Morgunblaðið - 06.08.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.08.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013 FYRIR IÐNAÐINN FYRIR HEIMILIÐ - fyrsta flokks. Stór orð sem reynslan réttlætir BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Lögmenn með virk málflutnings- réttindi eru nú tæplega tvöfalt fleiri en aldamótaárið 2000. Fjórir háskólar bjóða nú upp á nám í lögfræði: Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Bifröst. Var Háskóli Íslands eini háskólinn sem bauð upp á slíkt nám árið 2000. Viðskiptaháskólinn á Bifröst, nú Háskólinn á Bifröst, hóf kennslu til BS-náms í viðskiptalögfræði haust- ið 2001, að því er fram kemur í út- tekt IMG Deloitte á starfi skólans fyrir menntamálaráðuneytið árið 2003. Fram kemur á vef Háskólans í Reykjavík að lagadeild skólans tók til starfa hinn 22. ágúst 2002. Þá segir á vef Háskólans á Akur- eyri að félagsvísinda- og lagadeild var stofnuð þar árið 2002 og að kennsla hófst haustið 2003. Rúm öld er síðan lagaskóli var settur á stofn í Reykjavík árið 1908. Við stofnun Háskóla Íslands árið 1911 var hann lagður af sem sjálf- stæð stofnun en varð í reynd ein af deildum Háskóla Íslands. Haft var eftir Karli Sigurðssyni, sérfræðingi hjá Vinnumálastofnun, í Morgunblaðinu sl. laugardag að vísbendingar séu um að framboð á lögfræðingum sé orðið umfram eftirspurn á vinnumarkaði. Á það sama við um ýmsar deildir félags- vísinda. Nákvæmar tölur um at- vinnuleysi í þessum hópum liggja ekki fyrir. Hér til hliðar má sjá fjölda laga- nema samkvæmt tölum Hagstofu Íslands en nýrri tölur eru ekki til- tækar á vef Hagstofunnar. Hröð fjölgun nemenda Ingimar Ingason, framkvæmda- stjóri Lögmannafélags Íslands, seg- ir félagsmönnum hafa fjölgað hratt. „Það hefur fjölgað töluvert mikið í félaginu á undanförnum árum. Við verðum mjög varir við fjölgun laga- deilda í háskólunum. Það kemur fram í fjölgun þeirra sem sækja um námskeið til að öðlast málflutnings- réttindi. Það hefur verið stígandi í því undanfarin ár. Þegar ein- staklingar hafa staðist námskeiðið geta þeir sótt um málflutnings- leyfi,“ segir Ingimar en skráin nær eingöngu til virkra réttinda. „Það er töluverður fjöldi sem hef- ur öðlast málflutningsréttindi en hefur lagt þau inn til innanríkis- ráðuneytisins. Þau eru því ekki virk á meðan. Þeir lögmenn eru ekki teknir með í þessum tölum. Þeir geta leyst réttindin út hjá ráðuneyt- inu þegar þeir vilja nýta þau. Ég þekki ekki hversu margir hafa óvirk réttindi en það er stór hópur. Innanríkisráðuneytið heldur utan um tölur yfir heildarfjölda útgefinna réttinda. Lögmannafélagið hýsir og heldur utan um umrætt námskeið en sérstök nefnd skipuleggur og heldur námskeiðin,“ segir Ingimar. Upplýsingar um fjölda lögmanna með óvirk réttindi voru ekki til- tækar þegar fréttin var í vinnslu. Fjöldi laganema þrefaldaðist  Laganemar voru 422 árið 2000 en 1.263 árið 2011  Fjöldi lögmanna með virk málflutningsréttindi nær tvöfaldaðist á árunum 2000-2013  Aukin eftirspurn eftir námskeiðum sem veita málflutningsleyfi Nemendur í lögfræði 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 1400 1200 1000 800 600 400 200 0 Heildarfjöldi nær til nemenda í dagskóla, kvöldskóla og í fjarnámi. Hver nemandi er talinn aðeins einu sinni, þannig að stundi nemandi nám í tveimur skólum telst hann aðeins í öðrum þeirra. Heimild: Hagstofa Íslands 42 2 43 5 5 66 69 2 8 25 9 28 1. 0 29 1. 0 47 1. 13 6 1. 23 0 1. 23 3 1. 