Morgunblaðið - 06.08.2013, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur verið notalegt að njóta hylli
ef það gengur ekki út í öfgar. Manneskjan
sem gefur þér eitthvað fallegt til þess að trúa
á, verður efst á listanum hjá þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert hrókur alls fagnaðar, sem er gott
að sínu leyti, en þú þarft að taka sjálfum þér
tak og venja þig af vingulshætti. Leyfðu öðr-
um að njóta með þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Eins og er er eitthvað sem þú vilt
svo mikið og af öllu hjarta að það hefur dul-
arfullt vald yfir þér. Nýttu tímann til að soga
inn í þig allar nýjungar sem fyrir þig bera.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert umkringdur fólki sem hefur
ákveðnar skoðanir á málum og þykist vita
betur en aðrir. Kannski að þið áttið ykkur
meira að segja á því af hverju ykkur var ætlað
að hittast.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ættir að koma öllum málum á hreint
við vini og vandamenn svo einhverjir draugar
á því sviði séu ekki að þvælast fyrir þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú mátt eiga von á því að vinur þinn
leiti til þín í vandræðum sínum. Hægðu að-
eins á þér og byrjaðu upp á nýtt og njóttu
þessa að vera til.
23. sept. - 22. okt.
Vog Reyndu að sitja á strák þínum, því ann-
ars áttu á hættu að eyðileggja gamalt vina-
samband. Gefðu þér tíma til þess að slaka á
og allt verður í lagi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér finnst einhverjir vera að seil-
ast inn á valdsvið þitt. Vertu slakur og flækjan
leysist á sjálfri sér. Þú átt góðan dag í
vinnunni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Samband sem legið hefur í dvala
undanfarin misseri verður að nokkurs konar
drifkrafti í lífi þínu. Sá tími sem þú eyðir til
þessa endurnýjar þig á allan máta.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Stundum er ekki allt sem sýnist og
því nauðsynlegt að gera sér grein fyrir eðli
hlutanna. Vinur veldur þér vonbrigðum í dag.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sérkennileg atburðarás kann að
leiða til þess að þú hljótir loks umbun erfiðis
þíns. Ræddu málin við lánadrottna og þú
verður hissa hvað auðvelt það reynist að
koma skikki á hlutina.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Trúðu á sjálfan þig. Kannski er átt við
sambandið sjálft eða aðstæður sem skipta
alla hlutaðeigandi máli. Aðstæður eru að
verða hagstæðari.
Í síðustu viku var í Vísnahornisagt frá samkveðlingum
Kristjáns Árnasonar, skálds og
smiðs frá Skálá í Sléttuhlíð, og
Péturs Stefánssonar. Það varð til
þess að ég greip úr bókaskápnum
ljóðabók Kristjáns, Fjöllin sál og
ásýnd eiga, sem út kom 1994.
Hann er skemmtilegt skáld og
hikar ekki við að henda gaman
að sjálfum sér eins og í
„Pegasus“:
Skáldfákur vildi skeiða
skriður og brattar hlíðar.
Upp undir Ólympstindinn
ætlaði ég að ríða.
Fjöllunum fagurbláu
færið þið mína kveðju.
Klárinn minn festi fætur
í flatneskju, aur og leðju.
Og hér er Elli kerling farin að
minna á sig:
Ungum fótum einu sinni
yfirtak létt það féll,
að klifra brattann og komast upp á
Kistu og Skálafell.
Nú fikta ég ekki við fjöllin meir
en fengur hver dagur er,
meðan að kemst ég klakklaust yfir
klungrin í sjálfum mér.
Þegar þessar línur eru skrifaðar
spáir hann norðanátt, En það hefur
svo sem komið fyrir áður:
Norðan vindar næða efldir,
nú er yndi frá í bráð.
Fjallatindar skýjum skefldir
skuggamyndum hylja láð.
