Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 36

Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 ✝ Magnús Jón-asson fæddist í Stardal, Kjal- arnesi, 11. mars 1928. Hann lést á heimili sínu að Eirhömrum í Mos- fellsbæ 1. október 2013. Foreldrar hans voru hjónin Jónas Magnússon bóndi í Stardal og verk- stjóri hjá Vegagerðinni, fædd- ur í Úthlíð í Biskupstungum 24. júlí 1890, d. 12. ágúst 1970 og Kristrún Eyvindsdóttir hús- freyja, fædd í Úthlíð í Bisk- upstungum 11. apríl 1895, d. 20. mars 1974. Systkini Magn- úsar voru: Egill, f. 14. sept- ember 1926, d. 23. júlí 2011, Eyvindur, f. 30. desember 1930, d. 25. mars 2005 og hálf- systir. Ágústa, f. 8. mars 1915, og Magnús, f. 3. mars 2005. Þórður er giftur Guðrúnu Arn- björgu Sævarsdóttur, f. 3. ágúst 1971. Börn þeirra eru Unnur Lilja, f. 4. mars 1997, Magnús Sævar, f. 4. mars 2000 og Sævar Jón, f. 24. maí 2004. Magnús var uppalinn í Star- dal. Hann gekk í barnaskóla á Klébergi og í Héraðsskólann í Reykholti. Einnig lauk hann prófi frá Búnaðarskólanum á Hvanneyri. Magnús var alla sína starfsævi bóndi í Stardal fyrir utan eins vetrar vinnu á tveimur búnaðarskólum í Nor- egi. Hann var virkur í fé- lagsstörfum og var í stjórnum ýmissa félaga, þar með talið í stjórn hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur og Sláturfélagi Suðurlands. Einnig var hann áhugasamur um skógrækt og sat í stjórnum skógrækt- arfélaga sveitar og sýslu. Útför Magnúsar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 11. októ- ber 2013, og hefst athöfnin kl. 13. d. 25. maí 1972. Magnús kvænt- ist 24. október 1964 Þórdísi Jó- hannesdóttur frá Heiðarbæ í Þing- vallasveit, f. 20. febrúar 1934. For- eldrar hennar voru hjónin Jó- hannes Svein- björnsson, f. 22. júní 1905, d. 19. desember 1992 og Margrét Þórðardóttir, f. 29. nóvember 1907, d. 31. desember 1974. Magnús og Þórdís eignuðust þrjú börn, Jónas, f. 8. ágúst 1965, d. 30. maí 1973, Jóhann- es, f. 24. febrúar 1967 og Þórð, f. 14. janúar 1971. Jóhannes er giftur Tinnu Stefánsdóttur, f. 28. júlí 1971. Þau eiga þrjú börn, Stefán f. 30. janúar 1996, Þórdísi, f. 29. september 1997 Nú er elsku tengdafaðir minn, Magnús Jónasson í Stardal, allur. Ég kynntist honum og Þórdísi tengdamóður minni fyrst fyrir rúmum 20 árum þegar við Þórður vorum að draga okkur saman. Það var gott að koma í Stardal, enda úrvalsfólk og skemmtilegt sem þar bjó. Það hefur alltaf verið gestkvæmt á því heimili, enda margir sem hafa verið þar í sveit, haft þar hesta eða tengjast þeim hjónum með einhverjum hætti. Fólk heldur tryggð við hjónin í Stardal. Alltaf voru fjörugar um- ræður við eldhúsborðið eða í fjós- inu, þjóðmálin voru krufin til mergjar og þau rædd ítarlega. Varla voru margir sem dvöldu í Stardal án þess að smitast af sannfæringu Magnúsar, enda skynsamur maður og rökfastur. Komst ég líka fljótt að því að Star- dalsbræður báðir voru vel þjálf- aðir í að standa fyrir máli sínu. Magnús var hagur og hafði mikið verksvit. Hann var vanur að starfa einn og kunni að vinna sér í haginn þannig að hann gæti klár- að verk sem flestir hefðu þurft manninn með sér í. Hann fór líka vel með tæki og tól svo gamlir traktorar