Morgunblaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013
Svarið fer sjálfsagt
eftir því hvers kyns
súpa er í boði. Fáir
vilja sennilega bragða
á þeirri skuldasúpu
sem hið opinbera hef-
ur soðið saman und-
anfarin ár.
Í hagtíðindum Hag-
stofu Íslands (10. sept-
ember 2013) og í
skýrslu FME um líf-
eyrissjóðina (10. júlí
2013) má greina ýmislegt áhugavert.
Árið 2012 námu tekjur hins opinbera
740 milljörðum króna en í árslok
2012 námu skuldirnar, ásamt lífeyr-
isskuldbindingum, 2.336 milljörðum
króna. Það þýðir að á hverju einasta
mannsbarni hérlendis hvíla rúmar 7
milljónir króna vegna hins opinbera.
Í fyrrnefndum hagtíðindum eru pen-
ingalegar eignir hins opinbera tald-
ar vera 1.254 milljarðar sem þýðir að
hið opinbera er í verulegum mínus.
Hvað næst?
Skuldbindingar hins opinbera hér
eru orðnar svo hrikalegar að við þær
verður ekki staðið að óbreyttu.
Menn bæta ekki endalaust við
skuldir og skuldbindingar án afleið-
inga, ekkert í mannheimum er enda-
laust.
Staðan hérlendis er ekkert eins-
dæmi. Fjárfestar munu að endingu
gera sér grein fyrir því að opinberir
aðilar eru svo skuldum hlaðnir að
þeir geta ekki staðið við sínar skuld-
bindingar. Lánamarkaðir lokast fyrr
eða síðar.
Opinber gjaldþrot hafa gerst og
geta gerst, nýlegt dæmi er gjaldþrot
Detroit frá því í sumar.
Innan ekki svo langs tíma munu
skuldir sliga opinbera sjóði margra
landa og gæti það komið fram með
mismunandi hætti. Í einhverjum til-
vikum gæti verðbólga orðið veruleg
en annars staðar gæti orðið
greiðslufall. Árið 2001
hætti Argentína að
greiða af erlendum
skuldum sínum. Sum
lönd kunna að fara þá
leið þegar þar að kem-
ur. Skuldir sums staðar
eru orðnar svo hrika-
legar að vextir þurfa
bara að hækka lítið eitt
svo skuldirnar verði
óviðráðanlegar. Vextir
munu fyrr eða síðar
hækka. Annars staðar
hafa menn gefið út að
fáist ekki meira lánað sé ekki hægt
að standa við allar skuldbindingar.
Margir munu tapa fé á því að hafa
lánað opinberum aðilum.
Ofangreint mun hafa áhrif hér-
lendis, þegar lánamarkaðir lokast er
hætt við að erfitt verði fyrir hið op-
inbera að standa við allar sínar
skuldbindingar.
Hvenær?
Það er hins vegar erfiðara að
segja til um þó næsta ljóst sé hvar
upptökin verða. Vaxtahækkanir
verða sennilega þúfan sem veltir
hlassinu. Þjóðir munu verða misilla
úti.
Líklega er nokkur tími í jarð-
skjálftann en lánamarkaðir geta
hæglega lokast innan tiltölulega
skamms tíma. Vandræðin munu að
líkum smitast frá landi til lands.
Þetta efnahagslega óveður, sem í
fjarska stöðugt safnar styrk, mun
ekki láta okkur ósnert.
Viltu súpu?
Eftir Friðjón E.
Jónsson
Friðjón E.
Jónsson
» Það þýðir að á hverju
einasta mannsbarni
hérlendis hvíla rúmar 7
milljónir króna vegna
hins opinbera.
Höfundur starfar hjá Reykjavík-
urborg.
Það er sagt að
stundum sé best að
láta dylgjum og
sleggjudómum ósvar-
að en stundum, stund-
um verður að leiðrétta
rangan málflutning
því að ef lygin er nógu
oft sögð verður hún að
sannleika.
Mikið hefur verið
rætt um ábyrgð fjöl-
miðla og skal það skoðað sér-
staklega í ljósi þess sem á eftir
fylgir.
