Morgunblaðið - 11.10.2013, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 11.10.2013, Qupperneq 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 læra af mistökum sínum og málið afgreitt. Þolinmæði þessarar góðu konu virðist hafa verið enda- laus. Eftir því sem árin liðu og við urðum eldri, voru samgöngur ekki jafn tíðar en vináttan alltaf sterk og alltaf hittumst við reglu- lega. Ég vona og veit að við frændsystkinin munum halda því áfram um ókomna tíð þó Addý verði ekki með okkur, nema í huga. Það var því dýrmætt að hún skyldi hafa náð að kíkja á okkur frændsystkinin núna í sumarlok þegar við hittumst og áttum góða kvöldstund saman. Eitt verkefni á ég þó eftir að gera fyrir Addý, verkefni sem hún óskaði eftir að ég myndi taka að mér og mun gera með stolti – það verður mér heiður að fylgja þér síðasta spölinn, elsku frænka. Megir þú hvíla í friði. Elvar Jónsson. Elsku Addý. Þá er þessari þrautagöngu lok- ið. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þig sem vinkonu. Fátt er betra en góð vinkona. Ótal minningar streyma í hugann. Minningar um samstarfsárin okkar á Landakoti, Hrafnistu, Grensási og í Kápunni. Bútasaumsnámskeiðin, þorra- blótin og sumarbústaðarferðin síðasta sumar. Minningar úr Danmerkurferðum okkar til Ernu þar sem við sátum undir epla- og perutrjánum, nutum lífs- ins og hlógum. Ferðuðumst og kíktum í búðir. Til stóð að við fær- um aftur í septemberlok. Nú ert þú lögð upp í aðra ferð. Hvað þú varst óþreytandi að snúast með Ernu í búðir, ísbúð og bíó. Alltaf til í allt. Þú varst stolt af dætrum þínum og talaðir um hvað þær væru skemmtilegar. Þú notaðir síðustu mánuðina vel. Ferðaðist og naust þess sem lífið hafði upp á að bjóða. Ógleymanlegt er glæsi- boðið sem þú hélst þrem vikum áður en þú lést. Hafðu þökk fyrir liðnu áratugina. Erla. Hvernig skrifa ég minningar- grein um konu sem hefur verið í mínu lífi frá því ég man eftir mér og hún ekki eldri en þetta? Ég sagði við Örnu mína að mér þætti við allt of ungar til að vera að missa foreldra okkar. Addý tók veikindum sínum með svo miklu æðruleysi eins og henni einni var tamt. Hún náði að njóta lífsins með dætrum sínum þessi síðustu ár og það fannst mér svo dásam- legt. Við Arna höfum margt brallað í gegnum árin, verið vinkonur nánast frá fæðingu þar sem okk- ur var plantað hlið við hlið á Álf- hólsveginum og þar upphófst ævilangur vinskapur okkar. Við prakkararnir spurðum Addý stundum þegar hún var nýlögst á koddann eftir næturvakt, dauð- þreytt milli svefns og vöku, hvort við mættum fá pening fyrir nammi eða hvort við mættum fá tyggjó af því við vissum að svarið yrði alltaf já af því hún var svo þreytt, eða hún myndi bulla eitt- hvað sem við gætum hlegið að, og svo þegar hún vaknaði þá sögðum við voða saklausar: „Já en við spurðum þig og þú sagðir já!