Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 34

Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 ✝ Paula AndreaJónsdóttir fæddist í Álasundi, Noregi 13. janúar 1920. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. nóvember 2013. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jón Bergþór Jónsson leikfangasmiður og sjómaður, f. á Melum, Kjalarneshreppi, Kjós., 23.2. 1889, d. 22.8. 1981, og Elise Sivrine Eriksen Jónsson húsmóðir, f. í Álasundi 12.7. 1884, d. 20.5. 1969. Systkini Paulu voru Sig- urður Jón Jónsson klæðskeri, f. 1916, d. 2009. Kristbjörg Margott Jónsdóttir húsmóðir, f. 1918. Elise Kristine Jóns- dóttir húsmóðir, f. 1922, d. 2011. Jón Jónsson ökukennari og vagnstjóri, f. 1924. Sam- mæðra Laurence Jóhanna Helgason húsmóðir, f. 1908, d. 1993. Eiginmaður Paulu var Páll Guðnason bankafulltrúi, f. 22. 6. 1920, d. 20.2. 2000. Þau gift- ust 28.3. 1945. Foreldrar Páls voru Guðni Pálsson skipstjóri, f. í Götu í Selvogi 29.4. 1891, d. 9.6. 1967, og Jórunn Þórey Björgúlfsdóttir, f. 1983. Egill Björgúlfsson, f. 1990. Rann- veig Pálsdóttir textílkennari og hönnuður, f. 18.12. 1958, eiginmaður Juan Carlos Pardo félagsliði og stuðningsfulltrúi, f. 1957. Börn: Stefán Úlfur Brynjólfsson, f. 1979, Valdi- mar Kristján Pardo, f. 1990, Roberto Andrés Pardo, f. 1992. Paula fæddist í Noregi 1920 og fluttist til Íslands 1929 með fjölskyldu sinni. Þegar til Ís- lands kom byggði faðir hennar lítið hús vestur í Skjólum í Reykjavík þar sem fjölskyldan settist að. Paula stundaði nám við Hússtjórnarskóla Íslands og nokkru síðar nam hún kjólasaum. Paula kynntist Páli Guðnasyni 19 ára gömul og gengu þau í hjónaband sex ár- um síðar. Á tímabili rak Paula litla saumastofu þar sem hún saumaði kjóla. Páll og Paula byggðu sína fyrstu íbúð á Bú- staðavegi 55 og síðan að Hagamel 35 með þremur sam- starfsfélögum Páls í Útvegs- bankanum, þar sem hann starfaði lengst af. Þegar börn- in flugu úr hreiðrinu starfaði Paula í mötuneyti Mennta- skólans við Hamrahlíð og síðar um tíma við þrif hjá Flug- félaginu SAS á Íslandi. Paula var félagi í Kvenfélagi Hrings- ins um 40 ára skeið. Paula verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 11. október 2013, og hefst athöfnin kl. 15. Magnúsdóttir hús- móðir, f. í Reykja- vík 16.7. 1897, d. 23.3. 1981. Börn Paulu og Páls: Guðni Berg- þór Pálsson arki- tekt, f. 29.12. 1946, eiginkona Guðríður Tóm- asdóttir skrif- stofumaður, f. 1950. Fósturbarn: Dagur Tómas Jónsson, f. 1978. Börn: Ragnheiður Andrea Guðnadóttir, f. 1995, d. 1995. Andrea Guðrún Guðnadóttir, f. 1996, Ragnheiður Elísa Guðna- dóttir, f. 1996. Hilmar Pálsson, f. 1949, d. 1949. Páll Hilmar Pálsson, f. 1950, d. 1951. Þór Elís Pálsson, f. 23.9. 1952, kvikmyndagerðarmaður og kennari, eiginkona Jóhanna Bernharðsdóttir hjúkr- unarfræðingur og lektor við HÍ, f. 1954. Börn: Harpa Elísa Þórsdóttir, f. 1978, Tómas Þórsson, f. 1986. Bernharð Þórsson, f. 1990. Lísa Páls- dóttir, f. 13.12. 