Morgunblaðið - 11.10.2013, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verulega er farið að draga í sundur
með veltu greiðslukorta Íslendinga
erlendis og veltu greiðslukorta er-
lendra ferðamanna á Íslandi.
Þróunin á fyrstu átta mánuðum ár-
anna 2008 til 2013 er sýnd hér að of-
an, frá mánuði til mánaðar. Séu
fyrstu átta mánuðir þessa árs teknir
saman kemur í ljós að veltan á er-
lendum greiðslukortum var alls
67.037 milljónir en var til samanburð-
ar 49.637 milljónir króna á innlend-
um greiðslukortum erlendis.
Þetta er mikil breyting frá árinu
2008 þegar veltan af innlendum kort-
um erlendis var 60.696 milljónir á
fyrstu átta mánuðum ársins en
30.296 milljónir á erlendum greiðslu-
kortum hér. Eru tölurnar núvirtar.
Athygli vekur hversu skarpur
samdráttur varð í veltu innlendra
greiðslukorta erlendis milli ára 2008
og 2009 en hún fór úr 60.696 millj-
ónum í 34.799 milljónir króna.
Vó ekki á móti hruni í veltunni
Má í þessu efni rifja upp að gengi
evru var 91,2 krónur í ársbyrjun 2008
en 169,97 krónur ári síðar. Það var til
samanburðar 122,09 krónur 29. ágúst
2008 og 179,44 krónur 31. ágúst 2009.
Þrátt fyrir að gengið hafi þannig ver-
ið mun veikara 2009 en 2008 – og
vöruverð erlendis hærra sem því
nam – gerði það lítið til að hífa upp
veltu innlendra greiðslukorta ytra.
Að sögn Hauks Oddssonar, for-
stjóra Borgunar, má ætla að veltan af
innlendum greiðslukortum erlendis
muni aukast á síðustu þrem mánuð-
um ársins, enda fari þá fjöldi Íslend-
inga í verslunarferðir til útlanda.
Á sama tímabili megi ætla að velt-
an af erlendum greiðslukortum á Ís-
landi dragist saman, enda séu það
hlutfallslega rólegir mánuðir í ferða-
þjónustunni.
Fyrir vikið muni draga saman í
veltunni af innlendum greiðslukort-
um erlendis og erlendum kortum hér
á landi þegar veltan á árinu verður
gerð upp. Útlit sé fyrir að samanlögð
velta af erlendum kortunum hér
verði þó heldur meiri á árinu 2013.
Vegur upp á móti slakanum
Haukur segir að ef ekki væri fyrir
vaxandi straum ferðamanna til
landsins og aukna neyslu þeirra hér á
landi væri nær enginn vöxtur í notk-
un greiðslukorta á Íslandi. Þessi
aukning vegi því upp á móti slaka í
innlendri eftirspurn hin síðari ár.
Hann segir aðspurður að þjón-
ustutekjur af veltu erlendra greiðslu-
korta hér á landi skapi íslensku
kortafyrirtækjunum vaxandi tekjur.
Kortavelta og ferðaþjónusta
Velta í milljónum króna
16.000
14.000
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
Janúar–ágúst
2008
Janúar–ágúst
2009
Janúar–ágúst
2010
Janúar–ágúst
2011
Janúar–ágúst
2012
Janúar–ágúst
2013
1.270
1.947
4.337
2.672
3.217
2.090
2.635
3.797
3.007
4.477
4.847
4.522
5.368
6.377
4.226
9.070
4.898
8.363
6.086
10.911
6.514
12.375
7.352
14.707
Heimild: Greiðslumiðlun hf., Kreditkort hf., Hagstofa Íslands
Innlend greiðslukort erlendis
Erlend greiðslukort innanlands
Komin í 67 milljarða
Velta erlendra greiðslukorta hér á landi eykst stöðugt
Forstjóri Borgunar segir hana vega upp slaka í neyslu
Morgunblaðið/Eggert
Á Laugaveginum Neysla erlendra ferðamanna á Íslandi eykst ár frá ári.
