Morgunblaðið - 11.10.2013, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Um 700 af 900 fjölskylduíbúðum á
Ásbrú eru í útleigu og á annað
hundrað af um 1.100 einstaklings-
íbúðum, þar af um helmingur til
fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Kjartan Þór Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélags Kefla-
víkurflugvallar, segir að gengið hafi
hægar að leigja út einstaklingsíbúðir
en reiknað var með. Þær séu frá 30-
40 og upp í 50-60 fermetrar að
stærð.
Hann segir félagið finna fyrir vax-
andi eftirspurn vegna þeirrar
spennu sem er á leigumarkaðnum á
höfuðborgarsvæðinu. Í því efni þurfi
að taka tillit til stöðunnar á leigu-
markaðnum á Suðurnesjum og gæta
þess að ekki verði offramboð. Hann
segir áhuga á að fjölga gistirýmum
fyrir ferðamenn á svæðinu en að sú
uppbygging verði hófsöm.
„Við seldum í upphafi töluvert af
eignum í stærri einingum til annarra
aðila. Við höfum hins vegar ekki selt
til einstaklinga. Þessir aðilar hafa
átt í erfiðleikum með fá fjármögnun
og því hefur ekki verið hægt að taka
í gagnið það húsnæði sem þyrfti. En
það er verið að vinna í þeim málum
og sér vonandi fyrir endann á því í
lok þessa árs. Í framhaldi verður
skoðað með hvaða hætti er hægt að
standsetja meira af húsnæði og
bregðast þannig við þeirri miklu
eftirspurn sem er eftir húsnæði.“
Fimm mögur ár eftir hrunið
Þrátt fyrir afar erfitt árferði segir
Kjartan Þór félagið enn setja sér
það markmið að innan tíu ára frá
upphafi starfseminnar verði svæðið
nánast fullnýtt undir starfsemi.
„Við höfum verið starfandi síðan í
ársbyrjun 2007. Það er fimm ára gat
í verkefninu okkar. Það má enda
segja að við höfum fengið eitt ár sem
er nær því að vera eðlilegt árferði,
sem var fyrsta starfsárið okkar. Hin
Helmingurinn þegar í útleigu
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Ásbrú Íbúðir eru málaðar og rafkerfin í þeim endurnýjuð áður en þær fara í útleigu. Framboðið er mikið.
Um þúsund af tvö þúsund íbúðum á Ásbrú eru komnar í útleigu Tvö gistiheimili eru tekin til starfa
Færri einstaklingsíbúðir í útleigu en búist var við Atvinnuleysi á Reykjanesi er á hröðu undanhaldi
Tveir albönsku hælisleitendanna sem
handteknir voru í aðgerð lögreglu í
Auðbrekku í Kópavogi nýlega hafa nú
verið fluttir úr landi. Samkvæmt upp-
lýsingum frá ríkislögreglustjóra hafn-
aði erlendi flugrekstraraðilinn því að
flytja báða mennina í sömu vél og
varð því að flytja annan þeirra í gær
og hinn í fyrradag.
Umsókn mannanna um hæli hér á
landi var hafnað af Útlendingastofn-
un fyrr í vikunni og voru mennirnir
báðir í haldi lögreglu þar til þeir voru
fluttir úr landi, en talið var að þeir
myndu reyna að komast hjá því að
vera fluttir úr landi. Samkvæmt
heimildum mbl.is er talið víst að
mennirnir séu báðir með dóma á bak-
inu vegna morða. Innanríkisráðu-
neytið á eftir að taka afstöðu til
ákvörðunar Útlendingastofnunar um
að neita mönnunum um hæli hér á
landi. Samkvæmt upplýsingum frá
ráðuneytinu mun endanleg niður-
staða liggja fyrir í næstu viku. Heim-
ilt er að senda hælisleitendur úr landi
þrátt fyrir að innanríkisráðuneytið
hafi ekki tekið afstöðu til ákvörðunar
Útlendingastofnunar.
Samkvæmt upplýsingum frá
innanríkisráðuneytinu úrskurðaði
ráðuneytið að réttaráhrifum ákvörð-
unar Útlendingastofnunar yrði ekki
frestað í máli mannanna, á meðan
endanleg ákvörðun um hvort þeir falli
undir ákvæði laga og alþjóðasamn-
inga um að teljast flóttamenn sem
eiga rétt á hæli á Íslandi verður tekin.
Tveir hælisleitendur
fluttir úr landi
Fyrr í vikunni skoraði bæjarráð Árborgar á Íbúðalánasjóð
að auka framboð á leiguhúsnæði: „Sérstaklega er mikil
þörf og eftirspurn eftir traustri langtímaleigu á viðráð-
anlegum kjörum. Því skorar bæjarráð Árborgar á Íbúða-
lánasjóð að koma því húsnæði sem er í eigu sjóðsins og
stendur autt tafarlaust í íbúðarhæft ástand og í útleigu,“
sagði í ályktun ráðsins og er svo rifjað upp að meira en
ár sé liðið síðan þingmenn Suðurkjördæmis funduðu
með framkvæmdastjóra og stjórn ÍLS vegna þessa.
