Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 32

Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 ✝ ArnþrúðurStefánsdóttir fæddist í Reykjavík 22. mars 1947. Hún lést á líknardeild Landspítalans 4. október 2013. Foreldrar henn- ar voru Þóranna Rósa Valdimars- dóttir, f. 12.6. 1924, d. 30.1. 2013 og Stefán Gestsson, f. 21.2. 1917, d. 7.7. 1979. Systkini Arnþrúðar eru: Guðrún Stef- ánsdóttir, f. 4.6. 1944, Gunnar Þór Stefánsson, f. 3.3. 1950 og Hanna Stefánsdóttir, f. 17.6. 1954. Arnþrúður giftist Kristjáni Sigurði Birgissyni árið 1970, þau skildu. Börn Arnþrúðar og Krist- jáns eru: 1) Lilja Kristjánsdóttir, f. 11.3. 1970. Börn Lilju eru: Jó- hanna Kristín, f. 23.1. 1987, Lár- us Aron, f. 18.12. 1997 og Ásdís Vala, f. 14.6. 2007. 2) Stella Kristjáns- dóttir, f. 24.9. 1972. 3) Arna Valdís Kristjánsdóttir, f. 4.6. 1975, unnusti hennar er Vilberg Kristinn Kjart- ansson, f. 18.10. 1973. Börn Vilbergs eru Kristófer, f. 26.11. 1999, Daníel Ísak, f. 1.1. 2004 og Ólöf Jóhanna, f. 23.11. 2006. 4) Fósturdóttir Arnþrúðar og Kristjáns er Jóhanna Kristín Gísladóttir, f. 23.1. 1987, maki hennar er Jana Björk Ingadóttir, f. 16.4. 1975. Börn Jönu eru Andreas René, f. 6.6. 1998 og Sa- rah Lind, f. 26.10. 2003. Útför Arnþrúðar fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 11. október 2013, og hefst athöfnin kl. 15. Það er svo óraunverulegt að vera sest niður til að skrifa minn- ingargrein um hana elsku mömmu, klettinn í lífi mínu. Án hennar mér við hlið er auðvelt að fyllast ótta og kvíða, en ég veit að ef mér tekst að öðlast aðeins brot af hennar styrk þá hef ég ekkert að óttast. Fallega, góða mamma mín, var mögnuð manneskja og algjör skvísa. Alltaf svo fín og lekker, eins og hún væri á leiðinni á ball. Þrátt fyrir þá erfiðleika sem á vegi hennar urðu var hún ávallt sterk sem klettur og kvartaði aldrei yfir neinu. Síðustu tvö ár vorum við syst- urnar og mamma duglegar að nýta tímann í að njóta lífsins sam- an. Við fórum saman í utanlands- ferðir, leigðum sumarbústað, fór- um oft út að borða og áttum yndislega skemmtilegar og góðar stundir saman. Mamma var ekki bara móðir mín heldur var hún al- veg einstaklega góð og náin vin- kona og gerðum við nánast allt saman. Mamma starfaði sem sjúkraliði eins lengi og heilsa hennar leyfði en Það var henni í blóð borið að annast aðra. Ef eitthvað bjátaði á í fjölskyldunni var hún alltaf mætt til að sjá til þess að allt væri í sóma. Þolinmæðin sem hún sýndi okkur systrunum var óendanleg. Í æsku okkar var heimilið aldrei gæludýralaust, þrátt fyrir að mamma væri lítið gefin fyrir dýr í fyrstu. Eftir að við systurnar flutt- umst að heiman og tókum gælu- dýrin með okkur gat hún vart hugsað sér gæludýralaust heimili og fékk hún sér kisuna Castró, einstakan og ofdekraðan hefðar- kött. Einu sinni týndist Castró og eyddi mamma dögunum saman í að keyra um og leita að kisanum sínum. Ég gleymi aldrei gleðinni þegar hún hringdi í mig eftir tveggja mánaða leit og sagði að Castró væri fundinn. Sorgin var þó líka til staðar því kisi var að- framkominn af næringarskorti. Á dýraspítalanum þar sem ég vann hlúðum við að Castró eins og við gátum en tókst ekki að bjarga lífi hans. Eftir það gekk mamma allt- af með kattarmat í veskinu ef hún skyldi rekast á týnda og svanga kisu. Ég er viss um að þau hafi átt saman fagnaðarfundi föstudaginn 4. október þegar mamma lést. Mamma var orðin mjög þreytt síðustu vikurnar en þrátt fyrir