“ Addý erfði þessi prakkarastrik aldrei við okkur, hún var svo ynd- isleg og ýmsar prakkarasögur hefur maður heyrt af henni sjálfri í seinni tíð þannig að kannski skildi hún okkur bara vel. Ég tengi líka Cliff Richards við Addý og á minningu um okkur Örnu í stofunni á Álfhólsveginum í náttkjólum að dilla okkur með Cliff Richards-plötu í botni af því það var það eina sem við fundum í safninu hennar sem hægt væri að hlusta á. Setningin „Eins míííín“ er líka eitthvað sem við vinkon- uhópurinn höfum tekið upp eftir Addý og Hönnu og við hlæjum dátt þegar við segjum þetta og hugsum til ykkar systra. Það var alltaf svo gott að koma til Addýjar, alveg sama hvar hús- næðið var, Álfhólsvegi, Hraun- tungu, Grafarholti eða núna síðast á Strikinu. Alltaf fann maður að maður var velkominn og umvaf- inn englum. Addý elskaði engla eins og ég geri. Kannski einmitt vegna hennar geri ég það. Alla- vega var eitthvað sem fékk mig til að trúa á engla. Að koma til Ad- dýjar og draga Kærleikskorn var einn af föstu liðunum og í hvert sinn er ég sé kærleiksspjöld verð- ur mér hugsað til þín, elsku Addý mín. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þig í mínu lífi. Ég mun sakna dillandi hláturs ykkar systra sem var engu líkur. Þið Hanna, tvær í eldhúsinu yfir kaffibolla og hlátrasköllum er eitthvað sem situr algjörlega fast í minninu mínu þegar ég hugsa um þig. Guð og englar geymi þig, elsku Addý, við sjáumst hressar síðar. Elsku Arna mín, Villi, Stella, Jóhanna, Jana, Lilja, Hanna, Dúna, Gunni og fjölskyldur, megi allir englar gefa ykkur styrk og kraft í gegnum sorgina, og mun- um eftir og varðveitum gleðina sem við áttum með Addý. Það gilda má einu hvort ég áleiðis fer eða staldra hér ögn við og bíð. Þótt tómið og treginn mig teymi út á veginn ég veit ég hef alla tíð. Verið umvafin englum sem að vaka hjá meðan mannshjörtun hrærast þá er huggun þar að fá. Þó að vitskert sé veröld þá um veginn geng ég bein því ég er umvafin englum aldrei ein - aldrei ein. (Valgeir Skagfjörð) Englakveðjur, Anna Clara og Marólína Fanney. Komið er að kveðjustund. Vin- kona mín Arnþrúður, kölluð Addý að hennar ósk, er látin, eft- ir hetjulega baráttu við krabba- mein. Hart var barist, en allt kom fyrir ekki, sjúkdómurinn hafði betur að lokum. Addý mín var allan tímann jákvæð og lét ekki bugast. Ég dáðist að henni, hún var ákveðin í að njóta lífsins með- an hægt var. Ég kynntist Addý þegar fv. eiginmaður hennar, Kristján S. Birgisson og eiginmaður minn, Pétur Kristjánsson, fóru að starfa saman, sem vélstjórar á togaran- um Frera. Það samstarf stóð í tæp 30 ár og þann árafjölda hef ég þekkt Addý. Margar minningar koma upp í hugann, sjómannadagurinn var alltaf sérstakur hátíðisdagur hjá okkur, og héldum við hann hátíð- legan saman í mörg ár. Ógleym- anlegar helgarferðir fórum við til Kaupmannahafnar og Barcelona með áhöfn Frera. Alltaf var gott að koma í heimsókn til hennar og svo mætti lengi telja. Eftir að hún veiktist fórum við í leikhús og út að borða og skemmtum okkur vel. Þessar stundir eru mér dýrmætar í dag. Þrem vikum áður en hún lést bauð hún mér á konukvöld til sín, þar mættu systur hennar, barna- barn og vinkonur og skemmtu sér vel, ekki síst Addý sjálf. Þessi kvöldstund með henni lýsir henni vel, hún hefur án efa verið að kveðja okkur. Komið er að leiðarlokum, ég heimsótti hana kvöldið áður en hún kvaddi þennan heim, mjög var af henni dregið, en ég vil trúa því að hún hafi vitað af mér. Ég vil kveðja hana með vísu- korni, sem lýsir ósk minni til hennar. Á svefnsins örmum svífur sálin í draumlönd inn, líður um ljósa heima líkama fráskilin. (Gísli frá Uppsölum) Innilegar samúðarkveðjur frá okkur Pétri til dætra, barnabarna og systkina Addýjar. Guðrún V. Árnadóttir. ✝ Magnús Krist-inn Guðmunds- son fæddist að Kleifum í Ög- urhreppi 24. ágúst 1934. Hann lést á Heibrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 2. október 2013. Foreldrar hans voru Snjólaug Magnea Long Bjarnadóttir, f. 31.7. 