Morgunblaðið - 06.08.2013, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
R
eykjanesbær hefur
komið í gagnið þremur
hreyfigörðum með
tækjum frá danska
framleiðandanum Nor-
well, í skrúðgörðunum í Njarðvík og
Keflavík og við Kópu í Innri-
Njarðvík. Fjórði hreyfigarðurinn
verður á Ásbrú. Að sögn Guðlaugs H.
Sigurjónssonar, framkvæmdastjóra
umhverfis- og skipulagssviðs Reykja-
nesbæjar, var upphaflega hug-
myndin sú að setja tækin við strand-
lengjuna, en þegar menn fóru að
hugsa málið, fannst þeim ekki rökrétt
að fólk væri alltaf að stoppa til að
nota tækin. „Við sáum að nýtingin
yrði betri með þessum hætti, að setja
nokkur tæki á sama stað og mynda
hreyfigarða. Við hugsum þessa garða
sem upphafs- og endapunkt hreyf-
ingarinnar, því í görðunum eru bæði
tæki til að nota í teygjur og eins til að
styrkja sig.“ Tvö tæki verða þó sett
milli Hafnargötu og Ægisgötu, sem
framleiðandinn gaf til prófunar gagn-
vart seltu.
Góð viðbót í íþróttabæ
Tækin frá Norwell eru tekin út
af íþróttafræðingum og þróuð í sam-
ræmi við þá úttekt. Auk þess að vera
falleg hönnun er tryggt að fólk eigi
ekki að geta slasað sig við æfing-
arnar, t.d. slitið vöðva. Auðvitað verð-
ur þó alltaf að fara varlega, en Guð-
laugur sagði að fallvarnir væru undir
öllum tækjum. Ákveðið var að nýta
gervigrasið úr Reykjaneshöllinni í
fallvörnina. Það nýtist því vel í þess-
um tilgangi. Að auki eru leiðbein-
ingar við hvert tæki svo notendur sjái
hvernig eigi að bera sig að í tækj-
unum og hvaða möguleika hvert
Fjórir hreyfigarðar
í íþróttabænum
Verið er að koma upp fjórum hreyfigörðum í Reykjanesbæ. Mikil vakning hefur
verið í göngu, skokki og hjólreiðum í bænum og verða garðarnir í framtíðinni
tengdir við strandlengjuna og mynda heilsustíg meðfram ströndinni.
Öryggi Fallvörn verður undir tækjunum. Trékassi verður settur umhverfis
öll tæki og hann klæddur með gervigrasi svo notendur slasi sig síður.
Hreyfigarður í Njarðvík Átta tæki eru í hreyfigarðinum, tækin eru jafn ólík
í laginu og þau eru mörg, og er fjölbreytileikinn hafður í fyrirrúmi.
Þrátt fyrir að hávaði og skvaldur sé
yfirleitt flokkað sem truflun, þá er
það svo að margir eiga talsvert auð-
veldara með að einbeita sér þegar
kaffihúsakliður fyllir öll vit. Sumir
geta til að mynda varla einbeitt sér
nema á kaffihúsum.
Þeir sem eiga einhverra hluta
vegna í erfiðleikum með að komast á
kaffihús þurfa þó ekki að örvænta. Á
vefsíðunni coffitivity.com er hægt að
hlusta á kaffihúsaklið á meðan unnið
er að einhverju öðru. Skvaldrið og
klingjandi kaffibollarnir skapa þannig
samskonar áreiti og ef hlustandinn
væri á kaffihúsi. Aðstandendur síð-
unnar mæla einnig með því að hlust-
að sé á tónlist samhliða því að hlýtt
sé á kliðinn og þannig megi fá sem
mest út úr upplifuninni. Síðan má
gjarnan maula á kökubita og sötra á
kaffi til að stemningin verði sem
mest.
Vefsíðan www.coffitivity.com
Morgunblaðið/Kristinn
Kliður Margir eiga auðveldara með að einbeita sér að vinnu á kaffihúsum.
Kaffihúsakliðinn heim í stofu
Tónlistargleðinni í Reykjavík lauk ekki
með Innipúkanum um síðustu helgi og
halda sveitirnar áfram að stíga á stokk
víðsvegar um bæinn. Reykvíska hljóm-
sveitin Múspellssynir heldur til að
mynda tónleika í Lucky Records föstu-
daginn 9. ágúst og hefjast þeir klukk-
an 17. Sveitin, sem var stofnuð
snemma á síðasta ári í Hafnarfirði,
spilar svokallað drungapopp enda ekki
annað við hæfi þegar hljómsveit nefnir
sig eftir eldjötnum norrænu goðafræð-
innar. Sveitina skipa þeir Nökkvi Gísla-
son, Kjartan Sveinsson og Kristófer
Hlífar Gíslason. Lucky Records er til
húsa við Rauðarárstíg 10 í Reykjavík.
Endilega...
... kíkið í Lucky
Records
Morgunblaðið/Heiddi
Tónar Sveitin spilar í Lucky Records.
Dáðadrengurinn Einar Lövdahl
Gunnlaugsson hefur unnið baki
brotnu að undanförnu að sinni
fyrstu plötu, Tímar án ráða, og ætl-
ar kappinn að fagna formlegri út-
komu hennar með gestum í Stúd-
entakjallaranum á fimmtudaginn
næstkomandi. Fyrir þá sem ekki
vita þá er Stúdentakjallarinn stað-
settur undir Háskólatorgi við Sæ-
mundargötu 10.
Einar kveður plötuna vera eina
mestu áskorun sem hann hefur tek-
ið sér fyrir hendur en hann þáði að-
stoð góðra hljóðfæraleikara við
gerð hennar. Í Stúdentakjallaranum
verða í boði einhverjar veigar, auk
lifandi tónlistar, en plötuútgáfu-
partíið mun standa á milli 20 og
22. Allir eru velkomnir að mæta og
það verður enginn aðgangseyrir við
dyrnar.
Einar Lövdahl fagnar nýútgefinni plötu
Tímum án ráða ber að fagna
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Skapandi Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, kærasta Einars, hannaði plötuumslagið.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.