gengu endalaust, 56 ára Farmallinn er til að mynda enn nothæfur. Ef vantaði varahluti þá voru þeir bara smíðaðir. Hann var líka virkur í ýmsum félagsmálum, sat til dæmis í stjórnum Mjólk- urfélags Reykjavíkur og Slátur- félags Suðurlands á miklum um- brotatímum hjá síðarnefnda félaginu. Okkur var líka alltaf ljóst að það var ekkert vit að kaupa kjöt af öðrum en SS. Magnús var dugnaðarforkur, ekkert annað í boði ef halda skyldi myndarbú í Stardal, sem liggur nokkuð hátt yfir sjávar- máli. Þau Þórdís eignuðust þrjá syni en misstu þann elsta í hörmulegu bílslysi sem markaði líf þeirra alla tíð síðan. Þau hafa þó uppskorið sem til var sáð með yngri sonum sínum en þeir eiga hvor um sig þrjú börn sem eru ákaflega hænd að afa og ömmu. Hugurinn er nú hjá Þórdísi sem stendur á tímamótum við missi lífsförunautar til fimm ára- tuga. Elsku Magnús. Það voru for- réttindi að fá að kynnast þér. Þú varst maður sem sérhver yrði bættari með að taka sér til fyr- irmyndar, rólegur og drengur góður með óskeikula dómgreind. Það var aldrei neitt vesen, alltaf hægt að treysta á að skynsamlega væri tekið á hlutunum. Síðast en ekki síst kunni ég að meta góða kímnigáfu þína og lundarfar. Þakka þér fyrir stundirnar sem við áttum saman. Ég kann enn betur að meta þær nú þegar þú ert horfinn á braut. Þú getur horft á lífsverk þitt og verið sátt- ur við hvernig þú hagaðir þínum málum. Góður orðstír lifir mann- inn. Guðrún. Að koma að Stardal var ávallt eins og koma á annað heimili ungs barns eða unglings sem naut þeirra forréttinda að geta gist hjá Magnúsi frænda, sem jafnan var reiðubúinn að umbera misgagn- legan ungan bróðurson sinn, hvort sem var að vetri eða sumri, stundum fyrirvaralaust. Það voru óneitanlega forréttindi að fá að vera í Stardal í góðu yfirlæti, fá að umgangast bústörfin og læra á hið nána samspil manna og dýra, náttúrunnar og mikilvægi þeirra fyrir tilveru okkar sjálfra. Þegar fram liðu stundir lengdist sumar- dvölin og framlag til búverkanna samhliða vaxandi. Það var því verðugt að fá að endurgjalda fyrri velgjörðir þó með öðrum hætti væri. Magnús var einstaklega sam- viskusamur, hagsýnn og vand- virkur sem og fjölhæfur maður. Enda var það viðhorf hans að bændur yrðu að geta bjargað sér í sem flestu. Í störfum hvort sem var með búfénaðinn, vélar eða annað var lögð mikil alúð við öll verk og umgengni var ætíð til fyr- irmyndar. Þá sjaldan sem Magn- úsi þótti ástæða til að bera sín verk við árangur annarra var það fyrst og síðast sem skilaboð um það hverju vandvirkni og góð um- hyggja skilaði. Þau voru ætíð næg verkin, hvernig sem viðraði og alltaf hægt að gera meira og bet- ur. Glaðlyndi og bjartsýni ein- kenndu viðhorf Magnúsar til lífs- ins. Oft var slegið á létta strengi, jafnvel spaugað og horft á hliðar hinar bjartari þótt dimmt væri yf- ir eða lítil von um þurrk og góða heyskapartíð. Þá voru þjóðmálin oft rædd í Stardal, enda mörg tækifæri til þess og návígið mikið við bústörfin. Þó ljóst væri jafnan hver hugur Magnúsar væri, sýndi hann bæði öðrum lífs- og sjónar- miðum þolinmæði og gat rætt þau öfgalaust og umborið. En Magnús bjó yfir þeirri náðargáfu að geta sett sín sjónarmið fram á