Morgunblaðið - 11.10.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
Erfitt sé að segja til um hvort
fækkun starfsfólks leiði til þess að
rannsóknartími lengist.
Að einhverju marki hefði álagið
minnkað og málabunkinn lækkað.
„En við gerðum ráð fyrir að við
hefðum meiri mannskap á næsta
ári,“ segir Ólafur.
Hrunmál bárust ekki
öll strax eftir hrunið
Skoða 16 mál með tilliti til þess hvort tilefni sé til ákæru
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Embætti „Við reynum að halda sem mestum mannskap í þessum stærstu
málum,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Ráðstefna um líknarmeðferð verð-
ur haldin á Grand Hóteli í Reykja-
vík laugardaginn 12. frá kl. 14.00 til
16.00.
Fyrirlesarar verða Arndís Jóns-
dóttir, sérfræðingur í líkn-
arhjúkrun á Landspítala, Val-
gerður Sigurðardóttir, yfirlæknir á
líknardeild Landspítala, og Gunnar
Hersveinn, heimspekingur og rit-
höfundur.
Fundarstjóri verður Rósa Krist-
jánsdóttir, djákni og hjúkr-
unarfræðingur.
Markmið ráðstefnunnar er að
fræða um líknarmeðferð og vinna
gegn mýtum „staðhæfingum sem
standast ekki“, eins og segir í til-
kynningu. Einkunnarorð Al-
þjóðadags líknarþjónustu 12. októ-
ber 2013 eru: Baráttan fyrir
alþjóðlegri viðurkenningu á mik-
ilvægi líknarþjónustu – Staðhæf-
ingar sem standast ekki.
Líknarmeðferð verður rædd á ráðstefnu
Bréf frá ríkissaksóknara til sér-
staks saksóknara um að felld
hefði verið úr gildi ákvörðun sér-
staks saksóknara um að fella nið-
ur sakamál á hendur Erlendi
Magnússyni, fyrrv. fram-
kvæmdastjóra hjá Glitni, var dag-
sett 6. maí. Bréfið barst þó ekki
embætti sérstaks saksóknara fyrr
en 7. júní, eftir að frestur til að
fella úr gildi ákvörðun sérstaks
saksóknara rann út.
Fram kemur í bréfi ríkis-
saksóknara að fyrir mistök hafi
bréfið ekki verið sent fyrr en í
byrjun júní.
FME skarst í leikinn
Ríkissaksóknari og sérstakur
saksóknari drógu nýlega til baka
ákæru á hendur Erlendi sem í
starfi sínu sem framkvæmdastjóri
hjá Glitni fyrir hrun var sakaður
um innherjasvik vegna sölu á
hlutabréfum í Glitni fyrir 10 millj-
ónir vorið 2008. Ákæran var þing-
fest í Héraðsdómi Reykjavíkur í
byrjun síðasta mánaðar.
Sérstakur saksóknari hafði í
mars 2013 komist að þeirri nið-
urstöðu að lokinni rannsókn að
ekki væri tilefni til ákæru. Málið
var tekið aftur fyrir að kröfu Fjár-
málaeftirlitsins og í kjölfarið felldi
ríkissaksóknari úr gildi niðurstöðu
sérstaks saksóknara og lagði fyrir
hann að ákæra Erlend.
Samkvæmt upplýsingum frá Er-
lendi Magnússyni er ástæðan fyrir
því að ákæran var felld niður af
hálfu ákæruvaldsins sú að bréf
ríkissaksóknara barst ekki emb-
ætti sérstaks saksóknara fyrr en
tæplega mánuði eftir að frestur til
að taka afstöðu til ákvörðunar
sérstaks saksóknara rann út.
Lögmanni Erlendar var ekki til-
kynnt ákvörðun ríkissaksóknara
fyrr en í síðari hluta júnímánaðar.
Dagsett 6. maí en barst 7. júní
BRÉF RÍKISSAKSÓKNARA EKKI PÓSTLAGT FYRIR MISTÖK
NÝJAR UMBÚÐIR
SAMA GÓÐA INNIHALDIÐ
Súrmjólkin skipar sígildan sess í matarmenningu Íslendinga
og er sjálfsagður hluti af morgunverðarborðinu.
S Ú R M J Ó L K
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
1
3
-2
4
9
0
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Umhverfis- og skipulagsráð Reykja-
víkur samþykkti á fundi sínum í
fyrradag að falla frá hluta þeirra
breytinga sem gerðar hafa verið á
Hofsvallagötu. Flögg og eyjur sem
voru settar upp verða fjarlægðar en
hjólastígurinn verður óbreyttur að
gatnamótum Hofsvallagötu og
Hringbrautar, sem verða óbreytt.
