Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 11

Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 11
að við deilum ástríðu fyrir dansi. Okkur finnst eins og við höfum alltaf þekkst.“ „Ég var skotin í honum allan síðasta vetur en ég vissi ekki að hann væri skotinn í mér. En allir aðrir virtust sjá það,“ segir Perla og hlær. „Við byrjuðum ekki saman fyrr en í sumar. Við vissum líka að það er áhætta að vera bæði kær- ustupar og danspar, því ef við hætt- um saman, þá er hæpið að við viljum halda áfram að vera danspar.“ En þau eru ung og ástfangin og eiga framtíðina fyrir sér, æfa dans sex sinnum í viku og þar fyrir utan fara þau í líkamsrækt og einkatíma í ballett. Þau eyða augljóslega mjög miklum tíma saman, en Brynjar flutti í haust á heimili Perlu. „Ég ætlaði alltaf suður til að fara í framhaldsskóla og er núna á fyrsta ári í Fjölbraut í Garðabæ. En við vildum ekki fara í sama fram- haldsskóla og Perla fór í Versló,“ segir Brynjar sem er á listnáms- braut í FG. „Ég hef verið að teikna frá því ég gat haldið á blýanti. Mér finnst mjög gaman að mála og ég seldi eina af myndunum mína, stóra andlitsmynd af Ray Charles, og náði þannig upp í kostnað fyrir kjólfötum til að klæðast í danskeppni.“ Perla hefur alla tíð haft mikinn áhuga á fötum og hún hefur hannað og saum- að ótal flíkur á sig og aðra. „Ég elska að fá að hanna kjólana sjálf sem ég dansa í, en það eru saumakonur sem sjá um að sauma þá.“ Miklu meira en dans En hvað er svona frábært við að æfa og keppa í samkvæmisdönsum? „Dansinn er ákveðið hlutverk þar sem ég fæ fullkomið frelsi til að tjá mig,“ segir Perla. Brynjar segir að sér finnist mjög gefandi að dansa. „Mér finnst líka frábært að dansa fyrir framan dómara og áhorfendur. Ég fæ mikið út úr því. Þetta er líka miklu meira en að dansa, þetta eru ferðalög, mikill undirbúningur í klæðnaði og förðun. Þetta er sam- bland af íþrótt og list. Við stefnum á toppinn í dansinum,“ segja þessir 16 ára upprennandi dansarar sem æfa hjá DÍH í Hafnarfirði. Þau hafa nú þegar landað Íslandsmeistaratitli í suður-amerískum dönsum í ung- mennaflokki, en þar eru keppendur 16-18 ára. Þau náðu líka öðru sæti á Norður-Evrópumóti í desember í fyrra og fyrsta sæti í Helsingborg Cup 2012 í Svíþjóð. Í kjölfarið voru þau valin í A-landsliðið. Þau voru einnig valin til að keppa fyrir Ísland á heimsmeistaramótinu í Kína í sum- ar og náðu þar 10. sæti af 135 pörum í opinni keppni í flokki 19 ára og eldri. Þau fara eftir tvær vikur til Finnlands og taka þátt í opnu móti og í desember til Lettlands á heims- meistaramót í 10 dönsum. Innileg Þau dansa af tilfinningu. Ray Charles Brynjar málaði þessa stóru mynd og seldi. Flott Perla er örugg á dansgólfinu. Glamúr Fötin eru glæsileg. Hægt er að sjá myndirnar sem Brynjar málar á Facebook-síðunni Brynjars artwork. Það hafði enginn trú að þetta gengi, allir héldu að við gæfumst upp á þessu. Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is GMWizardVote með 1. meters disk. Móttakari fyrir nýjar háskerpu útsendingar RÚV á DVB-T2 ásamt því að vera með gervihnattamóttöku Áður 56.700 25ÁRA 1988-2013 AFMÆLISTILBOÐ 25% afsláttur Móttakari með 1. meters disk og Strong SRT7002 háskerpu móttakara Áður 37.700 Tilboðsver ð* 28.277 Tilboðsver ð* 42.526 *Gildir í október eða á meðan birgðir endast DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 Sýning hönnuðarins Sigga Eggerts- sonar, SKVÍS, verður opnuð í Sparki í dag. Sýningin samanstendur af nýj- um veggspjöldum hans en þau eru sérstök að því leyti að þau raðast upp í símunstur og því er hægt að nota þau sem veggfóður. Það má raða veggspjöldunum saman í margra metra verk eða setja þau upp sem stök veggspjöld. Siggi Eggertsson er fæddur árið 1984. Átján ára hóf hann nám í graf- ískri hönnun við Listaháskóla Ís- lands. Hann fluttist til London að námi loknu og starfaði þar uns hann fluttist til Berlínar 2008. Hann hefur hlotið margar viðurkenningar og hef- ur starfað m.a. fyrir Nike, Microsoft, H&M, Stüssy, Norton, Playstation, Coca Cola, Nokia og New York Times. Sýningin stendur til 16. nóvember. Spark er við Klapparstíg 33. Sýningin SKVÍS opnuð í dag Símunstrið hans Sigga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.