1953, dag- skrárgerðarmaður, eig- inmaður Björgúlfur Egilsson tónlistarmaður og málari, f. 1957. Börn: Páll Úlfar Júl- íusson, f. 1973, Helga Dís Nú þegar móðir mín er látin í hárri elli þá koma upp margar minningar um báða foreldra mína. Ég er þakklát fyrir að hafa haft móður mína svona lengi í mínu lífi, hún var alltaf til stað- ar fyrir okkur systkinin, tilbúin með aðstoð ef með þurfti, alveg fram í það síðasta. Þau voru bæði yndislegar manneskjur, rausnarleg og gjafmild á vináttu og umhyggju fyrir okkur systkinunum, vinum sínum og vandamönnum. Við ferðuðumst mikið saman bæði innanlands og erlendis. Fórum á skíði á sunnudagsmorgnum, mamma smurði nestið og allir af stað. Á sumrin var farið í tjaldferðalög oft margar fjöl- skyldur saman og ekki ósjaldan var Elín Bjarnadóttir æskuvin- kona með. Alltaf voru vinir okkar systk- inanna velkomnir inn á heimilið og oft glatt á hjalla. Faðir minn Páll Guðnason féll frá í febrúar árið 2000, þá 80 ára. Mamma var mjög dugleg að halda áfram með sitt líf eftir að pabbi féll frá. Hún fór í ferðalög með Hringskonum bauð heim vin- konum, fór í veislur, stundaði saumaklúbbinn sem var virkur í 70 ár, alltaf glæsilega til fara. Mamma var heimavinnandi húsmóðir þar til ég var 16 ára. Ég man þegar kunningjakona hringdi í hana og spurði hvort hún þekkti einhverja konu sem gæti unnið hálfan daginn og smurt samlokur. Nei, en þú, mamma, sagði ég. Mamma vann í nemendaeldhúsi MH fram að sjötugu, eignaðist þar góðar vinkonur og hafði gaman af að umgangast unga fólkið. Mamma var í Kvenfélagi Hringsins í 40 ár. Ransý, besta vinkona mömmu, var formaður Hringsins og vildi endilega hafa hana með. Mamma saumaði jólaskraut allan ársins hring fyrir jólabasar Hringsins. Gaf hún börnum og barnabörnum handunnið jólaskraut á hverj- um jólum. Við systkinin getum skreytt jólatrén okkar ein- göngu með hennar handverki. Móðir mín var mikil hannyrða- og saumakona, það hafði hún frá móður sinni Elísu. Við mamma áttum margar samverstundir, ræddum um hannyrðir, fórum á kaffihús og tilheyrandi. Mamma var listakokkur, naut þess að bjóða heim og elda dýrindis rétti. Ég veit að bæði börn og barnabörn höfum öll fengið matarást á mömmu. Þegar ég elda eitthvað af hennar góðu uppskriftum segja börnin mín þetta er næstum eins gott og hjá ömmu Paulu. Juan Carlos, ég og strák- arnir fluttum heim frá Svíþjóð 1993. Þá myndaðist ótrúlega gott samband milli foreldra minna og Juans. Það varð strax mikil og gagnkvæm væntum- þykja. Það hjálpaði eiginmanni mínum þar sem foreldrar hans voru jú hinum megin á hnett- inum, í Chile. Því miður gat hann ekki komið og kvatt mömmu en segir að hann sendi henni góðar hugsanir. Ég skipti um trú fyrir 13 ár- um og varð SGI búddisti. Mamma studdi mig í minni iðk- un og í fyrra kenndi ég mömmu að kyrja Nam-mjóhó-renge-kjó. Hún sagði mér að hún kyrjaði á hverjum degi og fannst henni líða vel af því. Við fjölskyldan fluttum aftur til Stokkhólms í Svíþjóð fyrir 2 árum. Ég er þakklát elskulegri móður minni fyrir öll árin sem við nutum saman, alla umhyggjusemina sem hún sýndi mér, börnum mínum og maka. Hún var sú sem við söknuðum mest á Ís- landi. Kveð þig með söknuði, elsku mamma. Þín dóttir, Rannveig Pálsdóttir. Paula Andrea Jónsdóttir fæddist í Álasundi í Noregi, átti norska móður og íslenskan föð- ur. Þar bjó fjölskyldan þar til Paula var 9 ára er þau fluttu til Íslands. Paula hafði alla tíð góð tengsl við móðurland sitt og átti þar ættingja og vini sem hún átti ávallt gott samband við. Hún hélt einnig ýmsum sið- um og venjum í heimilishaldi sínu sem rekja má