Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 21

Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 21
Við botn Seyðisfjarðar stendur samnefndur kaupstaður. Byggð hóf að myndast þar um miðja 19. öld, en á síðari hluta hennar fluttust þangað margir Norðmenn til að stunda síldveiði, einn þeirra var Ottó Wathne, stundum nefndur „Faðir Seyðisfjarðar“. Mörg hús frá þessum tíma hafa nú verið gerð upp og setja skemmtilegan svip á bæinn. Íbúar á Seyðisfirði eru tæplega 700. Fjölbreytt menningarlíf og merk saga Gullin Munirnir eru vekja athygli fólks sem tengir þá við barnæsku. heimili eða bú með krukkum og gömlu dóti sem maður sankaði að sér fjársjóðum sem jafnvel átti að henda . Það voru gullin manns,“ segir Margrét sem jafnframt er kennari í grunnskólanum og for- maður bæjarráðs. „Við ætluðum að hafa bara opið í sumar til að byrja með, en svo gekk þetta svo vel að við ákváðum að halda þessu opnu áfram,“ segir Hall- dóra. Íslenskir ferðamenn áhugasamir um gullin „Þegar við byrjuðum þá lit- um við helst til erlendu ferða- mannanna sem koma með Nor- rænu. En það sem kom mest á óvart var hve íslensku ferða- mennirnir voru stór kúnnahópur. Svo mættu heimamenn nánast all- ir. Þetta er svo fallegur bær að því leyti að það mæta allir til að styðja við mann þegar eitthvað er í gangi,“ segir Halldóra. Í búð- inni má m.a. finna seyðfirskar hönnunarvörur, gömul húsgögn og gamla muni sem fá endurnýj- un lífdaga. „Verslunin end- urspeglar ekki endilega smekk okkar allra. En við sammæltumst um að tengja verslunina við þennan gamla bæ sem Seyðis- fjörður er. Því ákváðum við að hafa þetta í þessum gamla stíl í takt við þá 100 ára sögu sem bærinn státar af,“ segir Halldóra. Margrét segir að stærsti hluti viðskiptavina sé konur en áhugi karlpeningsins vakni þegar inn í verslunina er komið. „Strákarnir eru kannski dregnir inn af betri helmingnum. En fólk, hvort sem það eru konur eða karlar, sér tengingu við gamla tímann. Það sér kannski gamla muni sem amma og afi áttu eða mamma og pabbi á æskuheimilinu. Það skap- ar umræðuvettvang og vekur áhuga. En við erum líka með nýja hluti og viljum gera seyðfirskri hönnun hátt undir höfði,“ segir Margrét. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 Seyðisfjörður er djúpur fjörður umkringdur háum tilkomu- miklum fjöllum. Þéttbýlið stendur fyrir botni fjarðarins á milli Bjólfs og Strandartinds. Áður voru einnig þorp á Eyrum og Vestdalseyri. Á Búðareyri er nokkuð samfelldur byggðakjarni af gömlum timburhúsum sem flest eru byggð um aldamótin 1900, auk þess sem slík hús eru víða annars staðar í bænum. Hús þessi eru byggð að norskri fyrirmynd og mörg hver flutt inn frá Noregi. Byggð hefur verið á Seyðisfirði allt frá landnámsöld er Bjólfur nam þar land. Seyðisfjörður er þekktur fyrir fjölskrúðugt menningarlíf en þar er árlega haldin sumartónleikaröðin Bláa kirkjan og LungA (Listahátíð ungs fólks, Austurlandi). Auk þess heldur Tækni- minjasafn Austurlands árlega Smiðjuhátíð vikuna eftir Lunga. Á Seyðisfirði má einnig finna menningarmiðstöðina Skaftfell sem stendur fyrir myndlistasýningum allt árið. Bærinn á sér merka sögu sem hægt er að kynna sér með því að heimsækja Tækniminjasafnið sem hefur á safnasvæði sínu meðal annars elstu vélsmiðju landsins og fyrstu ritsímastöð landsins. Fjarðarselsvirkjun (gangsett 1913), sem er í eigu Rarik, er fyrsta riðstraums- og bæjarveitan á Íslandi. Árið 2003 