skýran og einfaldan hátt, þannig að hann kom oftast sínum skoðunum fyrir í hugskoti viðmælenda sinna, jafn- vel þótt ekki væri það viðurkennt fyrst um sinn. Eins og fræjum sem sáð er í upphafi í vel gerðan akur er búinn langur og góður vöxtur. Sama gildir um vel meitl- aðar hugmyndir sem sáð er í huga ungs manns. Þær geta lengi þroskast og tekið á sig bætta mynd. Þannig höfðu hugmyndir Magnúsar víða og djúpa skírskot- un, þó þær væru settar fram með auðskiljanlegum hætti. Það er óneitanlega sárt, eins og að missa föður í annað sinn, að kveðja Magnús frá Stardal. Við- skilnaður er sannarlega áreynsla fyrir þá sem eftir eru. Það er þess vegna með smá eigingirni og mik- illi eftirsjá sem Magnús frændi er kvaddur nú. En lífið verður að hafa sinn framgang, því verður ekki viðsnúið. Við Steinunn og strákarnir sendum Þórdísi, Jóhannesi, Þórði og fjölskyldum þeirra hugheilar samúðarkveðjur okkar. Jónas Egilsson. Það er erfitt að ímynda sér til- veruna án Magnúsar föðurbróður míns í Stardal. Óneitanlega er sárt að sjá á eftir honum yfir móð- una miklu. Þó vissulega sé hugg- un að hann er nú laus úr viðjum elli og sjúkdóma, þá fannst manni hann aldrei vera gamall. Hann var lifandi ímynd hins íslenska karl- manns, hár, myndarlegur og hraustur. Sívinnandi og allt virtist leika í höndunum á honum. Magn- ús og Stardalur hafa alltaf verið e.k. kjölfesta og þungamiðja föð- urfjölskyldu minnar. Þar var Magnús öxullinn sem hélt öllu gangandi eftir að hann tók við af afa og ömmu. Upp í Stardal sótti öll stórfjölskyldan og þar var sí- felldur gestagangur og oft þétt setinn bekkurinn við borðstofu- borðið sem venjulega svignaði undan kræsingum Þórdísar. Ég man varla eftir mér öðruvísi en við fjölskyldan værum með annan fótinn uppi í Stardal, ekki síst á sumrin þegar bróðir minn var þar öll sumur í sveit. Eins voru fáar skíðaferðir í Skálafellinu sem ekki enduðu „heima í Stardal“ eins og pabbi var vanur að segja. Þangað var alltaf gott að koma. Enda held ég að Magnús og Þórdís hafi þurft að sætta sig við að hálf ættin teldi sig eiga heima þar líka. Þau tóku þannig á móti fólki að sú tilfinning kom auðveldlega. Ef það var mjaltatími þá var bara farið í út fjós og heilsað upp á þau þar. Það var lærdómur út af fyrir sig. Ýms- ir höfðu orð á því hvað það væri fallegt að koma að Stardal, reisu- leg hús, allt svo snyrtilegt og vel hirt. Það lýsir þeim hjónum vel. Magnús kenndi manni ótal- margt, beint og óbeint við það eitt að leyfa manni að fylgjast með og jú stundum líka hjálpa til. Enda var hann þolimóður að útskýra hlutina fyrir forvitnum krakka sem vildi vita af hverju þurfti að gera hlutina svona eða hinsegin. En það var líka viss lærdómur að sitja við borðstofuborðið í Stardal og hlusta á umræðurnar þar sem oft voru líflegar yfir kaffinu. Hvort sem það var um þjóðmálin, bókmenntir eða rysjótt tíðarfarið. Að ekki sé talað um bæina í kring, sveitunga og örnefnin. Kímnigáfa var heldur ekki langt undan hjá frænda og hann átti til að lauma bráðskemmtilegum tilsvörum að. Hann hafði mikið jafnaðargeð, ég man ekki til þess að hafa nokkurn tíma heyrt hann æsa sig, þó oft hefði hann sínar skoðanir á hlut- unum, þá