Morgunblaðið - 06.08.2013, Page 13

Morgunblaðið - 06.08.2013, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013 100% made in Italy www.natuzzi.com Við bjóðum velkomna ítalska hönnun Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar. Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi. Staður þar sem fólki líður vel. Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Hátíðarhöld vegna verslunarmanna- helgarinnar gengu vel fyrir sig um liðna helgi. Víða var þó kalt í veðri en hvergi kom kuldinn niður á skemmtuninni. Flestir prúðir á Þjóðhátíð Talið er að um 15 þúsund manns hafi verið í Dalnum á Þjóðhátíð í Eyjum og sagði Pétur Stein- grímsson, varðstjóri hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum, að hann hefði aldrei séð annan eins fjölda á leiðinni í Dalinn eins og á sunnudagskvöldið. Aðeins einu sinni áður hafa fleiri verið á Þjóðhátíð, en það var árið 2010. Þá segir Jóhann Ólafsson, yf- irlögregluþjónn hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum, að hann muni ekki eftir Þjóðhátíð með eins fáum atvikum þar sem lögreglan þurfti að hafa afskipti af fólki og í ár, þrátt fyrir eina kæru vegna kynferðis- brots og 50 fíkniefnamál. Ekki hefur ennþá verið kært fyrir alvarlega lík- amsárás og segir Jóhann að það sé í fyrsta sinn á 31 árs ferli hans sem lögreglumanns að ekki hafi verið kært fyrir slíkt brot. Telja bros en ekki fólk „Þetta gekk alveg æðislega. Við náum ekki upp í nefið á okkur, við erum svo montnir,“ segir Davíð Rúnar Gunnarsson, einn af skipu- leggjendum hátíðarinnar Einnar með öllu á Akureyri. Hann segir ómögulegt að meta fjölda fólks sem fjölmennti á hátíðina vegna þess að ekki er greiddur aðgangseyrir og hátíðin því opin öllum. „Þess vegna bjuggum við til slagorðið Við teljum bros en ekki fólk. En öll gistirými á Akureyri voru full og við áttum í erf- iðleikum með að finna gistingu fyrir þá listamenn sem komu fram,“ segir Davíð Rúnar og bætir við að margir af eigendum veitinga- og skemmti- staða Akureyrarbæjar hafi tjáð hon- um að margt hafi verið um manninn og að mikil ánægja sé með hátíðina. Hins vegar var veðrið ekki hag- stætt fyrir Akureyringa og segir Davíð að vont veður hafi að vissu leyti sett mark sitt á hátíðina. „Það sem er eftirminnilegt við þessa hátíð í ár er að þetta er í fyrsta skipti þar sem við höldum Eina með öllu í ógeðisveðri,“ segir Davíð í léttum tón, en megnið af viðburðum hátíð- arinnar er haldið utandyra. Hann bætir við að mikil ánægja hafi verið meðal hátíðargesta með flugelda- sýninguna sem var á sunnudags- kvöldið. Þá var metþátttaka í Mýrarbolt- anum á Ísafirði, en þetta var í 10. skiptið sem Evrópumeistaramótið í mýrarbolta er haldið fyrir vestan. Um 1.300 keppendur léku knatt- spyrnu í drullunni, en 104 lið voru skráð til leiks. Í karlaflokki sigraði FC Kareoki eftir úrslitaleik gegn Horny Gorillas úr Mývatnssveit, en úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. Sigurinn var sér- staklega kærkominn fyrir lið FC Kareoki þar sem liðið hefur tekið þátt í öll þau skipti sem mótið hefur verið haldið en hafði ekki sigrað í keppninni áður. Frænkurnar Evrópumeistarar Í kvennaflokki unnu Frænkur á pungnum frækinn sigur á FC Drulluflottar í úrslitaleiknum, en þar þurfti einnig vítaspyrnukeppni til þess að knýja fram úrslit. Bæði FC Kareoki og Frænkur á pungnum geta því með sönnu kallað sig Evrópumeistara í mýrarbolta. 15 þúsund á Þjóðhátíð í Eyjum  Hátíðir um verslunarmannahelgina gengu vel fyrir sig víðast hvar þrátt fyrir misjafnt veðurfar Morgunblaðið/Guðmundur Sv. Hermannsson Þjóðhátíð Hluti hópsins sem var í brekkunni í Herjólfsdal á sunnudagskvöld, en um 15 þúsund manns skemmtu sér á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.