1913, d. 21.8. 2005 og Guðmundur Magn- ús Magnússon, f. 27.6. 1897, d. 23.11. 1969. Magnús var elstur 8 systkina. Hin eru: Bjarni Ragn- ar, f. 1936, d. 1944, Gyða Ólöf, f. 1940, Hjördís Karen, f. 1943, d. 1999, Bjarni Ragnar, f. 1945, Ragnheiður, f. 1946, Sveinn Halldór, f. 1948, Hildur Re- bekka, f. 1952. Samfeðra Munda Kristbjörg, f. 1926, d. 2009. Magnús kvæntist 1956, Hall- dóru Ástdísi Guðmundsdóttur frá Sænautaseli. Þau skildu. Þau eignuðust þrjár dætur. Þær eru: átti eftir að nýtast honum vel. Fyrstu starfsárin vann hann al- menn verkamannastörf og við sjómennsku. Einnig eitt sumar hjá lögreglunni á Ísafirði. Árið 1955 hóf hann störf hjá lögregl- unni í Reykjavík og starfaði þar til 1970. Meðfram lög- reglustörfum vann hann ýmis störf sem til féllu. Átti og rak ásamt félaga sínum seiðaeld- isstöð í nokkurn tíma. Eftir að hann hætti í lögreglunni vann hann í tvö ár í laxeldisstöðinni í Kollafirði. Árið 1972 keyptu Magnús og Bjarni bróðir hans ásamt eiginkonum sínum tvær samliggjandi jarðir, Svelgsá og Hóla í Helgafellssveit. Jörðunum var seinna skipt og komu Hólar í hlut Magnúsar og byggði hann upp þá jörð. Með búskapnum stundaði hann ýmis störf. Við skilnað 1978 voru Hólar seldir og flutti Magnús til Reykjavíkur. Árið 1980 keyptu Magnús og Guðrún Gríshól í Helgafellssveit. Hann stundaði búskap þar til dánardags. Magnús tók þátt í fé- lagsmálum bænda og sveit- arstjórnarmálum og var oddviti sveitarstjórnar í 12 ár. Útför Magnúsar verður gerð frá Stykkishólmskirkju í dag, 11. október 2013, og hefst athöfnin klukkan 14. Þórhalla Björk, f. 2.8. 1956, maki Eggert Eggertsson. Hafdís Magnea, f. 1.6. 1961, maki Bragi Ingimarsson. Erna Bára, f. 20.5. 1965, maki Ásgeir Bragason. Magnús kvæntist 1972 Svanfríði Jak- obínu Stefánsdóttur frá Siglufirði, þau skildu. Magnús kvæntist 1979 Guð- rúnu Karólínu Reynisdóttur frá Hrísum, þau eignuðust tvo syni. Þeir eru: Guðlaugur Magnús, f. 25.7. 1980, maki Hrafnheiður Valdís Baldursdóttir, Guð- mundur Karl, f. 10.6. 1988. Barnabörnin eru 12 og barna- barnabörnin eru 12. Magnús var þrjá vetur í barnaskóla á Hnífsdal og einn vetur í heimavistarskólanum í Reykjarnesi. Seinna tók hann einn vetur í smíðaskólanum Hólmi í Landbroti, en það nám Nú er komið að kveðjustund, elsku pabbi og tengdapabbi. Hafðu hjartans þökk fyrir sam- fylgdina í gegnum árin. Guð blessi þig í nýjum heimkynnum. Við vitum að vel hefur verið tekið á móti þér. Við eigum ljúfar minningar um þig. