Morgunblaðið - 11.10.2013, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 11.10.2013, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 Speglar Flotgler Öryggisgler Hert gler Bílspeglar Sandblástur Álprófílar Máltöku- og uppsetningaþjónusta Sjáðu sjálfan þig í nýju ljósi Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtuskilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af ljósaspeglunum okkar vinsælu. Á nýrri heimasíðu okkar glerslipun.is er gott yfirlit yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla velkomna í Vatnagarða 12 þar sem fagfólk veitir góða þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf. Vatnagörðum 12 - 104 Reykjavík - Sími: 588 5151 - Fax: 588 5152 - glerslipun.is Glerslípun & Speglagerð ehf. Viðskipti hófust í gærmorgun með sértryggð skuldabréf Landsbankans í Kauphöll Íslands. Þetta er fyrsta skráning á verðbréfum sem útgefin eru af Landsbankanum. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, hringdi bjöllu Kauphallarinnar á Ís- landi til marks um upphaf við- skiptanna og skráningu bréfanna. Landsbankinn gaf út sértryggð skuldabréf 10. júní. Heiti útgáfunnar er LBANK CB 16 og eru bréfin óverðtryggð með föstum 6,30% vöxt- um til þriggja ára. Bankinn hyggur á frekari útgáfu í nánustu framtíð, segir í tilkynningu. Dregur úr fastvaxtaáhættu Útgáfa sértryggðra skuldabréfa styður við fjármögnun íbúðalána- safns bankans um leið og hún dregur úr fastvaxtaáhættu. Samhliða útgáf- unni í júní lækkaði Landsbankinn kjör á óverðtryggðum íbúðalánum með föstum vöxtum til 36 mánaða úr 7,50% í 7,30% og hafa vextirnir stað- ið óbreyttir síðan þá. Fjárhæð útgáfunnar nam 1.220 milljónum króna og þar af voru 1.160 milljónir seldar til fjárfesta á mark- aði. Sú upphæð sem eftir stendur verður nýtt til viðskiptavaktar í Kauphöllinni og hefur Landsbank- inn gert samning við Straum fjár- festingarbanka um hana. „Skráning bréfanna þýðir að bankinn skuldbindur sig til að auka gagnsæi, veita ítarlegri upplýsingar um starfsemi sína og hún eykur á aga í rekstrinum,“ segir Steinþór Pálsson bankastjóri. „Útgáfa sér- tryggðra bréfa tryggir einnig bank- anum breiðari fjármögnun en áður og gerir mögulegt að bjóða við- skiptavinum betri kjör á óverð- tryggðum íbúðarlánum. Landsbank- inn mun áfram gefa út sértryggð skuldabréf enda voru viðbrögð fjár- festa við fyrstu útgáfu bankans mjög góð.“ Páll Harðarson, forstjóri Kaup- hallarinnar, segir að um sé að ræða mikilvæga viðbót við vaxandi mark- að fyrirtækjaskuldabréfa. „Lands- bankinn sýnir mikinn metnað í upp- lýsingastefnu sinni til fjárfesta. Það eykur bæði traust á fyrirtækinu og markaðnum þar sem gagnsæi er lyk- ilatriði við áframhaldandi uppbygg- ingu hans,“ segir hann. helgivifill@mbl.is 1,2 milljarða útgáfa  Sértryggð skuldabréf Landsbankans skráð í Kauphöll  Bankinn hyggur á frekari útgáfu í nánustu framtíð  Bankinn skuldbindur sig til að auka gagnsæi Bjallan Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, hringdi bjöllu Kaup- hallarinnar til marks um upphaf viðskiptanna og skráningu bréfanna. Styður við fjármögnun íbúðalánasafns » Útgáfa sértryggðra skulda- bréfa styður við fjármögnun íbúðalánasafns bankans um leið og hún dregur úr fast- vaxtaáhættu. » Skráning bréfanna þýðir að bankinn skuldbindur sig til að auka gagnsæi, veita ítarlegri upplýsingar um starfsemi sína og hún eykur á aga í rekstr- inum, segir bankastjóri. » Viðskipti eru hafin með sér- tryggð skuldabréf Landsbank- ans í Kauphöll Íslands. Þetta er fyrsta skráning á verðbréfum sem útgefin eru af bankanum. Mjólkursamsalan opnar í dag end- urnýjaða vinnslustöð á Selfossi þeg- ar Sigurður Ingi Jóhannsson land- búnaðarráðherra ræsir stærstu mjólkurpökkunarvél búsins. Fram kemur í fréttatilkynningu að mjólkurvinnsla á Selfossi aukist um 40% þegar liðlega 20 milljóna lítra mjólkurpökkun flyst frá Reykjavík. Mjólkursamsalan hafi þá fjárfest í Selfossbúinu fyrir rúm- lega einn og hálfan milljarð króna á fjórum árum. Heildarendur- skipulagningu búsins og mjólkur- vinnslu í landinu sé því um það bil að ljúka. Haft er eftir Einari Sigurðssyni, forstjóra Mjólkursamsölunnar, í til- kynningunni að með endurnýjun vinnslustöðvarinnar verði öll vinnsla og pökkun drykkjarmjólkur fyrir vestan- og sunnanvert landið færð til Selfoss. Morgunblaðið/Kristinn MS Höfuðstöðvar MS við Bitruháls. Vinnslugeta aukin um 40%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.