Spurður út í málið sagði Sigurður Erlingsson, forstjóri
Íbúðalánasjóðs, að sjóðurinn hefði verið með tvær blokk-
ir í sölu. Tilboðsgjafar hafi ekki getað lokið fjármögnun á
kaupunum og því sé annað söluferli komið af stað. Um er
að ræða 44 eignir. Hann segir aðspurður að meginmark-
mið sjóðsins sé að selja eignir, nema skortur sé á leigu-
húsnæði og að sjóðurinn eigi leiguhæfar eignir eða að
kostnaður við endurbætur á hverri eign til að gera þær
leiguhæfar sé innan við 1,5 milljónir.
Spurður hvers vegna þessar 44 íbúðir séu ekki látnar
renna inn í leigufélagið Klett, dótturfélag ÍLS, segir hann
skýringuna þá að eignirnar þarfnist viðhalds umfram 1,5
milljónir kr. Þriðja fjölbýlishúsið í eigu Íbúðalánasjóðs
muni fara inn í leigufélagið Klett og verða á leigumarkaði
til langs tíma. Hvað varðar aðrar eignir ÍLS í Árborg segir
Sigurður ekki rétt að sjóðurinn sitji á mörgum auðum
eignum í sveitarfélaginu sem séu tilbúnar til útleigu.
Hann segir sjóðinn eiga 811 fullnustueignir á Suður-
nesjum og að þar af séu tæplega 300 í útleigu og 100 í
söluferli. Þá sé verið að lagfæra rúmlega 60 íbúðir
á Suðurnesjum sem fari í leigu á næstu vikum
og þá séu allar leiguhæfar eignir komnar í
útleigu. Afgangurinn standi auður og bíði
flestar eignir þess að fara í sölu, þar af
munu um 120 eignir verða skráðar á fast-
eignasölur á næstu vikum. Alls eigi sjóð-
urinn 2.518 fullnustueignir sem hann hafi
tekið yfir vegna skuldavanda lántaka og
hyggst selja eða leigja út eftir atvikum.
Segja mikla eftirspurn eftir leiguhúsnæði
BÆJARRÁÐ ÁRBORGAR SKORAR Á ÍBÚÐALÁNASJÓÐ
árin, árin 2008 til 2012, voru mjög
strembin ár. Við höfðum þá stefnu í
upphafi að selja eignir og fá inn aðila
til uppbyggingar. Við náðum að selja
töluvert og afla þannig tekna sem
hafa staðið undir rekstri svæðisins
hingað til. Síðan þegar lánamarkað-
urinn fór að lokast í ársbyrjun 2008
sáum við að þetta gekk ekki. Við
náðum ekki að selja neitt. Því fórum
við að fjárfesta meira í eignunum og
leigja þær undir ýmiss konar rekst-
ur,“ segir Kjartan Þór.
Spurður hvaða fyrirtæki hafi
komið sér fyrir á svæðinu nefnir
Kjartan Þór að gagnaver Verne,
Keilir, Gistiheimili Keflavíkur og
Start Hostel hafi þar starfsemi, auk
þess sem þjóðkirkjan hafi keypt
eignir og frumkvöðlasetur borið
góðan ávöxt. Þá hafi félagið Há-
skólavellir keypt eignir en lent í
erfiðleikum með fjármögnun vegna
efnahagshrunsins.
„Í dag búa um 2.000 manns á
svæðinu. Um 650 störf hafa orðið til
vegna þessarar uppbyggingar og um
115 fyrirtæki stór og lítil eru með
starfsemi á svæðinu,“ segir hann.
Atvinnuleysið á undanhaldi
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, segir atvinnu-
ástandið á Suðurnesjum að glæðast
eftir mögur ár eftir brotthvarf varn-
arliðsins 2006 og svo hrunið 2008.
„Atvinnuleysi hefur minnkað,
einkum vegna aukinna umsvifa á
Keflavíkurflugvelli. Með stóraukinni
flugumferð er kallað eftir störfum á
flugvellinum og samgöngustörfum
tengdum honum. Það hefur slegið
verulega á atvinnuleysið. Við þetta
má bæta að í Reykjanesbæ búa nú
14.430 íbúar. Þeim er því að fjölga á
ný, þannig að hlutfallið er jákvæðara
þegar rýnt er í atvinnuleysistölur,“
segir Árni en skv. Vinnumálastofn-
un var 5,3% atvinnuleysi á Suður-
nesjum í ágúst en var mest 15% í
feb. 2010. Árni segir enn margar
auðar nýbyggingar á svæðinu.
Þar af eigi Íbúðalánasjóður
hundruð eigna.Sigurður
Erlingsson
Um 25 þúsund gestir komu á beikon-
hátíðina sem haldin var á Skólavörðu-
stíg í byrjun september. Gestir hátíð-
arinnar komu ekki eingöngu til að
njóta beikons og hinna fjölmörgu beik-
oninnblásnu rétta veitingahúsa í ná-
grenninu heldur einnig til að láta gott
af sér leiða, segir í fréttatilkynningu
frá beikonbræðralaginu.
Í ár söfnuðust rúmar tvær milljónir
króna sem renna til kaupa á tveimur
þráðlausum hjartasíritum sem verða
afhentir hjartadeild Landspítalans við
formlega athöfn síðar í þessum mánuði.
Beikonbræður söfnuðu tveimur milljónum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Beikon Hátíð á Skólavörðustíg í haust.