Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
- merkt framleiðsla
yfir 30 ára reynsla á Íslandi•
hurðir úr áli — engin ryðmyndun•
hámarks einangrun•
styrkur, gæði og ending — langur líftími•
háþróuð tækni og meira öryggi•
möguleiki á ryðfríri útfærslu•
lægri kostnaður þegar fram líða stundir•
Sveigjanlegar lausnir og fjölbreytilegt útlit hentar
mismunandi tegundum bygginga.
IÐNAÐAR- OG
BÍLSKÚRSHURÐIR
idex.is - sími: 412 1700
Byggðu til framtíðar
með hurðum frá Idex
Iðnaðar- og bílskúrshurðir úr áli
0 kr. útborgun
Langtímaleiga
Vetrarleiga frá46.900 kr.á mánuði!
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram
allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða.
Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun,
tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert
vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu
Kynntu þér málið í síma 591-4000
Það var einn daginn
síðastliðið sumar að ég
fór í heilsubótargöngu
í Laugardalnum og
Laugarásnum í
Reykjavík. Á Laug-
arásveginum kom á
móti mér kona á nokk-
urri hraðferð. Asinn
var þó ekki meiri en
svo að þegar ég hafði
mætt henni staldraði
hún við og kallaði á
eftir mér kveðju. Svo skundaði hún
áfram norður götuna. Kveðjan var
svona: „landskemmari“. Á sínum
tíma var ég talsmaður fram-
kvæmdanna við Kárahnjúkavirkjun
og hún hefur væntanlega þekkt mig
í því hlutverki. Þetta var óvænt
kveðja og hún vakti mig til um-
hugsunar um það hvaða sýn ég hef
á orku og umhverfi.
Mesta rask í sögu Íslands var
sjálft landnámið. Hér var þá enginn
nema refurinn og fuglarnir. Ósnort-
ið landið var tekið undir búskap og
skógurinn „milli fjalls og fjöru“ var
höggvinn í eldivið og bitinn af bú-
fénaði. Löngu síðar byggðust upp
þéttbýlisstaðir, vegir, hafnir, orku-
ver og önnur nútímamannvirki. Allt
þetta rask hefur til orðið vegna nýt-
ingar okkar íbúanna á landinu og til
að standa undir tilveru okkar hér
úti í miðju Atlantshafinu.
Það verður aldrei fullkomin sátt
um breytingar sem fylgja nýtingu
landsins. Það er deilt um vegi, ný
hverfi, verksmiðjur, orkuver, hafn-
ir, flugvelli, háspennulínur og
margs konar aðra mannvirkjagerð.
Skógrækt er víðast talin af hinu
góða en ekki alls staðar og það er
deilt um ágæti lúpínu við land-
græðslu. Hin réttláta lausn, þegar
ólík sjónarmið ríkja, er að lýðræðið
gildir og ræður. Á Íslandi byggja
ákvarðanir um stórar framkvæmdir
á vönduðum undirbúningi og laga-
legum grunni og eins og í öðrum í
lýðræðisríkjum eru ákvarðanir
teknar af til þess
kjörnum fulltrúum
íbúanna.
Þegar ráðist var í
Kárahnjúkavirkjun
voru heimildarlög sam-
þykkt á Alþingi með
44 atkvæðum gegn
níu, tveir sátu hjá og
átta voru fjarstaddir.
Skoðanakannanir
bentu einnig til þess
að marktækur meiri-
hluti þjóðarinnar væri
hlynntur þessari virkj-
un og byggingu álvers á Reyð-
arfirði. Minnihlutinn var þó ekki
sáttur og eins og gjarnan vill verða
hafði hann sig mikið í frammi, langt
umfram hinn þögla meirihluta.
Um 85% allrar orku sem notuð er
á Íslandi er innlend, endurnýjanleg
og vistvæn, þ.e. jarðhitinn og vatns-
orkan. Tæp 15% eru olía á skip, bíla
og flugvélar, gasnotkun er óveruleg
og lítið eitt af kolum er notað í iðn-
aði. Þetta er einsdæmi á heimsvísu,
en þar er þessu nákvæmlega öfugt
farið. 85% af allri orkunotkun jarð-
arbúa byggjast á kolum, olíu og
gasi. Ef aðeins er litið til rafork-
unnar, eru 70% framleidd með elds-
neyti, mest kolum. Útblástur gróð-
urhúsalofttegunda frá öllum
þessum bruna er núna mest um
ræddi umhverfisvandi jarðarbúa.
Mig grunar að margir Íslend-
ingar geri sér ekki grein fyrir því
hvernig orkubúskapur heimsins er
saman settur og þar með hvað við á
Íslandi búum einstaklega vel í þess-
um efnum. Í þessu ljósi eru deilur
um orkuver á Íslandi með öðrum
hætti en annars staðar; orka fyrir
upphitun og rafmagn á Íslandi er
öll vistvæn og deilur um orkumál
snúast eingöngu um áhrif mann-
virkjanna sjálfra á umhverfið og
ásýnd þess. Íslendingar búa nú við
eitt ódýrasta og öruggasta orku-
kerfi sem til er í heiminum. Raf-
orka til heimila á Íslandi kostar
minna en í nágrannalöndunum í
Evrópu og engin þjóð á norðlægum
köldum slóðum býr við önnur eins
hlunnindi og hitaveitan er á Íslandi.
