Morgunblaðið - 11.10.2013, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 1. O K T Ó B E R 2 0 1 3
236. tölublað 101. árgangur
TÍSKA OG FÖRÐUN
FÖT, HÁR, HRÁEFNI, HÖNNUN, ILMUR, LITIR, NÁM,
NUDD, SKÓR, SÖFN, ÚR OG FLEIRA Á 32 SÍÐUM
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Það var hart tekist á við Árbæjarstífluna í Elliðaárdal í fyrra-
dag. Fuglavinur kom þangað færandi hendi og gaf fuglunum
brauð. Álftin Svanhildur, sem á sér óðal í Elliðaárdal, var þar
með fjölskyldu sína og naut hún kræsinganna.
Einnig voru þar máfar og endur sem fengu mola og mola.
Þegar fuglavinurinn brá sér frá til að sækja meira brauð í bíl
sinn ætlaði einn hettumáfurinn að nappa sér í brauðmola. Þá
brást ungi undan Svanhildi mjög hart við og lét máfinn
aldeilis finna fyrir því. Álftarunginn glefsaði í máfinn og
reyndi ítrekað að kaffæra hann. Máfurinn slapp við illan leik
úr goggi álftarinnar og forðaði sér en var augljóslega nokkuð
vankaður eftir þessa óvæntu baráttu um brauðið.
Hart barist um brauðmolana
Morgunblaðið/Ómar
Veltan af er-
lendum greiðslu-
kortum hér á
landi eykst ár frá
ári og var í júlí sl.
sett met í því
efni. Veltan í júlí
var 14.983 millj-
ónir króna og er
samanlögð velta
af erlendu kort-
unum hér ríflega
67 milljarðar á fyrstu 8 mánuðum
ársins. Það er um 17 milljörðum
króna meiri velta en af íslenskum
greiðslukortum erlendis á sama
tímabili. Forstjóri Borgunar segir
erlendu kortin breyta miklu. »4
Velta erlendra
greiðslukorta hefur
aldrei verið meiri
Ferðamenn versla
mikið hér á landi.
Uppi eru áform um að opna lista-
lýðháskóla á Seyðisfirði á næsta
ári, en lýðháskólar eru ekki starf-
andi hér á landi. Unnið er að verk-
efninu í samstarfi við menntamála-
ráðuneytið og er reiknað með að
fyrstu nemendurnir hefji nám þar
næsta haust.
Háskólinn mun bera nafnið
LungA líkt og listahátíðin á Seyðis-
firði. Hver önn verður 16-18 vikur
og velja nemendur sér fimm nám-
skeið. Rauði þráðurinn í mennta-
stefnunni er sjálfsþróun í gegnum
sköpun. »20
Áform um lýðhá-
skóla á Seyðisfirði
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Umskipti hafa orðið í atvinnulífi
Suðurnesja og er einum erfiðasta
kafla í atvinnumálum svæðisins á síð-
ari tímum að ljúka.
Brotthvarf varnarliðsins árið 2006
og efnahagshrunið 2008 lögðust á eitt
um að þoka atvinnuleysinu í hæstu
hæðir. Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumálastofnun var það mest 15% í
febrúar 2010 en var 5,3% í ágúst sl.
Kjartan Þór Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélags Kefla-
víkurflugvallar, segir þegar búið í um
þúsund af um tvö þúsund íbúðum á
Ásbrú. Enn sé stefnt að því að svæðið
verði fullnýtt árið 2017, líkt og ráð-
gert var þegar starfsemin þar hófst
2007. Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, segir lækkandi
hlutfall atvinnulausra einkar jákvætt
í ljósi þess að íbúum á Reykjanesi sé
tekið að fjölga á ný.
Hjörtur Árnason, hótelstjóri Gisti-
heimilis Keflavíkur á Ásbrú, segir
mikil tækifæri í ferðaþjónustu á
svæðinu, ekki síst í 2-3 daga skoðun-
arferðum um Reykjanes.
Gistiheimilið hafi tvöfaldað fjölda
herbergja úr 54 í 102 frá því í fyrra-
sumar og var nýtingin í september
72% sem þyki með allra besta móti.
Ragnheiður Hauksdóttir, rekstrar-
stýra Start Hostel, hóf nýverið rekst-
ur hótels á Ásbrú sem tekur 50 gesti.
Hún sér fyrir sér að tvöfalda fram-
boðið á næstunni, slík sé eftirspurnin
eftir gistingu nærri flugvellinum.
MHelmingurinn þegar í útleigu »16
Störfum fjölgar
í Reykjanesbæ
Atvinnuleysi var mest 15% eftir hrunið en var 5,3% í ágúst
Nýir hótelhaldarar á Ásbrú sjá mikla möguleika á svæðinu
Kjartan
Þór Eiríksson
Árni
Sigfússon
Umræða um stefnu og strauma í
mataræði, fæðuóþol og hollustu mis-
munandi fæðuflokka hefur verið
áberandi í íslensku samfélagi. Leik-
skólar hafa ekki farið varhluta af því
og á undanförnum árum hefur ýms-
um séróskum um mataræði fyrir
leikskólabörn fjölgað mjög.
Hér er ekki átt við séróskir vegna
trúarbragða eða ofnæmis heldur
óskir sem fremur lúta að lífsstíl og
athugunum foreldra á því hvort barn
þeirra sé með óþol fyrir tilteknum
innihaldsefnum.
Erfitt getur verið fyrir leikskóla
að bregðast við slíkum óskum en það
er reynt. Á einni 18 barna deild var
t.d. boðið upp á fimm mjólkurteg-
undir. »4
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Matur Hollt en ekki bara grænmeti.
Flóknir
matseðlar
Séróskum um
leikskólamat fjölgar
2.380.310
Fjöldi farþega á Keflavíkurflugvelli
á árinu 2012.
12,7%
Aukningin frá árinu 2011.
1.477.901
Fjöldi gistinátta á landinu öllu
tímabilið janúar til ágúst 2013.
‹ Á MIKLU FLUGI ›
»