Morgunblaðið - 11.10.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Á borgarráðsfundi í gær lögðu
fulltrúar Sjálfstæðisflokks til að borg-
in kannaði hagkvæmni þess að bjóða
út rekstur tónlistar- og ráðstefnu-
hússins Hörpu. Kjartan Magnússon,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, seg-
ir að á sama tíma og kallað sé eftir
auknu fjármagni til reksturs hússins,
sé mikilvægt að skoða hvort nýta
megi fjármunina betur og að útboð
gæti verið ein leið til þess.
„Ég vil láta skoða hvernig tónlist-
ar- og ráðstefnuhús eru rekin er-
lendis. Í einhverjum tilfellum eru
það einkaaðilar sem reka slík hús,
jafnvel nokkur saman, og ná þannig
samlegðaráhrifum. Þá erum við að
tala um samrekstur, innkaup á alls
konar búnaði, aðgang að bókana-
kerfum ráðstefna og svo framvegis,“
segir Kjartan.
„Tillagan felur í sér að þetta verði
skoðað og ef menn komast að þeirri
niðurstöðu að þetta sé leið sem er
stunduð með góðum árangri í Evr-
ópu og Ameríku,
af hverju þá ekki
að skoða slíka leið
hér? Þá gæti hver
sem er boðið,
annaðhvort ís-
lenskt fyrirtæki
sem sér mögu-
leika á því að reka
þetta betur en við
eða erlent fyrir-
tæki sem rekur
mörg slík hús,“ segir hann.
Kjartan segir að rekstrarfélag
Borgin kanni útboðsleiðina
Sjálfstæðismenn í borginni vilja skoða hagkvæmni þess að bjóða út rekstur
Hörpu Samlegðaráhrif af því að reka nokkur tónlistar- og ráðstefnuhús saman
Hörpu hafi lýst yfir vilja til að bjóða
út sem flesta þætti starfsemi húss-
ins, þar sem veitingareksturinn hafi
m.a. verið boðinn út. Hann segir ráð-
stefnuhald afar mikilvægt fyrir
rekstur Hörpu og að hann gæti notið
góðs af sameiginlegum bókunarkerf-
um með öðrum ráðstefnuhúsum.
„Allt þetta þarf að meta. Ég er
ekki að segja að þetta verði einfalt
útboð en mér finnst að minnsta kosti
sjálfsagt að skoða þessa leið og
reyna hana ef við teljum að hún geti
skilað árangri,“ segir hann.
Kjartan
Magnússon
„Miklu fleiri settu pening í krukk-
una en ég hafði nokkurn tíma gert
mér í hugarlund,“ segir Ingi Þór
Jakobsson, rekstrarstjóri Hálendis-
miðstöðvarinnar á Hrauneyjum.
Eftir að hafa endurbætt salernisað-
stöðuna að Hrauneyjum í vor, sem
þúsundir ferðamanna notfæra sér,
setti Ingi Þór í tilraunaskyni gler-
krukku á áberandi stað með merki
sem á stóð Heiðarleiki 1 evra eða
150 krónur. „Ég setti þetta fyrst og
fremst upp til að láta reyna á hvort
ég fengi fyrir kostnaði við salernis-
pappír og þrif,“ segir hann. Ferða-
fólki sem notfærði sér aðstöðuna
var í sjálfsvald sett hvort það setti
peninga í krukkuna en viðbrögðin
fóru fram úr björtustu vonum. „Við
fengum klink bæði í erlendri mynt
en langmest þó í íslenskum krón-
um. Ég er í dag með klink upp á
rúmlega 100 þúsund krónur sem
við ætlum að gefa í söfnun samtak-
anna Einstök börn.“
Ingi Þór er sannfærður um að
frjáls framlög séu mun árangurs-
ríkari en hugmyndir um kostn-
aðarsamt gjaldtökukerfi á ferða-
mannastöðum. ,,Ef við værum með
svona heiðarleikabox, t.d. við Gull-
foss og Geysi, þá er ég sannfærður
um að fólk myndi borga í það.“
omfr@mbl.is
Heiðarleikakrukk-
an gaf góða raun
Hrauneyjar Við jaðar hálendisins.
Konan sem handtekin var harka-
lega á Laugavegi 7. júlí síðastliðinn
var í Héraðsdómi Reykjavíkur
dæmd í 30 daga skilorðsbundið
fangelsi í gær fyrir að hrækja á lög-
reglumanninn sem handtók hana.
Handtakan leiddi til þess að lög-
reglumaðurinn var ákærður fyrir
líkamsárás og brot í opinberu
starfi. Konan játaði skýlaust brot
sitt en hún hefur ekki áður gerst
sek um brot svo kunnugt sé.
Í dómnum segir að dómstólar líti
það alvarlegum augum þegar brot-
ið sé gegn valdsstjórninni. Þá segir
að atvikin sem áttu sér stað eftir að
konan hrækti á lögreglumanninn,
þ.e. harkalega handtakan, hafi ekki
áhrif við ákvörðun refsingar.
Dæmd fyrir að
hrækja á lögreglu
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis-
ráðherra kveðst vera reiðubúinn að
skoða fjölbreyttari rekstrarform í
heilbrigðiskerf-
inu og vinna að
betri starfsskil-
yrðum og betra
skipulagi. Þá tel-
ur hann að yfir-
gnæfandi rök
mæli með þjón-
ustustýringu í
heilbrigðiskerf-
inu. Þetta kom
fram í ræðu hans
á aðalfundi
Læknafélags Íslands í gær.