26 3 Morgunblaðið/Kristinn Sá elsti Rúm öld er síðan kennsla í lögfræði hófst við Háskóla Íslands. Sigurður H. Lín- dal, prófessor emeritus í lög- fræði við Há- skóla Íslands, hefur á síðustu árum kennt lög- fræði við þrjá háskóla: Háskóla Íslands, Háskól- ann á Bifröst og Háskólann á Akureyri. Skammt er síðan tveir síðarnefndu skólarnir, auk Háskól- ans í Reykjavík, hófu lagakennslu. Spurður hvort tekist hafi að við- halda gæðum laganáms samhliða svo hraðri fjölgun lagadeilda bend- ir Sigurður á að ekki sé lengur gerð krafa um fyrstu einkunn í al- mennri lögfræði við lagadeild Há- skóla Íslands. Lágmarkið hafi verið fært úr 7 niður í 6 meðaleinkunn. „Það færist í vöxt að nemendur geta ekki skrifað skiljanlegan texta í samhengi. Þeir eiga erfitt með að koma orðum að hugsunum sínum. Einn nemandi, sem féll á lagaprófi, hreytti því út úr sér hvort hann væri í prófi í íslensku. Þá svaraði ég því til að það væri einmitt aðalatriðið. Hinu mætti alltaf fletta upp, ekki satt? „Ef þú getur ekki soðið saman skiljan- legan texta líst mér ekki á þig sem dómara eða lögmann né embættis- mann í stjórnsýslunni,“ sagði ég við manninn.“ Sigurður segir að hluti vandans sé sá að lakari nemendum sé hleypt inn í háskólana en áður. „Ég lít svo á að stúdentspróf sé undirbúningur undir fræðilegt nám í háskóla og að það eigi að hafa það í huga. En mér finnst sem fólkið sé afskaplega illa undirbúið að fást við slíkt. Fólkið var ekki endilega allt mjög gott í gamla daga, en fjölgunin er öll á neðri endanum. Virkilega góðir nem- endur eiga margra kosta völ í dag. Möguleikar til náms voru svo margfalt minni áður fyrr. Annað sem má nefna er hversu mikill losarabragur er orðinn á hlutunum. Nú tíðkast það að nem- endur standi upp í miðjum tíma, sæki sér eitthvað að borða og snæði það svo í kennslustofunni. Það tíðkaðist ekki áður fyrr.“ – Hafa skólarnir ef til vill vaxið of hratt? „Ég held að það sé alveg einsýnt. Ég hef alltaf litið svo á að Háskóli Íslands og aðrir innlendir háskólar séu í samkeppni við erlenda há- skóla, að við stöndum nokkurn veginn jafnfætis þeim. Ég held að það þurfi öflugri háskóla og strangari inntökuskilyrði. Hitt er svo annað mál – og það er vanda- mál líka – að margir stúdentar eru ekki hæfir til háskólanáms. Lélegu stúdentarnir tefja. Það er allt ann- að að kenna góðum hóp, þar sem allir eru með á nótunum. Menn rugla stundum saman jafnrétti til náms og hæfni til náms. Það eiga allir að hafa jöfn tækifæri til náms en það verður að veita aðhald, að menn séu raunverulega hæfir,“ segir Sigurður. Lögmenn með virk málflutningsréttindi Samkvæmt félagatali Lögmannafélags Íslands* 1200 1000 800 600 400 200 0 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 1. 0 20 96 8 89 2 84 7 79 7 77 4 71 8 69 5 69 0 66 7 62 8 60 5 58 8 52 9 *Tölur eiga við félagatal í kringum aðalfund félagsins í apríl/maí ár hvert nema hvað tölur fyrir árið 2013 sýna stöðuna nú. Kemur niður á gæðum Sigurður H. Líndal Umferðin inn í höfuðborgina gekk greiðlega og áfallalaust fyrir sig í gærkvöldi að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Umferðin mun hafa verið mest síðdegis, milli fjögur og fimm, en þó myndaðist aldrei umferðarteppa. Lögreglan á Selfossi sagði að umferðin framan af degi hafi verið nokkuð þétt en hafi farið að draga úr henni seinni- partinn. Þá gekk umferðin áfalla- laust fyrir sig. Umferðin í gegnum Selfoss var ívið meiri úr austurátt heldur en í fyrra. Samkvæmt lög- reglunni stafar það annars vegar af því að unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Höfn í Hornafirði og hins- vegar vegna þess að metfjöldi bíla var í Landeyjahöfn. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu Vegagerð- arinnar höfðu tæplega 10.700 bif- reiðar ekið um Sandskeið um níu- leytið í gærkvöldi. Á sama tíma höfðu tæplega 8.100 bifreiðar ekið um Kjalarnes. Umferðin í gær- kvöldi gekk áfalla- laust fyrir sig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.