Morgunblaðið - 06.08.2013, Side 32
Kátar Vinkonurnar Laufey Haraldsdóttir og María Björk Gunnarsdóttir
létu sig ekki vanta á tónleikana í Húsdýragarðinum í blíðunni.
» Stuðmenn hélduuppi stuðinu í Fjöl-
skyldu- og húsdýra-
garðinum sl. sunnudag
en hljómsveitin hefur
margoft haldið tónleika
þar um verslunar-
mannahelgi. Meðal
þeirra sem komu fram
með Stuðmönnum voru
gítarleikarinn Guð-
mundur Pétursson,
hljómborðs- og slag-
verksleikarinn Eyþór
Gunnarsson og fé-
lagarnir Sveppi og Villi
sem sungu og stigu
villtan dans.
Stuðmenn, hljómsveit allra landsmanna, skemmti gestum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í fyrradag
Morgunblaðið/Styrmir
Stuðmenn Ragnhildur Gísladóttir og Egill Ólafsson þöndu raddböndin við mikinn fögnuð og gleði viðstaddra.
Gæruvestið og köflótti jakkinn minntu óneitanlega á fatnað þeirra í Stuðmannamyndinni, Með allt á hreinu.
Sumargleði Það fór vel um hnátuna Margréti Kjartansdóttur sem sat á
milli þeirra Helgu og Hólmfríðar Björnsdætra og hlýddi á tónana.
Afslöppun Ekki væsti um Svanhildi Maríasdóttur, Berglindi Baldursdóttur,
Daníel Dag Hermannsson og Hermann Ingason í skjóli við gróðurinn.
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013
Nýjasta kvikmynd mexíkóska leik-
stjórans Guillermo del Toro, Pacific
Rim, hefur slegið í gegn í Kína og
er líklegt að framhaldsmynd verði
gerð, í ljósi þeirra vinsælda. Miða-
sölutekjur fyrstu sýningarhelgar
myndarinnar í Kína námu níu millj-
ónum dollara, um milljarði króna,
en aðsókn að myndinni hefur aftur
á móti verið heldur dræm í Banda-
ríkjunum. Hins vegar hefur aðsókn
verið góð á heimsvísu og enn á eftir
að frumsýna hana í fjölda landa,
m.a. á Spáni, í Brasilíu og Japan.
Myndin var feikilega dýr í fram-
leiðslu, kostaði eitthvað á bilinu
180-220 milljónir dollara og því enn
óvíst hvort einhver hagnaður verð-
ur af myndinni. Í myndinni segir af
skrímslum sem hyggjast tortíma
jörðinni og eina von mannkyns er
risavaxin, fjarstýrð vélmenni.
Skrímslaógn Risavaxið skrímsli í
kvikmyndinni Pacific Rim.
Pacific Rim slær
í gegn í Kína
Rússneski þingmaðurinn Vitaly
Milonov vill að hafin verði rann-
sókn á því hvort tónlistarkonan
Lady Gaga hafi brotið rússnesk lög
með því að halda tónleika þar í
landi án þess að hafa viðeigandi
leyfi til þess. Milonov heldur því
fram að Gaga hafi komið til lands-
ins sem ferðamaður án starfsleyfis.
Þingmaðurinn hefur einnig sakað
tónlistarkonuna Madonnu um sam-
bærilegt lögbrot sem og að tala
með jákvæðum hætti um samkyn-
hneigð, líkt og Gaga. Í Rússlandi er
bannað með lögum að fræða fólk
undir lögaldri um samkynhneigð
og átti Milonov frumkvæðið að
þeirri lagasetningu.
Gaga Milonov er greinilega lítt hrif-
inn af tónlistarkonunni friðelskandi.
Þingmaður sakar
Gaga um lögbrot
Frá því að Garðlist ehf var stofnað fyrir 23 árum síðan, höfum við haft það að leiðarljósi að veita framúrskarandi
þjónustu fyrir garðinn á einum stað. Við þökkum þeim þúsundum einstaklinga, húsfélaga og fyrirtækja sem við
höfum átt í viðskiptum við undanfarin ár, á sama tíma og við bjóðum nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna.
ALHLIÐA GARÐÞJÓNUSTATUNGUHÁLSI 7 » 110 REYKJAVÍK » SÍMI 554 1989 » GARDLIST.IS
ALLT FYRIR
GARÐINN
Á EINUM
STAÐ
» Trjáklippingar
» Trjáfellingar
» Garðsláttur
» Beðahreinsun
» Þökulagnir
» Stubbatæting
» Gróðursetning
» Garðaúðun o.fl.