þann skelfilega sjúkdóm sem krabbamein er, tók hún þessu öllu með einstöku æðruleysi og hræddist hvorki né kveið dauðan- um. Það eina sem reyndist henni erfitt var að skilja okkur stelpurn- ar eftir. Kannski var það þess vegna sem hún hélt svona lengi í lífið. Ég er þakklát fyrir að hafa haldið í höndina á henni þar til yf- ir lauk. Ég kyssti hana á ennið og hvíslaði að nú mætti hún hvíla sig. Ég bjóst ekki við að hún tæki mig á orðinu, en varla mínútu seinna tók hún sinn síðasta andardrátt. Núna er hún á betri stað. Ég er viss um að nokkrir loðnir ferfæt- lingar hafa tekið fagnandi á móti henni. Elsku mamma mín, ég veit að þú munt vísa mér veginn þar til við hittumst á ný. Sólin hefur skinið síðan þú kvaddir og ég er viss um að þú situr við stjórnvöl- inn þarna uppi. P.s. Palli kemur og syngur um lífið fyrir þig eins og þú óskaðir. Þín ávallt elskandi dóttir, Stella Kristjánsdóttir. Elsku mamma mín er fallin frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Veikindi sín tókst hún á við með ótrúlegu æðruleysi. Við vissum í hvað stefndi en sárs- aukinn við að sleppa takinu virðist endalaus. Mamma var ekki bara mamma, hún var allt. Hún var fal- leg að utan sem innan, elskaði dýr og menn og var sérstaklega barn- góð. Trygg og trú, sterk og stóð alltaf uppi sem sigurvegari þegar erfiðleikar dundu á. Hún var mín allra besta vinkona, ég fékk alltaf ráð við öllu hjá mömmu. Við vor- um alltaf að bralla eitthvað sam- an. Ég var spurð fyrir mörgum árum þegar ég var að fara með múttu eitthvað á snattið: „Bíddu hvað ertu bara alltaf með mömmu þinni?“ Já það var eiginlega bara þannig. Hún var vinur vina minna, hún var alltaf með í öllu. Mamma vann sem sjúkraliði og hreinlega elskaði að hjálpa öðr- um. Þegar ég var lítil var oft bara gott að vera lasin því mamma var heimsins besta hjúkka og enn í dag ef ég verð lasin þá hugsa ég hvað væri nú gott að vera hjá mömmu. Hún var svo hlý og góð, með mikinn húmor, alltaf hlátra- sköll í kringum hana og þá sér- staklega þegar fjölskyldan og þær systur voru saman komnar. Hún var líka prakkari og sagði mér margar sögur þegar hún var yngri, já hver hefði trúað því að mamma var að teika strætó. Eitt sinn er þær Dúna unnu saman í Freyju og þurftu að taka stætó var Dúna eitthvað sein og strætó að keyra í burtu. Mamma var sest í vagninn og horfði bara á Dúnu hlaupa á eftir strætó án þess að segja neitt, henni fannst bara svo fyndið að sjá hausinn á henni hoppa upp og niður í glugganum. Dúna kom auðvitað allt of seint í vinnuna og frekar fúl en mamma bara hló. Þegar hún og Hanna voru í dúkkulísó var Hanna alltaf að herma og mamma sagði ohh, þarf þín alltaf að gera eins og mín. Við kölluðum ykkur samlokurnar því þið voruð svo nánar systurnar. Það er svo sárt að hugsa til þess að það verða ekki til fleiri minn- ingar um manneskju sem ég elska svo mikið, en er svo þakklát fyrir allar þær góðu sem ég á og mun varðveita í hjarta mínu að eilífu. Það er svo stutt síðan mamma og hennar systkini studdu ömmu í sínum veikindum en hún lést fyrr á þessu ári. Mamma átti ekki auð- velt með að vera hinum megin í hlutverkinu, en henni er ég þakk- lát fyrir að leyfa mér að styðja sig alla leið í baráttunni. Kósíkvöldin, utanlandsferðirnar og allt sem við brölluðum saman þakka ég fyrir. Það er ótrúlegt að 3 vikum fyrir andlátið hélt hún stelpupartíið langþráða. Mamma kvaddi með stæl. Ég vil skila þakklæti til Frið- björns læknis, starfsfólks