Þessa stöku kallar Kristján „At-
lot. Sumarfagurt hefur verið í
Skagafirði þegar hún var ort og
augnablikið gripið:
Ískaldur blærinn andann missir,
undan lítur um stund,
er miðnætursólin kafrjóð kyssir
kot við Málmeyjarsund
En hér er farið að skyggja:
Loftið í vestrinu litast sem blóð
af lækkandi röðulsins eldi.
Svo hverfur í djúpið hin deyjandi glóð
og dagur er orðinn að kveldi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Skáldbóndinn Kristján á
Skálá hefur orðið
Í klípu
„ÉG REYNDI AÐ SLÁ HANA BURT.
HVERJAR ERU REGLURNAR VARÐANDI
AÐ FÁ SÉRSVEITINA?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ERTU AÐ VERÐA BÚINN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fylgjast með húsi
nágrannans þegar þeir
eru í burtu.
ÓSKA-
BRUNNUR
ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ ÞAÐ SÉ
BÚIÐ AÐ ÁKVEÐA VINNU FYRIR
OKKUR Í KVÖLD, LEIFUR ÓHEPPNI!
ÉG VIL ALDREI SJÁ ÞESSA
TUNNU AF ROMMI Í ÞESSU
HÚSI AFTUR!!
HEY! HVAR ERU
INNISKÓRNIR
MÍNIR?!
ÞÚ SKILDIR ÞÁ EFTIR Í MAT-
ARDALLINUM MÍNUM, AFTUR.
NÚ, LÁTTU
MIG ÞÁ FÁ
ÞÁ!
SPÝT!
BANK!
Frans páfi fordæmdi á dögunumáróður fyrir samkynhneigð.
Sjálfur hefur Víkverji aldrei orðið var
við áróður fyrir neinni annarri kyn-
hneigð en þeirri sem snýr að gagn-
stæða kyninu. Í gegnum tíðina hafa
nefnilega býsna margir orðið til þess
að staðhæfa að gagnkynhneigð sé sú
eina rétta og eru tilbúnir til að ganga
býsna langt við að styðja þær fullyrð-
ingar. Fleiri en páfi hafa vísað til
trúarkenninga í þessu sambandi.
x x x
Væri Víkverji annarrar þjóðar enþeirrar íslensku ætti hann
kannski auðveldara með að skilja
hvað páfi á við. Til dæmis samþykkti
efri deild rússneska þingsins nýverið
lög gegn áróðri fyrir samkynhneigð,
en tilgangur laganna er sagður vera
m.a. að verja börn fyrir slíkum
áróðri.
Áhrifa laganna gætir nú þegar, en
þrír Hollendingar voru nýlega hand-
teknir í borginni Murmansk þar sem
þeir voru við vinnslu heimild-
armyndar um afstöðu Rússa til sam-
kynhneigðar. Verði þeir fundnir sek-
ir, gæti beðið þeirra fangelsisvist og
háar sektargreiðslur.
x x x
Víða um heim sætir fólk mismunun,misþyrmingum og refsingum
fyrir kynhneigð sína og kynáttun.
Það þarf ekki að leita til fjarlægra og
framandi landa til að finna dæmi um
takmörkun á tjáningar- og félaga-
frelsi og manndráp. Þetta viðgengst í
öllum heimshornum.
Menning, trúarbrögð og hefðir eru
gjarnan notuð sem skálkaskjól til að
geta meinað fólki að njóta grundvall-
armannréttinda.
x x x
Nú styttist í Gleðigönguna árleguþar sem tugþúsundir Íslendinga
taka að jafnaði þátt í. Þar sameinast
börn og foreldrar til að sýna mann-
réttindabaráttu samkynhneigðra
stuðning og fagna fjölbreytileika
mannlífsins.
x x x
Það er nefnilega miklu skemmti-legra að gleðjast en að setja lög
sem banna fólki að vera eins og það
er. víkverji@mbl.is
Víkverji
Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst
ALVÖRU
MÓTTAKARAR
MEÐ LINUX
ÍSLENSK VALMYND
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
25
1988-2013
Allir vegir Drottins eru elska og trú-
festi fyrir þá sem halda sáttmála hans
og boð. (Sálmarnir 25:10.)