Hæstiréttur sýknaði í gær íslenska
ríkið, Fjármálaeftirlitið og Kauphöll
Íslands hf. af skaðabótakröfu manns
sem keypti hlutabréf í Glitni banka
þann 30. september 2008 fyrir um
tíu milljónir króna.
Daginn áður hafði forsætisráðu-
neytið tilkynnt, að ríkissjóður
myndi leggja bankanum til nýtt
hlutafé og eignast 75% hlut í bank-
anum. Viku síðar, eða 7. október,
tók Fjármálaeftirlitið yfir rekstur
bankans og hlutabréf hans urðu
verðlaus.
Maðurinn krafðist bóta og byggði
m.a. á því, að íslenska ríkið hefði
ekki staðið við loforð um hlutafjár-
framlag.
Í dómi Hæstaréttar segir m.a., að
því hafi farið fjarri, að maðurinn
hefði, þegar hann tók ákvörðun um
hlutabréfakaupin, mátt treysta því
að íslenska ríkið væri í raun orðið
eða að verða eigandi meirihluta
hlutafjár í Glitni og af þeim sökum
væri áhætta af kaupunum takmörk-
uð. Þvert á móti hafi hann tekið
augljósa og stórfellda áhættu með
gerðum sínum, sem ríkið, Fjármála-
eftirlitið og Kauphöll Íslands, geti
enga ábyrgð borið á.
Hæstiréttur vísar m.a. til þess, að
samkvæmt gögnum málsins hafi
komið fram í dagblaði strax að
morgni 30. september 2008 að nafn-
greindur maður, sem var sagður
vera „stærsti eigandi Glitnis sem
var þjóðnýttur í gær“, teldi ljóst að
hluthafar í félaginu myndu nýta
tíma fram að fyrirhuguðum hlut-
hafafundi „til að leita annarra
leiða“, enda væri þetta það allra
versta sem í boði væri og „stærsta
bankarán Íslandssögunnar“.
Fær ekki bætur
fyrir að kaupa
hlut í Glitni
Tók augljósa og stórfellda áhættu
Glitnir Einstaklingur fær ekki bæt-
ur vegna hlutafjárkaupa.
séu hugsanlega með mjólkuróþol, eða
fiski til að kanna hvort barnið sé með
ofnæmi fyrir fiski.
Í hópi leikskólastjóranna átján var
nefnt dæmi um barn á deild sem var
með 18 börn og hefði bent á að á deild-
inni væru fimm mjólkurtegundir, þ.e.
kúamjólk, hrísmjólk, sojamjólk og
tvær tegundir til viðbótar. Ingibjörg
segir að víða séu þrjár máltíðir eld-
aðar, það er að segja „glútenfrítt, ein-
hvern vegin frítt og hinsegin frítt“. Þeg-
ar um ofnæmi, mataróþol, er að ræða
eða að börn megi ekki borða tilteknar
fæðutegundir vegna trúarbragða sé að
sjálfsögðu brugðist við því.
Einnig séu dæmi um óskir sem
mætti í mörgum tilfellum tengja við til-
tekinn lífsstíl, s.s. ósk um grænmetis-
fæði, kolvetnaminna fæði og fituminna
fæði en við slíkum óskum sé erfiðara
að bregðast. „Okkur langar að taka
tillit til allra en það getur verið erfitt,“
segir Ingibjörg. Til að slíkt ætti að
vera mögulegt þyrfti að tryggja að í
eldhúsum leikskóla starfi menntaðir
matreiðslumenn en mun dýrara sé að
ráða þá til starfa en matráða. Bæta
þyrfti við þekkingu starfsfólks en
einnig sé ljóst að hráefniskostnaður
yrði mun meiri og fjárframlög yrðu
því að aukast.
Leikskólastjórarnir átján voru
spurðir hvenær fyrst hafi farið að
bera verulega á auknum séróskum og
var svarið að þeim hefði fjölgað stig af
stigi á undanförnum fimm árum. „Og
eru ekki liðin fimm ár frá því kreppan
hófst? Það má alveg hugsa um sam-
hengið,“ segir Ingibjörg.