krabba- meinsdeildar, heimahlynningar og líknardeildar fyrir þeirra góða starf. Elsku besta mamma mín, það var svo erfitt að sleppa hendinni þinni eftir að þú kvaddir. Þú sagð- ir mér 2 dögum áður að þú værir tilbúin og knúsaðir mig og kysstir á kinnina og sagðir í síðasta sinn ég elska þig, kiss kiss og mússí mú. Við áttum gott samtal þá. Ég elska þig mamma, takk fyrir allt. Við hittumst hinum megin. Augun mín eru eins og þín með ofurlitla steina. Ég á þín og þú átt mín. Þú veist hvað ég meina. (Skáld Rósa) Þín Arna Valdís. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Kæra Addý. Fyrir fimm árum kynnti Jó- hanna Kristín, sem nú er eigin- kona mín, mig fyrir fjölskyldu sinni. Þar varst þú lítil og nett, fín og vel til höfð með fallegt bros og einstaklega góða nærveru. En ég komst nú fljótt að því að þú varst nú líklega samt sú stærsta og sterkasta í fjölskyldunni. Sú sem ég kynntist var dugmikil, sterk og ótrúlega blíð kona sem var tilbúin að gera allt fyrir börnin sín og sína nánustu. Þessi fallega sál sem þú varst tókst mér eins og ég er og börnunum mínum eins og þau væru þín eigin barnabörn, fyrir það mun ég verða að eilífu þakklát. Ég tel mig vera afar lán- sama að hafa fengið að kynnast svona fallegum einstakling sem hefur verið góð fyrirmynd fyrir okkur. Með þér upplifðum við margar skemmtilegar stundir og harma ég því að samverustund- irnar verði ekki fleiri. Þú sýndir fólki ávallt umhyggju og ástúð og var það líklega ekki síst vegna þeirra eiginleika sem þú valdir sjúkraliðann sem þitt starf. Fyrir 1½ ári síðan greindist þú með ólæknandi sjúkdóm og á þessum tíma sá ég enn betur styrk þinn og þrautseigju. Þú tókst sannarlega áskorunum lífs- ins með reisn og ákvaðst að njóta tímans sem eftir var vel og það gerðirðu svo sannarlega. Utan- landsferðir með dætrum þínum, óteljandi matarboð með girnileg- um réttum à la Addý sem klikk- uðu aldrei og margar aðrar stund- ir sem munu lifa skýrt í minningum okkar. Það var fallegt og heiðskírt kvöld þegar þú varst tilbúin að kveðja vini, ættingja og þennan heim sem þú sannarlega markaðir þín spor í. Kveðjustund er alltaf erfið, en hún var falleg og friðsæl og er ég afar þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá þér og þínum ættingj- um á þeirri stund. Við munum ávallt geyma þig í okkar hjarta. Takk fyrir allt og allt, elsku Addý okkar. Hvíl þú í friði. Þín tengdadóttir, Jana Björk og börn. „Bognar aldrei, brotnar í byln- um stóra seinast.“ Þessar ljóðlín- ur voru það fyrsta sem kom upp í huga minn þegar amma kvaddi þennan heim. Sjálfsagt var það vegna þess að oft gekk á ýmsu í gegnum árin en aldrei lét hún nokkurn bilbug á sér sjá. Þær eru margar minningarnar sem koma upp í huga mér þegar ég hugsa um ömmu, en fyrst og fremst er það djúpstætt þakklæti sem ég finn fyrir í hennar garð. Amma var nefnilega engin venju- leg amma, hún var í rauninni ekk- ert amma mín nema þá kannski í afar takmarkaðri meiningu orðs- ins. Það er engu barni sjálfgefið að eiga góða að þegar það fæðist inn í þennan heim, en það átti ég svo sannarlega því allt frá fyrsta degi tók amma mér sem sínu eigin barni og ól mig upp sem eina af eigin dætrum. Ömmu-titillinn festist samt við hana. Ætli það hafi ekki verið vegna þeirrar mannvirðingar sem ávallt ein- kenndi öll hennar samskipti við fólk, allir voru jafnir í hennar huga hvernig svo sem fyrir þeim var komið, og hlutirnir voru kall- aðir sínum réttu nöfnum. Það