Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
Andríki vekur í fyrradag athygliá máli sem virðist lítið en er slá-
andi:
Í tilefni af aldarafmæli sínu á þessuári hefur Morgunblaðið und-
anfarnar vikur farið um landið og
fjallað um einstök
byggðarlög og rætt
við íbúa. Í gær var
fjallað um Vopna-
fjörð og meðal ann-
ars talað við Cathy
Josephson, Vestur-
Íslending sem kom
fyrst til landsins árið
1994 og hefur nær óslitið síðan búið
á Vopnafirði.
Eða eins og segir í blaðinu: „Cathybýr nú á bænum Refsstað í
Vopnafirði ásamt eiginmanni sínum
Sverri Ásgrímssyni. Hún er m.a. mál-
ari, sinnir saumaskap og samhliða
hafa þau rekið bændagistingu en
Cathy segir að sökum skatta og leyf-
isgjalda sé það orðið of dýrt og eru
þau formlega hætt með hana.“
Já, skattar og leyfisgjöld náðu aðloka lítilli bændagistingu hjóna
við Vopnafjörð. Það er nú aldeilis
fagnaðarefni.
Engin leið er að segja til um tjónið
sem stjórnlyndir menn vinna á at-
vinnulífi og mannlífi í landinu með
samfelldum kröfum sínum. Sífellt er
krafist nýrra leyfa, úttekta, eftirlits.
Og gjalda.
Fréttamenn kynda svo undirþessu, því í hvert sinn sem eitt-
hvað fer úrskeiðis einhvers staðar er
eftirlitsskortur það fyrsta sem
fréttamönnum dettur í hug. Ann-
aðhvort kemur á daginn að eitthvert
mannlegt atferli sé bara ekki „eft-
irlitsskylt“, eða þá að eftirlitið hefur
„brugðist““.
Er ekki upplagt fyrir nýja ríkis-stjórn að vinna í svona málum
með fólkinu í landinu en ekki gegn
því?
Cathy Josephson
Opinbert farg
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.10., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 13 súld
Akureyri 15 skýjað
Nuuk 5 skýjað
Þórshöfn 4 skúrir
Ósló 10 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 11 heiðskírt
Helsinki 12 alskýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 12 skúrir
Dublin 2 léttskýjað
Glasgow 7 léttskýjað
London 11 heiðskírt
París 13 alskýjað
Amsterdam 10 skúrir
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 13 skúrir
Vín 13 skýjað
Moskva 11 skúrir
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 20 heiðskírt
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 16 léttskýjað
Aþena 17 skýjað
Winnipeg 20 skýjað
Montreal 17 léttskýjað
New York 16 skýjað
Chicago 20 léttskýjað
Orlando 26 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:07 18:23
ÍSAFJÖRÐUR 8:17 18:22
SIGLUFJÖRÐUR 8:01 18:05
DJÚPIVOGUR 7:38 17:51
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
Þarfnastumeiri orku
til daglegra starfa?
Orkulausnir henta þeim semglíma við
orkuleysi, þrekleysi, verki eða svefnvanda.
Hentar vel þeim sem vilja byggja upp orku
vegna vefjagigtar eða eftir veikindi.
Hefst 22. október - 8 vikur
Þjálfun2x í viku
Fræðsla ogeinstaklingsviðtal
Þjálfari: LindaGunnarsdóttir, sjúkraþjálfari
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Um 90 fulltrúar helstu fagaðila, hags-
munahópa, félagasamtaka og stjórn-
valda í menntamálum tóku þátt í sam-
ráðs- og stefnumótunarfundi um
menntamál sem Samtök sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu efndu til í gær.
Þátttakendum var skipt í hópa sem
ræddu tækifæri og ógnanir og styrk-
leika og veikleika skólakerfisins en
niðurstöður fundarins verða greindar
og nýttar af stýrihópi verkefnaflokks-
ins Skólar og menntun í fremstu röð,
sem er hluti af sóknaráætlun höfuð-
borgarsvæðisins.
„Verkefnið sem slíkt miðar að því að
skólar á höfuðborgarsvæðinu séu í
fremstu röð, það er áætlunin, og þá
spyrjum við okkur að því með hvaða
hætti það getur orðið,“ segir Gunnar
Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar og
formaður stýrihópsins. „Þegar við er-
um komin með konkret tillögur og að-
gerðaáætlun þá þurfa sveitarfélögin
að taka sig saman um að vinna að
framgangi þeirra,“ segir hann.
Gunnar segir markmiðið að höfuð-
borgarsvæðið verði samkeppnishæft
við önnur höfuðborgarsvæði þegar
kemur að menntamálum en unnið sé
að því m.a. að greina t.d. brottfall og
fara betur ofan í niðurstöður PISA-
kannana. Stýrihópurinn muni skila
tillögum og aðgerðaáætlun fyrir hluta
verkefnisins fyrir áramót og loka-
skýrslu í apríl næstkomandi.
Áherslusvið verkefnisins Skólar og
menntun í fremstu röð eru alls fimm:
mat á gæðum skólastarfs á höf-
uðborgarsvæðinu í alþjóðlegum sam-
anburði, leiðir til að auka samvinnu
skólastiga, greining á skyldum svæð-
isins sem háskólaborgar, staða og
horfur varðandi endurmenntun og
hvernig efla megi menntun í menn-
ingargreinum og samstarf á því sviði.
Ræddu veikleika og styrkleika
Sveitarfélögin vinna saman að eflingu skólastarfs á höfuðborgarsvæðinu
Liðsmenn slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins hnoðuðu lífi í köttinn
Hnoðra í gær eftir að hafa bjargað
honum úr íbúðarhúsi við Urðarstíg,
þar sem eldur hafði læst sig í eld-
húsinnréttingu. Talsvert tjón varð
á húsinu.
Húsið var mannlaust og greið-
lega gekk að slökkva eldinn en
Hnoðri var meðvitundarlaus þegar
að var komið og var gefið súrefni af
slökkviliðsmönnum. Hann var síðan
fluttur á Dýralæknastofu Dagfinns
og settur í súrefnisbúr, eftir að hafa
verið greindur með reykeitrun.
„Það er ánægjulegt að gera eitt-
hvað svona, þó við séum vissulega
alltaf að gera eitthvað gott,“ sagði
Stefnir Snorrason, bráðatæknir hjá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í
samtali við mbl.is í gær. „Þetta
gleður unga sem aldna.“
Morgunblaðið/Eggert
Björgun Slökkviliðsmennirnir Stefnir
Snorrason og Ágúst Guðmundsson.
Slökkviliðsmenn
endurlífguðu kött