Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 24

Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Í Líbíu eru allt að 1.700 vopnaðir hópar sem hafa ógnað bráðabirgða- stjórn landsins og torveldað henni að byggja upp nýtt ríki, ná öllu landinu á sitt vald og afstýra upplausn og glundroða eftir að Muammar Gadd- afi einræðisherra var steypt af stóli í byltingu fyrir tveimur árum. Hættan sem stafar af vopnuðu hópunum kom berlega í ljós í gær þegar liðsmenn eins eða tveggja þeirra rændu forsætisráðherra landsins, Ali Zeidan, sem tók við embættinu fyrir ári. Bráðabirgða- stjórn hans er skipuð blöndu af ísl- amistum, þ.e. öfgamönnum sem vilja stofna íslamskt ríki, og stjórn- málamönnum sem aðhyllast verald- legt stjórnkerfi. Forsætisráðherrann var í haldi mannanna í nokkrar klukkustundir. Vopnuðu hóparnir í Líbíu hafa mismunandi markmið en eiga flestir það sameiginlegt að þyrsta fyrst og fremst í peninga og völd. Margir þeirra tóku þátt í uppreisninni gegn Gaddafi, en sumir hópanna eru skip- aðir fátækum og atvinnulausum ung- um mönnum sem börðust ekki í borgarastríðinu eða fyrrverandi föngum sem sluppu úr fangelsi í stríðinu. Nokkrir hópanna berjast fyrir íslömsku ríki og tengjast hryðju- verkanetinu al-Qaeda. Þeir brugðust ókvæða við áhlaupi bandarískrar sérsveitar fyrir tæpri viku þegar hún handtók forsprakka hóps, sem talinn er tengjast al-Qaeda, á götu í Trípólí og flutti hann í bandarískt herskip. Sumir hópanna sjá fátæku fólki fyrir mat og annarri aðstoð á yfir- ráðasvæðum sínum, en aðrir hugsa um það eitt að maka krókinn. Sumir hópanna hagnast til að mynda á því að smygla fíkniefnum og aðstoða afrískt flóttafólk við að komast yfir Miðjarðarhafið til Evrópu, auk þess sem þeir hagnast á sölu á olíu frá yfirráðasvæðum sínum. Krefjast sjálfstjórnar Flestir hópanna starfa á af- mörkuðum svæðum. Á meðal þeirra eru hópar í borginni Benghazi í austanverðu landinu þar sem upp- reisnin gegn Gaddafi hófst. Leiðtog- ar þeirra telja að í raun hafi ekkert breyst eftir byltinguna og vilja meiri völd. Nokkrir þeirra krefjast þess að héraðið Kýrenaika í austurhlutanum fái sjálfstæði eða að Líbía verði sam- bandsríki þar sem héraðið njóti víð- tækra sjálfstjórnarréttinda. Vopnaðir hópar í Fezzan-héraði í sunnanverðu landinu hafa einnig krafist þess að héraðið fái sjálf- stjórnarréttindi í sambandsríki, líkt og héruð Kúrda í Írak. Þeir vísa meðal annars til þess að þegar Líbía var undir stjórn Breta og Frakka á árunum 1943 til 1951 var landinu skipt í þrjú héruð. Kýrenaika og hér- aðið Trípolítana í vesturhlutanum voru þá undir stjórn Breta en Frakk- ar stjórnuðu Fezzan. Fréttaskýrendur telja ólíklegt að þessir hópar nái fram kröfum sín- um um að héruðin fái sjálfstæði eða sjálfstjórnarréttindi í sambandsríki. Til þess séu hóparnir of fámennir og njóti of lítils stuðnings meðal íbú- anna. Hóparnir eru hins vegar svo margir að þeir geta valdið miklum usla í landinu, til að mynda með því að loka olíuleiðslum og höfnum og stöðva þannig olíuútflutninginn. Bráðabirgðastjórnin og öryggis- sveitir hennar eru of veikar til að geta haft taumhald á hópunum, binda enda á upplausnina og glund- roðann. AFP Frjáls forsætisráðherra Ali Zeidan, forsætisráðherra Líbíu (fyrir miðju), kemur í höfuðstöðvar bráðabirgðastjórn- arinnar í Trípolí eftir að hann losnaði úr haldi vopnaðra manna sem rændu honum á hóteli í borginni í gærmorgun. Kyndir undir ótta við upplausn og stjórnleysi  Herskari vopnaðra hópa ógnar veikri ríkisstjórn í Líbíu Griðastaður öfgahópa? » Hundruð vopnaðra hópa hafa valdið hættu á upplausn og algeru stjórnleysi í Líbíu. Það gæti m.a. orðið til þess að Libía yrði öruggur griðastaður íslamskra öfgahreyfinga. » Stjórnin hefur reynt án ár- angurs að afvopna hópana eða innlima þá í öryggissveitir hennar. Hún er í mjög erfiðri stöðu. Beiti hún hópana her- valdi er hætta á að blóðugt stríð blossi upp. Reyni hún að semja við þá er líklegt að þeir líti á það sem veikleikamerki og færi sig upp á skaftið. Forsætis- ráðherra Líbíu rænt Vopnaðir menn rændu Ali Zeidan á hóteli í Trípólí og slepptu honum nokkrum klukkustundum síðar 500 km NÍGER LÍBÍA TSJAD MIÐJARÐARHAF EG YP TA LA N D TÚ N IS TRÍPOLÍ A LS ÍR Benghazi Gjafavörurnar fást í Álafoss ÁLAFOSS Álafossvegur 23, Mosfellsbær Opið: Mánud. - Föstud. 09:00 - 18:00 Laugard. 09:00 - 16:00 www.alafoss.is Bættu smá lit í líf þitt Vogue flísar í öllum litum Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Fyrir þá se m elska hönnu n

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.