var margt sem við amma brölluðum saman á mínum yngri árum. Þar sem ég er töluvert yngri en uppeldissystur mínar þá upplifði ég ömmu sennilega á ann- an hátt en þær, ég hafði hana svo- lítið meira útaf fyrir mig. Ofarlega í huga mér eru allar sumarbústaðarferðirnar með ömmu og afa í fallega bústaðinn þeirra, oft fórum við bara tvær en þrátt fyrir það höfðum við alltaf nóg fyrir stafni. Á daginn fórum við í gönguferðir um skóginn eða heimsóttum ættingja á Skagan- um, en á kvöldin sátum við við ol- íuljós, spiluðum rommí, kváðumst á, leystum krossgátur eða spjöll- uðum um allt milli himins og jarð- ar. Póllandsferðin okkar verður seint úr minnum máð en við flutt- umst þangað vegna vinnu afa í nokkra mánuði. Ferðalög okkar um Pólland voru stórkostleg, mik- ið kapp var lagt á að sýna mér og segja frá sögufrægum slóðum. Við amma áttum ljúfar stundir saman í Póllandi, meðan afi vann nýttum við tímann í að skoða heimabæinn okkar og ferðirnar á hina ýmsu markaði virðast ótelj- andi þegar litið er til baka. Amma sá svo sannarlega til þess að dag- skrá okkar væri ávallt þéttskipuð frá morgni til kvölds. Á unglingsárunum fjarlægðist ég fjölskylduna og þar með talið ömmu, en eins og stundum vill verða með unglinga þá fannst mér ég standa ein gegn öllum heims- ins vandamálum, enda gæti eng- inn sýnt þeim nokkurn skilning. Auðvitað var raunin ekki sú, amma var mín stoð og stytta í gegnum þessi erfiðu ár þó ég hafi ekki séð það fyrr en löngu seinna og er ég henni ævinlega þakklát fyrir allt það sem hún gerði fyrir mig á þeim tíma. Síðustu ár nýtti ég til þess að kynnast ömmu upp á nýtt og sé ég svo sannarlega ekki eftir því. Vandræðagangur unglingsáranna og misgáfulegar ákvarðanir voru að baki og þurfti ekki að ræða frekar en ég vildi. Amma elskaði mig alltaf sem eigin dóttur og tók mér eins og ég var. Eftir að amma greindist með þann illvíga sjúkdóm sem krabb- inn er var hver góð stund nýtt til samveru. Margt var gert á skömmum tíma og minningarnar, sem urðu til þá, munu ylja mér um ókomna tíð. Jóhanna. Í dag kveð ég elskulega systur mína, hana Addý, systir sem var svo góð við alla, bæði manneskjur og dýr, systir sem var góð og fal- leg jafnt að innan sem utan. En Addý var ekki bara systir mín, hún var líka langbesta vinkona mín. Það er skrítið að hugsa til þess hvernig lífið verður án hennar, hún var svo stór partur af lífi mínu. Nú verður ekki lengur hugsað til þess eða sagst ætla að skreppa til Addý systur eða að við Addý systir séum að fara að gera hitt eða þetta. Maður vill ekki hugsa til þess að það verði ekki fleiri minningar um skemmtilega hluti sem við munum gera saman, en maður verður að hugsa um all- ar þær góðu minningar um þá hluti sem við höfum gert saman og sem betur fer eru þær margar og dýrmætari en gimsteinar og perlur. Maður er aldrei tilbúinn að sleppa takinu á þeim sem maður elskar. Og vorið leið og við tók sumarið, við áttum samleið, gengum hlið við hlið. Lifðum marga gleði og gæfustund, við örlög grá við áttum seinna fund. Lífið er vatn sem vætlar undir brú, og enginn veit hvert liggur leiðin sú. En þegar lýkur jarðlífsgöngunni, aftur hittumst við í blómabrekkunni. Og þó nú skilji leiðir að um sinn, þér ávallt fylgir vinarhugur minn. Ég þakka fyrir hverja unaðsstund, við munum aftur eiga endurfund Alltaf fjölgar himnakórnum í, og vinir hverfa, koma mun að því. En þegar lýkur jarðlífsgöngunni, aftur hittumst við í blómabrekkunni (Magnús