Morgunblaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 19
Bakkagerði stendur við Borgarfjörð eystri og er þorpið oft
kennt við fjörðinn. Landbúnaður og smábátaútgerð hafa lengst
af verið aðalatvinnuvegirnir. Skammt innan við þorpið er
sérkennileg klettaborg, Álfaborg, og er það trú margra
að þar sé mikil huldufólksbyggð. Grunnskóli er í þorpinu,
verslun og ýmis þjónusta. Íbúar eru 86 talsins.
Jóhannes
S. Kjarval ólst
upp á þessum
slóðum
Morgunblaðið/Golli
Fiskverkun Jóhannes og Óttar ákváðu að segja skilið við borgina og fara að vinna í fiskverkun á heimaslóðum.
um var ekkert kaffihús hér, ekkert
hótel, engin Bræðsla og einn veit-
ingastaður sem var lokað klukkan
átta á kvöldin,“ segir Kristján en
Bræðslan er tónlistarhátíð sem getið
hefur sér gott orð undanfarin ár.
„Í Framfarafélaginu er sífellt
verið að leita leiða til að búa til at-
vinnu. Sérstaklega á veturna en
internetmálin koma oft í veg fyrir að
hægt sé að gera það,“ segir Óttar en
netsamband er slæmt í Borgarfirði
eystri. Um tvær milljónir króna þarf
til þess að virkja ljósleiðara sem
þegar hefur verið lagður. Eru ýmsir
velunnarar samfélagsins, með tón-
listarmanninn Jónas Sigurðsson í
fararbroddi, að vinna að lausn máls-
ins.
Sparaði launakostnað
Vinirnir eru meðal annars með-
eigendur í bar sem er starfræktur á
sumrin. Gaukuðu gárungar því að
blaðamanni að þeir hefðu verið gerð-
ir að meðeigendum þar sem slíkt
þótti spara launakostnað starfs-
manns sem sæi um að afgreiða þá fé-
laga. „Þetta kom eiginlega til vegna
þess að við vorum bestu við-
skiptavinir þeirra,“ segir Óttar.
Morgunblaðið/Golli
Vatnsskarð Þegar komið er yfir Vatnsskarð versnar netsamband til muna.
Einungis þarf um tvær milljónir króna til að bæta úr því.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013
Morgunblaðið/Golli
Álfakaffi Kaffihúsið sem Kalli rekur er afar snoturt.
Eitt allra vinsælasta myndefni
ferðamanna sem leggja leið sína
til Bakkagerðis á Borgarfirði
eystri er lítill og vel hirtur torf-
bær, Lindarbakki. Hann stendur
neðarlega í þorpinu, skammt frá
kirkjunni, og er sannkölluð
þorpsprýði.
Elsti hluti hans var byggður
árið 1899 en hann var endur-
byggður að hluta fyrir nokkrum
árum. Lindarbakki er nú notaður
sem sumarbústaður. Eigandi
hans er Kópavogsbúinn Elísabet
Sveinsdóttir, Stella. Dvelur hún
gjarnan þar á sumrin þrátt fyrir
að vera komin á níræðisaldur. Að
sögn gárunga tveggja sem búa í
Bakkagerði keyrir Stella þangað
sjálf á hverju sumri og er hún
gjarnan hrókur alls fagnaðar hjá
ferðamönnum. vidar@mbl.is
Torfbærinn Lindarbakki var reistur árið 1899
Morgunblaðið/Golli
Lindarbakki Vinsælasta myndefni ferðamanna er torfbær Stellu.
Torfbær hýsir
hrók alls fagnaðar
Elísabet Sveinsdóttir Stella
dvelur gjarnan í bænum á sumrin.
VEÐRIÐ LÉK VIÐ TÓNLEIKAGESTI Á BRÆÐSLUNNI
Jónas Sigurðsson
Bræðslan góð
Þeir Kristján og Óttar segja tónlistarhátíðina
Bræðsluna hafa gert mikið fyrir samfélagið.
Hátíðin var haldin í níunda sinn í ár og komu
meðal annars fram Ásgeir Trausti, John
Grant, Mannakorn, Bjartmar, Jónas Sigurðs-
son og að sjálfsögðu frægasti sonur Borg-
arfjarðar eystri; Magni Ásgeirsson. Allir tón-
leikarnir voru í gamalli síldarbræðslu. Veðrið
lék við gesti hátíðarinnar og var um 20 stiga
hiti alla helgina.
Seyðisfjörður er næsti við-
komustaður á 100 daga hring-
ferð Morgunblaðsins.
Á morgun
Með kveðju frá Borgarfirði Eystri