Morgunblaðið - 10.10.2013, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013
Stjórnvöld í Rússlandi segjast hafa
fundið fíkniefni í skipi Grænfriðunga
sem sigldi inn í Norður-Íshaf til að
mótmæla olíuvinnslu Rússa. Græn-
friðungar vísa þessum ásökunum á
bug og segja þær rógburð.
Rússar segjast hafa fundið morfín
og efni sem hægt er að nota til að
framleiða ópíum í skipinu.
Grænfriðungar segja ekkert til í
því að fíkniefni hafi verið um borð í
skipinu. Í yfirlýsingu frá þeim segir
að þeir reikni með að stjórnvöld í
Rússlandi séu að vísa til lyfja sem
skylt er að séu um borð í skipum sam-
kvæmt sjórétti.
Rússneskt strandgæsluskip hand-
tók í síðasta mánuði 30 liðsmenn
Grænfriðunga í Norður-Íshafi, en
þeir voru að mótmæla olíuborun á
svæðinu. Saksóknari í Rússlandi sak-
aði þá um sjórán, en allt að 15 ára
fangelsisrefsing liggur við broti af
þessu tagi. Mennirnir, sem eru frá 18
löndum, eru enn í haldi. egill@mbl.is
AFP
Mótmæli Handtöku Grænfriðunga í
N-Íshafi mótmælt í París í gær.
Saka Rússa
um rógburð
Rússar segjast
hafa fundið fíkniefni í
skipi Grænfriðunga
Sir Chris Hoy, fyrrverandi keppnismaður í hjól-
reiðum (fyrir miðju), heldur á kefli samveldis-
leikanna áður en hefðbundið boðhlaup fyrir leik-
ana hófst með hátíðlegri athöfn við
Buckingham-höll í Lundúnum í gær. Þúsundir
manna skiptast á um að hlaupa með keflið á 288
dögum um 70 lönd og landsvæði. Alls verða
hlaupnir um 190.000 kílómetrar áður en næstu
samveldisleikar hefjast í Glasgow á næsta ári.
AFP
Hlaupa alls 190.000 km með kefli samveldisleikanna
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Miðflokkurinn Kristilegi þjóðar-
flokkurinn í Noregi hefur gagnrýnt
nokkra þætti í stjórnarsáttmála sem
Hægriflokkurinn
og Framfara-
flokkurinn birtu
fyrr í vikunni.
Kristilegi þjóðar-
flokkurinn kveðst
t.a.m. ekki styðja
stefnu hægri-
stjórnarinnar í
landbúnaðarmál-
um og áform um
að heimila versl-
unum að hafa opið á sunnudögum.
Kristilegi þjóðarflokkurinn og
annar miðflokkur, Venstre, hafa
skuldbundið sig til að styðja minni-
hlutastjórn hægriflokkanna tveggja
á þinginu eftir að hún tekur við völd-
unum á mánudaginn kemur. Mið-
flokkarnir hafa þó gagnrýnt ýmsa
þætti stjórnarsáttmálans og eru
andvígir stefnu Framfaraflokksins í
nokkrum málum, m.a. loftslagsmál-
um og málefnum innflytjenda.
Kristilegi þjóðarflokkurinn hefur
m.a. lagst gegn þeirri stefnu „blá-
bláu“ stjórnarinnar að minnka opin-
bera styrki í landbúnaði. Hans Olav
Syversen, formaður þingflokks
Kristilega þjóðarflokksins, segir að
Erna Solberg, leiðtogi Hægriflokks-
ins og verðandi forsætisráðherra,
taki áhættu ef hún „storki“ miðflokk-
unum með því að leita eftir stuðningi
annarra flokka við tillögur sem
Kristilegi þjóðarflokkurinn sam-
þykkir ekki.
Erna Solberg kveðst hins vegar
ekki vera bundin af samstarfi við
báða miðflokkana. „Við höfum gert
mjög skýran samning sem kveður á
um að við þurfum fyrst að leita til
Venstre og Kristilega þjóðarflokks-
ins saman til að finna lausnir. En við
erum ekki bundin af þessu ef við
finnum lausn á einhverju máli og
höfum meirihluta fyrir því á
þinginu,“ hefur fréttastofan NTB
eftir Solberg. „Við höfum hug á því
að finna góðar lausnir með báðum
miðflokkunum. En stundum getur sú
staða komið upp að það gangi ekki.“
Ósamið um skiptingu
ráðuneyta
Hægriflokkurinn fékk 48 þingsæti
af alls 169 í kosningunum í septem-
ber og Framfaraflokkurinn 29. Til að
tryggja mjög nauman meirihluta at-
kvæða á þinginu gæti þeim nægt
stuðningur Venstre sem fékk níu
þingsæti. Kristilegi þjóðarflokkur-
inn er með tíu þingmenn.
Erna Solberg sagði á blaðamanna-
fundi í gær að ekki hefði enn verið
samið um skiptingu ráðuneyta milli
stjórnarflokkanna tveggja og ekki
hefði verið ákveðið hverjir fengju
ráðherraembætti.
Að sögn fréttavefjar Aftenposten
er gert ráð fyrir því að Hægri-
flokkurinn fái 12-13 ráðherraemb-
ætti og Framfaraflokkurinn 7-8 ef
ráðherrum verður ekki fækkað.
Kveðst ekki vera bundin af
samstarfi við miðflokkana
Solberg kveðst ekki þurfa að leita eftir stuðningi miðflokkanna í öllum málum
Erna Solberg
Ráðuneytum fækkað?
» Erna Solberg hefur sagt að
hún vilji fækka ráðuneytum
sem eru nú alls átján en ráð-
herrarnir eru tuttugu.
» Stefnumótunarnefndir
hægriflokkanna lögðu til árið
2009 að ráðuneytunum yrði
fækkað í 12-13 og landbún-
aðar- og sjávarútvegsráðu-
neytin yrði innlimuð í atvinnu-
vegaráðuneyti. Kristilegi
þjóðarflokkurinn hefur lagst
gegn þeirri tillögu.
Ertu að taka til …
…á vinnustaðnum
Komdu spilliefnunum og raftækjunum
á söfnunarstöðina næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is… í bíls umkúrn
Evrópuráðið hefur varað spænsk
stjórnvöld við því að niðurskurður-
inn þar í landi geti haft alvarleg
áhrif á spænsk börn. 30% spænskra
barna bjuggu við fátækt árið 2011.
Niðurskurður í velferðar-, heil-
brigðis og menntamálum hefur haft
slæm áhrif á velferð þeirra.
Í skýrslu Evrópuráðsins kemur
fram að fátækt hafi aukist meðal
barna. Niðurskurður á bótum fyrir
fjölskyldufólk hafi haft slæm áhrif
á börnin, meðal annars hafi þau
flosnað burt af heimilum sínum og
endað á götunni.
SPÁNN
Niðurskurður hefur
slæm áhrif á börn