Ýtir verslun úr hverfinu
„Stór hluti af vandanum er að hafa
ekki tvær akreinar á gatnamótum
Hofsvallagötu og Hringbrautar,“
sagði Pétur Alan Guðmundsson,
verslunarstjóri Melabúðarinnar.
„Þetta hefur áhrif á verslun og ýtir
umferðinni frekar inn í hliðargötur.
Í einu orði er talað um að styrkja
kaupmanninn á horninu, en því
næsta er fólki ýtt út í stórmarkaðina
í úthverfunum. Flestir fara á bílum í
verslanir, þú hjólar ekki eða gengur
með poka langar leiðir, sérstaklega
ekki að vetri til. Eldra fólk veigrar
sér við að koma í verslunina.“
Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti
borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis-
flokksins, sagði að réttast hefði verið
að færa götuna aftur í það horf sem
hún var í áður en henni var breytt.
„Það hefur verið skoðun þeirra sem
búa í hverfinu að auka verði umferð-
aröryggi, sérstaklega öryggi barna.
Flögg og fuglabúr þjóna ekki þeim
tilgangi. Þarna var horfið frá hug-
mynd sem embættismenn lögðu til á
fundinum um að hafa aftur tvær ak-
reinar á gatnamótum. Ég næ ekki af
hverju það var verið að breyta því
sem virkaði.“
Ekki náðist í Pál Hjaltason, for-
mann umhverfis- og skipulagsráðs,
við vinnslu fréttarinnar.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Breytingar Töluverðar deilur hafa staðið um breytingar á Hofsvallagötu.
Hofsvallagata að
hluta í fyrra horf
Óbreytt gatnamót við Hringbraut
Hofsvallagata
» Mikil óánægja hefur verið
meðal íbúa kringum Hofs-
vallagötu með þær breytingar
sem gerðar voru á götunni.
» Kaupmaður segir verslun
vera ýtt út úr hverfinu.
» Hann segir eldra fólk veigra
sér við að koma í verslun hans
» Gatan verður að hluta til
færð í fyrra horf.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
„Það er mýta að öll þessi mál hafi
borist þegar við byrjuðum að
vinna. Að stórum hluta komu þau
mál, sem við erum að vinna að
núna, inn á árinu 2011, 2012 og
2013,“ segir Ólafur Þór Hauksson,
sérstakur saksóknari.
Hér vísar hann til svokallaðra
hrunmála, þ.e. mála sem með ein-
hverjum hætti tengjast hruninu
árið 2008.
Samtals eru 58 slík mál til rann-
sóknar. Í sextán tilfellum eru sak-
sóknarar að fara yfir málsgögn og
munu væntanlega fljótlega taka
ákvörðun um hvort ákæra verði
gefin út, málin felld niður eða
hvort afla þurfi frekari gagna.
Þegar hefur verið ákært í 21 máli.
Gögn berast seint að utan
Af hrunmálum sem eru til rann-
sóknar bárust tólf til embættisins
árið 2013, fimmtán bárust árið
2012 og átján eru frá 2011. Átta
mál eru frá 2010 og fimm frá 2009.
„Þannig að meginþunginn eru mál
sem komu 2011, 2012 og 2013,“
segir Ólafur. Að sjálfsögðu vildu
allir að rannsókn málanna tæki
styttri tíma en það sé alls ekki svo
að rannsókn hafi tekið óhóflegan
langan tíma í öllum tilfellum.
Helst hafi rannsókn tafist
vegna þess að langan tíma hafi
tekið að afla gagna frá útlöndum,
m.a. frá Lúxemborg. Það eigi við
um þó nokkuð mörg þeirra mála
sem hafi verið í rannsókn frá
2009.
Til viðbótar við hrunmálin 58
rannsakar embættið nú um 90
önnur ætluð efnahagsbrot.
Vegna niðurskurðar á fjárlög-
um 2014 verður starfsfólki sér-
staks saksóknara fækkað um 18.
Fjórum hefur verið sagt upp og
einum sagt að uppsögn væri hand-
an við hornið. Fjórir lögreglu-
menn flytjast til annarra emb-
ætta, þrír lögreglumenn hverfa
aftur til fyrri starfa og sex starfs-
menn fengu upplýsingar um að
tímabundnir ráðningarsamningar
yrðu ekki endurnýjaðir þegar þeir
rynnu út.
Forgangsraða
„Það munar um að það fækkar
svona í hópnum. Við reynum að
halda sem mestum mannskap í
þessum stærstu málum hjá okkur.
En við þurfum að forgangsraða,“
segir Ólafur.