var stöðvar- húsið gert upp og á efri hæðinni komið fyrir sýningu. Til Seyðisfjarðar siglir færeyska ferjan Norræna frá Færeyjum en þaðan siglir hún jafnframt til Danmerkur. Er þetta eina leiðin fyrir þá sem vilja fara til og frá Íslandi á bíl. Mikil náttúrufegurð er á Seyðisfirði, veðursæld með eindæm- um, fjölskrúðugt mannlíf og bærinn góður heim að sækja. www.seydisfjordur.is www.visitseydisfjordur.com Seyðisfjörður Við erum stolt fyrirtæki á Seyðisfirði Morgunblaðið/Golli Fyrsti gesturinn Von er á fyrsta listamanninum undir lok október og mun hann njóta aðstöðunnar við listsköpun. fá fimm stráka fyrst. Nú hafa alls tíu komið og unnið fyrir okkur,“ segir Björt. Hún segir að þetta fyr- irkomulag hafi reynst ákaflega vel. „Þetta er búið að vera yndislegt. Við höfum eignast frábæra vini fyrir lífstíð. Síðan er líka gaman að skapa eignarhlutartilfinningu hjá þeim. Þau munu hafa sterkar taugar til verkefnisins það sem eft- ir er og geta sagt barnabörnunum frá því að þau hafi byggt hús á Ís- landi,“ segir Björt og hlær við. Þau hafa þegar fengið margar um- sóknir frá fólki sem vill dvelja í listasmiðjunni. „Við erum enn að móta hugmyndina og verðum fram yfir áramót að þróa hana,“ segir Björt. Fjöllin, loftið og flækjurnar Björt er uppalin á Seyðisfirði en hefur búið í fimm ár í Dan- mörku og tvö ár í Reykjavík. „Þetta er yndislegur bær til að vera í og hér vil ég alltaf hafa fót- festu. Ég er að vísu svo heppin að vera einnig með annan fótinn í Kaupmannahöfn. Það fyrirkomulag hentar mjög vel, að fara úr smá- bænum í stórborgina öðru hverju. En ég finn það þegar ég kem heim að það er hérna sem ég næ að slaka á og greiða úr öllum hugs- anaflækjum. Það er eitthvað stór- kostlegt við fjöllin og loftið sem gefur mér innri frið sem ég finn ekki annars staðar,“ segir Björt. Morgunblaðið/Golli Lunga Danskir vinir Bjartar komu saman á listahátíðina LungA og urðu strax mjög hrifnir af Seyðisfirði. Saman keyptu þau húsið. Samhliða starfi sínu í listasmiðjunni stefnir Björt að því að setja á fót lista- lýðháskóla á Seyðisfirði, þann fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Til stendur að opna skólann 25. ágúst næstkomandi. Skólinn er að skandinavískri fyrirmynd en hann mun bera nafnið LungA líkt og listahátíðin. Ekkert aldurstakmark er fyrir nemendur og 35 komast að í einu. Hver önn er 16-18 vikur og kostar 600- 700 þúsund með gistingu og mat. SETJA Á FÓT LÝÐHÁSKÓLA Á SEYÐISFIRÐI Seyðisfjörður Til stendur að opna fyrsta lýðháskólann á Seyðisfirði. Fyrsti lýðháskólinn  „Við ákváðum í upphafi að í ár yrðum við með einn eða fleiri íþrótta- viðburði í hverjum mánuði í tilefni af afmælinu og það hefur tekist,“ segir Eva Björk Jónudóttir, meðstjórnandi hjá Íþróttafélaginu Huginn, en félagið er aldargamalt í ár. Eva Björk segir að á stórafmælisárinu hafi áhersla verið lögð á hreyfingu fyrir alla en félagið, sem býður upp á sundþjálfun, blak, badminton og handbolta fyrir 1.-10. bekk, hefur m.a. fagnað með því að fá bæjarbúa í lið með sér og ganga og synda 100 kílómetra. Þá má segja að fé- lagið hafi fengið skemmtilega afmælisgjöf á dögunum þegar meistaraflokkur þess í fótbolta náði þeim árangri að færast upp í 2. deild á Íslandsmótinu í fótbolta. Ljósmynd/Ómar Bogason Huginn Félagið var stofnað 1913 og fagnar aldarafmæli með íþróttaviðburðum. Íþróttafélagið Huginn 100 ára

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.