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Takk fyrir allt og allt. Þórhalla og Eggert. Í dag kveðjum við góðan vin okkar hjóna. Kynni okkar hófust þegar Magnús og Guðrún kaupa Gríshól og hefja þar búskap, en þar höfðu tengdaforeldrar mínir búið um árabil. Það var ómet- anlegt fyrir gömlu hjónin að fá að dvelja hjá þeim vestur á Gríshóli nokkra daga á hverju sumri með- an heilsa þeirra leyfði það. Sömu- leiðis vorum við hjónin alltaf vel- komin í heimsókn til að halda tengslum við fæðingarstað konu minnar. Fyrir þetta erum við af- ar þakklát. Fljótlega eftir jarð- arkaupin voru byggð stór fjárhús við flatgryfju og gerðar endur- bætur á íbúðarhúsi utan sem inn- an, allt unnið af Magnúsi bónda sem var hagur vel. Um síðustu aldamót voru bændur hvattir til að fara út í vatnsaflsvirkjanir til raforkusölu, þau hjónin ásamt sonum komu upp slíkri virkjun með eljusemi og dugnaði, það tókst hjá Magnúsi að komast í gengnum kerfið og fá lánafyrir- greiðslu út á framkvæmdina. Upp komst virkjun og gengur vel. Fljótlega eftir þetta fór heilsu hans að hraka, en hann gekk til verka meðan heilsan leyfði. Að leiðarlokum þökkum við Sirrý allar góðar stundir með þeim á Gríshóli. Guðrúnu, börn- um og öðrum aðstandendum sendum við samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Guðmundur og Sigríður. Baráttunni er lokið og nú hef- ur hann Magnús vinur okkar lok- ið sinni ævigöngu. Þessi stæði- legi maður varð að lúta í lægra haldi fyrir veikindum sem ein- hvern veginn soguðu úr honum kraftinn smám saman. Þegar við hjónin vorum að íhuga kaup á jörðinni Svelgsá af Bjarna bróður Magnúsar og Brynju konu hans kynntumst við líka Magnúsi og hans fjölskyldu á Gríshóli og urðu þau kynni að góðri vináttu. Höfum við átt margt saman að sælda síðan. Þau hafa nýtt túnin á Svelgsá, sem kemur okkur vel, og við alltaf getað leitað til þeirra ef þurfti. Við höfum komið í heimsókn til þeirra og þau til okkar og not- ið góðra stunda saman. Við vor- um saman á gamlárskvöld nokkrum sinnum og svo má lengi telja. Magnús var fæddur á Borg í Skötufirði og hafði miklar taugar þangað alla tíð. Hann var bóndi og vanur að taka til hendinni svo ekki var auðvelt fyrir hann að sitja inni í bæ veikur, þegar mik- ið lá við í búskapnum. Skapmaður var Magnús og hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og lá ekki á þeim. Fyrir það var hann oft dæmdur og ekki alltaf réttlátlega en þannig vill það verða í mannleg- um samskiptum, það eru ekki alltaf allir á sama máli. Við þökkum Magnúsi sam- fylgdina. Fjölskyldunni vottum við sam- úð. Jóhann, Vilhelmína (Villa) og fjölskylda, Svelgsá. Magnús Kristinn Guðmundsson ✝ Sverrir Stef-ánsson fæddist í Hafnarfirði 15. maí 1949. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 4. októ- ber 2013. Foreldrar hans voru Stefán Guðjón Sigurðsson, kaup- maður, fæddur í Hafnarfirði 21. september 1911, d. 29. maí 1988 og Laufey Jak- obsdóttir Thorarensen, fædd í Reykjavík 20. ágúst 1917, d. 11. febrúar 2000. Systur hans eru: Sigríður Stefánsdóttir, f. 8.8. 