Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
Nokkrum dögum
fyrr var annar kafli
leikinn í sjónvarpssal í
New York. Þar mætt-
ust njósnarar og við-
takendur upplýsinga,
sem hafði verið lekið, á
sviði. Þetta var merki-
legur viðburður þar
sem 400 blaðamenn
voru áhorfendur. Ég
var viðstödd.
Um var að ræða
upptöku á bandaríska
viðtalsþættinum
„Charlie Rose: Vikan“. Þar varði
Stewart Baker, sem áður var laga-
legur yfirráðunautur Þjóðarörygg-
isstofnunarinnar, NSA, fyrir gagn-
rýni, sem dunið hefur á henni síðan
Edward J. Snowden, fyrrverandi
verktaki stofnunarinnar, lak þús-
undum skjala, sem afhjúpuðu um-
fang eftirlits stofnunarinnar, til
Glenns Greenwalds, dálkahöfundar
hjá dagblaðinu The Guardian.
Ásamt Baker á sviðinu voru tveir af-
ar hugdjarfir blaðamenn, Janine
Gibson, ritstjóri Guardian í Banda-
ríkjunum, og Alan Rusbridger, rit-
stjóri The Guardian.
Málflutningur Bakers virtist snú-
ast um að búa til „nýtt viðmið“, sem
snerist um að ekki ætti að draga í efa
opinbert framfæri og hóta blaða-
mönnum, sem það gerðu. Ítrekað
lagði hann áherslu á að njósnirnar,
sem hefðu verið afhjúpaðar með
uppljóstrunum Snowdens, væru
„lögmætar“.
Þetta var sláandi fullyrðing.
Bandarísku öldungadeildarþing-
mennirnir Ron Wyden og Mark
Udall hafa lagt mikið undir, þar á
meðal möguleikann á að verða sak-
aðir um að hafa sjálfir birt leynilegar
upplýsingar, með varnaðarorðum
um að eftirlit NSA með tölvupóstum
Bandaríkjamanna ætti sér stað sam-
kvæmt leynilegum skilgreiningum
um „leynilegan lagabókstaf“ og
gagnrýni á NSA fyrir að rjúfa frið-
helgi einkalífs, sem varin er með
dómum, „mörg þúsund sinnum á
ári“. Leynileg lög, túlkuð á laun, eru
auðvitað engin lög. Þau eru hand-
bendi alræðishyggju.
Baker lét ekki staðar numið
þarna. Hann hélt ítrekað fram að
verkefnið Prism, sem Snowden
ljóstraði upp um, hefði verið unnið
undir eftirliti þingsins, þótt þing-
menn hefðu mótmælt því harðlega í
kjölfar uppljóstrananna að hafa
aldrei verið upplýstir um leynilega
upplýsingasöfnun NSA. Meira að
segja þingmenn í nefndinni, sem á að
hafa eftirlit með njósnastarfsemi,
gáfu út yfirlýsingar þar sem fullyrt
var að þeir hefðu verið afvegaleiddir
varðandi Prism.
Þegar ég spurðu beint hvort eft-
irlit NSA bryti í bága við fjórðu við-
bótargrein bandarísku stjórn-
arskrárinnar sem ver
Bandaríkjamenn fyrir „ósanngjarnri
leit og eignaupptöku“ af hálfu emb-
ættismanna stjórnvalda hélt Baker
því fram að hæstiréttur hefði úr-
skurðað um málið stofnuninni í vil.
Hann hélt því fram að í máli James
Clapper, yfirmanns njósnamála í
Bandaríkjastjórn, gegn Amnesty
International hefði dómurinn komist
að þeirri niðurstöðu að fólk afsalaði
sér friðhelgi einkalífs á netinu. Dóm-
urinn snerist hins vegar um brot
gagnvart fólki utan Bandaríkjanna.
Málflutningur Bakers endurómaði
nýlega í bréfi frá NSA til fjölskyldna
starfsmanna þar sem harmað var að
„uppsláttur“ í fjölmiðlum hefði sýnt
stofnunina sem „stjórnlaust fyr-
irbæri“ fremur en „þjóðargersemi“.
Þar er einnig að finna ósannindi og
fjölskyldurnar hvattar til að end-
urtaka þau. Í bréfinu er til dæmis
dregin fram fullyrðing NSA um að
eftirlit stofnunarinnar hafi leitt til
þess að „ráðagerðir um 54 hryðju-
verk“ hafi verið stöðvaðar. Wyden
og Udall og margir aðrir hafa þrá-
faldlega borið brigður á þá fullyrð-
ingu á þeirri forsendu að fyrir henni
skorti allar sannanir.
Önnur ótrúleg atvik gerðust á
sviðinu. Rusbridger hélt á loft hörð-
New York | Nýjasti kaflinn í yf-
irstandandi leikriti um embætt-
ismenn í öryggismálum í Bandaríkj-
unum var yfirlýsing Donalds
Sachtlebens, fyrrverandi sprengju-
sérfræðings bandarísku alríkislög-
reglunnar, FBI, sem sakaðar er um
að leka leynilegum upplýsingum, um
að hann væri sekur. Játningin var
lögð fram eftir að rannsakendur
báru kennsl á hann með því að verða
sér á laun úti um skrár um símtöl
blaðamanna hjá fréttastofunni Asso-
ciated Press.
um diski, sem hafði haft
að geyma skjöl, sem
Snowden lak. Starfs-
menn Guardian höfðu
borað gat í gegnum
hann frekar en að af-
henda hann breskum
stjórnvöldum. Hann
kvaðst hafa diskinn
með sér hvert sem
hann færi.