Þann 5. október síðastliðinn birt-
ist frétt á fréttavef DV þess efnis
að undirritaður, sem er prófkjörs-
frambjóðandi í komandi borg-
arstjórnarprófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins, vildi láta reisa styttu af
Jóni Páli Sigmarssyni við tjörnina í
Reykjavík. Sannarlega er það rétt
og ekkert út á þann hluta fréttar-
innar að setja. Stytta af Jóni Páli
er löngu orðin tímabær og sann-
arlega ekki í fyrsta skiptið sem slík
hugmynd hefur verið viðruð.
Hins vegar ákvað viðkomandi
fréttahöfundur, sem í þessu tilfelli
skrifar nafnlaust undir merkjum
ritstjórnar DV, að ljúka fréttinni
með skírskotun í að undirritaður
hefði fyrir fimm árum síðan verið
ásakaður um andúð á innflytj-
endum fyrir það að benda á mein-
bugi opinna landamæra og ástand
hinnar svokölluðu fjölmenningar í
ríkjum á meginlandi
Evrópu.
Fyrir utan það að
fimm ár eru liðin frá
því að undirritaður
lýsti áhyggjum sínum,
sem sannarlega áttu
rétt á sér, er það nú
einu sinni svo að und-
irritaður hefur sjálfur
verið innflytjandi í
ókunnu landi, starfað
sem lyfjafræðingur í
Þýskalandi og hefur
séð mörg þau vanda-
mál sem fylgja opnum landamær-
um.
Hápunktur fréttarinnar var þó
ekki þessi fyrrgreinda skírskotun
heldur upprifjun fréttamannsins á
félagsskap sem á einhverjum tíma-
punkti ákvað að fara til lögregl-
unnar og leggja fram undarlega
kæru. Þessi ónefndi fréttahöfundur,
sem þarna skrifar í nafni rit-
stjórnar DV, gat þess ekki að þessi
umrædda ákæra var svo fráleit að
lögreglan sendi hana þangað sem
hún átti heima: beint í ruslatunn-
una.
Niðurlag fréttarinnar dæmdi sig
sjálft og hefði ekki komið til um-
fjöllunar ef tilgangurinn hefði ekki
verið eins alvarlegur og raun bar
vitni en niðurlagið var aðeins gert
til að vekja upp athugasemdahjörð-
ina sem, upp á síðkastið, hefur mis-
boðið fólki með ummælum sem
enginn lætur út úr sér nema
kannski á bak við lyklaborð í múg-
æsing. Það tókst ekki. Hjörðin tók
ekki við sér.
Stuttu seinna birtist önnur frétt
undir merkjum ritstjórnar DV og
virtist sú handahófskennda frétt
aðeins hafa einn tilgang enda fólst
engin frétt í fréttinni heldur ein-
göngu skrumskæling á liðnum at-
burði og einhver upprifjunarstund.
Reynt var enn og aftur að vekja
upp hjörðina sem skrifar at-
hugasemdir við fréttir á vefnum og
í þetta skiptið tókst það. Riddarar
velsæmis og almannahagsmuna
sem hafast við á athugasemdakerfi
DV ákváðu að ausa úr skálum reið-
innar á ungan lyfjafræðing sem
fyrir fimm árum skrifaði um þá
galla sem fylgja galopnum landa-
mærum og vogaði sér að segjast
kristinnar trúar í útvarpsviðtali.
Það að ásaka einhvern um andúð
á innflytjendum eða að dylgja um
að menn séu kynþáttahatarar er al-
varlegt. Það að æsa upp múginn er
þó alvarlegra.
Undirritaður hefur aldrei talað
fyrir andúð á innflytjendum enda
sjálfur staðið í sömu sporum á
meðan hann starfaði erlendis og á í
þokkabótina norska ömmu sem
honum þykir afar vænt um.
Undirritaður hefur sannarlega
látið hin ýmsu málefni sig varða
enda er það svo að honum þykir af-
ar vænt um samfélagið sitt og þá
sérstaklega borgina sína og hefur
eins og fleiri lýst áhyggjum sínum
yfir uppgangi erlendra glæpa-
gengja, auknum menningarlegum
óstöðugleika og ástandinu á meg-
inlandi Evrópu.
Jafnvel í löndunum í kringum
okkur er verið að fjalla um slík
Misbeiting valds
Eftir Viðar
Guðjohnsen »Reynt var enn og
aftur að vekja upp
hjörðina sem skrifar
athugasemdir við fréttir
á vefnum og í þetta
skiptið tókst það.
Viðar Guðjohnsen
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskriftRauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
•Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgjameð
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 106.900
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 125.765
Meira en bara
blandari!