Morgunblaðið - 06.08.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013
Skógarhlíð 18 sími 595 1000 www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
• •
Benidorm
Hotel Carlos I
kr.116.900 - með fullu fæði.
Heimsferðir bjóða frábært tilboð í 12 nátta ferð til Benidorm þann
15. ágúst. Í boði er m.a. Hotel Carlos I. Fleiri hótel í boði á afar
hagstæðu verði.
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi.
Netverð á mann mv. 2 fullorðna í herbergi kr. 142.900. Sértilboð 15. ágúst í 12 nætur.
Frá kr. 116.900 með fullu fæði
15. ágúst í 12 nætur
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Ég er nú ekki búinn að sjá nýjustu tölur en
við erum örugglega á toppi bandaríska að-
sóknarlistans ennþá, þetta voru það miklir yf-
irburðir um helgina,“ segir Baltasar Kor-
mákur, ánægður með viðtökur við
bíómyndinni sinni, 2 Guns með Denzel Wash-
ington og Mark Wahlberg, sem frumsýnd var
í síðustu viku í Bandaríkjunum og verður
frumsýnd hér á Íslandi 14. ágúst næstkom-
andi.
Sumir Skandinavar hafa náð ágætum ár-
angri í Hollywood en þótt bæði Billy August
og Lasse Halmström hafi gert velheppnaðar
myndir náði hvorugur þeirra að komast á
topp bandaríska aðsóknarlistans með fyrstu
tveimur myndunum sínum einsog Baltasar
Kormáki tókst með Contraband og 2 Guns.
„Það skiptir rosalegu máli þegar þú ert að
gera myndir af þessari stærðargráðu að ná
topp aðsókn,“ segir Baltasar Kormákur. „Það
liggur í hlutarins eðli að þegar peningurinn
kemur ekki inn, þá leggja þeir ekki meira í
þetta.
Svo er ekkert ánægjulegra en að sjá fullan
bíósal skemmta sér, það er fátt sem slær því
við,“ segir Baltasar sem naut lífsins í New
York í frumsýningarpartíi á Standard-
hótelinu í síðustu viku en kom sér síðan heim
í Skagafjörðinn til að slappa af.
Hann segist vilja vinna með Wahlberg aft-
ur enda hafi þeim orðið vel til vina. Hann
verður samt ekki með í næsta verkefni Balt-
asars sem er bíómyndin Everest. „Hann hefði
alveg viljað vera með í þeirri mynd, en mér
fannst hann ekki passa inn í hana,“ segir
Balti.
Snarvitlaus Denzel Washington
Baltasar hefur látið hafa eftir sér að Den-
zel Washington hafi verið erfiður meðan á
tökum stóð en hann segir að það hafi ekki
verið neitt til að kvarta undan. „En það segir
kannski ýmislegt um hann að þegar við vor-
um einhvern tímann að spjalla saman um
myndina Training Day sem hann fékk Ósk-
arsverðlaunin fyrir, en þar leikur hann ger-
spillta lögreglu sem er alveg snarvitlaus, þá
segist hann ekki skilja hvað þeir hafi verið að
gefa honum Óskarinn fyrir leik í þeirri mynd,
því hann hafi bara verið að leika sjálfan sig í
henni,“ segir Baltasar og hlær.
Nú hafa margir bandarískir leikstjórar tal-
að um að það geti verið erfitt að eiga við leik-
ara sína sem eru oft með tuttugu sinnum
hærri laun en leikstjórarnir og því líklegra að
leikstjórinn verði látinn fjúka en leikarinn.
Baltasar segir að oft séu leikarar meira að-
dráttarafl fyrir myndirnar en leikstjórarnir
en að það valdi engum vandræðum.
„Menn fara ekki út í hart, ekki nema það sé
algjört ósætti. En ég hef aldrei lent í slíku
ósætti við leikara, maður vinnur með þeim,
en ekki á móti þeim. Svo er ég alltaf með
lokaorðið í klippiherberginu. Framleiðendur
leyfa mér að stýra klippinu og þá er ég
ánægður.“
Elísabet Ronaldsdóttir hefur gjarnan
klippt kvikmyndir Baltasars en núna klippti
Michael Tronick myndina hans og segir Balt-
asar að það sé ágætt að breyta til með sam-
starfsaðila. „Við Elísabet erum góðir vinir og
höfum unnið lengi saman og það eru þægindi
í því en það er ágætt að breyta til öðru
hverju, þannig að maður sé alltaf leitandi.
Ég var að gera Missionary með Elísabetu
og við erum mjög sátt við fyrsta þáttinn og
svo er það framleiðenda að ákveða hvort far-
ið verði í framleiðslu á þáttunum.
Það er alls ekkert víst að af því verði. Það
er einn af hverjum fjórum svona fyrstu þátt-
um sem þeir ákveða að fara í stóra fram-
leiðslu á. Þannig að þetta er ekkert öruggt.
Það er ekkert fyrirsjáanlegt í þessum
bransanum. Það eru heimsfrægir leikstjórar
sem komast ekki áfram með svona
verkefni.“
Baltasar er á leiðinni til Locarno í Sviss
með myndina 2 Guns. „Ég fór þangað með
fyrstu bíómyndina mína, 101 Reykjavík, og
það verður gaman að koma þangað aftur.