virtist hann alltaf jafn rólegur, en ákveðinn samt. Það er því með mikilli eftirsjá sem ég kveð Magnús frænda en hugga mig við ótal skemmtilegar og góð- ar minningar. Ég sé hann enn ljóslifandi fyrir mér í bláa stakkn- um og með derhúfuna við vinnu í Stardal. Eða í sætinu sínu við end- ann á borðstofuborðinu. Því miður urðu þau Þórdís fyrir því skelfi- lega áfalli að missa elsta son sinn Jónas, tæplega 8 ára gamlan í bíl- slysi. Þá reyndi á styrk sem eng- inn á að þurfa að hafa, en þau höfðu hann og stóðu það áfall af sér saman. Óneitanlega er sú hugsun huggandi nú að þeir fegð- ar séu nú saman á ný og það er sú mynd sem ég kýs að hafa í huga. Þórdísi, Jóhannesi, Þórði og þeirra fjölskyldum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur frá Kaliforníu. Minningin um góðan mann, pabba, afa og frænda mun lifa. Kristrún Þórdís. Í dag kveð ég elskulegan frænda minn, Magnús í Stardal. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vera hjá honum í sveit á unga aldri. Minningarnar birtast mér á tímum sem þessum í ýms- um myndum og tímaröð. Það var mikil upplifun fyrir unga stúlku og ábyrgð að takast á við sveita- lífið á þeim tíma. Í huga mér standa alltaf uppúr ein jól sem ég átti í Stardal, sérstaklega er það skammel sem ég fékk í jólagjöf frá Magnúsi sem hann hafði smíðað sjálfur. Það var lítil stolt og mont- in stúlka sem fór í fjósið með frænda sínum það aðfangadags- kvöldið með jólagjöfina undir hendi. Þessi ár í Stardal voru ár frelsis og þroska undir stjórn þessa ljúfa manns sem alltaf var svo góður og gefandi. Magnúsi var mjög annt um íslenska tungu og voru blótsyrði bönnuð á bæn- um og við því ríktu oft góðlátleg viðurlög. Þetta hefur alltaf fylgt mér og vitna ég oft í hann ef ég heyri einhvern blóta. Magnús kenndi mér að bera virðingu fyrir náttúrunni, dýrun- um og öllu því sem jörðin gaf af sér. Ég er þakklát fyrir að hafa alltaf verið hluti af honum og hans fjölskyldu og hafa gætt drengjana hans fyrstu æviár þeirra. Þrátt fyrir að hafa búið erlendis í ára- tugi rofnuðu aldrei þessi nánu fjölskyldubönd. Ég kveð þennan mæta frænda með þakklæti og virðingu. Þór- dísi, Jóhannesi, Þórði og fjöl- skyldum votta ég mína dýpstu samúð. Björg Sigurðardóttir (Didda). Ég var einn af strákunum hans Magnúsar í Stardal. Núna þegar ég minnist Magnúsar frænda míns, sem fóstraði mig nánast á hverju sumri frá sex ára aldri til 17 ára aldurs, er mér efst í huga þakklæti fyrir alla þá umhyggju og umburðarlyndi sem hann sýndi mér öll þessi sumur. Ég var alltaf kominn fyrir sauðburð á vorin og fór ekki aftur fyrr en eftir réttir á haustin. Núna þegar nákvæmlega hálf öld er liðin síðan ég kvaddi Stardal sem sumarmaður og hugsa til baka um veru mína þar, hellast yfir ótal fallegar og ljúfar minningar um frænda minn sem var sérstaklega barngóður, þolin- móður og hafði alltaf nægan tíma til að sinna okkur strákunum og leiðbeina. Hann var einstakur lærifaðir í öllum bústörfum þ.m.t. að kenna okkur ungum á drátt- arvélarnar sem stendur einna hæst í minningunni, en Stardalur var stórbýli og örugglega í farar- broddi hvað varðaði vélakost á þessum árum. Ég var herbergis- félagi Magnúsar