„Ríkið á að bera ábyrgð á heil-
brigðisþjónustu í landinu líkt og lög
kveða á um en það er alveg hægt að
fela einstaklingum og fyrirtækjum
að sinna ákveðnum þáttum fyrir
hönd ríkisins. Það þarf hins vegar að
skilgreina vandlega hvaða þjónustu
ríkið ætlar að kaupa, tryggja eftirlit
með gæðum og öryggi hennar og
standa fast á því grundvallarsjónar-
miði að landsmenn allir eigi jafnan
aðgang að heilbrigðisþjónustunni,“
sagði Kristján Þór m.a. í ræðu sinni.
Heilsugæslan er grunnurinn
Hann kvaðst vera þeirrar skoð-
unar að heilsugæslan ætti að vera
grunnstoð heilbrigðisþjónustunnar
og fyrsti viðkomustaður í kerfinu.
Kristján Þór kvaðst telja einboðið að
hrinda í framkvæmd sameiningu
heilbrigðisstofnana á landsbyggð-
inni þannig að ein stofnun verði í
hverju heilbrigðisumdæmi. Þá
ræddi hann um heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins og sagði það hafa
vakið athygli hve mikill munur sé á
afköstum starfsstöðvanna. Eins sé
athyglisvert hve mikill munur sé á
kostnaði að baki hverri heimsókn
sjúklinga.
„Vandinn virðist liggja í skipu-
lagningu en ekki ytri þáttum og því
vil ég endurskoða innviðina og ein-
falda stjórnkerfið. Fjölbreyttari
rekstrarform koma einnig til greina
þar sem við sjáum að rekstur einka-
rekinna heilsugæslustöðva á
höfuðborgarsvæðinu hefur gefið
góða raun, sömuleiðis starfsemi
sjálfstætt starfandi heimilislækna
og eins virðist vel hafa tekist til með
rekstur þessarar þjónustu í höndum
sveitarfélaga líkt og á Akureyri og
Hornafirði.“
Rök með þjónustustýringu
Kristján Þór kvaðst telja að þjón-
ustustýring væri fullrædd og að rök-
in með henni væru yfirgnæfandi.
„Því mun ég samhliða endur-
skoðun á skipulagi heilsugæslunnar
óska eftir tillögum sem miða að því
að stýra flæði sjúklinga milli heilsu-
gæslu, sérfræðinga og sjúkrahúsa,“
sagði heilbrigðisráðherra. Hann
ítrekaði vilja sinn til að vinna að því í
samráði við fagfólk. Kristján Þór
nefndi einnig framkvæmdir við nýj-
an Landspítala og minnti á að mörg
brýn viðfangsefni væru í heilbrigð-
iskerfinu, fjármagn skorti og því
yrði að forgangsraða skynsamlega
og fara hægar í sakirnar en að var
stefnt.
Hann ræddi um áform um legu-
gjald hjá sjúklingum. „Ég ætla ekki
að hafa mörg orð um þau mál hér,
en verð þó að segja að það er vand-
séð réttlætið í því að sjúklingar í
göngudeildarþjónustu greiði fyrir
rannsóknir, aðgerðir og aðra lækn-
isþjónustu, jafnvel háar fjárhæðir á
ári en sé fólk lagt inn falli greiðslur
niður,“ sagði ráðherrann. Búið er að
skipa nefnd sem á að undirbúa til-
lögur um að fella útgjöld fólks vegna
heilbrigðiskostnaðar undir eitt
niðurgreiðslu- og afsláttarfyrir-
komulag.
Vill skoða fjölbreyttari rekstrarform
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir ríkið eiga að bera ábyrgð á heilbrigðisþjónust-
unni Hægt er að fela einstaklingum og fyrirtækjum að sinna ákveðnum þáttum fyrir hönd ríkisins
Kristján Þór
Júlíusson
Morgunblaðið/Ómar
Heilbrigðiskerfið Á ábyrgð ríkisins.
„Krakkarnir eru mjög ánægðir með gjafirnar,“
sagði Sergei Zak, yfirþjálfari íshokkídeildar
Bjarnarins í Reykjavík, eftir að leikmenn Fálk-
anna frá Winnipeg í Kanada, sem flestir eru af
íslenskum ættum, komu færandi hendi og gáfu
yngstu iðkendum Bjarnarins margvíslegan
hokkíbúnað í Egilshöll í gær.
Fálkarnir taka nú þátt í Icelandair alþjóða-
mótinu í hokkí í þriðja sinn eftir að hafa sigrað í
keppninni tvö ár í röð. Víkingarnir frá Gimli eru
með í fyrsta sinn en þar eru líka leikmenn af ís-
lenskum ættum. „Við erum vel aflögufærir og
það er gaman að geta styrkt unga iðkendur á Ís-
landi í þessari þjóðaríþrótt Kanada,“ sagði Grant
Stefánsson, talsmaður hópsins, við Morgun-
blaðið, en leikmennirnir gáfu börnunum m.a.
kylfur, hjálma, treyjur og hanska. Grant, sem er
með Bjarnarbörnum á myndinni, fór svo fyrir
sínum mönnum í fyrsta leik þegar þeir unnu
Varteig frá Noregi 4:3 í spennandi leik eftir
vítakeppni. steinthor@mbl.is
Fálkarnir frá Winnipeg í Kanada komu færandi hendi á alþjóðlegt mót í Egilshöll
Morgunblaðið/Kristinn
Gáfu yngstu iðkendunum margvíslegan hokkíbúnað