til hins norska uppruna hennar og fjöl- skyldan fékk að njóta, ekki síst um hátíðir. Þeirra stunda með Paulu er nú saknað. Hún bjó sér og fjölskyldu sinni fallegt heimili, var frábær kokkur og naut þess að elda bæði hollan og góðan mat, allt til hins síð- asta. Eins og gefur að skilja breyttist líf Paulu umtalsvert við fráfall Páls eiginmanns hennar en hún hélt áfram sínu reglusama lífi, hugsaði vel um heilsuna og ræktaði fjölskyldu og vini. Paula var flink í höndum svo af bar, smekkvís og hafði gott fegurðarskyn. Þessir hæfileikar nýttust vel í áratuga starfi hennar fyrir Kvenfélagið Hringinn þar sem hún saumaði og heklaði fallega hluti sem síð- an fóru til fjáröflunar. Hún hafði mikinn metnað fyrir starfi Hringsins og starfaði þar af lífi og sál. Þar átti hún góðar vin- konur og naut samvista og sam- vinnu við þær um langt árabil. Í starfi sínu með Hringskonum átti Paula innihaldsríkar stund- ir sem færðu henni bæði gleði og stolt enda hafa Hringskonur veitt málefnum veikra barna og Barnaspítala Hringsins ómet- anlegan stuðning í gegnum ár- in. Það drjúga dagsverk, henn- ar og þeirra, ber svo sannarlega að þakka. Paula var einstaklega fé- lagslynd kona og naut sín vel í hópi fólks, jafnt ungra sem ald- inna. Hún átti ekki í neinum vandræðum með að spjalla við barnabörnin um daginn og veg- inn. Hún var frjálsleg í fasi og þau höfðu gaman af hve nýj- ungagjörn amma gat verið þrátt fyrir háan aldur. Hún var ung í anda, minnug og fylgdist vel með öllum afkomendum sínum. Í vor og sumar tók hún þátt í útskriftum ungmenna í fjölskyldunni þar sem hún naut sín vel og samgladdist unga fólkinu. Þær stundir eru nú sérstaklega varðveittar ásamt öðrum góðum minningum með þeim hjónum Paulu og Páli. Við Paula áttum alla tíð góða vin- áttu, hún sýndi mér ávallt hlýju og fylgdist vel með því sem ég fékkst við í mínu daglega lífi. Hún tók mér fallega sem tengdadóttur og hún kvaddi mig líka fallega þegar hún vissi hvert stefndi. Fyrir þá góðu kveðju er ég þakklát eins og fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Blessuð sé minning sóma- konunnar Paulu Andreu Jóns- dóttur. Jóhanna. Paulu kynntist ég fyrst í sextugsafmæli tengdaföður míns, Páls Guðnasonar heitins, úti í Kaupmannahöfn. Ekki veit ég hvernig henni leist á slán- ann síðhærða, en eitt er víst, að fordómalaus var hún ávallt og dæmdi ekki fólk eftir lífsstíl eða útliti. Hún var þessi klettur sem sameinaði fjölskylduna, hélt jólaboð fram á tíræðisald- ur og elskaði „fest“. Í 40 ár starfaði hún með Kvenfélaginu Hringnum og mætti þar til starfa nánast allt fram í andlát- ið. Paula sá alfarið um sig sjálfa og bjó á eigin heimili allt sitt líf. Eldaði pínulítil lamba- læri með bernaise sósu, og stundum var einn lítill Vermo- uth eftir matinn. Hún var einn allra besti kokkur sem ég hef kynnst, blómkálssúpan dásam- leg og gerði fiskibollur sem enginn leikur eftir. Ég kveð þig með virðingu og þakklæti. Undir klettunum í Álasundi hún Paula oft sér undi og seinna, seinna í fögrum lundi hún Palla fann á ástarfundi. (Björgúlfur Egilsson) Þinn tengdasonur, Björgúlfur (Böggi). Ég var farin að halda að amma væri ódauðleg. Hún var búin að vera hérna svo lengi, fannst eins og hún myndi bara verða hérna alltaf. En það kom að því og hún er farin