1936, gift Garðari Ástvaldssyni, f. 22. september 1936, d. 10. febrúar 2005. Synir þeirra eru Stefán og Halldór Jón. Elínborg Matthildur Kjærnested, f. 21. september 1945, gift Símoni Kjærnested, þau eiga synina: Guðmund, Stefán og Brynjar. Borghildur Stefánsdóttir, f. 17. janúar 1948. Hrefna Magdalena Stefánsdóttir, f. 14. september 1950, d. 23. maí 2007. Synir hennar eru Kristján Geir og Sindri. Sverrir giftist Sesselju Svein- björnsdóttur, f. 11. desember 1953, ár- ið 1979, þau skildu árið 1985. Sonur Sverris af fyrra sambandi er Svavar Þór, f. 10. júlí 1970, hann á dæturnar Sonju Líf og Írenu Líf. Dætur Sverris og Sesselju eru Laufey, f. 11. nóvember 1976, maki hennar er Hugi Freyr Ein- arsson, þau eiga synina Alexand- er Nökkva, Viktor Frey og Óð- inn Frey. Stella, f. 16. júlí 1980, maki hennar er Örnólfur Krist- inn Bergþórsson, þau eiga börn- in Kötlu Liv, Gabríel Ómar, Bergþór Snæ, Stefán Mána, Kar- en Elvu, Sesselju og Heklu Sif. Sverrir lærði húsasmíði og hlaut nafnbótina húsasmíða- meistari árið 1982. Vann hann við það alla tíð af mikilli natni og var mikils metinn í sínu fagi. Útför Sverris verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 11. október 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Fallinn er frá drengur góður, Sverrir Stefánsson eða Stevens eins og hann var á góðum stund- um kallaður í vinahópnum. Á ung- lingsárum var Sverrir oft með sér eldri félögum enda þroskaður, myndarlegur mjög, gekk vel í skóla og hafði einstakt lag á að umgangast fólk. Sverrir var sjarmör með stórt hjarta, blíður, brosmildur, kíminn, stríðinn og hafði gaman af óvæntum atvikum. Á yngri árum var Sverrir óstýri- látur og líflegur og margt brallað í anda tíðarandans á Bítlatíma- bilinu. Sverrir stundaði iðnnám í tréiðn, lauk meistaraprófi í þeirri iðn og vann við trésmíðar hjá ýms- um byggingaraðilum en mest var hann sjálfstætt starfandi. Hann ræktaði vini sína og fjölskyldu sem honum þótti svo vænt um, en fór oftast leiðir eftir eigin höfði og þroskaðist það aldrei af honum. Nú seinni árin voru samskipti við Sverri nánast eingöngu í síma en iðulega hringdi hann um helgar, mis-upplagður, oft aumur og end- aði samtalið ávallt þannig: Erum við ekki vinir? Megi guðs blessun styrkja fjöl- skyldu Sverris. Þínir vinir, Kristinn og Björg. Sverrir Stefánsson ✝ Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, MAGNÚS PÉTURSSON, Lækjargötu 32, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi að kvöldi miðvikudagsins 2. október. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 14. október kl. 13.00. Valdís Björgvinsdóttir, Heba og Linda Björk Magnúsdætur. ✝ Móðir okkar, FANNEY MAGNÚSDÓTTIR, Norðurbrún 1, lést föstudaginn 4. október. Jarðsungið verður frá kapellu Fossvogs- kirkju föstudaginn 18. október kl. 15.00. Halldór Viðar Halldórsson, Birgir Viðar Halldórsson, Konráð Viðar Halldórsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, BJÖRG H. FINNBOGADÓTTIR frá Ólafsvík, verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugar- daginn 12. október kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á söfnunarreikning Ólafsvíkurkirkju nr. 0194-05-401286, kt. 500269-4999. Finnbogi H. Alexandersson, Sigríður M. Halldórsdóttir, Svanhildur Alexandersdóttir, Marinó H. Sveinsson, Stefán Alexandersson, Laila Michaelsdóttir, Lára Alexandersdóttir, Örn Alexandersson, Aðalheiður Steinunn Eiríksdóttir, Atli Alexandersson, Elfa Eydal Ármannsdóttir og ömmubörnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.