Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
NÝ TILSKIPUN
EVRÓPU-
SAMBANDSINS
UM STARFSEMI
VERÐBRÉFASJÓÐA
Robert P. Lord
heldur fyrirlestur
á Háskólatorgi, stofu 105
föstudaginn 11. okt. kl. 12-13:15
Með tilskipuninni er reynt að samræma reglur
um starfsemi verðbréfasjóða á evrópska
efnahagssvæðinu ( EES). Eitt af því sem tilskipunin
felur í sér er aukin upplýsingagjöf verðbréfasjóða og
þar með gagnsæi fyrir þá sem festa fé sitt í slíkum
sjóðum.Tilskipunin mun hafa mikil áhrif hér á landi
sem annars staðar á svæðinu, sérstaklega þegar
hömlum á fjárfestingu verður aflétt hér á landi.
Robert Lord er virtur lögfræðingur sem hefur
hefur starfað við regluvörslu á verðbréfamörkuðum
og unnið fyrir fjármálamarkaðinn víða um heim.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir!
Þorkell Bjarnason læknir var
framkvæmdastjóri Læknis-
fræðilegrar myndgreiningar
þegar deilurnar áttu sér stað.
„Þessi mótþrói kom á óvart, við
töldum okkur hafa undirritaðan
samning um að gera þetta og
svo þegar til kom þá neita þeir
að borga þannig að við urðum
að fara í mál við þá,“ segir Þor-
kell. Hann bætir við að eftir að
dómur féll hafi þau ekki orðið
vör við frekari fjandskap enda
hafi Tryggingastofnun bara ver-
ið að vinna sína vinnu.
Þorkell segir segulómtækið
hafa gjörbreytt allri þjónustu.
Mótþróinn
kom á óvart
RÖNTGENLÆKNIR
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Útlit er fyrir að tvær læknis-
fræðilegar myndgreiningarstofur ut-
an sjúkrahúsa klári þann kvóta sem
þær hafa hjá Sjúkratryggingum Ís-
lands áður en árið er liðið, eins og
greint var frá í Morgunblaðinu í gær.
Áætlað er að samtals 45 þúsund
sjúkratryggðir einstaklingar fái þjón-
ustu hjá þessum stofum og hlutur
Sjúkratrygginga í kostnaði verði 770
milljónir. Stofurnar eru Röntgen Do-
mus og Röntgen Orkuhúsinu, báðar
hafa fengið fólk frá Landspítalanum í
myndgreiningu af ýmsum ástæðum.
Það er ljóst að mikið vatn hefur
runnið til sjávar síðan fyrsta mynd-
greiningarfyrirtækið, Læknisfræði-
leg myndgreining hf. (LM) sem nú
heitir Röntgen Domus, keypti fyrsta
segulómtækið hingað til lands á
einkastofu. Það kostaði hundrað millj-
ónir og var tekið í notkun í ársbyrjun
1996. Fyrir var aðeins eitt segulóm-
tæki á landinu, á Landspítalanum.
Læknisfræðileg myndgreining lenti á
þessum tíma í miklum ágreiningi við
Tryggingastofnun um hvort Trygg-
ingastofnun, sem varð að Sjúkra-
tryggingum Íslands 2008, bæri að
greiða fyrir rannsóknir með nýja seg-
ulómtækinu. LM var með almennan
sérfræðiþjónustusamning við Trygg-
ingastofnun en stofnunin sagði að
hann næði ekki til nýrrar starfsemi
lækna sem hafi hærri stofnkostnað en
nemi venjulegum stofnkostnaði lækn-
ingastofu. Í aðdraganda samnings
Tryggingastofnunar og LM hafi aldr-
ei komið fram neinar fyrirætlanir um
kaup á segulómtæki enda þótt um-
samin gjaldskrá hafi tæknilega
spannað allar tegundir röntgenrann-
sókna. Tryggingastofnun samþykki
ekki starfrækslu segulómtækisins og
neitaði að kaupa þá þjónustu. Málið
fór fyrir gerðardóm sem dæmdi LM í
vil og sagði samning fyrirtækisins og
Tryggingastofnunar ná til segulóm-
rannsóknar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Segulómtæki Þegar fyrsta einkarekna segulómtækið kom til landsins vildi Tryggingastofnun ekki greiða hlut
sjúklinga. Sagði það ekki inni í samningi stofnunarinnar og fyrirtækisins Læknisfræðilegrar myndgreiningar hf.
Samþykkti ekki starf-
rækslu segulómtækis
Ágreiningur var uppi um fyrsta einkarekna segulómtækið
EasyJet hyggst hefja beint áætl-
unarflug frá Íslandi til borgarinnar
Basel í Sviss. Basel Mulhouse-
Freiburg flugvöllurinn er einn af
annasömustu flugvöllum í Mið-
Evrópu vegna nálægðar hans við
vinsæl ferðamannasvæði í Frakk-
landi, Þýskalandi og Ítalíu og mik-
ilvægar viðskiptamiðstöðvar í
Sviss, segir í tilkynningu.
Fyrsta flugið til Basel verður far-
ið 2. apríl og flogið verður tvisvar í
viku, á miðvikudögum og laug-
ardögum, fram í lok september.
Farmiðar eru nú komnir í sölu á
heimasíðu félagsins, www.easy-
Jet.com. Lægsta fargjaldið er í
kringum 6.295 kr. aðra leið með
sköttum. Basel er fimmta flugleið
EasyJet frá Íslandi en félagið flýg-
ur þegar í beinu flugi frá Keflavík
til Lundúna, Manchester og Ed-
inborgar árið um kring, auk þess
sem beint flug til Bristol hefst á
vegum félagsins eftir nokkrar vik-
ur.
Beint flug EasyJet frá Íslandi til Sviss
AFP