fyrstu sumrin í Stardal. Í herberginu var ágætis bókasafn íslenskra stórskálda og hvatti Magnús mig óspart til að lesa bækur þeirra. Það minnir mig á að Magnúsi var ákaflega annt um að við töluðum gott ís- lenskt mál og var mjög iðinn við leiðrétta okkur og leiðbeina okkur til betri vegar og hef ég búið að því síðan. Hver vinnudagur byrj- aði í fjósinu og endaði oftast á sama stað. Í fjósinu var oft glatt á hjalla, þar fóru fram rökræður um málefni líðandi stundar, einkum pólitík, og oftar en ekki var rök- ræðum ekki lokið þegar mjöltum lauk. Því voru oft framhaldsfundir í næstu mjöltum, a.m.k. skorti okkur aldrei umræðuefni. Á kvöldin fórum við oft út á Leir- vogsvatn með Magnúsi að veiða silung, fórum í reiðtúra, tefldum, lásum og eða héldum áfram í hey- skap ef með þurfti. Frá þessum sumrum mínum í Stardal á ég ein- göngu góðar minningar og sér- staklega er ég þakklátur Magnúsi fyrir okkar vináttu og virðingu alla tíð. Ári eftir að veru minni í Stardal lauk kom Þórdís og nýr og ham- ingjusamur kafli hófst í lífi frænda. Blessuð sé minning hans. Guðmundur Friðrik Sigurðsson. Látinn er öðlingurinn Magnús Jónasson, bóndi í Stardal. Það var mitt lán að ég var send- ur til sumardvalar í Stardal þegar ég var 8 ára gamall og var þar við störf næstu 6 sumrin. Á þessum mikilvæga tíma í uppvexti ungs manns naut ég handleiðslu og til- sagnar Magnúsar við dagleg störf. Á stóru og umsvifamiklu býli, sem Stardalur var, voru störfin margvísleg. Magnús var mjög verklaginn maður og jafn- vígur á tré sem járn, byggði flest útihús sjálfur og gerði við vélar og tæki og annað sem til féll. En Magnús var ekki aðeins handlag- inn heldur bar hann ómælda virð- ingu fyrir skepnunum, jafnt smáum sem stórum. Aldrei lét hann okkur krakkana vera við- stödd slátrun þó við kæmum að verki strax á eftir og tækjum þátt í frágangi. Eins og gefur að skilja vörðum við „vinnuhjúin“ miklum tíma með Magnúsi við hin ýmsu störf og kom hann fram við okkur eins og jafningja. Magnús var mikill sjálfstæðismaður og hafði sterkar skoðanir á þjóðmálum. Hann var mjög rökfastur og hafði unun af að rökræða alla hluti og helst vildi hann ræða við þá sem voru á öndverðri skoðun. Hann hafði oft skemmtilegan vinkil þeg- ar við vorum einir og kenndi mér orðatiltæki og heilræðavísur sem voru ekki á hvers manns vörum. Mér er það minnisstætt að þegar ég kom fyrst í Stardal hafði ég fengið rauða peysu, ég var í henni þegar ég kynnti mig fyrir Magn- úsi og þegar ég sagðist heita Sveinn Áki leit hann á peysuna og sagði að ég væri eins rauður og nafni minn Áki Jakobsson og var ég aldrei kallaður annað en Áki eftir það í Stardal. Ekki fannst mér síður skemmtilegt að vera í Stardal að vetri til, hjálpa við tilhleypingar og jafnvel að þurfa að fara með mjólkina á hestasleða til móts við mjólkurbílinn. Í Stardal fékk ég ungur áhuga á hestum og hef ég alla tíð haft hestana mína í sum- arbeit þar, það er mín tenging við sveitina. Ég er sannfærður um að ef Magnús hefði ekki orðið bóndi hefði hann orðið góður lögfræð- ingur. Magnús var mjög vandur að virðingu sinni og sagði ekki neitt í fljótheitum eða eitthvað sem hann myndi sjá eftir. Magnús var mjög