Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 9

Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 Stjórn Félagsráðgjafafélags Ís- lands harmar ákvörðun ríkisstjórn- arinnar að leggja eigi sérstakt leg- ugjald á sjúklinga sem dvelja á sjúkrahúsi, segir í áyktun frá félag- inu. Sjúkrahúsdvöl veldur alltaf auknu álagi á einstakling og fjöl- skyldu hans og geta áhyggjur af lengd dvalar vegna aukinna út- gjalda orðið til þess að trufla bata- ferlið, segir í ályktuninni. Stjórn félagsins hvetur stjórn- völd til að draga til baka ákvörðun um legugjöld á sjúklinga og varar við þessari fyrirhuguðu gjaldtöku, sem „er til þess fallin að mismuna fólki og auka álag á fjölskyldur sjúklinga“. Félagsráðgjafar vara við legugjöldum Tæplega 47 milljónir söfnuðust í söfnunarátakinu Á allra vörum en í ár var safnað fyrir nýrri geð- gjörgæsludeild á Landspítalanum. Söfnunarféð var afhent í gær, á al- þjóðlega geðheilbrigðisdeginum, en það var Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, sem veitti fjármun- unum viðtöku. „Kraftur og örlæti aðstandenda átaksins Á allra vörum skipti sköp- um. Án stuðnings þeirra og velvilja hefði ný geðgjörgæsludeild, með mjög bættum aðbúnaði sjúklinga, ekki orðið að veruleika. Við erum afar þakklát,“ sagði Páll í gær, samkvæmt tilkynningu frá Á allra vörum. Það eru þær Gróa Ásgeirsdóttir, Guðný Pálsdóttir og Elísabet Sveins- dóttir sem standa að baki söfnunar- átakinu, sem hefur verið haldið sex ár í röð og lagt meira en 350 milljónir til góðra málefna. Söfnunarféð samanstendur af frjálsum framlögum, styrkjum frá fyr- irtækjum og ágóða vegna sölu á varag- lossi frá Dior. „Við höfum fundið fyrir miklum meðbyr síðustu vikur og erum afar þakklátar öllum þeim sem hafa lagt málefninu lið,“ segir Gróa Ásgeirs- dóttir. „Það er með ólíkindum hvað hægt er að gera þegar allir leggjast á eitt en yfir 200 manns lögðu hönd á plóginn og gerðu þessa hugmynd að veruleika,“ segir Elísabet Sveinsdóttir. Dorrit Moussaieff forsetafrú tók við tíuþúsundasta glossinu en hún hefur stutt átakið frá upphafi. „Við erum óendanlega þakk- látar fyrir stuðning þjóðarinnar allrar, heildverslunar Halldórs Jónssonar ehf. og allra söluaðil- anna sem selt hafa glossin án þess að taka nokkuð fyrir,“ segir Guðný Pálsdóttir. „Það eru ekki til nógu stór orð til að lýsa þakk- læti okkar.“ Söfnuðu nærri 47 milljónum Á allra vörum Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, tók við söfnunarfénu.  Heildarsöfnun- arfé Á allra vörum 350 milljónir Rekstur Heilbrigðisstofnunar Vest- urlands frá upphafi ársins hefur gengið vel og er í fjárhagslegu jafn- vægi. Hins vegar hafa tækja- og bún- aðarmál setið á hakanum og nú er svo komið að bágt ástand búnaðar er farið að hafa áhrif á þjónustu. End- urnýjunarþörf næstu tvö ár er að minnsta kosti 200 milljónir króna en þegar í stað allt að 70 milljónir króna. Þetta kemur fram á vefsvæði stofnunarinnar. Þar segir að starf- semin sé þróttmikil og með svipuð- um hætti og á árinu 2012 en leitast hafi verið við að laga þjónustu hvar- vetna á svæðinu að heimildum í fjár- lögum. „Þetta hefur tekist með markvissum aðgerðum, aðhaldi og erfiðum niðurskurði á nokkrum svið- um. Stofnunin er í skilum við alla sína lánardrottna, þ.m.t. Landspít- ala. Á starfssvæði stofnunarinnar hef- ur verið viðvarandi læknaskortur undanfarin ár og þjónustan leyst af hendi með samningum við lækna sem koma til starfa á viðkomandi heilsugæslustöðvum í skamman tíma í senn.“ Krafa um hagræðingu Þá er á það bent að fjárlagafrum- varp 2014 geri ráð fyrir kröfu um hagræðingu sem nemi um 44 millj- ónum króna til viðbótar við undan- genginn niðurskurð og að það sé stjórnendum áhyggjuefni. „Í þreng- ingum undanfarinna ára hafa tækja- og búnaðarmál HVE setið á hakan- um. Nú er svo komið að bágt ástand búnaðar er farið að hafa áhrif á þjón- ustu. Í heild er endurnýjunarþörf næstu tvö ár a.m.k. 200 milljónir en þegar í stað allt að 70 milljónir króna.“ Bágt ástand búnað- ar á Vesturlandi  Læknaskortur, en rekstur í jafnvægi Ný kápusending Kringlunni 4 | Sími 568 4900 Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is BUXUR MEÐ TEYGJU Í MITTIÐ frá kr. 4.900.- Þröngar skálmar – Beinar skálmar – Háar í mittið Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is ELDHÚSTÆKI ný sending Freydís er Magnúsdóttir Freydís Magnúsdóttir var ranglega nefnd Guðmundsdóttir í umfjöllun Morgunblaðsins um Bakkafjörð á miðvikudag. Beðist er velvirðingar á þess- um mistökum. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.