Morgunblaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Heiðarleikinn er það sem dugar best
gagnvart sjálfum þér og öðrum. Hvort sem
það er vinnufélagi sem eyðir tíma þínum eða
vanrækt verk heima þá reddar þú málunum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur margt til málanna að leggja og
þeir eru margir sem bíða spenntir eftir að
heyra í þér. Náðu sambandi við sköp-
unarmátt þinn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur látið margt reka á reið-
anum en nú verður ekki hjá því komist að
taka málin föstum tökum. Lofaðu sjálfum/
sjálfri þér að halda þínu striki.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Mættu hlutunum með brosi á vör og
leystu þá ljúfmannlega. Leyfðu einhverjum að
njóta þess með þér þegar þú vinnur í happ-
drætti lífsins.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að hrista af þér slenið, bretta
upp ermarnar og taka þinn þátt í því sem
gera þarf. Ekki dvelja við daprar tilfinningar.
Notaðu skynsemina þegar þú gagnrýnir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú gerir dags daglega tilveruna að
nokkurs konar listformi, hvort sem það er að
raða púðum á sófa eða taka þátt í líflegum
samræðum við vin.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú tekur tíma í að fara yfir trygginga-
mál, reikninga og sameiginlegar eignir mun
þér miða áfram. Treystu á sjálfa/n þig og þá
munu aðrir treysta þér líka.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þjónustulund þín gerir að verk-
um að hvaða hópur sem er er heppinn að þú
skulir tilheyra honum. Einbeittu þér að einu
verkefni í einu og þá mun allt ganga upp hjá.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það sem þig langar til þess að
gefa er ekki endilega það sem aðrir vilja fá.
Ekkert liggur á. Mundu, að hlusta og heyra er
ekki það sama.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samstarfsvilji vinnufélaganna er
meiri í dag en endranær. Reyndu að vera þol-
inmóð/ur gagnvart einhverjum sem reynir að
skipta sér af einkamálum þínum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Reyndu að átta þig á því hversu
vel þú elur önn fyrir fólki sem þú umgengst
daglega. Hér getur verið um kaup á nýjum og
fallegum hlut að ræða.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er komið að því að þú framkvæmir
það sem þú hefur lengi látið þig dreyma um.
Þú þarft ekki frægð, peninga eða aðdáun ein-
hvers til þess að ráða fram úr því.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir,Fía á Sandi, kastaði fram á
umræðudaginn mikla um fjár-
lögin:
Úti kólnar endalaust,
allur gróður sölnar.
Nú er komið hrímkalt haust,
hundaþúfan fölnar.
Bliknuð eru blómin mín
á borðinu í vasa.
Alþingismenn upp á grín
ögn á skjánum þrasa.
Áfram snakka allir hratt,
út úr flestu snúa.
Að einhver væri að segja satt
sælt væri að trúa.
Davíð Hjálmar Haraldsson
stóðst ekki mátið:
Ítar standa allir hissa,
enginn veit hvað gera skal
þegar héppar hætta að pissa
á hundaþúfu í Aðaldal.
Fía var skjót til svars:
Satt mun Davíð segja frá,
’ann sjái þúfu græna.
Hann hlýtur líka að þekkja þá
sem þarna hlaupa og spræna.
Eftir þessi orðaskipti var rifjuð
upp vísa sem gaman væri að vita
höfund að:
Satt og logið sitt er hvað,
sönnu er best að trúa.
En hvernig á að þekkja það
þegar flestir ljúga?
Páll Imsland „limrar“ um eld-
gamla daga:
Ég hraktist um höfin á Hvanney
og horfðı́ eftir síld sem ég fann ei.
Það var rokhvasst og bræla
og bragðið var æla
og á Raufarhöfn af mér þá rann ei.
Ágúst Marinósson var á Al-
þýðusambandsþingi á Ill-
ugastöðum. Mikið var sungið á
kvöldvökunni en lítið heyrðist frá
borði Skagfirðinganna. Honum
varð að orði:
Áður vandist öðru hér,
ýmsar hefðir deyja.
Að skála og syngja skemmtun er
en Skagfirðingar þegja.
Formaður Öldunnar, verkalýðs-
félagsins á Sauðákróki, er söng-
maður góður og var Ágústi bent á
að hann hefði verið virkur í
söngnum:
Skoðun Gústa þykir þröng,
þess er rétt að geta,
að Þórarinn með sóma söng
og sjálfsagt er að meta.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Skagfirðingum, fjárlögum
og hundaþúfum í Aðaldal
Í klípu
„VONDUR HUNDUR! HVAÐ SAGÐI ÉG UM AÐ
STÓLA Á LÆKNISRÁÐ Á NETINU?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VEIT AÐ ÞAÐ ER FULLT TUNGL Í
KVÖLD. HÆTTU NÚ AÐ HUGSA UM ÞAÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... brosið þitt.
