Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 14

Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 Tökum að okkur trjáklippingar, trjáfellingar og stubbatætingu. Vandvirk og snögg þjónusta. Sími 571 2000 www.hreinirgardar.is Lionsklúbbur Seltjarnarness af- henti nýlega björgunarsveitinni Ár- sæli nætursjónauka að gjöf, en slík- ur gripur kostar vel á aðra milljón. Afhendingin fór fram í skýli sveit- arinnar í Bakkavör á Seltjarnanesi. Það var Kristján Georgsson sem af- henti sjónaukann Kristni Guð- brandssyni hjá Ársæli. Farið var með nokkra Lionsmenn í siglingu á Skerjafirði eftir afhendinguna og síðan þáðu gestirnir kaffi og klein- ur í björgunarskýlinu. Þess má geta að Lionsklúbburinn gaf sveitinni samskonar sjónauka fyrir um einu og hálfu ári og hefur hann að sögn Kristins reynst mjög vel við leit í myrkri. Björgunarsveitin Ársæll varð til við sameiningu Björgunarsveitar Ingólfs í Reykjavík og Björg- unarsveitarinnar Alberts á Sel- tjarnarnesi. Ljósmynd/Jón Páll Gjöf Haldið var í siglingu um Skerjafjörð með Lionsmenn að afhendingu lokinni. Lionsmenn gáfu Ár- sæli nætursjónauka Pókersamband Íslands stendur fyrir fimmta op- inbera Íslands- mótinu í póker um helgina. Mót- ið verður haldið á Icelandair Hót- el Reykjavík Nat- ura og er áætlað að 150 spilarar taki þátt. Þátttökugjald í mótið er 67.000 kr og áætlað að verðlaunafé í mótinu verði um 9 milljónir króna. Samkvæmt því fengi sigurvegari mótsins um tvær milljónir króna í sinn hlut. Mótið hefst í dag og spilað verður niður í níu manna lokaborð á sunnudeginum. Þá er gert vikuhlé og lokaborðið verður spilað laug- ardaginn 19. október kl. 14:00. Spilað um 9 milljóna króna verðlaunafé Líkt og undanfarin ár stendur Ar- ion banki fyrir dreifingu á end- urskinsmerkjum. Bankinn mun senda þau heim til allra sex ára barna á landinu. Merkin verða auk þess öllum aðgengileg í útibúum bankans á meðan birgðir endast. Þeir sem búa fjarri útibúum bank- ans og geta ekki sótt endurskins- merki geta sent tölvupóst á net- fangið arionbanki@arionbanki.is . Arion banki gefur endurskinsmerki STUTT Ánægður sjúklingur, Sævar Björns- son, sem nýlega útskrifaðist frá meltingar- og nýrnadeild 13E á Landspítala birtist 7. október s.l. á deildinni með stóran flatskjá sem hann færði henni og starfsfólkinu að gjöf sem þakklætisvott fyrir góða umönnun. Starfsfólkið varð himinlifandi og þakklátt yfir þessu framtaki Sævars, eins og við mátti búast, segir í frétt frá spítalanum. Á myndinni eru Sævar Björns- son, Guðný Friðriksdóttir aðstoð- ardeildarstjóri og Einar S. Björns- son yfirlæknir. Ánægður sjúklingur gaf deildinni flatskjá Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Í bæjarráði Hafnarfjarðar er deilt um það með hvaða hætti standa eigi að uppbyggingu við skóla í Áslands- og Vallahverfi. Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Hafnarfirði, seg- ir áform meirihlutans í bæj- arstjórn vera óábyrg. „Meirihlutinn er að búa til vænt- ingar meðal íbúa sem ekki verður hægt að standa við. Uppbygging á leikskóla á Bjarkarvöllum og íþróttahús við Áslandsskóla eru aðkallandi en því miður hefur ekki enn verið sýnt fram á hvern- ig á að fjármagna þær fram- kvæmdir á næstu mánuðum eins og meirihlutinn boðar. Fjárhags- staða Hafnarfjarðarbæjar er væg- ast sagt slæm og hvorki í lang- tímafjárhagsáætlun né áætlun næsta árs er gert ráð fyrir fram- kvæmdum sem þessum enda eru einungis 360 milljónir króna áætl- aðar á ári í framkvæmdir og við- hald eigna,“ segir Rósa og bendir að auki á að hlutfall skulda á móti tekjum sé yfir 250 prósent en lög- um samkvæmt þurfi bærinn að komast niður fyrir 150 prósent. Meiri samvinna milli skóla Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram tillögu í bæjarstjórn í síðustu viku þar sem leitast er við að finna lausn á húsnæðisvanda skóla í nýj- ustu hverfum bæjarins. „Við verðum að leita raunhæfra lausna meðan fjárhagsstaða bæjar- ins er ekki betri. Þess vegna höfum við lagt til að skólastjórnendur í samráði við fræðsluráð auki sam- starf í elstu bekkjum grunnskól- anna í því skyni að nýta betur hús- næði og aðbúnað skólanna og auka valmöguleika nemenda. Hér kæmi einnig til greina að taka tímabundið í notkun annað laust húsnæði í eigu bæjarins,“ segir Rósa. Niðurstaða þverpólitísks hóps Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir málið snúast um mismunandi áherslur minnihlutans og meiri- hlutans. „Í þverpólitískum starfs- hópi sem skilaði af sér í fyrra var sérstaklega rætt um og samþykkt að ljúka síðari áfanga Áslands- skóla. Núna er fræðsluráð búið að samþykkja að tekinn verði inn við- auki í bæjarráði þannig að hægt verði að ljúka við hönnun á síðari áfanga skólans,“ segir Guðrún og bendir á að sinna þurfi sérstaklega Áslands- og Vallahverfi vegna fjölgunar íbúa hverfanna undan- farin ár. Spurð um kostnað segir Guðrún að bærinn þurfi vissulega að laga sig að fjármálareglum sem í gildi eru og verið sé að borga niður skuldir. „Við erum með há lán sem við erum dugleg að borga af og bærinn er að borga hátt í tvo millj- arða á ári af sínum lánum.“ Óraunhæfar væntingar í Hafnarfirði  Sjálfstæðisflokkur segir Hafnarfjarðarbæ ekki eiga fjármagn til að kosta nýjar framkvæmdir við Áslandsskóla  Leysa þurfi húsnæðisvanda skóla með öðrum hætti t.d. með auknu samstarfi skóla Morgunblaðið/Þorkell Hafnarfjörður Skuldir bæjarsjóðs hefta uppbyggingu. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir Rósa Guðbjartsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.