staðfestingar- samningum um framleiðslu hennar, annars vegar samningi við eitt stærsta teiknimynda- og tölvubrellu- fyrirtæki Þýskalands, Trixter, sem sjá mun um fjármögnun upp á 670 milljónir króna og hins vegar heims- dreifingarsamningi við fyrirtækið ARRI Worldsales. Heildarfram- leiðslukostnaður verður um 1,2 millj- arðar króna og er gert ráð fyrir því að hér á landi verði unnin um 80 árs- verk í tengslum við myndina. Þeir Hilmar, Gunnar og Friðrik unnu saman að gerð fyrstu teiknimyndar Íslandssögunnar í fullri lengd, Hetjur Valhallar – Þór sem sýnd hef- ur verið víða um heim og er enn að nema lönd. Örlítið ódýrari en Þór Hilmar segist vonast til þess að framleiðsla á myndinni hefjist seint í haust. Spurður að því hver fram- leiðslukostnaður þessarar teikni- myndar sé samanborinn við fram- leiðslukostnað teiknimyndarinnar um þrumuguðinn Þór, segir Hilmar að hann sé ögn minni, það muni ekki miklu. Teiknimyndin um Lóa verði unnin í þrívídd, líkt og myndin um Þór, og unnin fyrir alþjóðlega dreif- ingu í kvikmyndahúsum. – Þetta hefur verið mikill happa- fengur, þessir tveir samningar? „Heldur betur. Trixter er annað af tveimur stærstu teiknimynda- og tölvubrellufyrirtækjum Þýskalands. Við erum að fá bæði mjög góð fyrir- tæki og stóran fjármögnunarhluta með þeim. Það annars vegar kvittar upp á að verkefnið er gott og hins vegar að það sem vantar upp á í fjár- mögnun er tiltölulega einfalt að klára,“ svarar Hilmar. Framköllun í Þýskalandi – Hvaða hluti framleiðslunnar fer fram hér á landi? „Við skiptum þessu nokkuð bróð- urlega með okkur fram að tækni- þyngsta hlutanum, hann verður gerður í Þýskalandi. Við köllum þetta framköllun á íslensku (e. ren- dering) sem er þá útreikningur á öllum tölvuhreyfingum og lýsingu,“ segir Hilmar. Kvikunin muni fara fram á Íslandi, það sem á ensku er kallað „animation“. – Þetta eru 80 ársverk hér heima. Það er ekkert smáræði og þá unnin á tveimur árum eða svo? „Já, það er slatti, á tveimur og hálfu ári í það heila, fram að frum- sýningu,“ segir Hilmar. Um 30 starfsmenn verði að vinna við myndina á Íslandi þegar mest verð- ur en að meðaltali 20 yfir fram- leiðslutímann. „Við byrjum náttúr- lega á því að bjóða Íslendingum vinnuna. Við gerðum það líka í Þór og svo verðum við að sjá hvað það tekur okkur langt. Við verðum væntanlega að sækja vinnuafl til út- landa ef það dugar ekki. Það er alltaf að fjölga í þessari grein,“ svarar Hilmar, spurður að því hvort margir Íslendingar verði meðal starfs- manna. Lói – þú flýgur aldrei einn segir af litlum lóuunga, Lóa, sem kemur síð- astur úr eggi og á erfitt uppdráttar. Þegar haustar er hann ekki orðinn fleygur og fjölskylda hans flýgur til heitari landa. Lói verður því einn eftir og þarf að takast á við veturinn og aðrar hættur sem að honum steðja, m.a. skæða óvini. Myndin verður áreiðanlega ágætis land- kynning þar sem söguhetjan er ís- lenskur farfugl og sögusviðið íslensk náttúra. Frekari fróðleik má finna vefsíðu GunHil, www.gunhil.com. 80 ársverk við ófleygan Lóa  Teiknimynd um lóuunga framleidd á Íslandi og í Þýskalandi  Áætlað að hún kosti 1,2 milljarða  Gunnar Karlsson hannar útlit og persónur myndarinnar Ljósmynd/GunHil Unginn Aðalpersóna teiknimyndarinnar, lóuunginn Lói, lítur svona út. Hann er sköpunarverk myndlistarmannsins Gunnars Karlssonar sem á m.a. heiðurinn af útlitshönnun og persónum teiknimyndarinnar Hetjur Valhallar – Þór.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.