HALTU ÁFRAM AÐ
SLEIKJA ÞAÐ.
ER EINHVER ANNAR
BÚINN AÐ NOTA ÞETTA
BAÐVATN Á UNDAN MÉR?
AUÐVITAÐ
EKKI!
GOTT! NEMA NÁTTÚRLEGA
ÞÚ ÆTLIR AÐ TELJA
HUNDINN MEÐ ...
KETTIR ELSKA
MJÓLK,
GRETTIR.
LEPTU
HANA!
ÁTTU
MORGUNKORN
ÚT Í HANA?
ÞÚ ERT
EKKI AÐ
LEPJA.
EÐA SYKUR,
KAKÓDUFT, SALT,
EGGJARAUÐUR
OG STERKJU? ÞÁ
GETUM VIÐ BÚIÐ
TIL BÚÐING.
ER
ÞAÐ?
Sannkallað stórmeistarajafntefli,“sagði um daginn í íþróttafrétt
um leik tveggja handknattleiksliða
þar sem tveir íslenskir þjálfarar
mættust. Víkverji er mikill áhuga-
maður um skák og taldi því þegar
hann las fyrirsögnina að um stór-
merka frétt væri að ræða. Tvö hand-
knattleiksfélög hefðu ákveðið að
semja um jafntefli þegar einungis
nokkrar mínútur væru liðnar af
leiknum og staðan enn jöfn eða
markalaus. Víkverji varð því fyrir
vissum vonbrigðum þegar hann sá að
merkingin var ekki önnur en sú að
þarna hefðu tvö sterk lið mæst og
endað á því eftir venjulegan leiktíma
að skipta með sér jöfnum hlut.
x x x
Víkverji hefði nú kannski getaðsagt sér það sjálfur. Þetta er
nefnilega ekki í fyrsta sinn sem
íþróttafréttamenn hafa notað orðið
stórmeistarajafntefli með þessum
hætti. Í skákinni merkir orðið hins
vegar ekki það að tveir sterkir and-
stæðingar hafi gert jafntefli eftir
langa og erfiða skák þar sem báðir
tefldu til sigurs. Þvert á móti eru
stórmeistarajafntefli steindauð jafn-
tefli þar sem tveir stórmeistarar
ákveða eftir örfáa leiki að þeir vilji
spara orkuna og semja um jafntefli
þó að staðan sé ekki endilega jöfn.
Þetta var einkum algengt meðal
stórmeistara frá Sovétríkjunum sem
nýttu orkuna þá frekar í að sigrast á
vestrænum taflmönnum. Í seinni tíð
hafa verið settar reglur til þess að
koma í veg fyrir stórmeist-
arajafntefli, þar sem í raun er verið
að hagræða úrslitum, nokkuð sem
myndi líklega ekki ganga vel í þá
sem fylgjast með og spila hóp-
íþróttir.
x x x
Raunar er það nú svo að til erudæmi um „sannkölluð stórmeist-
arajafntefli“ í fótboltanum. Leikur
Fram og Breiðabliks í lokaumferð-
inni árið 2000 kemur til dæmis í hug-
ann, þar sem jafntefli dugði báðum
liðum til þess að hanga uppi, en tap
þýddi fall í næstefstu deild. Að sögn
þeirra sem voru á leiknum, hefði tím-
anum verið betur varið í að mála
svalirnar heima. víkverji@mbl.is
Víkverji
En helgið Krist sem Drottin í hjörtum
ykkar. Verið ætíð reiðubúin að svara
hverjum manni sem krefst raka fyrir
voninni sem þið eigið. (Fyrra Péturs-
bréf 3:15)
brokkoli.is
ARCTIC ROOT frá THE BROCCOLI
Burnirót
Sannkölluð náttúruperla fyrir
meiri orku og aukna yfirvegun
og einbeitingu undir álagi.
Vinnur gegn streitu og stuðlar
að betri nætursvefni.
u Extra kraftmiklar - 200 mg staðlaður kraftur úr Burnirót (Rhodiola Rosea)
u Unnið úr 2000 mg. af ferskri rótinni
u 60 töflur í pakka
u Fljótvirkar
u Gæði ... og gott verð !
Októbertilboð hjá
HEILSUVERI & LYFJAVERI
25% afsláttur