til afa, þau eru sennilega ein- hversstaðar á dansleik. Þau hittust nefnilega þannig, á ein- hverjum dansleiknum. Fóru oft á offiseraböllin á stríðs- árunum því afi vann fyrir am- erísku lögguna. Ég mun sakna blómkálssúp- unnar, fiskibollanna og íssins (og þúsundkallanna sem hún laumaði stundum að manni). En ég held ég muni sakna litlu jóla-dúllanna mest sem hún saumaði, af öllum þeim hlutum sem hún bjó til. Ég á samt fullt af þeim, svo það er allt í lagi. Ég mun sakna þess að fara í jólaboð til hennar, þó að þau hafi ekki verið heima hjá henni síðustu árin. Það var samt allt í lagi, sami maturinn var á boðstólnum og sama fólkið að tala við. En núna verða jóla- boðin án hennar, það verður skrítið. Ég mun líka sakna þess að fara til hennar í kaffi með mömmu. Maturinn heima hjá ömmu var alltaf betri en heima hjá mér. Þó ég væri að borða það sama. Ég man þegar amma hætti að vinna og fór á ellilífeyri. Hún hafði verið að vinna í mötuneytinu í MH og öll barnabörnin sem ætluðu þang- að vildu að hún væri þar. En hún hefði sennilega þurft að hætta hvort sem er, þar sem nemendur sjá um mötuneytið núna. Hún var nefnilega mikill kokkur og enginn skildi af hverju hún hefði ekki unnið við það á einhvern hátt. Ætli hún hafi nokkuð viljað það, hún var alltaf meiri sauma- kona en kokkur. Hún sagði mér einu sinni að á stríðs- árunum hefði hún saumað föt á allar flottustu konurnar í bænum og þær þurftu ekki einu sinni að koma að máta. Fötin pössuðu alltaf. Amma var svolítið þannig. Það passaði alltaf allt. Mat- urinn passaði, fötin pössuðu, hún passaði börnin, börnin lærðu af ömmu að passa ætti dótið hennar. Hún passaði líka vel í mitt líf. En nú vantar hana. Það er ömmufar í hjart- anu. Hún er auðvitað þar enn en kannski ekki eins áþreif- anleg. Ég mun þurfa að venj- ast því, en hún verður alltaf þar að einhverju leyti. En það verður erfitt, það verður erfitt að hitta ekki þessa virðulegu konu sem hún var reglulega og spjalla. Helga Dís Björgúlfsdóttir. Paula Andrea Jónsdóttir ✝ Anne Bakfæddist á Fre- deriksberg í Kaup- mannahöfn 29. ágúst 1966. Hún lést 18. ágúst 2013. Hún var dóttir hjónanna dr. Chris- ten og Karen Bak. Christen kenndi um langt árabil á DTU, rak svínabú og eig- ið fyrirtæki. Karen starfaði sem tanntæknir svo lengi sem heilsan entist. Bróðir Anne er Peter Bak, giftur Marg- areth ÓConnor, þau eiga þrjú börn, Karen, Thomas og Ellen. Anne giftist Magnúsi Lár- ussyni, félagsfræðingi og áfeng- isráðgjafa, börn þeirra eru Freydís og Jakob. Dóttir Magn- úsar af fyrra hjónabandi, Íris, og hennar fjöl- skylda áttu sífellt stærra pláss í hjarta Anne. Anne og Peter ólust upp í for- eldrahúsum en urðu fyrir þeirri ógæfu að missa móður sína úr krabbameini. Anne var rétt orðin 6 ára þegar móðir henn- ar dó. Seinni kona Christens heitir Inge. Þau skildu, og eftir það bjó Anne hjá föður sínum þar til hún lagðist í ferðalög og fluttist til Íslands. Minningarstund um Anne verður haldin í kapellunni í kirkjugarðinum í Hafnarfirði í dag, 11. október 2013, og hefst athöfnin kl. 14. Ég kynntist Anne fyrst snemmsumars 1990 þegar við dvöldum saman á sveitasetri fyrir sunnan fjall okkur báðum til mikillar gleði og heilsubótar. Anne hafði verið þarna ári áður og var því vel kunnug öllum staðháttum, orðin