bóngóður maður enda alinn upp á þeim tím- um þegar margir þurftu á aðstoð að halda og fylgdi þeirri lífsstefnu foreldra sinna að þeir sem ættu eitthvað að gefa, ættu að deila með öðrum. Ekki fékkst hann heldur til að æsa sig yfir þeim sem brutu á rétti hans, hvort sem um veiðiþjófa væri að ræða eða þá sem sýndu annan yfirgang. Magnús sótti sér mikla kosta- konu í næstu sveit, Þórdísi Jó- hannesdóttur frá Heiðarbæ í Þingvallasveit, og var mikill jöfn- uður og samstaða með þeim hjón- um alla tíð. Þau eignuðust þrjá myndarsyni en urðu fyrir þeirri miklu sorg að missa elsta soninn af slysförum barn að aldri. Okkar vináttu lauk ekki eftir vinnumennsku mína heldur hélt hún áfram til dagsins í dag og er ég fullur þakklætis fyrir þann tíma sem við áttum saman, þá leiðsögn sem hann veitti mér og þau áhrif sem hann hafði á veg- ferð mína. Ég vil votta Þórdísi, Jóhannesi og Þórði, eiginkonum þeirra og barnabörnunum sem hann var svo stoltur af, samúð mína. Sveinn Áki Lúðvíksson. Vinur minn og nágranni, Kjal- nesingurinn Magnús Jónasson bóndi í Stardal lést nú fyrir skömmu á heimili sínu að Hlað- hömrum eftir veikindi og sjúkra- húsvist um nokkurn tíma. Magn- ús varð 85 ára gamall og er það nú nokkur aldur en við viljum nú að vinir manns verði lengur á meðal okkar en öll förum við víst þessa leið að lokum. Undirritaður vill minnast Magnúsar hér með þakk- læti og hlýju. Fyrstu kynni hófust þegar ég fór með föður mínum ríðandi upp í Stardal í árlegt fóð- ureftirlit, mér fannst þetta ávallt skemmtilegur dagur. Mikið var faðir minn ánægður með alla um- hirðu búfjár og gnægð heybirgða fyrir veturinn. Ekki vorum við feðgar látnir fara svangir heim frá Magnús Jónasson Elsku Stefanía mín, í dag er komið að jarðneskum leiðarlok- um hjá okkur eftir 20 ára ferða- lag. Ég er endalaust þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og verið vinkona þín. Okkar vinskap er best lýst með þessu ljóði. Umhyggjusöm ertu, vinaleg og góð, til þín vildi ég semja þennan óð. Þín gleði og hlátur alltaf mig gleður. Að heyra í þér aldrei mig tefur. Sérstök, dugleg, traust og trú. Vitur, hjálpsöm … það ert þú. Hlý og bjartsýn, til í spjall. Þú getur stoppað hið mesta fall. Einstök, stríðin, líka feimin. Hugrökk, djörf, stundum dreymin. Stefanía Þorgrímsdóttir ✝ Stefanía Þor-grímsdóttir fæddist á Húsavík 11. apríl 1950. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 30. september 2013. Útför Stefaníu fór fram frá Foss- vogskirkju 10. október 2013. Allt jákvætt get ég sagt um þig, alltaf áttu tíma fyrir mig. Vináttan okkar er mér mikils virði. Vinkonur verið frá Reykjavík, eitthvað sérstakt höfum við átt, huggað hvor aðra, þegar eigum við bágt. Alltaf er gott að leita til þín. Þú ert besta vinkona mín. Þakka vil þér af öllu hjarta. Engu hef ég yfir að kvarta. Alltaf munt þú eiga mig að. Því í hjarta mínu áttu stað. Því ég lofa um eilífð alla. Ef einhvern tíma þarft́að kalla. (Katrín Ruth) Elsku Gunnar, Ása, Starri, Guðrún, Hreggviður og barna- börn, ykkur votta ég mína dýpstu samúð og megi Guð og góðir vættir styrkja ykkur á þessum erfiða tíma. Ólafía (Lóa).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.