Morgunblaðið - 06.08.2013, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.08.2013, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 6. Á G Ú S T 2 0 1 3  Stofnað 1913  181. tölublað  101. árgangur  HRIFNING Á OPNUNAR- HÁTÍÐINNI SKATTAR SLIGA LITLAR BÍLALEIGUR RANNSAKAR DÖNSKUKUNN- ÁTTU ÍSLENDINGA BÍLAR AUÐUR HAUKSDÓTTIR 30HM Í BERLÍN 14 Tveir menn létust þegar sjúkraflugvél Mý- flugs brotlenti við rætur Hlíðarfjalls í gær. Um borð í vélinni voru flugstjóri, flugmaður og sjúkraflutningamaður frá slökkviliði Akur- eyrar. Flugmaðurinn slasaðist ekki alvarlega. Annar mannanna var úrskurðaður látinn á slysstað en hinn við komuna á Sjúkrahúsið á Akureyri. Flugvélin var á heimleið úr sjúkraflugi frá Reykjavík og voru flugmennirnir í öðru aðflugi að Akureyrarflugvelli þegar vélin skall á ak- braut Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjall á öðrum tímanum í gær. Stóð þar yfir tímataka vegna spyrnukeppni á kvartmílubraut klúbbs- ins og þykir mildi að enginn skyldi slasast. Eldur kviknaði við brotlendinguna Flugvélin skall harkalega á brautinni og kviknaði við það eldur í henni, að sögn sjónar- votta sem mbl.is ræddi við í gær. Fjöldi vitna var að slysinu og fengu um 60 til 70 manns áfallahjálp í Glerárkirkju á vegum Rauða krossins. Í kjölfar brotlendingarinnar setti flugöryggisfulltrúi Mýflugs af stað flug- slysaáætlun félagsins. Fjölmennt lið lögreglu- og slökkviliðsmanna kom á vettvang sem og fjöldi björgunarsveitarmanna. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, kölluð út. Jafnframt var flugvél Mýflugs, TF-FMS, köll- uð út til að flytja fólk frá félaginu á vettvang. Tildrög slyssins eru nú til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri og rannsóknarnefnd flugslysa. Sigurður Bjarni Jónsson, flugöryggisfulltrúi Mýflugs, biður þá sem hafa upplýsingar um slysið að snúa sér beint til rannsóknarnefndar samgönguslysa en ekki birta þær á samfélags- miðlum eða láta óviðkomandi í té á annan hátt. „Hugur okkar er hjá okkar fólki og aðstand- endum,“ sagði Sigurður Bjarni. Sjúkraflugvélin TF-MYX er af gerðinni Beechcraft King Air 200. Hún er tveggja hreyfla skrúfuþota og tekur fjóra farþega í sætum og tvo á sjúkrabörum, auk tveggja manna áhafnar. Tæp 18 ár eru liðin síðan þrír menn fórust þegar eins hreyfils flugvél brot- lenti í Tröllafjalli, fyrir ofan Glerárdal, eftir 10 mínútna flug frá Akureyrarflugvelli. Tveir fórust í flugslysi á Akureyri Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Á slysstað Flugvélin gjöreyðilagðist við brotlendinguna. Sjúkraflugvélin sem fórst var skrúfuþota. Fjöldi vitna var að harmleiknum og var boðið upp á áfallahjálp í Glerárkirkju eftir slysið.  Sjúkraflugvél Mýflugs brotlenti á kvartmílubraut  Þriðji maðurinn slasaðist ekki alvarlega  Nýjasta bíó- mynd Baltasars Kormáks, 2 Guns, er á toppi bandaríska að- sóknarlistans. Samkvæmt bráðabirgðatöl- um frá Exhibitor Relations hefur myndin náð að þéna 27,4 milljónir dala á fyrstu vikunni. Hún kostaði aðeins um 60 milljónir dala í framleiðslu, þannig að strax í fyrstu vikunni eru komn- ar tekjur fyrir um helmingnum af kostnaði. Myndin verður opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar í Locarno í Sviss. Baltasar er á leiðinni út til Sviss til að vera við sýningu mynd- arinnar þar. Hún verður frumsýnd á Íslandi 14. ágúst. »4 Metaðsókn á bíó- mynd Baltasars í Bandaríkjunum Baltasar Kormákur Baldur Arnarson baldura@mbl.is Um 1.020 lögmenn eru nú með virk málflutningsleyfi, eða um helmingi fleiri en um aldamótin. Á sama tíma- bili þrefaldaðist fjöldi laganema, hátt í 1.300, samhliða því að þrír nýir háskólar hófu kennslu í lögfræði. Ingimar Ingason, framkvæmda- stjóri Lögmannafélags Íslands, seg- ir félagsmönnum hafa fjölgað hratt. Það komi fram í fjölgun þeirra sem sækja um námskeið til að öðlast málflutningsréttindi. „Það hefur verið stígandi í því undanfarin ár,“ segir Ingimar um ásóknina í námskeiðin. Sigurður Líndal, prófessor emer- itus í lögfræði við Háskóla Íslands, kennir lögfræði við þrjá háskóla. Háskólar hafa vaxið of hratt Hann telur einsýnt að háskólar á Íslandi hafi vaxið of hratt. Það hafi gerst á kostnað gæða laganáms, þró- un sem megi m.a. rekja til þess að of mörgum slökum nemendum hafi verið hleypt inn í lagadeildirnar. „Ég held að það þurfi öflugri há- skóla og strangari inntökuskilyrði. Hitt er svo annað mál – og það er vandamál líka – að margir stúdentar eru ekki hæfir til háskólanáms. Lélegu stúdentarnir tefja [...] Menn rugla stundum saman jafnrétti til náms og hæfni til náms. Það eiga all- ir að hafa jöfn tækifæri til náms en það verður að veita aðhald, að menn séu raunverulega hæfir,“ segir hann. Haft var eftir sérfræðingi hjá Vinnumálastofnun í Morgunblaðinu sl. laugardag að vísbendingar séu um að framboð á lögfræðingum sé umfram eftirspurn. MFjöldi laganema þrefaldaðist »6 Laganám liðið fyrir of öran vöxt háskóla  Lagaprófessor segir að laganámi á Íslandi hafi hrakað Grettir sterki Ásmundarson er ein helsta hetja Íslendingasagnanna, frægur fyrir uppivöðslusemi og fá- dæma hreysti. Honum hafa þó lítil skil verið gerð í ferðaþjónustu, en það gæti breyst, gangi áætlanir eft- ir um framkvæmdir á Grettisbóli á Laugarbakka í Miðfirði skammt frá Bjargi, uppvaxtarstað Grettis. Framkvæmdir á svæði Grettis- bóls, sem er rúmir tveir hektarar, hófust fyrir nokkrum árum og nú hefur deiliskipulag að svæðinu verið auglýst. „Góðir hlutir gerast hægt,“ segir Pétur Jónsson, einn forsvarsmanna Grettistaks ses, sem stendur að baki Grettisbóli. » 18 Grettisból í skipulag  Grettis sterka minnst í Húnaþingi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.