forfrömuð í fræðunum og vissi hvað okkur var fyrir bestu. Það var nefni- lega ekki ýkja hátt á okkur risið sem dvöldum með henni þarna enda komin til að takast á við erfiðan og illskeyttan sjúkdóm. Anne hafði það fram yfir okkur hin að vera komin í verulega góðan bata en var þarna komin til að styrkja sjálfa sig í bar- átunni. Það kom strax í ljós að Anne var fæddur leiðtogi en hún sagði okkur miskunnarlaust til syndanna ef svo bar undir en var þó alltaf ákaflega góður vin- ur í raun og stutt í hlátur og gleði. Það mynduðust sterk vin- áttubönd meðal okkar sem þarna dvöldu og höfum við mörg verið í nánu sambandi síðan. Sambandið hefur þó verið misnáið eins og gengur en með okkur dvaldi Magnús Lárusson en Anne og Magnús felldu síðar saman hugi. Þau Magnús og Anne reistu sér bú fyrst í Hafnarfirði, þar sem þau bjuggu í nokkur ár þar til þau fluttu vestur að Stað- arfelli en þar hafði Magnús tek- ið við stöðu staðarhaldara. Í framhaldi af dvölinni fyrir vest- an fluttu þau hjón síðan til Dan- merkur þar sem Anne hóf nám í dýralækningum sem hún lauk með miklum sóma. Eftir að þau hjón höfðu dvalið um stund í Danmörku festu þau kaup á bú- garði þar sem þau hafa búið síð- an en þar gátu þau haldið hesta og Anne reisti dýralæknastofu sem hún sinnti af miklum eld- móð þar til yfir lauk. Það er misjafnt hvað á okkur er lagt í þessu lífi en þau Anne og Magn- ús fengu svo sannarlega sinn skerf af mótlæti og erfiðum við- fangsefnum sem þau tókust þó á við í sameiningu af mikilli elju og dugnaði. Þau misstu fyrsta barnið sitt rétt við fæðingu en slík reynsla er mörgum ofviða og öllum ákaflega erfið. Eftir að þau voru búin að búa í Dan- mörku í fáein ár og Anne komin áleiðs í sínu námi í dýralækn- ingum skall enn ein ógæfan yfir er Anne greindist með illvígan sjúkdóm. Anne tókst á við sjúk- dóminn af miklum styrk og í mörg ár hafði hún betur þrátt fyrir að læknar og aðrir í kerf- inu teldu stöðuna vonlausa. Við sem vorum heima á Íslandi og fylgdumst með úr fjarlægð dáð- umst að kjark og óstöðvandi viljastyrk Anne í barátunni og ávallt stóð Magnús við hlið hennar eins og klettur. Oft voru sigrar og vonin kviknaði um að bjart væri framundan en að lok- um hafði hinn illvígi sjúkdómur þó yfirhöndina. Við hjónin eru forsjóninni af- ar þakklát fyrir að hafa fengið að eiga Anne að vini. Elsku Magnús, Freydís og Jakob, megi guð gefa ykkur styrk á þessari erfiðu stundu. Kristberg og Guðrún. Anne Kjeldahl Bak✝ Ástkær faðir okkar, HALLGRÍMUR ÞÓRÐARSON netagerðarmeistari, Heiðarvegi 56, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja þriðjudaginn 8. október. Útförin verður auglýst síðar. Þórður, Einar, Halldór, Heimir og Jónína Hallgrímsbörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF ÞÓRARINSDÓTTIR íþrótta- og handavinnukennari, sem lést miðvikudaginn 2. október, verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn 15. október kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík. Ágúst Þór Árnason, Alma Oddgeirsdóttir, Guðjón Trausti Árnason, Kerstin E. Andersson, Guðbjörg Gígja Árnadóttir, Sigurður Már Jónsson, Jóhanna Harpa Árnadóttir, Þorsteinn Páll Hængsson, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir ástvinir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.