Eftirtektarverðust
voru þó orðaskiptin
undir lokin. Þegar ljóst
var að Baker hefði ekki tekist að
vinna áhorfendur á sitt band veitti
hann blaðamanni Huffington Post
sláandi svar við spurningu um
James Rosen, fréttamann Fox
News. Bandaríska dómsmálaráðu-
neytið leitaði í tölvupóstum hans og
símtalaskrám eftir að hann hafði
flutt fréttir byggðar á leynilegum
upplýsingum varðandi Norður-
Kóreu. Blaðamaðurinn spurði hvort
vænta mætti annarra rannsókna af
þessu tagi.
Baker svaraði að það væri eitt að
birta upplýsingar, sem hefði verið
lekið, eins og Guardian hefði gert og
annað mál og mun alvarlegra að taka
þátt í „glæpsamlegu samsæri“ með
því að „sækjast eftir“ leka leynilegra
upplýsinga. Síðan sagði hann að Gu-
ardian hefði „dregið rauða línu“ í
þessu sambandi – og Guardian hefði
síðan farið yfir hana í fréttaflutningi
um efnið, sem Snowden lak. Hann
notaði hugtökin „glæpsamlegt sam-
særi“ og „samsærisnautur“ hvað eft-
ir annað á þessu stigi umræðnanna.
Frá áhorfendum heyrðist hvæs og
var hrópað „Þú hótaðir þeim!“ Á
sviðinu ríkti þögn, kannski af því að
menn voru í losti. Síðan bað Rus-
bridger af talsverðri yfirvegun Ba-
ker nokkrum sinnum um að end-
urtaka orð sín. Baker gerði það. Og
Rusbridger bað Baker nokkrum
sinnum að samsinna sér að Guardian
hefði ekki tekið þátt í „glæpsamlegu
samsæri“ með því að „sækjast eftir“
leynilegum upplýsingum, sem hefði
verið lekið. Fyrir Rusbridger vakti
augljóslega að fá fram yfirlýsingu,
sem nota mætti til að verja Guardian
vegna þess að honum hlýtur að hafa
verið ljóst að sú hugmynd, sem Ba-
ker virtist vera að planta, gæti síðar
orðið að ákæru um glæp.
En hvað er „að sækjast eftir“? Er
það að hringja aftur þegar heimild-
armaður hefur haft samband? Er
það fundur með ritstjóra til að ræða
heimildarmann, sem býður leyni-
legar upplýsingar? Er það að setja
upp dulkóðað netfang til samskipta
við heimildamanninn eins og Green-
wald gerði að beiðni Snowdens?
Einu sinni var það kallað „blaða-
mennska“.
Hótun Bakers um málsókn í her-
bergi fullu af blaðamönnum virtist
ætlað að kæfa alvöru fréttaflutning
um þjóðaröryggismál. Í þokkabót
hefur Baker látið skína í sams konar
hótun á prenti með því að færa rök
að því að með því að ákveða að eyði-
leggja gögn Snowdens í viðurvist
breskra njósnara, frekar en að af-
henda þeim þau hafi Guardian valið
að „fórna breskum upplýs-
ingalindum og aðferðum“. Þetta
orðalag fer nærri því að vera hótun í
garð þeirra ritstjóra Guardian, sem
áttu í hlut, að þeir yrðu ef til vill sak-
aðir um að hafa „liðsinnt óvininum“,
sem heyrir undir bandaríska löggjöf
um njósnir.
Hótunin fór ekki framhjá við-
stöddum blaðamönnum. Baker hafði
ekki bara reynt að hræða Guardian
til hlýðni, hann var að senda öllum
blaðamönnum í Bandaríkjunum
skilaboð: Gangið til liðs við NSA eða
hypjið ykkur.
Njósnarar gegn skrásetjurum
Naomi Wolf
»Hótun Bakers um
málsókn í herbergi
fullu af blaðamönnum
virtist ætlað að kæfa al-
vöru fréttaflutning um
þjóðaröryggismál.
AFP
Undir eftirliti „Eyðið upplýsingunum um mig,“ segir á skilti mótmælanda í
Þýskalandi. Höfundur heldur því fram að bandarísk yfirvöld reyni að þagga
niður í fjölmiðlum svo að þeir fjalli ekki um upplýsingar, sem hefur verið
lekið um persónunjósnir Þjóðaröryggisstofnunarinnar.
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660
Hjarta úr hvítagulli
25 punkta demantur
99.000,-
Gullhálsmen
Handsmíðað 14K, 2 iscon
26.000,-
Demantssnúra
9 punkta demantur, 14K
57.000,-
Demantssnúra
30 punkta demantur, 14K
157.000,-
Gullhringur
Handsmíðaður 14K, 2 iscon
45.700,-