Morgunblaðið - 11.10.2013, Qupperneq 20
AUSTURLAND
DAGA
HRINGFERÐ
SEYÐISFJÖRÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Þrjár mæður í fæðingarorlofi
ákváðu að láta sér barnauppeldið
ekki nægja og nýttu lausan tíma í
að láta drauminn rætast og opn-
uðu verslun á Seyðisfirði. Í henni
fá fallegir munir, notaðir sem ný-
ir, að njóta sín. Halldóra Malín
Pétursdóttir og Margrét Guðjóns-
dóttir hittu blaðamann og sögðu
frá tilurð verslunarinnar sem
gengið hefur vonum framar. Ingi-
björg Grétarsdóttir stílisti var
hins vegar vant við látin. „Við
vorum að velta því fyrir okkur
hvað okkur langaði að gera þeg-
ar við yrðum stórar. Svo náðum
við Ingibjörg og Maggý saman og
ákváðum að láta á það reyna
hvort við gætum ekki búið til ein-
hvern rekstur sem gæti gengið
allt árið,“ segir Halldóra Malín
sem er húsasmíðanemi og mennt-
aður leikari. Verslunin fékk nafn-
ið Gullabúið, en hvernig skyldi
standa á nafngiftinni? „Við erum
við að vísa í drullubúin, þar sem
maður reyndi að búa sér lítið
Gullabúið geymir
perlur Seyðisfjarðar
Mæður í fæðingarorlofi létu draum-
inn rætast og opnuðu búð í bænum
Morgunblaðið/Golli
Gullnar vinkonur Halldóra og Margrét eru ánægðar með þær móttökur sem Gullabúið hefur fengið.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Fjórir skólafélagar og vinir keyptu
sögufrægt hús á Seyðisfirði með
það að markmiði að búa til vinnu-
stofur fyrir listamenn og frum-
kvöðla í bænum. Húsið er nátengt
sögu bæjarins. Elsti hluti þess er
frá árinu 1880 og í húsinu var
verslun sem hét EJ Waage og var
rekin af Waage fjölskyldunni í 100
ár. „Síðustu 40-50 árin rak Pálína
Waage verslunina og bjó í íbúðar-
hlutanum. Hún var mjög áberandi
karakter í samfélaginu og ég og
aðrir eigum þaðan margar minn-
ingar. Ég kom þar við á hverjum
einasta degi þegar ég kom úr skól-
anum. Hún seldi meðal annars efni
og tískuföt og þetta var hálfgerð
krambúð,“ segir Björt Sigfinns-
dóttir, einn fjórmenninganna.
Nú er endurbótum nær lokið á
húsinu og mun fyrsti listamað-
urinn koma í heimsókn undir lok
október. Björt á húsið ásamt Dön-
unum Andreas Lemche, Lars Ho-
genhof og Jonatan Jensen. Þau
eru 27-29 ára og kynntist Björt
þeim í lýðháskóla í Danmörku og
bauð þeim á listahátíðina LungA
fyrir fjórum árum. „Þeir urðu
hreinlega ástfangnir af staðnum,
bæjarstæðinu og andrúmsloftinu í
bænum og vildu gera eitthvað
hérna, “ segir Björt.
Svara eftirspurn
Úr varð að þau keyptu húsið
og hafa nú með hjálp sjáfboðaliða
lokið framkvæmdum við það. Er
þar nú aðstaða fyrir dansara, rit-
höfunda, hljómsveitir, hönnuði,
arkítekta, verkefnastjóra og frum-
kvöðla svo dæmi séu nefnd. „Þetta
er í raun aðstaða fyrir alla sem
vilja komast í burtu til þess að
skapa,“ segir Björt.
Hún segir að mikil skapandi
orka sé á Seyðisfirði og telur hún
mikla þörf á aðstöðu fyrir lista-
menn. „Við erum í raun að svara
þeirri eftirspurn,“ segir Björt.
Húsið hafði staðið autt í nokk-
ur ár og var að niðurlotum komið.
„Áður en við keyptum það fengum
við að heyra það hjá Íbúðalána-
sjóðið að það væri flokkað sem
ónýtt hús. Við fengum að kaupa
það og höfum lagt gríðarlega pen-
inga og tíma í að gera það upp,“
segir Björt.
Sjálfboðaliðar unnu í húsinu
Vinirnir eru öll menntaðir
framkvæmda- og frumkvöðlafræð-
ingar. „Þegar við vorum að byrja
með verkefnið þá veltum við því
fyrir okkur hvernig við gætum
gert þetta eins ódýrt og mögulegt
væri. Við auglýstum eftir fólki og
buðum þvi að koma hingað í mán-
uð og að aðstoða við bygginguna.
Við borguðum flugfar og örlítinn
mat, en annars var þetta alfarið
sjálfboðavinna. Við fengum ellefu
umsóknir og enduðum með því að
Morgunblaðið/Golli
Vinir Björt, Jonatan og Lasse hafa gert húsið upp og hyggjast bjóða fólki sem þarf rými til sköpunar að dvelja þar.
Virkja sköpunarorku
Seyðisfjarðar í húsinu
Björguðu húsi sem á sér rúmlega 130 ára sögu
Morgunblaðið kom fyrst út 2.
nóvember árið 1913, Á forsíðu
þessa fyrsta tölublaðs er m.a.
greint frá vígslu rafveitu Seyð-
isfjarðar, en þann 13. október
þetta ár loguðu rafljós í fyrsta
skipti í bænum.
Í fréttinni segir að haldin hafi
verið vegleg veisla af þessu til-
efni nokkrum dögum síðar.
„Ekki minna en 7 kvæði voru ort
við þetta tækifæri og sungin í
veizlunni,“ segir í fréttinni.
Framkvæmdir við rafveituna
hófust vorið 1913 þegar stífla var
gerð í Fjarðará og rafstöðvarhús
reist í Fjarðarselshvammi. Reist-
ar voru fimm spennistöðvar og
voru þar fyrstu háspennulínur á
landinu. Rafmagnið var í fyrstu
einungis notað til lýsingar, en
fljótlega líka til eldunar og hús-
hitunar. annalilja@mbl.is
Seyðfirðingar ortu sjö kvæði til nýju rafveitunnar
Fjarðarselsvirkjun Elsta starfhæfa vatnsaflsvirkjun landsins.
Rafveita í 100 ár
Forsíðufrétt Um rafveituna í
fyrsta tölublaði Morgunblaðsins.
El Grillo er íslenskur bjór, bruggaður úr íslensku
byggi og hefur verið á markaði frá árinu 2007. Veit-
ingamaðurinn Eyþór Þórsson á Seyðisfirði á heiðurinn
af bjórnum og var hann í fyrstu einungis seldur á veit-
ingahúsi og hóteli Eyþórs, en fæst nú í Vínbúðunum.
Gamlar hefðir eru viðhafðar við framleiðslu El Grillo
og framleiðsluferlið hægara en ella. Nafn sitt dregur
mjöðurinn af 10.000 lesta olíubirgðaskipi bandamanna
í síðari heimsstyrjöldinni sem þýskar flugvélar gerðu
árás á í Seyðisfirði árið 1944. Allir skipverjar sluppu
lífs, en eftir árásina var skipið svo laskað að ákveðið
var að sökkva því.
Bjór nefndur eftir skipi
Næst verður fjallað um Eg-
ilsstaði á 100 daga hringferð
Morgunblaðsins.
Á morgun