Eiríksson) Ég á eftir að sakna þín óend- anlega mikið, elsku Addý. Þín systir, Hanna. Elsku frænka mín. Það voru forréttindi að eiga þig sem frænku, þú varst með svo gott og hlýtt hjarta og hafðir áhuga á því sem var að gerast í lífi þeirra sem nærri þér stóðu. Þegar ég var lítil var það allra skemmti- legasta að koma í heimsókn til ykkar upp í bústað. Það var topp- urinn á tilverunni, þá var spilað og kjaftað, farið út í göngu, grillaður góður matur og margt fleira. Þú varst sannkallaður stuðbolti sem skemmtilegt var að vera nálægt. Þegar þið systurnar þrjár komuð saman þá var sko engin logn- molla. Það var kjaftað og hlegið og það var hlegið hátt og mikið. Vinkonur mínar hafa orð á því enn þann daginn í dag hversu mikið þið systurnar gátuð hlegið og hversu gaman þið höfðuð það. Það er óhætt að segja að þið systur hafið verið hrókur alls fagnaðar þar sem þið komuð. Minningarnar eru svo margar og góðar, minn- ingar sem fá tárin til að spretta fram af því maður veit að þessi tími kemur aldrei aftur en mikið er dýrmætt að hafa átt þessar stundir. Ég mun varðveita minn- inguna um þig, yndislega frænka mín. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa) Elsku Stella, Arna, Jóhanna, Lilja og aðrir aðstandendur megi kærleikurinn og ástin sem Addý umvafði ykkur með alla tíð veita ykkur styrk og leiða ykkur áfram um lífsins veg. Guðrún Vala Jónsdóttir. Í dag kveð ég Addý frænku mína, eina þá sterkustu konu sem ég hef kynnst. Systurnar Addý og mamma mín hafa alltaf verið í góðu sam- bandi og samgangur milli fjöl- skyldna okkar verið mikill. Dætur Addýjar voru á svipuðum aldri og ég og ófáar stundirnar sem við lékum okkur saman, vorum í pössun hvert hjá öðru eða bara fengum að gista, hvort sem var á heimilum okkar eða í sumarbú- stað Addýjar. Við frændsystkinin brölluðum ýmislegt og gátum verið nokkuð uppátækjasöm. Þá var ekkert mikið verið að hanga í tölvum eða horfa á sjónvarp, heldur var óbeisluð orkan leyst úr læðingi. Heimsóknum mínum var oft líkt við að minkurinn væri kominn í hænsnakofann, svo mikill var ærslagangurinn. Ég man þó aldr- ei eftir að hafa verið skammaður fyrir of mikil læti hjá Addý, en eins og gengur og gerist þegar ærslagangurinn er fullmikill, vill eitthvað fara á mis og einhverjir hlutir gerast sem hefðu kannski ekki átt að gerast, samanber skrúðgöngur um stofugólfið með misjöfnum endi og ýmislegt fleira. Þá var maður frekar hvattur til að Arnþrúður Stefánsdóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR H. JÓNATANSSON, Grænlandsleið 34, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 28. september. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigríður Guðmundsdóttir, Lea Kristjánsdóttir, Helgi Guðmundsson, Þ. Kolbrún Jónatansdóttir, Ómar Guðmundsson, Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir, Sandra M. Guðmundsdóttir, Júlíus V. Finnbogason og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRNI PÉTUR BJÖRGVINSSON sjóntækjafræðingur, Kjalarsíðu 14b, Akureyri, lést á lyfjadeild Sjúkrahússins á Akureyri aðfaranótt þriðjudagsins 8. október. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 18. október kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri og Krabbameinsfélag Akureyrar. Laufey Vilhjálmsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Þorgerður Helga Árnadóttir, Ingi Rafn Ingason, Sævar Már Árnason, Gunnhildur Helgadóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.