Morgunblaðið - 06.08.2013, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013
Borgarbúar verða lítið varir viðað Jón Gnarr Kristinsson
borgarstjóri Reykjavíkur sé
borgarstjóri Reykjavíkur. Í það
minnsta í hefðbundnum skilningi
þess starfstitils.
Og hingað til hef-ur þetta verið
starfstitill sem hef-
ur fylgt tiltölulega
umfangsmikið starf.
Borgarstjórarhafa hingað til án undantekn-
inga þurft að sinna margvíslegum
störfum sem slíkir og einkum þurft
að einbeita sér að rekstri borgar-
innar og gæta þess að allt gangi
fyrir sig eins og til er ætlast.
Og þeir hafa þurft að svara fyrirþað hafi eitthvað farið úrskeð-
is eða sé með öðrum hætti en ein-
hverjir borgarbúar telja æskilegt.
Það að vera talsmaður borg-arinnar í stóru og smáu hefur
eðli máls samkvæmt verið órjúf-
anlegur hluti starfsins enda sjálf-
sögð tillitssemi við borgarbúa og
kjósendur.
Nú er öldin önnur og titil borg-arstjóra ber maður sem kýs
að svara helst ekki spurningum um
það sem snýr að rekstri og starf-
semi borgarinnar. Í það minnsta
ekki þeim spurningum sem kunna
að vera óþægilegar.
Hann hefur hins vegar tíma tilað sinna ýmsu öðru, nú síðast
að flytja erindi á ráðstefnu í Ant-
werpen um mannréttindi.
Ætlast borgarstjóri til að kjós-endur muni á næsta ári
leggja mat á störf hans út frá slík-
um uppákomum eingöngu?
Jón Gnarr
Kristinsson
Titill án starfs
STAKSTEINAR
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Eigum til á lager gott úrval loftkælitækja.
Leigjum einnig tæki til lengri eða skemmri tíma.
Er heitt og þungt
loft á þínum
vinnustað eða í
tölvurýminu?
Loftkæling er þá svarið
Verð frá
kr. 187.932 m.vsk.
Ekki drepast úr hita!
Veður víða um heim 5.8., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 13 heiðskírt
Akureyri 9 skýjað
Nuuk 7 skýjað
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 21 léttskýjað
Kaupmannahöfn 22 léttskýjað
Stokkhólmur 25 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 30 heiðskírt
Brussel 28 heiðskírt
Dublin 16 skýjað
Glasgow 18 léttskýjað
London 22 léttskýjað
París 27 heiðskírt
Amsterdam 27 heiðskírt
Hamborg 27 heiðskírt
Berlín 27 léttskýjað
Vín 30 léttskýjað
Moskva 20 þrumuveður
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 36 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Róm 33 heiðskírt
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 17 léttskýjað
New York 22 heiðskírt
Chicago 21 alskýjað
Orlando 32 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:52 22:16
ÍSAFJÖRÐUR 4:39 22:39
SIGLUFJÖRÐUR 4:21 22:23
DJÚPIVOGUR 4:17 21:50
Eyjafjarðarsveit | Handverks-
hátíðin á Hrafnagili, sú 21. í röð-
inni, verður haldin um næstu helgi
og er undirbúningur að ná há-
marki. Hátíðin stendur í fjóra
daga frá föstudegi til mánudags
og er búist við fimmtán til tuttugu
þúsund heimsóknum í ár.
Ester Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastýra sýningarinnar, seg-
ir að 90 sölubásar og sýnendur
verða með að þessu sinni af öllu
landinu, þar á meðal Vest-
mannaeyingar sem eru nú með í
fyrsta sinn í langan tíma.
Líkt og fyrri ár verður fjöldi
nýrra sýnenda og er fjölbreytnin
mikil. Má þar nefna íslenskan
hönnuð með skó unna úr íslensku
hráefni, munir unnir úr búrhvals-
tönnum og hreindýrshornum og
fjöldi nýrra aðila sem eru með fal-
lega textílvöru. Ekki má gleyma
fatnaði, skarti, gler og leirmunum
og vönduðum vörum unnum úr
tré.
Heimilisiðnaðarfélag Íslands,
sem er 100 ára á þessu ári, verður
með glæsilega sýningu.
Á útisvæðinu eru m.a. sölutjöld
með matvöru úr íslensku hráefni;
nýjar kartöflur, sultur, saft og söl,
kleinur, brauð og harðfiskur.
Meðal sýnenda á útisvæðinu er
félagið Beint frá býli og VB land-
búnaður með vélar til heima-
vinnslu. Á útisvæðinu verður fjöl-
breytt dagskrá fyrir alla
fjölskylduna. Félag ungra bænda
á Norðurlandi býður upp á hús-
dýrasýningu, félagið Búsaga verð-
ur með sýningu á gömlum vélum
og Bílaklúbbur Akureyrar sýnir
bíla af öllum stærðum og gerðum.
Þjóðháttafélagið Handraðinn
verður með miðaldabúðir. Rún-
ingur, eldsmíði, þrautabraut og
börnin í sveitinni koma með kálf-
ana sína á laugardeginum og
keppa um hver eigi fallegasta og
best tamda kálfinn.
Á laugardagskvöldinu 10. ágúst
verður grillveisla og skemmti-
dagskrá í stóru veislutjaldi á
svæðinu og verður hún opin öll-
um. Lára Sóley og Hjalti Jónsson
sjá um veislustjórn og meðal
þeirra sem koma fram eru Óskar
Pétursson, Karlakór Eyjafjarðar
og Sister Sister sem eru nýjar
stjörnur í tónlistarheiminum. Grín
glens og gaman fyrir alla fjöl-
skylduna í góðum félagsskap.
Sjö félagasamtök í Eyjafjarðar-
sveit koma að uppsetningu sýn-
ingarinnar eða um 350 manns.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Hugmyndaauðgi Póstkassar í Eyjafjarðarsveit hafa verið skreyttir á ýmsa
vegu í tilefni af handverkshátíðinni á Hrafnagili. Kennir þar margra grasa.
Búast við 20 þúsund
gestum á Hrafnagili