Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 10
Metnaður Perla og Brynjar eru metnaðarfull og ætla að ná langt. Hér svífa þau um gólfið í Alassio á Ítalíu í sumar.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Perla Steingrímsdóttir ogBrynjar Björnsson hafadansað samkvæmisdansafrá því þau voru ellefu ára,
en hvort í sínu lagi, þar til í ágúst í
fyrra. Þau vissu vel hvort af öðru,
hún hafði fylgst með honum og hann
með henni í keppnum. „Dansherr-
ann minn hætti í dansi og ég var ein í
svolítinn tíma að leita, því það eru
færri strákar en stelpur í dansinum.
Brynjar var eiginlega sá eini sem
mig langaði til að hafa sem dans-
herra. Ég hafði verið í tímum hjá
Ástu Sigvalda og hún vissi alveg
hvað væri best fyrir mig og gekk í
málið, hafði samband við mömmu
Brynjars og kom á dansprufu. Við
fundum það bæði strax á fyrstu
stundu að þetta small saman hjá
okkur,“ segir Perla.
Eins og þau hafi alltaf þekkst
En þau þurftu að leggja heil-
mikið á sig til að vera danspar, því
Brynjar bjó þá í Skorradal en Perla í
Hafnarfirði. „Við skiptumst á að fara
með rútu á dansæfingar, ég til Hafn-
arfjarðar og hún í Borgarnes. Fyrir
mig voru þetta rúmir fjórir tímar
samtals í rútu og skólabíl á dag og ég
var ekki kominn heim fyrr en á mið-
nætti þessa daga sem ég fór suður.
En það var algerlega þess virði,“
segir Brynjar sem fór þrisvar í viku
suður en Perla kom tvisvar í viku til
hans í Borgarnes á æfingar. Þannig
var fyrirkomulagið allan síðasta
vetur.
„Það hafði enginn trú að þetta
gengi, allir héldu að við gæfumst
upp á þessu, þetta væri of mikil fyr-
irhöfn. En við sönnuðum hið gagn-
stæða,“ segir Brynjar og ljómar
þegar hann horfir á Perlu, enda eru
þau yfir sig ástfangin. „Perla er fal-
legasta, klárasta og skemmtilegasta
stelpa sem ég veit um, og ekki verra
Sveitastrákur og
borgardama í dansi
Þau byrjuðu að dansa saman í ágúst í fyrra, en þá bjó hann í Skorradal og hún í
Hafnarfirði. Þau lögðu á sig rútuferðir fimm sinnum í viku til að æfa saman. Þau
urðu Íslandsmeistarar í suður-amerískum dönsum í ungmennaflokki á þessu ári,
tóku þátt í heimsmeistarakeppninni í Kína og eru ástfangin upp fyrir haus.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
Í dag stendur UN Women á Íslandi
fyrir þriggja tíma dansmaraþoni í
Kramhúsinu í tilefni af alþjóðlegum
degi stúlkubarnsins sem haldinn
verður í annað sinn.
Dansmaraþonið hefst stundvís-
lega klukkan 19 og verður dansað í
þrjá tíma samfleytt, afró, Beyoncé-
dans, suðræn sveifla og magadans.
Lýkur hátíðinni svo með léttum
veitingum. Ágóðinn rennur til UN
Women og verkefna sem miða að
upprætingu barnabrúðkaupa.
Þaulreyndir dansarar munu sjá
um kennsluna, þær Þórdís Nadia
Semichat, Kristín Bergsdóttir, Álf-
heiður Anna Pétursdóttir og Mar-
grét Erla Maack. Hátíðin hefst
klukkan 19 og stendur til 22. Verð
2.900 kr.
Frekari upplýsingar fást í síma
552-6200 eða á netfanginu:
alfheidur@unwomen.is
Vefsíðan www.facebook/Dansmaraþon UN Women
Dansað gegn barnabrúðkaupum
Á morgun, laugardag, verður fata-
markaður á Kex Hosteli við Skúla-
götu í Reykjavík. Þær ætla að hreinsa
úr fataskápunum sínum: Rósa Birg-
itta, Kolbrún Ýr, Stefán Svan, Heiða
Agnars, Sissa, Díana Bjarnadóttir,
Hildur Yeoman, Anna Kristín, Fiona
Cribben og Bára, Sigrún og Hrafn-
hildur Hólmgeirsdætur. Þær ætla að
leggja undir sig Gym & Tonic salinn á
KEX-inu og vera í stuði með fullt af
gersemum á dömur og herra, merkja-
vöru og fleira. Þær lofa góðri stemn-
ingu og flottu úrvali af fatnaði, skóm
og skarti. Opið frá kl 11 til 17. Fyrstur
kemur, fyrstur fær!
Endilega...
...farið á
fatamarkað
Morgunblaðið/Júlíus
Föt Um að gera að kaupa notað.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Áeldheitum hverfafundi ummálefni Hofsvallagöt-unnar í Hagaskóla létembættismaður borg-
arinnar þessi fleygu orð falla:
„Framkvæmdin er samráðið.“ Okkur
óupplýstum borgurum var góðfús-
lega gerð grein fyrir því að um væri
að ræða ákveðna aðferðafræði og að
víða erlendis væri það stundað að
framkvæma fyrst og ræða svo um
málin. Þannig kæmist af stað djúp og
málefnaleg umræða sem skilaði betri
árangri til langs tíma litið.
Sitt sýnist hverjum um þessa ný-
stárlegu nálgun á íbúalýðræði en
ljóst er að það getur verið ansi kostn-
aðarsamt fyrir yfirvöld að ætla að
framkvæma allar hugmyndir sem
fram koma til þess eins að skapa um-
ræðu um þær og breyta þeim þá eftir
á.
Í haust var gerð mjög svo óvís-
indaleg tilraun í þessum málum inn-
an veggja heimilisins. Eigin-
maðurinn valdi bíómynd kvöldsins
án samráðs við mig (ein-
hverja heilalausa has-
armynd) með vísan til
þessarar nýju reglu:
Framkvæmdin er
samráðið. Við gát-
um því rætt um það
að myndinni lok-
inni, en ekki fyrr,
hvort rétt mynd hefði
orðið fyrir valinu eða
ekki. Vissulega var ég þá
betur í stakk búin til þess
að dæma myndina, en dýr-
mætum frítíma og kostn-
aði við leigu á mynd hafði þó verið só-
að, því myndin var mér ekki að skapi.
Niðurstaða þessarar tilraunar var
því sú að í þessari kenningu, fram-
kvæmdin er samráðið, fælist í raun
ekkert samráð, heldur bara yfirráð.
Nú hefur því verið lýst yfir að til
standi að fjarlægja eyjur og fuglahús
sem skapað hafað óánægju und-
anfarna mánuði þannig að „samráð-
ið“ hefur skilað einhverju. En maður
spyr sig hvort tíma okkar og fjár-
munum hefði ekki verið betur varið í
að ræða hugmyndir um fugla-
hús á miðri götu áður en
ráðist var í framkvæmd-
ina. Sú hugmyndafræði er
greinilega ekki í samræmi
við nýjustu strauma í op-
inberri stjórnsýslu en
vonandi mun borgin
sjá ljósið rétt eins og
eiginmaðurinn.
Það er óskandi að
Hofsvallagatan
endurheimti aftur
sinn fyrri dýrðarljóma
eftir þetta ítarlega
„samráð“.
»… vonandi mun borg-in sjá ljósið rétt eins
og eiginmaðurinn.
Heimur Maríu Margrétar
María Margrét
Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is