Það munu 8.000 manns horfa á hana, þetta er
einsog rokktónleikar. 2 Guns verður opn-
unarmynd hátíðarinnar,“ segir Baltasar.
Baltasar ætlar síðan að reyna að komast á
heimsmeistaramót íslenska hestsins í Berlín
áður en hann kemur aftur heim til að frum-
sýna 2 Guns hér á Íslandi um miðjan ágúst.
„Ef allt gengur eftir fer ég síðan í undirbún-
ing á Everest-myndinni,“ segir Baltasar.
„Bíómyndin Everest er meiri áhætta því hún
er ekki byggð á eins miklum stjörnum, Eve-
rest er aðalhetja myndarinnar, fjallið sjálft.“
Baltasar með opnunarmyndina
á Locarno-hátíðinni í Sviss
Gróði Tölur frá Exhibitor Relations segja
myndina þegar þénað 27,4 milljónir dala.
Mynd Baltasars, 2 Guns, er á toppi bandaríska
aðsóknarlistans 8.000 manns verða á sýningu
myndarinnar á kvikmyndahátíðinni í Locarno
Ljósmynd/Patti Perret
„Það er afgerandi kuldi núna með
þessari norðanátt, en hún er að
minnka og við erum að fá hlýrra loft
yfir,“ segir Elín Björk Jónasdóttir,
veðurfræðingur hjá Veðurstofu Ís-
lands. Hún segir að hæglætisveður
verði á morgun og lítils háttar súld
eða rigning um landið vestanvert, en
hægari vindur og bjartviðri austan-
til. Á fimmtudag verður austlæg átt,
8-15 m/s, og segir Elín að búast megi
við slagviðri sunnanlands, en þurrt
að kalla og hlýjast á Norður- og
Vesturlandi.
Á föstudag verður austlæg átt, 5-
13 m/s en norðaustan 8-15 á Vest-
fjörðum. Rigning verður á Suður- og
Austurlandi en líkur eru á síðdegis-
skúrum annars staðar á landinu.
Elín segir að lægðagangur muni
ganga yfir landið og enginn lands-
hluti sleppi. „Það verður skúraveður
eins og þetta lítur út núna. Það verð-
ur svolítil norðanátt en þó ekki jafn
köld og sú sem hefur verið. Þá eru
líkur á jarðefnafoki, bæði ösku- og
sandfoki,“ segir Elín um helgar-
spána. Á laugardag verður hæg suð-
læg eða breytileg átt austantil en
hvassari norðlæg átt vestantil og á
sunnudag norðlæg átt með skúrum
norðanlands en bjartviðri sunnantil.
Hlýnar lítillega á
ný eftir norðanátt
Skúraveður og sandfok um helgina
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Maður var handtekinn klukkan kort-
er yfir þrjú aðfaranótt sunnudags
eftir að hann kveikti eld við aðaldyr
Alþingishússins og reyndi í kjölfarið
að kveikja í sjálfum sér. Atvikið náð-
ist á myndband en að sögn Helga
Bernódussonar, skrifstofustjóra Al-
þingis, má þakka snarræði dyra-
varða Thorvaldsen bar að ekki fór
verr. Helgi segir manninn hafa geng-
ið inn í eldinn eftir að hann kveikti í
hurðinni en að óljóst sé hversu mikill
eldur festist í fötum mannsins.
„Hann gekk beint til verks, skvetti
úr bensínbrúsa á dyrnar og að ein-
hverju leyti á sjálfan sig. Svo kveikti
hann í,“ segir Helgi. Hann segir að
þingvörður hafi farið út og í sama
mund komu árvökulir dyraverðir á
staðinn.
Yfirbuguðu manninn
„Þeir hlupu yfir Austurvöll með
slökkviliðstæki í hönd og byrjuðu á
því að slökkva í manninum, og svo
þann eld sem læst hafði sig í hurð-
inni,“ segir Helgi. Því næst yfirbug-
uðu þeir manninn og héldu honum
þar til lögregla kom á staðinn. Var
hann því næst færður í fanga-
geymslur lögreglunnar. Eldurinn
logaði í um 2-3 mínútur. Þá bendir
Helgi á að nokkurt tjón hafi orðið á
hurðinni en ekki sé hægt að meta það
hversu mikið það er að svo stöddu.
„Hann hrópaði einhver ókvæðisorð
og var greinilega í miklu uppnámi,“
segir Helgi um manninn sem var á
þrítugsaldri.
Dyravörður á Thorvaldsen, sem
kom manninum sem kveikt hafði í
hurð Alþingishússins til bjargar,
segir að einungis hafi munað sek-
úndubroti á því að maðurinn hefði
kveikt í sér. Hafði hann þá renn-
bleytt sig í olíu og gerði sig líklegan
til þess að ganga inn í eldinn. „Ég tek
eftir því að mjög mikið bál hafði
myndast hinum megin við Austurvöll
og eldtungurnar náðu að svölum Al-
þingis. Í fyrstu hélt ég að verið væri
að ráðast á Alþingi,“ segir Sveinn
Hjörtur Guðfinnsson, dyravörður á
Thorvaldsen, um atvikið.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Alþingisdyrnar Nokkurt tjón varð á aðaldyrum Alþingishússins þegar maður kveikti þar eld aðfaranótt sunnudags.
Kveikti eld við aðal-
dyrnar á Alþingishúsinu
Reyndi að ganga inn í eldinn Litlu munaði að verr færi