Morgunblaðið - 06.08.2013, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 06.08.2013, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013 Byggingav örur - byg gingatækn i I I Gylfaflöt 3 | 112 Reykjavík | Sími 533 1600 | aseta@aseta.is skiptum. Við erum sérlega ánægð með þau hjón og aðra gesti frá Íslandi.“ Íslensk í báðar áttir Íslendingasamfélagið í Manitoba er sérstakt. Guðríður Böðvarsdóttir, amma Janice, fæddist í Hafnarfirði 1898 og flutti til Gimli 1912. Janice er íslensk í báðar áttir eins og Cameron, eiginmaður hennar, en þau hafa ávallt búið á Gimli. Hún er hreykin af upprunanum og segir að þó fólk hafi aðeins einn dropa af ís- lensku blóði í sér sé hann ráðandi. „Þeir sem eru íslenskir á einhvern hátt segja að þeir séu af íslenskum ættum frekar en af einhverju öðru þjóðerni.“ Janice og Cameron hafa verið virk í íslenska samfélaginu á Gimli í áratugi og starfað fyrir Íslendinga- dagsnefndina á einn eða annan hátt í fjórðung aldar. Hún lætur nú af störfum sem formaður nefndarinnar og eiginmaðurinn tekur við. Það er einsdæmi. Hún segist sennilega ekkert geta kennt honum enda hafi þau starfað saman að þessum mál- um. „Ég styð hann rétt eins og hann hefur stutt mig.“ Hjónin heimsóttu Ísland í fyrsta sinn í sumar. Hún segir að ferðin hafi haft mikil áhrif á þau og þau hafi áhuga á að búa á Íslandi í ein- hvern tíma en geti það ekki nema með vinnu og ekki sé hlaupið að því að fá atvinnuleyfi. „Ég vildi að hægt væri að skiptast á atvinnuleyfum og gera þannig Íslendingum auðveldara fyr- ir að kynnast Kanada og Kanada- mönnum að kynnast Íslandi. Ég er jafn íslensk og aðrir Íslendingar en fæddist í Kanada og hef því ekki réttindin.“ Hyggst heimsækja Ísland Sigmundur Davíð átti í gær fund með Greg Selingar, forsætisráð- herra Manitoba. Þeir ræddu um samskipti Íslands og Manitoba en Greg hefur áhuga á því að koma til Íslands í haust ásamt sendinefnd til að efla tengslin enn frekar. Tugþúsundir sóttu hátíðina á Gimli  Allt gekk upp, segir Janice Narfason Arnason, formaður Íslendingadagsnefndar  Hún lætur nú af störfum sem formaður nefndarinnar en eiginmaðurinn Cameron tekur við sem er einsdæmi Morgunblaðið/Steinþór Ekið um Gimli Sigmundur Davíð og Anna Sigurlaug Pálsdóttir tóku þátt í hinni hefðbundnu bílalest. Í forystu Janice Narfason Arnason, formaður Íslendingadagsnefndar, og Cameron eiginmaður hennar. SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Ég er mjög ánægð með það hvern- ig hátíðin hefur gengið fyrir sig og allt gengið upp,“ segir Janice Narfason Arnason, formaður Ís- lendingadagsnefndar, um hátíðina á Gimli í Manitoba í Kanada um helgina, en talið er að hana hafi sótt um 40.000 til 60.000 manns. Gimli er rólegur og friðsæll um 6.000 manna bær en þessa hátíð- arhelgi fyllist allt og mikið er um að vera. Fjölskyldur hittast, vinir koma saman, menningin blómstrar og boðið er upp á ótrúlegustu hluti. Í því sambandi bendir Janice á að í fyrra hafi fólki í fyrsta sinn gefist kostur á að komast í samfélag vík- inga. Til að verða víkingur þurfi menn að mæta til keppni í vík- ingaklæðum, borða harðfisk, drekka snafs og gefa frá sér víkingaöskur. „Nærri 200 manns bættust í hópinn að þessu sinni,“ segir hún. Mikilvægir gestir Íslendingadagsnefndin hefur boð- ið sérstökum gestum frá Íslandi á hátíðina undanfarin ár í þeim til- gangi að viðhalda tengslunum, styrkja þau og efla. Að þessu sinni voru Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra og Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona hans, heiðursgestir, en á meðal ann- arra sérstakra gesta voru Hjálmar W. Hannesson, aðalræðismaður í Winnipeg, og Anna Birgis, eig- inkona hans, Þórður Ægir Ósk- arsson, sendiherra í Ottawa, og Stewart Wheeler, sendiherra Kan- ada í Reykjavík. „Þetta er það sem hátíðin snýst um, menninguna og arfleifðina,“ segir Janice. „Í því sambandi er gríðarlega mikilvægt að fá gesti frá Íslandi. Það var sérstaklega ánægjulegt að Sigmundur Davíð sá sér fært að koma og hann hefur sýnt og sannað að hann hefur mikinn áhuga á þessum sam- Tvö risastór skemmtiferðaskip eru væntanleg til Reykjavíkur í dag og munu þau bæði leggjast að bryggju í Sundahöfn. Klukkan átta að morgni er von á skipinu AIDAluna sem er rúm- lega 69 þúsund brúttótonn. Og skemmtiferðaskipið Cele- brity Eclipse er væntanlegt til hafnar við Skarfabakka um hádeg- isbilið í dag, en þetta er í annað skiptið í sumar sem það kemur til landsins. Skipið er gríðarstórt, rúmlega 300 metrar á lengd og um 122.000 brúttótonn að stærð, en til sam- anburðar má nefna að flutn- ingaskipið Dettifoss er um 14.000 brúttótonn. Celebrity Eclipse er með stærstu skipum sem hingað koma í sumar. Það rúmar mörg þúsund farþega og í áhöfn eru um 1.200 manna manns. Farþegar beggja skipanna fara í hinar fjölbreyttustu ferðir á með- an skipin dvelja í höfn. Fyrir er í Sundahöfn öllu minna skip, Braemer, sem er 24 þúsund tonn. Það mun halda áfram för sinni klukkan 17 í dag. Stærsta skipið sem hingað kem- ur í sumar heitir Adventure of the Seas og er rúmlega 137 þúsund brúttótonn. Það kom til Reykjavíkur í byrj- un júní og er væntanlegt aftur til Reykjavíkur 4. september. Ljóst er að mikill fengur er að komu erlendra skemmtiferðaskipa hingað til lands. Þannig greiða skipin tvö milljónir króna í hafn- argjöld til Faxaflóahafna. Morgunblaðið/Ómar Risaskip Skemmtiferðaskipið Celebrity Eclipse er tæplega 122 þúsund brúttótonn að stærð. Þetta er með stærstu skipum sem hingað koma. Tvö risaskip vænt- anleg til hafnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.