Morgunblaðið - 06.08.2013, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.08.2013, Blaðsíða 31
búa í Íslendinga „gettóum“ eru einangraðri. Ef námsmennirnir búa svo einir í herbergi úti í bæ eða hjá sinni íslensku fjölskyldu, þá nota þeir málið minna og þá tekur lengri tíma að ná fram- förum. Skipulag námsins í háskólunum skiptir miklu máli fyrir framfarir nemenda í málinu. Það eru tak- mörkuð tækifæri til að nota dönsku til annars en að hlusta, þegar kennslan fer fram í formi fyrirlestra, þar sem nemendur sitja kannski með 300-400 öðrum. Í sumum háskólum byggist kennslan hins vegar á hópvinnu og þá þurfa Íslendingarnir að leysa verkefni í samstarfi við aðra. Stundum eru þeir einu Íslendingarnir í hópnum eða kannski tveir saman. Í slíkum tilvikum leggja þeir sig fram við að tala dönsku allan tímann. Þessi teymisvinna gefur þeim tækifæri til að eiga samneyti við aðra og geta talað og notað málið, en einn- ig skrifað verkefni með öðrum og geta spurt ef þau eru í vafa. Það eru kjöraðstæður til að læra tungumál að fá leiðbeiningar frá fólki sem maður treystir og ber virðingu fyrir. Það eflir líka sjálfs- traust og löngun til að ná frekari færni í málinu. Það er allt annað hljóð í nem- endum eftir tvo vetur í Danmörku en eftir fyrsta árið. Erfiðasti hjall- inn er þá að baki og ég dáist að því hvað þeir virðast vera kapps- fullir við það að bæta stöðu sína.“ Hvernig geta rannsóknir þínar nýst? „Hér á landi er augljóslega mikil kunnátta og löng hefð fyrir að kenna dönsku sem kemur mjög mörgum til góða, samanber þann mikla fjölda Íslendinga sem stunda nám og störf á Norðurlöndum. Á hinn bóginn er sumt í kennslunni sem betur mætti fara. Miklu skipt- ir að tungumálakennslan sé skil- virk og árangursrík. Ég er að vona að rannsóknin sé innlegg í um- ræðu um tungumálakennslu og það sem námsmennirnir hafa fram að færa nýtist. Rannsóknir á notkun erlendra tungumála í háskólastarfi eru af skornum skammti, sem sést af því að þessi rannsókn mun vera sú fyrsta sinnar tegundar í Dan- mörku og hefur vakið nokkra at- hygli. Hér á landi eru aðstæður þannig að hægt var að fá upplýs- ingar um námsmannahópinn og ná til hans. Stór hluti námsmannanna brást við rannsókninni með já- kvæðum hætti og þannig fengust ítarlegar og traustar upplýsingar. Rannsóknin nýtist því einnig á Norðurlöndum almennt og í al- þjóðlegu samhengi.“ málakennslu Morgunblaðið/Eggert »Rannsóknir á notkun erlendra tungumála íháskólastarfi eru af skornum skammti, sem sést af því að þessi rannsókn mun vera sú fyrsta sinnar tegundar í Danmörku og hefur vakið nokkra athygli. MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013 Sérsmíðaðar baðlausnir Speglar • Gler • Hert gler Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar Sandblástur • Álprófílar Máltöku- og uppsetningaþjónusta Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtu-skilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af ljósaspeglunum okkar vinsælu. Á nýrri heimasíðu okkar glerslipun.is er gott yfirlit yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla velkomna í Vatnagarða 12 þar sem fagfólk veitir góða þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf. Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922 Þegar þú kaupir þér BOBS skó gefur Skechers annað skópar til nauðstaddra barna Meira en 4 milj. skóparahefur verið dreift Guatemala Uganda Haiti Fæst á souk.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.