Fimm mjólkurtegundir fyrir 18 börn
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Fjör Rétt er að taka fram að grænu klessurnar eru ekki matur heldur leir.
Séróskum um mataræði fyrir börn hefur fjölgað mjög Krefst meiri menntunar Dýrari innkaup
Lúta m.a. að ýmiss konar lífsstíl og athugunum á því hvort barnið sé með óþol fyrir tiltekinni fæðu
Morgunblaðið ræddi við nokkra aðra leikskólastjóra en voru á fundinum
sem vikið er að hér til hliðar. Þeir höfðu misjafna sögu að segja af sér-
óskum. Sumir sögðu þeim ekki hafa fjölgað. Á hinn bóginn væri meira um
að börn hefðu ofnæmi, s.s. fyrir hnetum eða óþol fyrir eggjum og mjólk.
Óskað væri eftir læknisvottorði ef um slíkt væri að ræða. Sjálfsagt væri
að taka þátt í könnunum á því hvort börnin hefðu myndað einhvers konar
óþol eða þyldu tilteknar matartegundir illa.
Aðrir nefndu ýmiss konar tiktúrur í foreldrum, s.s. að börn þeirra ættu
ekki að borða tilteknar kjöttegundir vegna þess að þær væru óhollar,
ættu ekki að drekka kúamjólk vegna þess að hún væri óholl o.s.frv.
Meira um ofnæmi og óþol
BIÐJA UM LÆKNISVOTTORÐ EF BARN ER MEÐ OFNÆMI
Á næsta ári verða 300 ár liðin frá fæð-
ingu eins þekktasta útlaga Íslands-
sögunnar, Fjalla-Eyvindar Jóns-
sonar, en útlaginn fæddist í Hlíð í
Hrunamannahreppi í Árnessýslu árið
1714.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps
samþykkti á fundi þann 2. október að
fela ferða- og menningarmálanefnd
að gera tillögu til sveitarstjórnar um
hvernig best væri að gera þessum at-
burði góð skil á næsta ári.
Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri í
Hrunamannahreppi, segir sveitarfé-
lagið vilja hafa vaðið fyrir neðan sig í
undirbúningi hátíðarhaldanna, og því
sé undirbúningsvinna hafin jafn-
snemma og raun ber vitni.
Fjalla-Eyvindur og kona hans,
Halla Jónsdóttir frá Hrafnsfjarð-
areyri í Jökulfjörðum við Djúp, höfð-
ust við víða um landið, meðal annars á
Hveravöllum og í Drangavík á
Ströndum. Leiði Fjalla-Eyvindar er
merkt á Hrafnsfjarðareyri, en hann
lést árið 1783. Talið er að þau hafi átt
börn í útlegð sinni, sem öll létu lífið á
unga aldri. gunnardofri@mbl.is
Hrunamenn minnast
Fjalla-Eyvindar
Drög lögð að 300 ára afmælishátíð
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Séróskum um mataræði fyrir börn á
leikskólum hefur fjölgað mjög á und-
anförnum árum. Hér er ekki átt við
óskir um að tekið sé tillit til ofnæmis
eða trúarbragða, heldur lúta sérósk-
irnar sem um ræðir að lífsstíl eða at-
hugunum foreldranna á því hvort
barnið þeirra sé með óþol fyrir ein-
hverjum innihaldsefnum.
Þetta var viðkvæðið í hópi 18 leik-
skólastjórnenda sem voru á fundi hjá
Félagi stjórnenda leikskóla í gær.
Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður
félagsins, spurði hópinn um stöðuna í
kjölfar fyrirspurnar Morgunblaðsins
um málið.
Ingibjörg segir greinilegt að marg-
ir foreldrar séu mjög meðvitaðir um
fæði og innihald hinna og þessara
fæðutegunda. Margir geri tilraunir
með að sleppa tilteknum fæðuflokk-
um úr mataræðinu, t.d. mjólkur-
vörum, til að kanna hvort börn þeirra