Orkufrekur iðnaður er ein þeirra
leiða sem við Íslendingar höfum
farið til skapa erlendar tekjur og
atvinnu. Á síðustu öld brutumst við
úr mikilli fátækt til hagsældar á
grunni vaxandi útflutnings. Tekjur
af fiskveiðum komu okkur áleiðis en
síðan kom vaxandi orkuframleiðsla
og ferðaþjónusta. Þessir þrír horn-
steinar erlendra tekna skila hver
um sig fjórðungi alls gjaldeyris Ís-
lendinga. Raforkan og heita vatnið
til almennings sparar mikla fjár-
muni sem annars færu í innflutt
eldsneyti. Orkusala til iðnaðar er
síðan útflutningsgrein. Frá iðn-
aðinum sjálfum koma jafnframt er-
lendar greiðslur fyrir laun starfs-
manna, kaup á þjónustu og opinber
gjöld.
Stjórnarformaður Íslandsstofu,
Friðrik Pálsson, orðaði það svo á
síðasta ársfundi hennar: „Ísland lif-
ir á útflutningi.“ Svo einfalt er það.
Efnahagsleg undirstaða þeirra lífs-
þæginda sem við búum við er ann-
ars vegar framleiðsla til eigin þarfa
í landinu og hins vegar hvers kyns
erlendar tekjur. Þar skilar orku-
framleiðslan og orkufrekur iðnaður
mjög stórum hlut við hlið annarra
atvinnugreina.
Ég hef starfað við undirbúning
og byggingu vistvænna orkuvera
allan minn starfsferil. Til þeirra
hefur verið vandað og umhverfinu
sýnd eins mikil virðing og mögulegt
og raunhæft hefur verið. Allir sjá
að frágangur við íslensk orkuver er
til mikillar fyrirmyndar. Ég lít því
ekki svo á að ég sé „landskemmari“
heldur er ég stoltur af ævistarfinu.
Ég tel að þeir sem við þetta starfa
hafi unnið þjóðinni mikið gagn og
stuðlað að bættum hag okkar sem
nú lifum og næstu kynslóða.
Frúnni á Laugarásveginum sendi
ég bestu kveðjur, hún ýtti við mér
að taka saman hugleiðingu um
þessi mál.
Kona í Laugar-
ásnum og orkumál
Eftir Sigurð S.
Arnalds
» Á sínum tíma var ég
talsmaður fram-
kvæmdanna við Kára-
hnjúkavirkjun og hún
hefur væntanlega þekkt
mig í því hlutverki.
Sigurður S
Arnalds
Höfundur er verkfræðingur.
hafa komið fram óraunhæfar hug-
myndir um að Reykjavíkurborg
kaupi allt flugvallarsvæðið í Vatns-
mýri fyrir 35-40 milljarða króna. Ár-
angurslaust hefur verið spurt hvort
borgin geti útvegað þetta fjármagn
án þess að ráðist verði á vinnandi
fjölskyldur með stórauknum álögum
sem rústa fjárhag heimilanna. En
hver vill borga nærri 40 milljarða
króna fyrir botnlaust svæði í Vatns-
mýri sem hentar illa fyrir íbúð-
arbyggð? Þessari spurningu vísa
Dagur B. og Jón Gnarr til föðurhús-
anna. Áhyggjufullir skattgreiðendur
gætu síðar meir spurt hvort núver-
andi borgarstjórnarmeirihluta yrði
stefnt fyrir dóm fari svo að íbúð-
arbyggð á þessu svæði sökkvi með
skelfilegum afleiðingum án þess að
skipt sé um jarðveg á 40-50 metra
dýpi. Vonsviknir kaupendur fast-
eigna á þessu svæði geta þá höfðað
skaðabótamál gegn núverandi borg-
arstjórnarfulltrúum, formanni borg-
arráðs og borgarstjóra sem nýtur
þess að afskræma í fjölmiðlum allar
staðreyndir tengdar sjúkrafluginu.
Þá geta áhyggjufullir landsmenn
spurt hvort meirihlutinn í borg-
arstjórn Reykjavíkur sem hefur allar
aðvaranir verkfræðinganna að engu
þurfi að svara fyrir mistök sín þegar
afleiðingarnar koma í ljós íslenskum
skattgreiðendum til mikillar hrell-
ingar. Þessi mistök verða skrifuð á
reikning núverandi borgarstjórn-
armeirihluta, borgarstjóra og for-
manns borgarráðs ef fasteignakaup
á botnlausu svæði í Vatnsmýri snú-
ast upp í pólitíska svikamyllu sem
andstæðingar Reykjavíkurflugvallar
þurfa aldrei að leiðrétta. Á forsíðum
dagblaðanna geta þá vonsviknir
skattgreiðendur séð fyrirsögnina,
svikamylla fyrrverandi borg-
arstjórnar afhjúpuð án þess að Jón
Gnarr og Dagur B. þurfi um ókomin
ár að vinna fyrir kaupinu sínu. En
hver ber ábyrgðina þegar misheppn-
uð tilraun til að byggja blandaða
stórborg í Vatnsmýri endar með
skelfingu og hefur í för með sér hol-
skeflu af skaðabótakröfum sem yrðu
þjóðarbúinu ofviða? Þingmenn
stjórnarflokkanna í Norðvestur- og
Norðausturkjördæmum skulu krefja
fyrrverandi fjármálaráðherra í Sam-
fylkingunni svara við þessari spurn-
ingu. Krafan um lokun norður-suður
brautarinnar sem pólitískir öfgahóp-
ar og óvandaðir fjölmiðlar styðja
snýst um að núverandi borgarstjórn
megi ákveða endalok innanlands-
flugsins að eigin geðþótta. Höfum
áfram 3 brautir í Vatnsmýri.
»Hver vill borga
nærri 40 milljarða
króna fyrir botnlaust
svæði í Vatnsmýri sem
hentar illa fyrir íbúð-
arbyggð?
Höfundur er farandverkamaður.
- með morgunkaffinu